Meira Leita Titlar Greinar Fréttir Um vefinn Algengar spurningar
skrá inn Íslenska Føroyskt Kalaallisut Dansk English

Dagur


og  
S M Þ M F F L
. . . . . 1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 . .



Skoða síðu í nýjum glugga  Skoða texta í nýjum glugga  Beinn tengill á þessa síðu
Innskráðir notendur geta bætt einstaka síðum við vinnusvæði sitt:
Bæta síðu við bókamerki








þú þarft að vera með DjVu Browser Plugin til að skoða þessa síðu


get DjVu Browser Plug-in



Dagur

				kemur út tvisvar í mán-

nði og kostar 2 kr. árg.

Gjaldd. 1. júlí.

DAGUR

-^H   Ritstjóri: Ingimar Eydal.    |j||«->4*-

AFGREIÐSLU-

og innheimtumaður:

Ráðhússtíg 4.

Lárus /. Rist. Talsími 31.

I. ár.

Akureyri 12. febrúar 1918.

1. blað.

Til lesendanna.

Til skamms tíma hafa íslendingar

skipast í stjórnmálaflokka eftir af-

stöðu þeirra til deilumálanna við

Dani. Á þeim dögum stóðu sam-

bandsmál og stjórnarskrármál efst á

blaði hjá forgöngumönnum flokk-

anna.

Á þessu hefir orðið breyting á

allra síðustu árum. Þó að gömlu

flokkanöfnin sjeu enn við líði.þá eru

þau ekki annað en dauður bókstaf-

ur, er enga þýðingu hefir fyrir

stjórnmálalífið í landinu. Gömlu

deilumálin eru úr sögunni, að minsta

kosti fyrst um sinn.

Fyrir rás viðburðanna er það

verslunarmálið í víðustu merkingu,

sem öðrum málum fremur er orðið

að þungamiðju í ræðu og riti. Það

mál sýnist ætla að verða grundvöll-

ur nýrrar flokkaskipunar í landinu,

þó enn sjeu þeir flokkar ekki form-

lega fastir.

Að nokkru leyti er það styrjöld-

in mikla, sem þessu veldur. Lands-

verslunin, þetta nauðsynlega bráða-

birgða fyrirkomulag, er til varð að

grípa á þessum neyðartímum, er ein

af afleiðingum ófriðarins.

í raun og veru eru ekki nema

tveir flokkar hjer í landi nú sem

stendur. Annarsvegar eru flestir

kaupmenn og þeirra fylgifiskar í

skoðunum, sem er illa við lands-

verslunina og í nöp við samvinnu-

stefnuna.

Hinumegin eru þeir, er telja lands-

verslunina þjóðarnauðsyn, meðan

stríðinu ekki slotar, og þeir sem

unna samvinnuhugsjóninni.

Þessar   tvær   ólíku hugarstefnur,

sem hjer hefir verið vikið að, setja

mót sitt á meðferð og framkvæmdir

flestra mála á þessum tímum, þó

þau heyri ekki beint undir verslun-

armálið. Má þar til nefna dýrtíðar-

ráðstafanir og margt fleira.

Einhvernveginn hefir það atvik-

ast þannig, að flest blöðin hafa

hneigst til fylgis við kaupmanna-

stefnuna. Þar á meðal eru bæði

Akureyrarblöðin.

Ýmsir áhugasamir menn hjer

norðanlands, sem ekki geta felt sig

við hugsunarhátt kaupmannasinna,

hafa fundið sárt til þess, hve baga-

legt það væri að eiga ekki ráð á

blaði hjer á Akureyri, er þeir gætu

birt skoðanir sínar í. Hefir þeim

fundist þeir stæðu varnarlausir gegn

árásum á stefnu þá, er þeir aðhyll-

ast. Samtök hafa myndast í því skyni

að ráða bót á þessu. Árangur þeirra

samtaka er blað það,  er hér birtist

Það er ekki Iitlum vandkvæðum

bundið að ráðast í útgáfu blaðs á

þessum tímum. Verðfall peninganna

kemur niður á blöðunum ekki síð-

ur en annarsstaðar. Pappír og prent-

un hafa stigið gríðarlega í verði eins

og vænta má. Til þess að reisa sjer

ekki hurðarás um öxl, hefir það ráð

verið tekið að láta blaðið fyrst um

sinn koma út á hálfsmánaðar fresti

og hafa það í litlu formi. Megn

pappírsskortur veldur þó ekki minstu

hjer um. Ganga má að því vísu, að

margir muni meðal annars finna

það að þessu blaði, hvað útgáfa

þess sje í smáum stíl. En vel eru

þeir sömu beðnir að athuga erfið-

leikana, sem hjer er drepið á. Beðnir

eru menn líka að minnast blaðanna,

er út voru gefin hjer á landi  fyrir

ekki lengri tíma en 20 til 30 árum.

Þá voru þau ekki mikil   fyrirferðar

og ljetu menn sjer þó nægja. Menn

verða að temja sjer nægjusemi   nú

á þessum   erfiðu   tímum.    Nokkur

huggun ætti það líka að vera   les-

endum blaðsins, að einhvernveginn

legst það í aðstandendur   þess,   að

kaupmenn finni ekki hjá sér sterka

hvöt til að styðja það með auglýs-

ingum, svo að rúm   þess   mun að

mestu upp tekið af almennu lesmáli.

Með þessu er þó alls   ekki gefið í

skyn,   að tilgangur þessa  blaðs sje

sá að sýna kaupmannastjettinni neinn

fjandskap,   því það vill ræða hvert

mál ofsalaust, en þó með fullri hrein-

skilni og einurð, hver sem í hlut á.

Tekið skal það hjer fram, að svo

virðist sem landstjórn sú, er nú sit-

ur að völdum, verði á stundum fyrir

mjög   ónærgætnum,    ómildum   og

jafnvel algerlega röngum dómum og

ásökunum úr ýmsum   áttum,   fyrir

framkvæmdir sínar   og   ráðstafanir.

Þetta verður að teljast illa farið, og

mun því blað þetta bera hönd fyrir

höfuð stjórnarinnar, þegar   hún   er

höfð fyrir rangri   sök   eða   gerðir

hennar rangfærðar eða lagðar  út á

verri veg. En átalið   mun   á   hinn

bóginn það, er henni  ferst óhönd-

ulega.

Að öðru leyti skal hjer ekki fjöl-

yrt um stefnu blaðsins. Hún kemur

smásaman í Ijós   í   greinum   þeim,

er blaðið flytur. Lesendum rrtftn líka

skiljast af því, sem nú er fram tek-

ið, hver stefnan muni vera um það,

er flestum þykir mestu  máli   skifta

nú sem stendur.

Það gefur að skilja, að rúm blaðs-

ins leyfir ekki að flytja   langar   rit-

null