Landneminn - 09.06.1891, Blaðsíða 1

Landneminn - 09.06.1891, Blaðsíða 1
 X L a n d n e m i n n. _ \v Frjettir frá Canada og Islendingum þ T Fol TfO? Ign 1. BLAÐ. REYKJAYÍK, 9. JÚNÍ. 1891. Ú eru liðin 20 ár síðan útflutningar hófust frá Islandi til Canada. I Manitoba og Norð- vesturlandinu og hinni Brezku Columbíu eru nú þegar um 10,000 Islendingar úr öllum sýslum og sveitum þessa lands, og er það fullur áttundi partur af allri íslenzku þjóðinni. Meginþorri þessa fólks býr í Manitóba. Aðaltilgangur þessa blaðs er að færa frændum vorum á Islandi „Frjettir frá Canada og íslending- um þar“. Astæðan fyrir tilveru blaðsins er sú, að greini- legar frjettir frá oss að vestan komast ekki að í blöðunum hjer. Þau eru svo lítil, að þau rúma ekki meira en það sem að þeim berst hjeðan um Islands gagn og nauðsynjar. En frjettir frá Yest- ur-íslendingum hafa allt að þessum tima ekki eig- inlega þótt heyra undir þá yfirskrípt. Blöðin hjer hafa því verið afskiptalaus af vorum málum, nema Isafold, sem fæst tækifæri hefir látið ónotuð til þess, að fræða lesendur sina um Canada og hagi íslendinga þar, eptir því sem þekking hennar á þeim málum hefir leyft það. Með henn- ar tilstyrk var gefin út fyrir 3 árum hinn nafn- frægi bæklingur Grröndals „Um Yesturheimsferðir“. Það er að visu satt, að Yestur-Islendingar halda úti tveimur afarstórum og ágætum íslenzkum vikublöð- um í Winnipeg. En þau blöð hafa hjer á landi tiltölulega mjög fáa kaupendur, og þess vegna hefir almenningur hjer nálega engar frjettir frá oss að vestan aðrar en þær sem flytjast í prívat-brjefum, sem þá vanalega eru persónulegar og gilda að eins fyrir þá sem þær eru stílaðar til. MINNI Vevturhei&i. Eptir Einar Hjörleifsson. (Sungift á þjftðhátið íslendinga i Winnipeg 2. ágúst 1890) Önnur lönd með ellifrægð sig skreyta, æfalöngu dauðum kappa-fans, út í dimma fornöld lýsa’ og leita lífsins perlum að og heiðurskrans. Þú ert landið þess er dáð vill drýgja, dýpst og sterkast kveður lífsins brag. Þú ert land hins þróttarmikla’ og nýja, Þú varst aldrei fegri’ en nú — í dag. Önnur lönd í kónga-dýrð sig dúða, dýrast meta fágað líf í sal. Hjer er starfið skærara’ öllum skrúða, skýrast aðalsmerki snót og hal. Hjer er frelsið lífsins ljúfust sunna, líka fólksins öruggasta band. Allir þeir sem frelsi framast unna fyrst af öllu horfa’ á þetta land. Yesturheimur, veruleikans álfa, vonarland hins unga, sterka manns, fyll þú móð og manndáð okkur sjálfa móti hverjum óvin sannleikans; lypt oss yfir agg og þrætu-diki upp á sólrík háfjöll kærleikans. Yesturheimur, veruleikans ríki, vonarland hins unga, sterka manns! Oss finnst nú hvorttveggja vera kominn tími og fyllsta nauðsyn til þess að ráða nokkra bót á þessu, þannig, að vjer, sem vestur erum fluttir, eigum vald á einhverju málgagni hjer á landi, sem gefi sig eingöngu við málum Islendinga í Canada, fræði menn hjer um framkvæmdir vorar og framfarir og um framfarir Canada í heild sinni. Þetta verk á Landneíninn að vinna. Blaðið verður sent út um landið sem fylgiblað með Fjallkonunni, og kemur út annanhvorn mánuð fram að næsta nýári. B. L. Baldwinson. i Ný hlunnindi fyrir vesturfara til Canada. Til leiðbeiningar þeim, sem þegar hafa ásett sjer að flytja til Canada og þeim sem framvegis kunna að flytja vestur, skal þess getið, að Canadastjórnin hefir nú ákvarðað að veita vesturförum eptirfylgj- andi hlunnindi: 1. Sjerhver fjölskyldufaðir, sem flytur til Oanada, , fær bkeypis eins og áður hefir verið 160 ekrur af ónumdu stjórnarlandi og má hann velja það hvar sem hann vill í Manitoba eða Norðvestur- landinu. 2. Taki hann heimilisrjett og byrji búskap á 160 ekrum, af hinu ofangreinda gefna stjórnarlandi

x

Landneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Landneminn
https://timarit.is/publication/138

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.