Þjóðin - 05.12.1914, Blaðsíða 1

Þjóðin - 05.12.1914, Blaðsíða 1
í * a= Stærsta stjórnmálablað hér á landi. Ódýrasta vikublaðið á öllu landinu. 1. árg, Reykjavík, Laugardaginn 5, desember 1914, 1. tbl. Þjóðin“. Álfustyrjöldin mikla, scm hefur þcgar haft svo mikilvæg áhrif víðsvcgar um jörðina, mun eflaust merkja íslandssögu með örlaga- ríkum atburðum — hvort sem þeir gerast meðan á ófriðnum stendur eða eptir hann. Jafnframt þessu eru veðurmerki mikilla hreyfinga að gera sín vart hjá íslensku þjóðinni sjálfri. Menn eru farnir að átta sig á því hjer, hvað gerst hefur í raun og veru, inn á við, um málefni Iandsins á síðasta mannsaldri. þjóðin sjer hvernig öðrum hefur miðað áfram á sama tíma og ber ástand sitt saman við kjör ann- ara, þar sem hún þekkir til. Og Bfrelsisbaráttan“ er nú skilin betur, bæði um löggjöf og stjórn í sjermálunum, sem svo eru köll- uð, og á því svæði sem almennu málin — hin ytri málefni íslands — ná yfir. Margir láta sjer auðvitað ant um það, að halda því áliti uppi, að hjer hafi orðið allar þær framfarir, og hjer hafi alt áunnist, sem vænta mátti. Standa þeir þar eðlilega fremst, sem á einhvern hátt hafa átt þátt í framsókninni til auðs og frelsis fyrir þjóðina — en margir, sem bera enga almenna ábyrgð hafa einnig gaman af því, að hugga sig við hinar stórstígu bre> iliiíiar, seni orðið hafa hjer til bóta — og er þá menningar- stigið auðvitað borið saman við ástandið eins og það var áður, en ekki við tiltölulegar framfarir annara þjóða. En þjóðin í heild sinni er ekki ánægð með ástandið. þrátt fyrir meinhægð og tómlæti margra, fer gremjan yfir árangri hinna al- mennu ráðstafana sívaxandi. Menn horfa t. a. m. á „bygging Reykja- víkur", „vegagerðirnar", „pen- ingaástandið" o. s. frv. og það sjcst, að skammsýni og aðgerða- lcysi hefur haldið þjóðinni aftur, þrátt fyrir allan einstaklings dugnað fólksins. Alt virðist þannig benda á, að vjer íslendingar stöndum nœrri tlmamötum — en þá vekjast hugir og kraftar þjóðarinnar til þess að láta sig skifta, hvernig henni er stjórnað. En nú er það ennfremur svo, að blöð og fímarit geta haft hin ríkustu áhríf tim árangurinn af baráttu þjóðarinnar — einkanlega inn á við, þar sem ræða er um aðgerðar- eða afskiftaíeysi þeirra, sem vald hafa um þjóðmálin. — Er þá mikið komið undir því, að slík verkfæri almenningsskoðana sem biöðin eiga að vera, geti únnið rjett og óháð fylgi við eldri Sokka, þegar nýr tími heimtar nýja úrlausn á vandamálum landsmanna. Af þessum ástæðum er það, að þetta blað, sem nú vill byrja að taka þátt í umræðunum um landsmál, er komið fram. — þeim sem hafa stofnað til þess hefur virst, að full þörf væri á því — eins og nú stendiur — að blað, sem enga fortíð á, geti staðið þjóðinni og málsttað hennar opið í komandi umrteðum um það, hvernig þjónar hennar og full- truar hafa unnið, vinna nú, og éiga að vinna fyrír velferð henn- ar, frelsi og hagsmuni. Frumskrá »þjóðariqnar“ kem- ur í ljós jafnótt, sem hin ýmsu landsmál verða tekin til athugun- ar í blaðinu: — En meginstefna blaðsins er það, að setja þjóðerni íslendinga, landsfrelsi og lands- rjett yfir öll önnur mál, þannig, að hvergi sje vikið eða haggað, vegna stundarhags eða stundarhygginda í flokksfylgi, eða af neinum öðr- um hvötum. „þjóðin" ætlar, með öðrum orðum, fyrst og fremst að skipa „politikinni" svo kölluðu niður á þann bekk, þar sem hún á heima, niður í þau landsmál sem fylgi má veita með því að „aka seglum eptir vindi“. Og þá verður það auðvitað fyrsta ætlunarverkið, að athuga, hvernig trúnaðarmenn þjóðarinn- ar standa nú gagnvart þeirri sjálf- sögðu reglu siðaðra stjórnmála- manna — og siðan að vega og virða starfsemi þeirra inn á við. Frá ríkisráðsfundinum Ráðherra segir af sjer. Fregnin um synjun stjórnar- skrárfrumvarpsins, sem tafist hafði nokkra daga á leiðinni vegna símaslits, barst til Rvíkur að kvöldi 2. þ. m. Hún kom eng- um þeim á óvart, sem skildi rjett afgreiðslu þingsins á þessu máli f sumar. Marklausi fyrirvarinn var ekki lagður þegjandi fram eins og margir fylgismenn fyrir- sláttarins munu þó hafa ætlast til. Ráðherrann bar hann þannig fram, að konungur hlaut að gera yfir- lýsingu um ósamræmi fyrirslátt- arins við frumvarpið sjálft og auð- og vita víst, að fjarstæðunni um gildi fyrirvarans gat ekki orðið haldið fram gegn lögfræðingum ríkisráðsins, nje gagnvart siðuðu og óhlutdrægu almenningsáliti er- lendis. það er alt annað, að standa hjer heima ábyrgðarlaus og fákunnandi með hæstarjettar- svip og sjálfgefið fulldæmi um alla hluti milli himins og jarðar og hrópa: klipt er það, eða skorið er það, í deildarsölum alþingis, sem eru svo auðvirðilega illa skipaðir,—heldur en að vinna mál- stað íslands fylgi með viti og Sigurður Eggerz, ráðherra. vitað jafnframt um óbreytt gildi síns eigin boðskapar. En við þetta bætist, að fullar skjalsannanir eru nú þegar fengn- ar fyrir því, að konungur áleit sig geta stjórnskipulega staðfest frumvarpið hefði fyrirvarinn verið borinn öðruvísi fram. Með öðr- um orðum, konungur og þar með ríkisráðið danska hafa stað- fest þann dóm óhlutdrægra manna og heilbrigðrar skynsemi á ís- landi, að fyrirvarinn var stjórn- skipuleg markieysa. Alt annað mál er það, að und- irskrift ráðherra var auðvitað nauðsynleg ásamt með undirskrift konungsins, og þar gat bæði ráð- herra og flokkur hans, að svo miklu Ieyti sem hann rjeði yfir gerðum ráðherra, ráðið niðurlög- um stjórnarskrárinnar. En hitt er °8 jafnvist, að hefði ráðherra skrifað undir, þá hefði stjórnar- skráin verið staðfest fyrirvara- laust að, lögum, með allri þeirri hcettu fyrir landsréttindin og þjóðarfrelsi vort, sem fyrirslátt- armennirnir lýstu sjálfir yfir, að stafaði af stjórnarskránni með boðskapnum óbreyttum. Hjá því mun ekki fara, að lands- menn fara nú að átta sig á því, hvernig valdaflokkurinn á þingi hefur komið fram í þessu máli. Alþingi var engin vorkun á því, að skilja þetta mál eins og það lá fyrir. Samtök um það, að ná tökum og umráðum á stjórn lands- ins knúði þingmennina til þess að halda fram bersýnilegri fjar- stæðu þvert ofan í öll rök og gettar lögskýringar. þeir máttu yirðingu við sannleikann, hjá Dönum og öðrum þjóðum, sem taka eftir löggjafarmálum íslend- inga. Úr því sem ráða var gat ekk- ert betra komið fyrir, en það sem orðið er. • Konungur vor á mikl- ar þakkir skilið fyrir það af þjóð- inni, að hann valdi þann veg, jafnt nú og við fyrri samþykt frumvarpsins frá þingsins hálfu, að koma hreint og beint fram og hafa ekkert á huldu í þessu mik- ilvæga máli. Konungurinn hefur með þvt, nú í annað sinn, stigið það spor í áttina til samvinnu Við þjóðina á íslandi, að mikil von virðist geta verið til heilla- vænlegra úrslita, þegar þeir, sem nú standa á milli konungsvalds- ins og þjóðarviljans íslenska, eru ýmlst dottnir úr sögunni, eða hafa fariíj heim og lært betur. Á. hinn boginn hlýtur alla að unclra, er þeir heyra því haldið fracn í ríkisráðinu, að einhverjir ein.stakir þingmenn skuli nú fara á k onungsfund til þess, að skýra það betur, sem ráðherra Sigurður Eggerz hefur tekið svo tvimæia- laufit fram á fundinum. Káðh. hefur komið þar svo drtmgilega fram og talað svo hreint og beint, einnig á vora hliit — að allir góðir íslendingar mitnu fagna því. Nú er því hreint borð milli ísleniiinga og Dana í stjórnar- skrármálinu — og þá er loks hægt fyrir þjóðina að sjá huldulaust, hva.r hún stendur í baráttunni um „lancf^rjettindi vor frá elstu tím- um“. 30. nóvember. Á ríkisráðsfundí á Amalienborg töluðu konungur og íslandsráð- herra í gær eins og hér segir og gjöra má kunnugt: Stjórnarskrármálið. ------— TiIIaga íslandsráðherra um staðfesting stjórnarskrárinnar hefir tekið upp orðrétta ályktun alþingis og endar svo á þessa leið: Urn leið og eg held mér við það, sem þannig er tekið fram í þingsályktuninni, skal eg samkvæmt því og með tilvísun til nefndrar þingsályktunar leggja það til, að stjórnarskráin verði staðfest. Konungurinn talar þar næst á þessa leið : Eins og eg lýsti yfir í ríkisráði 20. okt. 1913, er það ásetning- ur minn að staðfesta frumvarpið til stjórnarskipunarlaga um breyting á stjórnarskrá fyrir sérstök málefni íslands 5. jan. 1874 og stjórnar- skrá 3. okt, 1903, eftir að frum- varpið er nú samþykt óbreytt af alþingi, sem komið hefir saman eft- ir kosningar 11. apríl 1914, eer- andi ráð fyrir því, að fslandsráð- herra leggi fyrir mig úrskurð þann, sem var boðaöur á i áidum rikic ráösfundi, um framburð íslenskra laga og mikilsvarðandi stjórnarraö- stafana í ríkisráðinu, og sömuleiöis forsætisráðherrann hina boðuðu allrahæstu auglýsing til Danmerkur u.n það, sem eg lét í Ijósi þá í hinu opna bréfi mínu til íslands. Vegna þingsályktunar þeirrar, sem íslandsráðherra hefir tekið upp í hina allraþegnsamlegustu tillögu sína, er það vilji minn, að láta í ljósi það, sem hér segir: Það, sem fór fram í ríkisráðinu 20. okt, 1913, getur ekki skilist þannig, að framburður íslenskra sérmála fyrir konung í ríkisráði mínu sé með því lagt undir danskt löggjafarvald eða dönsk stjórnar- völd, en samkvæmt núgildandi skipun um ríkisréttarlegt samband milli Danmerkur og ídands getur framburður íslenskra laga og mik- ilsvarðandi stjórnarráðstafana ein- ungis trygt að þau séu íslensk sérmál og feli ckki í sér ákvæði sem snerta hin sameiginlegu ríkismálefni. Hin íslensku lög og mikilsvarðandi stjórnarráðstafanir verða þess vegna að halda áfram að berast fram í ríkisráði mínu og á því getur cng- in breyting orðið, nenia nieð lög- festing annarar skipunar, sem á sama hátt sem framburður í ríkis- ráðinu tryggir að rætt verði, og að úr vafa, sem kynni að koma fram, veröi leyst, hvort heldur er frá einni hlið eða annari um takmörkin milii hinnar sameiginlegu og hinnar sér- stöku íslensku löggjafar. Ráðherra talaði á þessa leið : f átyktun alþingis er því haldið algerlega föstu að framburður ís- lenskra niála fyrir konung sé ís- lenskt sérmál, og ennfremur er því haldið algerlega föstu að þetta sér- mál skuli ekki háð öðrum ákvæð- um en önnur íslensk sérmál. Af þessu leiðir að auglýsing sú til Danmerkur sem boðuð er í ríkis- ráðinu 2o. okt. 1913 er ósameinan- leg við það sem alþing heldnr fram. Með því að auglýsingin mundi leiða af sér að konungur bindi vilja sinn við það að gerast kynni eitthvað sem íslensk iöggjöf og sijórn væri ekki einráð um, og að konungi stæði því ekki frjáist fyrir um breytingar á ákvörðunum, sem kynnu að verða lagðar til frá ís- lendinga hálfu. Eg get ekki við- urkent, að sambandið milii Dan- merkur og fslands, hvort sem litið er á þess sögulegu, réttarlegu eða eðlilegu myndun, sé þannig, að nauðsynlegur sé vegna þess fram- burður íslenskra sérmála í víkisráð- inu, eins og eg heldur ekk' get viðurkent, að spurningin um sér- málaframburðinn í ríkisráðinu eða utau þess eigi að ieysast eftir öðru sjónarmiði en því íslenska. En út frá þessari grundvallarskoöun hafa menn ekki haft neitt á móti þvi, að verða við óskum Yðar Hátignar um málaframburðinn í ríkisráðinu, og eg mundi þessvegna á þeim grund- velli vcra reiðubúinn til þess að koma fram með tillögu fyrir Yðar Hátign samkvæmt því. En með því að eg verð að halda fast við af- stöðu fslendinga, sem kemur fram í ályktun alþingis, að framburður ís- lenskra mála fyrir konungi sé íslenskt sérmál, sem ákvarðað er um og bre_,ú ' verður einungis cftir peirn regium, sem giida um nm íslensku sérn, -xet eg ekki, svo þui.jil sem mér feliur það, lagt til Yðar konunglegu stað- festing á stjórnarskránni, án þess að það komi berlega og skýrt í Ijós, að íslandi varðveitist hinn gamli réttur þess. Eg hefi viljað taka þetta fram fyrir Yðar Hátign svo greinilega sem unt var, með þvíað eg er þeirrar skoðunar, að djúp samúð milli konungsins og ísfensku þjóðarinnar verði að byggjast á ský- lausum grundvelli. Konungurinn taiaði svo : Þar sem íslandsráðherra ekki vildi leggja til staðfesting stjórnarskrárfrum- varpsins, að athuguðum fyrirliggj- andi ástæðum, og lýsir því yfir að þær séu ósameinanlegar við vilja alþingi* verð ég að taka fram það sem nú skal greina: í opna bréfinu 20. okt. 1913, þar sem stofnað var til nýrra kosn- inga til alþingis gjörði jeg kunn- ugt, á hverju bygðist vænfónleg staðfesting mín á hinu nýa stjórnar- skrárfrumvarpi. Samtímis var að tilhlutun fslandsráðherra opinberlega birt yfirlysing mín í rikisráðinu, þar sem eg eftir ráði minna dönsku ráðgjafa gjörði kunnugt, að það væri ætlun mín að auglýsa í Danmörk það, sem eg hafði tekið fram í mínu opna bréfi til íslendinga — að eg mundi ekki breyta ákvörð- un minni um það, að hin ísiensku sérmál berist fram fyrir mig í rik- isráðinu, nema að ný skipun kynni að verða gerð um ríkisréttarlegt samband Danmerkur og íslands. Alþingi var þannig, þegar það end- urtók samþykki sitt á stjórnarskrár- frumvarpinu, fullkomlega vitandi um þessar ástæður, og ef það óskaði ekki að stjórnarskipunin fengi fram- gang með þessum skiiorðum hefði það átt að leita fyrir um, hvernig koma ætti sér saman um ástaeður frumvarpsins. Eg get þess vegna ekki álitið það alveg víst, að afstaða alþingis geti eins og ráðherrann lýsir henni verið þannig endilega ákvörðuð, og vil því skjóta því til hans, að gera þingmönnunum kunn- ugar yfirlýsingar mínar hér f dag og leita skýrari vissu um það, hvort það er svo, að alþingið óski ekki stjórnarskrárinnar með þeim skil- orðum, sem eg hefi sett fram og verð framvegis að halda fast við. Ráðherra talaði svo: Þegar litið er til þess hvernig alþingið verður að starfa á þeim stutta vinnutíma sem það hefir, varð ekki búist við þvf að hið ný- kosna þing 1914, gæti, eftir að hafa fyrst rætt og gert út um sína eigin afstöðu til þeirrar spurningar sem hér liggur fyrir — fengið tíma til þess áður en þingi var slitið, að leitast fyrir um það að kom- ð yrði sér saman um þær á- stæður, sem Yðar Hátign nefndi En á hinn bóginn gat eg ekki, er eg átti tal við Yðar Hátign á sumr- inu sem leið, látið uppi orðrétta ályktun alþingis. Eg hlýl einnig að álíta, að alþingið með þvf að láta í Ijósi fyrir Yðar Hátign áður en staðfesting stjórnarskrárinnar fer fram — skoðun sína, borna fram af hinum íslenska ráðherra, sem ber ábyrgð fyrir þinginu — hafi svo rækilega sem unt var, komið óskum sínum á framfæri. Eg er í engum vafa um það, að sá skilningur tnintt á þingsályktuninni, sem eg hef skýrt frá gefur rétta hug.r.ynd um hina ákveðnu afstöðu rcáisins og eg styð n $ ( ' . f' 'ú svo mjf g við ir . arihn'ar, heitíur víó ske_., tet.. ið hafa, r ,D;r esr ivaldi í Kaup- •*.-..iiahöfn, ii.illi mín og þeirra þingmanna, sem standa fremst, eftif að eg hafði átt samtal við Yðaf Hátign um þetta mál • — Þótt eg mundi ekki láta hjá Ifða að far* eftir því, sem Yðar Hátign skaut ffl mín, ef jég hefði minstu von um að geta með því unnið að því, aö ; leyst yrði úr þessu máli, álít jeg eftir að Yðar Hátign hefir tekið fram skilorðin fyrir staðfestingu, og samkvæmt þvf,sem eg hefi tekið fram, að eg geti ekki annað gert, held- ur en að taka tillögu mína til baka, Eg vil þó áður lýsa þvf yfir fyrir Yðar Hátign, að eg álít það mál, sem hér liggur fyrir svo mikilvægt, að ef stjórnarskránni verður synjað staðfestingar á grundvelli þingsálykt- unarinnar, þá verð eg að tilkynna Yð- ar Hátign beiðni mína um lausn, sem eg vildi þó ekki koma fram með fyrir fult og alt fyr en mér veitist færi á að bera fram fyrir Yðar Há» tign þau mál frá seinasta alþingi, sem hafa ekki enn þá verið útkljáð. Konungur talaði svo: Vegna þess hvernig þessu máli er komið nú eftir yfirlýsingar ráðherrans verð eg að óska þess að ræða við íslenska stjórnnálamenn af ýmsum flokkum möguleika þess að ieysa úr hinum um fyrirli ggjandi ágreiningi viðvíkjandi ríkisráðinu svo að stjórnarskrármálið komist fram*. Ráðherra talaði svo; Uf ’dð og eg held fast við mínar fyrri yfi.lýs- ingar leyfi eg mér að tr.ka aftur tillögu mína um staðfesting stjó' . arskárinnar, og í sambandi viðþaft tillöguna um úígáfu á aílra hæstun úrskurði, um íramburð íslenskra sé mála fyrir konungi og sömuleiðis ' .n lögin til breyfíngar » .<ðst* an> íslands, frá 30. ok.. 1903. Niðurl. í næsta blaði. Ford-bifrelðar eru ódýr- ar. Allar upplýsingar gefur Sveinn OddsspQ.

x

Þjóðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðin
https://timarit.is/publication/223

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.