BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Page 1

BFÖ-blaðið - 01.01.1966, Page 1
FÉLAGSRIT BINDINDISFÉLAGS ÖKUMANNA 1. TBL. 1. ÁRG. 1966 ^4iuir ttttgu (Or Motorföraren) BFÖ-BLADIB Loksins! - var komið að okkur að segja - hafa vátryggingafélögin í hyggju að taka til greina niðurstöð- ur þær, sem lengi hafa fengizt úr hagskýrslum um umferðarslys. Sem sé, að ungu ökumennirnir standast svo illa samanburð við hina aldurs- flokkana, að ekki verður hjá því komizt, að vátryggjendur láti vanda- málið til sín taka. Þegar bifreiða- vátryggingafélögin hafa komið sér saman um heildargrundvöil um hvernig tryggja skal bifreiðarnar, um sameiginlegan flokkunarlista tjóna og hvernig uppbótar- og afsláttar- kerfið á að líta út hjá ölium félög- unum, getum við ef til vill vænzt heilbrigðari samkeppnisaðferða yfir- ieitt í samanburði við það ástand, sem ríkt hefur fram að þessu. Hæsti slysamánuður ársins 1965 fram að þessu hefur verið október með 148 dauðsföll og af þeim höfðu 32 - eða fimmti hver maður - ennþá ekki náð 26 ára aldri. Af athugunum Bertils Aldermanns, dósents, á skipt- ingu hinna 6007 fólksbifreiðastjóra, sem slösuðust á árinu 1962, eftir aldri kemur í ljós, að helmingurinn var undir 30 ára og fjórði hver maður undir 22 ára. Athuganir Bandaríkja- manna benda til, að fólksbifreiða- stjórar undir 20 ára valdi þrefalt fleiri slysum en karlar á aldrinum 30 til 60 ára. Þýzk rannsókn, sem tók til tveggja ára, staðfestir algjörlega niðurstöður Aldermans dósents og hið sama kemur fram um hin miklu áfelli hinna ungu ökumanna við BFÖ-BLAÐIÐ I

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.