typf. /¦ ~cr 1. tbl. Seyðisfiröi, 1. janúar 1920 1. árg. Ávarp. Gleðilegt nýjár, góðir íslend- ingar. Með nýju ári drepur blaðið Austurland" á dyr yðar. Og glæsi- Iegt og giftusamlegt virðist að byrja starf sitt með nýju ári. Því að þótt tíminn sé órjúfanleg heild, og vér sjáum hvorki fyrir upp- haf hans né endi, þá höfum vér* sjálfir markað honum takmörk og skift honum, og þannig verðut honum því varið í meövitund vorri: Og þess vegna er sem eitt- hvað hátíðlegt og mikilvægt fylgi áramótunum. Vér vitum hvað liðið er, en hvað tekur við? Og ef vér ætlum einhverju að afkasta, getum vér eigi lagt aí stað vonlausir og svarísýnir. Vér vitum, að vér mætum skuggum á braut vorri, ef til vill sortaog þoku, en sólin vakir yfir, og aldrei vík- ur hún, en þokan hverfur í ýmsar áttir, eftir þvt' sem vindur blæs. Og Austurland" hefur eigí til þess af stað lagt að ferðast í þoku og sorta. Enda óskar það víða við að koma, en íslenzkir vegir lítt ruddir og víða villu- gjarnt í fjalldölunum þröngu, þar sem fossarnir syngja öðrum þræði um gull, en öðrurn þræöí um dýrmætt þjóðerni og helgar og hjartfólgnar menjar. En menn munu spyrja vilja Austurland" sem aðra gesli, hvort það fari með góð eða ill erindi, og mun þar auðvitaö svarið. Engi leggur á staö og treystir gest- risni manna, með ilt fyrir augum. Vér vonum því hins bezta um móttökurnar og hyggjum þar engu á íslendinga logið, þá sagt er,. að þeir séu manna gestrisnastír gesti og gangandi, síðar munu þeir um það dæma, hvort gestur- inn hafi með farið fals og flátt- skap, er hann sagðist góðu heilli knýja dyra. Austurland" mun kappkosta að verða svo úr garði gert, að það færi flestum eitthvaö, sem þeim þyki einhvers um vert, sér- staklega munum vér þó leggja á- herzlu á það, sem Austurlandi Nathan & Olsen Seyðssf irði Hafa fyrirliggjandi: Chocoiade, 2 teg. Karameliur, 4 teg. Brjósísykut;, 2 teg. Rúsínur Sveskjur Ávexti í dósum Þurkaða ávexti Kaífi, Ríó 1., Santos Kartöflur og Lauk Exportkafl'i Eldspítur, Rowing" Hessian, 72" Þakpappi, 94 cm. Þvottabretti Kerti, stór Strausykur Mjólk, Bordens" Mjólk, Libby's. Krydd í bréfum, alsk. Citron- Vanille- og Möndludropa Búðingsefni Leo 33" Tabletter Jólakerti Vindlar, Special Sunripc" Cigarettur, Reyktóbak og margt fleira. Aðeins fyrir kaupmenn og kaupfélög. má að haldi koma. Eigi munum vér svo mjög láta oss umhugað um það, að alt láti öllum sem allra bezt í eyrum, eða það sé svo sein þeir eru vanastir, heldur frekar hitt, að halda því fram í hverju máli, sem oss finst sann- ast og réttast og bezt megi að haldi koma, er á reynir. Umræður munum vér leyía um öll þjóðmál og nytjamál, ef rit- að er af kurteisi og stíllingu; en foröast munum vér allan róg, persónulegar skammir og annað það, er engu góðu máleíni má að haldi koma, en nú viröist efst á baugi hjá þeim blöðum, sem mest hafa sig í frammi hjá þjóð vorri. Ef vér víkjum nánar að stefnu vorri, þá er þar um að segja, að andlegan þroska þjóðarinnar, mennihgu liennar og þjóðerni íeggjum vér mesta áherzlu á og frelsi og víðsýni á öllum sviðum. Atvinnumálin munum vér ávalt öðru hvoru taka til umræðu og gera öllum atvinnuvegum jafnt undir Iiöfði, sem inega oss að haldi koma, en hlífast eigi við því, að leggjast fast á móti þeim, sem geta oröið oss eða þjóðerni voru til ógiftu, hvort sem þeir auka stundarhagnað eður eigi. í verzlunarmálum munum vér halda fram fullu jafnrétti kaup- félaga og kaupmanna, frjáls og heilbrigð verzlun mun verða kjörorð vort á því sviði. Og með tilliti til verzlunar- og atvinnu- mála munum vér styðja að sem allra mestum og beztum samgöng- um á sjó og landi, og þeim helzt innlendum. Vísindi og listir munum vér styðja og reyna að vekja skilning almennings á gagnsemi þeirra, sem og góðra nýtízkuskóla. % Fréttir, erlendar og innlendar, munum vér. kappkosta að flytja sem beztar og áreiðanlegastar, eftir því, sem vér eigum kost á. Sögur og kvæði, þýtt og frum- samið, munum vér birta, að því er rúm leyfir, og gera oss far um að það sé við sem flestra hæfi. Smátt og smátt munum vér taka til umræðu í blaðinu ðfl 'pau mál, sem nú eru efst á baugi meðal þjóðarinnar, og hirðum vér eigi um þau að fara fleiri orðum í ávarpi þessu, því að slíkt gæti aldrjj orðið annað en kák. Með von um gott starf og góð- an árangur og heillavænlegan ljúkum vér svo þessu máli. Ritstjórinn. Kosninprnar og skipun þingsins. Þar sem vér hyggjum að þorra manha muni kunn orðin úrslit kosninganna, hirðum vér eigi um að telja hér nöfn hinna kosnu, heldur að eins fara nokkrum orðum um það, hvern veg til kosninganna var stofnað og hvern veg líkur eru um störf þingsins og flokkaskiftingu. Mörgum mun hafa þótt all- bráður bugur undinn að kosning- unum í haust. Mörg mál og stór lágu fyrir, þingi síðla lokið, og öllum almenningi því alls-kostar ómögulegt að kynna sér aðal- málin svo, að hann gæti með góðri samvizku gengið að kjör- borðinu. Jafnvel hinir mestu á- hugamenn um landsmál, þeir, sem út uni land búa, gátu eigi aflað sér viðunandi þekkingar á