Framtíðin - 11.03.1923, Blaðsíða 1

Framtíðin - 11.03.1923, Blaðsíða 1
I. Árgangur. Siglufirði lí. iriars 1923. 1. tölublað. Ritstjóri: Hinrik Thorarensen. Avarp. Með þessu blaði hefur nýtt blað göngu sína hér í Siglufirði. það er venja flestra blaða að byrja með ávarpi til lesenda, sem oftast nær er ekkert annað en heillöng þula yfir það sem blaðið lofar að gera. Loforðin eru góð en efndirnar betri. »Framtíðin« ætlar ekki að lofa miklu en reyna að efna því meira. Aðallega mun blaðið ræða um áhugamál Siglufjarðar og hvetja þar til framfara og framkvæmda. Einn- ig mun það ræða þau mál er snerta þjóðarheiidina, og ieggja það eitt til þeirra, er það telur heillavænleg- ast og þjóðinni fyrir bestu. Pað skal tekið skýrt fram, að »Framtíð- in« er ekki neitt flokksblað heldur algjörlega sjálfstæð og óháð. Fréttir útlendar sem innlendar mun blaðið flytja eftir megni. Um leið og eg hérmeð hleypi >-Framtíðinnu af stokkunum vonast eg til að henni verði vel tekið, og að margir verði til þess að greiða götu hennar og styrkja hana. Alþingi. Alþingi var sett eins og venja er tii 15. febr., þó voru engir fundir ha'dnir fyr en 19., sökum Jaess að beðið var eftir Goðafossi, en með honum voru þingmennirnir að austan og norðan. Forseti sameinaðs þings var kos- inn Magnús Kristjánsson lands- verslunarforstjóri, forseti efri deild- ar var kosinn Halldór Steinsson læknir og forseti neðri deildar var kosinn Benedikt Sveinsson fyrv. bankastjóri, Stjórnin hefur lagt fram 26fium- vörp og hafa nckkur þeirra þegar verið tekin til 1. umræðu og af- gieidd til annarar. Frumvörpin uin breytingar á em- bættaskipuninni hafa mætt mikilli mótspyrnu í þinginu. Sérstaklega hefur verið þrætt um biskupsem- bættið, hvort rétt væri að afnema það eða ekki. Forsætisráðherra sótti það af miklu kappi að frumvarp ■ þetta næði fram að ganga, og lýsti því yíir að biskupsembættið væri að mestu leyti óþarft, þar sem það væri nú búið að missa þau verald- legu völd, sem það áður hefði liaft, og hvað það snerti væri biskupinn aðeins skrifstofuniaður hjá stjórnar- ráðinu. Hinu andlega valdi og virð- ingu embættisius vildi hann ekki draga úr, en frumvarpið ætlast tif að vígslubiskuparnir taki við þeim hluta þess. Stjórnin viil einnig láta afnema landlæknisembættið og stofna í þess stað heilbrigðisráð. Forsætis- ráðherra skýrði frá að þetta væri ekki aðeins sparnaðarráðstöfun, heldur væri heilbrigðisstjórninni komið í betra horf með þessu fyrir- komulagi. Frv. um fækkun sýslumannaem- bætta var nýlega til 1. umræðu. Forsætisráðherra fylgdi því úr hlaði' og lofaði þinginu meira aí sams- konar góðgæti ef þessú .yrði vel tekið. í þeim sýslum, sem missa sýslumann sinn, eiga sýslunefnd- irnar að kjósa sér oddvita, er að nokkru leyti á að koma í stað sýslumanns, og á hann að hafa 300 kr. í árslaun. Frumvarpi þessu var illa tekið, urðu margir þing- menn tii að andmæla því. Að lokn- um urnræðum var því þó vísað til 2. umræðu og allsherjarnefndar. Jóúas Jönasson frá Hriflu hefur komið fra'm með fyrirspurn til stjórnarirmar um hverjir aiþingis- menn og dómarar eigi hluti í ís- landsbanka. Lítur út fyrtr að Jónas álíli að það geti liaft áhrif á at- kvæði þingmanna hvort þeir eigi hlutabréf í bankaúum eða ekki. Magnús Guðmundsson fyrv. fjár- málaráðherra hefur komið fram með frumvarp um breytingu á stjórnar- skránni. Vill hann fældca ráðlferr- unum, hafa aðeins einn ráðhetra eiiís og áður var til 1917 að þeim var fjölgað. Sörnuleiðis vili hann fækka þingunum, liafa þing aðeins annaðhvert ár, og lengja kjörtíma- bilið um tvö ár. vbð þetta sparast mikið fé þar sem iivert þing kost- ar [ojóðina um 250.000 kr. IJó þessi stjórnarskrábréyting verði samjDykt á þinginu, þarf eickeit þingrof frarn að fara, þar sem þetta þing er síðasta þingið á yfirstand- andi kjörtímabili. Eitt af aðal áhugamálum Sigl- firðinga er að koma hér upp ís- húsi er geti tekið íil starfa nú í

x

Framtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framtíðin
https://timarit.is/publication/372

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.