Land & synir - 01.12.1995, Page 1

Land & synir - 01.12.1995, Page 1
Skuldlausir meðlimir Félags kvikmyndagerðarmanna fá félagsskírteini með blaðinu að þessu sinni. Ljósmyndavörur lif. í Skipholti bjóða 10% afslátt af vörum og framköllun gegn framvísun skírteinis og unnið er í því að útvega félagsmönnum frekarlafsláttarkjör. Aðrir félagsmenn eru hvattir til að draga upp budduna hið snarasta svo FK megi þrífast og fá þeir skírteinið sent um hæl. LEIKREGLUmVAR: Félagi Renoir birtist sjálfur í myndinni. Leikreglurnar í Regnboganum I^tilefni af hundrað ára afmæli kvik- myndarinnar (eða hundrað ára af- mæli gjaldtöku af kvikmyndasýningum, eins og Godard orðaði það fyrir skömmu) hefur Kvikmyndasafnið staðið fyrir sýningum á ýmsum sígildum myndum og er ætlunin að halda því áfram vei fram á næsta ár (sjá nánar inní blaðinu). Fimmtudaginn 2. nóvember verður hin fræga mynd Jean Renoir, Leikreglurnar eða La Regle Du Jeu frá 1939 á tjaldinu í Regnboganum. Breska kvikmyndablaðið Sight and Sound stendur á tíu ára fresti fyrir vali á bestu kvikmyndum sögunnar, meðal gagnrýnenda um allan heim og í áratugi hefur þessi mynd verið í efstu sætunum ásamt meðal annarra Citizen Kane og Tokyo Story (Ozu). Þær tvær munu reyndar væntanlegar á dagskrá síðar ef allt gengur upp. En Oddný Sen kvikmyndafræðingur hefur þetta að segja um Leikreglurnar. “Þessi snilldarlega samfélagskómedía Renoirs var upphaflega bönnuð þar sem hún var talin hafa “siðspillandi og mann- skemmandi áhrif” og var ekki sýnd aftur fyrr en árið 1956. Eins og bestu myndir Renoirs frá franska tímabilinu, eru heimspekilegar hugleiðingar um framtíð mannkynsins teknar fyrir í hnotskurn. Leikreglurnar gerast á frönsku óðalssetri þar sem mikil veisla stendur yfir. Allar stéttir í frönsku þjóðfélagi, frá yfirstétt til betlara koma fram í veislunni og eru miskunnarlaust krufnar á bæði átakanlegan og bráð- fyndinn hátt. Ástarflækjur, afbrýðisemi, öfund og undirferli, auk annars mann- legs breyskleika er skoðað af hispurs- leysi og fordómaleysi til að varpa ljósi á stéttaskiptinguna í Frakklandi samtímans”. Til félagsmanna FK. Marteinn St. Þórsson skrifar um Naked Lunch og margt fleira. Niðurskurður á framlagi til Kvikmyndasjóðs I^fjárlagafrumvarpi fyrir 1996 gerir fjármálaráðherra tillögu um 93 milljón króna framlag í Kvik- myndasjóð. Að öllu jöfnu ætti framlagið að vera um 111 milljónir króna. Gangi þessi tillaga eftir, verða tæpar þrjátíu milljónir til úthlutunar á næsta ári auk þeirra fjörtíu milljóna sem Djöflaeyjan og Ungfrúin góða og húsið fengu vilyrði um við síðustu úthlutun. Einnig má búast við því að gefin verði vilyrði um styrki sem kæmu til úthlutunar 1997. Kostnaður við rekstur sjóðsins og Kvikmynda- safnsins, kynningarmál og þáttaka í erlendum sjóðum nemur um tuttugu og fjórum milljónum. í úthlutunar- nefnd sitja Markús Örn Antonsson, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir og Laufey Guðjónsdóttir. Umsóknarfrestur rennur út um miðjan nóvember. m

x

Land & synir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Land & synir
https://timarit.is/publication/1279

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.