Vikan - 20.04.1912, Blaðsíða 1

Vikan - 20.04.1912, Blaðsíða 1
I. ár (1 ) 1. ársfj. ! tb!. Fyrir auglýsingar Fyrir auglýsingar dac^aBsuvs Ársfjórðungurlnn kostar innanlands 60 au. sem greiðist fyrirfram. Erlendis 75 au. eöa 20 cents. 1. ársfjórðungur er talinn til júlíloka. — Fastir útkomudagar mánudagar. Aukablöð við og við. Vikuútgáfa dagblaðsins Vísis. Sökurn þess að burðargjald undir Vísi út um land og til útlanda, er svo mikill hluti af verði blaðsins og oð nokkuð af því sem í blað- inu stendur er um málefni, sem eingöngu varðar Reykjavíkurbúa, þar með talin mestur hluti þeirra auglýsinga sem þar eru — þá hyggur útg. að gefa út vikuútgáfu af blaðinu, þar sem í sjeu allar helstu frjettir hlaðsins og œtti það blað að verða langfrjettaauðugast vikublað landsins. Þótt þetta fyrstatölublað komi nú, á sumardaginn fyrsta, þá er ekki œtlast til að útgáfa blaðins verði reglubundin fyr en í nœsta mán- uði, og telst fyrsti ársfjórðungurinn til júlíloka. Verði gefin út auka- blöð eru þau kaupendum kostnað- arlaus. Blaðið kemur út mánudaga og kostar ársfjórðungurinn 60 au. og borgast um leið og sagt er til áskriftar á blaðinu. NýS stjórnmála- flokkurinn. Marga mun fýsa að vita hvað það er sem stjórnmálamenn vorir eru r.ú að bræða með sjer og vill Vísir því birta aðal undirskriftaskjal- ið. Annað skjal þeirra fjelaga, sem undir hafa ritað Björn Jónsson, Hannes Hafstein, Jón Ólafsson og Sigurður Hjörleifsson veröur ekki birt að sinni. Breytingartillögur við ‘ Uppkast að lögum um rikisrjettar- samband íslands og Danmerkur*. J. gr- fyrri málsgrein orðist svo: ísland er frjálst og sjálfstætt ríki í sanibandi við hið danska ríki um einn og sama konung og þau mál, er báðir aðilar hafa orðið ásáttir í lögum þessum, að sameiginleg skuli vera. Ath. Til samkomulags er það ekki talið frágangssök, ef ekki er annars kostur, að bætt sje við máls- greinina þessu: Veldi Danakon- ungs er þannig ríkjasamband, er ríki þessi mynda. 2. gr. I aths. Sje þess látið getið, að báðir aðilar gangi að því vísu, að þegar því verður við komið, verði með löggjöf tekinn til greina rjettur íslands til þess að taka þátt í kon- ungskosningu. 3. gr. 2. liður orðist svo: Utanríkismálefni. Enginn þjóð- arsarnningur, er snertir íslensk mál, skal gilda fyrir ísland, nema rjett stjórnarvöld íslensk samþykki. Aths. Það athugast, að menn sætta sig við það, að undanþegnir sjeu hermálasamningar, ef þess verð- ur krafist. 3. gr. 3. Iiður orðist svo: Hervarnir á sjó og landj ásamt gunnfána. Sjerhver vopnfær maður á íslandi er skyldur að taka sjálfur þátt í vörn Iandsins eftir því sem nákvæmar kann að verða fyrirmælt þar um með lögum, sem alþingi samþykkir og konungur staðfestir. Að öðru leyti skulu heimilisfastir Islendingar á Islandi ekki vera skyldir til herþjónustu, hvorki í landher nje flota og má ekki reisa neina herkastala, nje gera víggirtar hafnir nje skipa setuliði á íslandi nema íslensk stjórnarvöld samþykki. Aths. Leitað sje fyrir sjer um það. að ísiand út af fyrir sig geti fengið viðurkent hlutleysi sitt. 3. gr. 4. liður: f stað orðanna: »Efter Overens- komst með Danmark? komi: »Un- der Iagttagelse af internationale Hen- syn« eða »efter Overenskomst med Danmark angaaende Udövelsen heraf«. 4. gr.: f stað orðsins. »deriblandt« í danska textanum komi: »saasom.« 5. gr.: Aftan við 1. málslið bætist: »að öðru jöfnu«. 6. grein orðist svo: Þangað til öðruvísi verðurákveð- ið með lögum, sem ríkisþing og alþingi samþykkja og konungurstað- festir, fara dönsk stjórnarvöld einnig fyrir íslands hönd með ríkisvaldið fyrir málum þeim, sem sameiginleg teljast samkvæmt 3. gr. sbr. Q. gr., þó þannig, að ísland Iætur íslensk- an ráðherra, búsettan í Kaupmanna- höfn og með ábyrgð fyrir alþingi sem ekki hefur öðrum stjórnarstörf- um að gegna, gæta hagsmuna sinna gagnvart hinum dönsku stjórnar- völdum í stjórn allra sameiginlegra mála, og skal hann eiga rjett til setu í ríkisráði Dana. 7. gr. fyrri málsgrein orðist svo: ísland leggur fje á konungsborð og til borðfjár konungsættmanna hlutfallslega eftir tekjum Danmerkur og íslands. Framlög þessi skulu ákveðin fyrir fram um 10 árísenn með konungsúrskurði, er forsætis- ráðherra Dana og íslenskur ráðherra undirskrifa. Að öðru leyti tekur ísland ekki, meðan það tekur ekki annan þátt í meðferð hinna sam- eiginlegu mála, annan þátt í kostn- aði við þau en að greiða laun hins íslenska ráðherra í Kaupmanna’nöfn. 8. gr.: Á eftir orðunum: »er fælles cller ikke« bætist: »i Henhold til § 3, jfr. § 9. 9- gr.: Eftir orðin: »gengur í gildi« í annari Ifnu í íslenska textanum, komi: »eða síðar«. Aftan við greinina bætist: alt samkvæmt tillögu þeirri, er fram er komin, eða hafi bæði þingin gert tillögu, þá samkvæmt þeirri tillög- unni, sem víðtækari er. Um framanritaðar breytingatillög- ur við frumvarp millilandanefndar- innar frá 1907 höfum við undirrit- aðir orðið sammála og heitum hver öðrum að vinna að því utanlands og innan, að frumvarpið með áður- töldum breytingum verði að lögum. í því skyni að þetta megi verða, höfum vjer afráðið og 'neitið hver öðrum að ganga saman í einn stjórnmálaflokk, er skipi sam- bandsmálnu í fremstu röð stjórn- málanna. Þeir af oss undirskrifuð- um, sem eru alþingismenn, heitum því að stofna þegar í þingbyrjun í sumar nýan þingflokk, er vinni að því framar öllu öðru, að sam- bandsmálið verði til lykta leitt sam- kvæmt áðurnefndu frumvarpi milli- landanefndarinnar með þeim breyt- ingum, sem skráðar eru hjer að framan. Reykjavík í apríl 1912. Björn Jósson, Hannes Hafstein, Björn Kristjánsson, Jens^ Pálsson, Jón Magnússon, Jón Ólafsson, Einar Hjörleifsson, Guðm. Björnsson, Jón Þorláksson, Ólafur Björnsson, Sig. Hjörleifsson, Sveinn Björnsson, Þorsteinn Erlingsson, Árni Pálsson. *yxí úUówdwm. Stórkostlegt slys. Sokkið eitthvert stærsta skip heimsins. 1653 menn farast London 18. apríl, kl. 4,48 e. h. Félksfluiningasklpið »Ti- tanic« rakst á hafísjaka ásunnudagskveldið ki. 10,25. Skipið sökk á mánudags- nóttina ki. 2,20 f. h. 705 menn komust af. 1653 menn fórust. þeirsem björguðust komatil New Yorkí kveid. Daily Mail. Petta ógurlega slys hefur orðið á miðju Atlantshafinu, eða ef til vill nokkru vestar. Pólstraumurinn ber geysistóra fjalljaka með sjer á hverju vori norðan úr Grænlandsóbygðum suður á móts við Nýfundnaland eða sunnar, svo að jafnvel eru dæmi til, að jakar hafi sjest á 36. stigi n. br. (á móts við Gibraltar á Spáni). Jakarnir flækjast inn f Golfstrauminn og hafa margoft orðið skipum að tjóni. Má nærri geta, að ekki er gott að varast þá í náttmyrkri, eins og verið hefur, þegar þetta slys varð, og ef til vill í þoku eða roki. »Titanic« var spánnýtt skip, sem WhiteStarAínan átti; hljóp af stokk- unum í sumar sem leið, og var að öllu hið vandaðasta og full- koninasta fólksflutningaskip, sem til var í heimi. Pað var 43,000 smái. að stærð og var smíðað til þess að keppa við skip Cun- nard-línunnar, en stærstu skip hennar eru 32,500 smál. Skipið hefur verið nær fjórar klukkustundir að sökkva. Hefir það á þeim tíma getað sent loft- skeyti um atburðinn og líklega hefur eitthvert skip borið að, áður en skipið sökk, sem hefur getað bjargað þeim 705 mönnum, er komust Iffs af. Slysið er eitthvert hið stórkost- legasta, sem sögur fara af. Suðurför capt Scott’s. Fyrstu fregnír af för capt. Scott’s í Suður-íshafinu bárust norður í lönd frá Akahoa í Nýa-Sjálandi 2. þ. m. Skip Scotts, er »Terra nova« heit- ir, kom til Akahoa um síðustu mánaðamót og hafði fregnir af Scott og fjelögum hans til 3. jan. síðastl. Var hann þá á suðurleið til heimskautsins og átti eftir 150 enskar mílur þangað. Hafði hann þá sagt, að horfur væri vænlegar. vistir nógar og allir heilir á húfi. »Terra nova« hjelt norður úr íshafinu þegar hausta tók, en það er í sama mund, sem vora tekur á norðurhveli jarðar, — því að þýða ingarlaust var að bíða Scotts þar fyrr en ísa leysti með vorinu og fært væri um höfin, en það verður f fyrsta lagi í október í haust. Þá fer skipið suður aftur að sækja Scott og þá fjelaga. Er ekki að vænta neinna frjetta af þeim frek- ara fyrr en skipið kemur aftur úr þeirri för. Tjón á fararskjótum. Scott komst í mikinn lífsháska einu sinni, er hann ók með hundum suður jökla. Brast undan þeim snjórinn og steyptust allir í gín- andi jökulsprungu, en sleðinn hjekk á blá-brúninni. Komst Scott heill af þeim heljar-þremi. — Öðru sinni tapaði hann hestum, sem rak burl á stórum ísjaka, er brotnaði frá skör- inni þar sem hann hafðist við. Skipverjar láta mikið af ágæti hunda sinna og segja, að þeir hafi reynst betur en dæmi sje til áður á ferðum um íslöndin. Múlasna höfðu þeir og haft til reynslu, en þeir komu ekki að neinu haldi. Náttfari. Scott hagaði svo ferð sinni áleið- is til heimskauts, að hann var á ferli um nætur, en hvíldist um daga. Vísindalegar rannsóknir. Leiðangursmenn skiftust f flokka til vísindalegra rannsóknar-ferða um íshafs-löndin og láta mikið yfir á- rangrinum. — Einn af leiðtogum í þeim ferðum, Evans liðsforingi, veiktist af skyrbjúg og þröngdi svo að honum, að hann mátti hvorki hreyfa legg nje Iið. Hann var þá við þriðja mann. Varð annar þeirr eftir hjá honum meðan hinn sótti liðveislu annará fjelaga sinna um tveggja dagleiða veg. Þeir brugðu við með hunda sína og þakka þeim að þeir fengu borgið fjörvi Evans og komið honum til skips.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/218

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.