VALSBLAÐIÐ 1. árg. FELAGSBLAÐ KNATTSPYRNUFÉLAGSINS VALUR JanúaK'1939 1. tbl. VALSBLAÐIÐ Q^f^t ^j I Það hefir oft verið um það rætt innan Vals, að nau&syn bæri til þess, að félagið gæfi át blað, sem út kæmi nokkurn veginn reglulega. Núverandi stjórn hefir hafist handa um þetta mál, og kemur 1. tölu- blaðið út hér með. Fyrirkomulag blaðsins er enn ekki fyllilega ákveðið, en ætlunin er, að það komi fyrst um sinn út 4—6 sinnum á ári og sé minst 8 síður hvert blað. Blaðinu er ætlað að birta grein- ar og fréttir frá félagsstarfsem- inni, og ýmsum áhugamúlum iþróttamanna. Það verður kost- að kapps um að hafa blaðið sem allra fjölbreyttast, fróð- legast og skemtilegast, svo að allir, sem það lesa, hafi bæði gagn og gaman af. Félagsmenn ættu að hjálpa vel til að ná þessu setta marki með því að senda blaðinu greinar og annað, sem varða félagsmál og knattspyrnuna. Vænianlega á Valsblaðið eft- ir að vinna félaginu ómetanlegt gagn með þvi að knýta með- limina fastari böndum við fé- lagið og vekja þá til starfa, ekki aðeins þá, er iðka knati- spyrnu, heldur og þá, er fyrir aldurs sakir eða annara or- saka eru hættir því. — Vals- blaðið verður sent öllum Vals- ungum í 1., 2. og 3. aldursfl. Ef einhverjir þeirra fá ekki blaðið, stafar það af því, að við höfum ekki nöfn þeirra. Til allra þessara manna, eldri og gngri, á Valsblaðið að ná og halda áhuga þeirra fyrir félag- inu og starfsemi þess vakandi, jafnt vetur sem sumar. pöJdc fópLÖi Aið íána. Árið sem leið er eitt hið glæsi- legasta í sögu félagsins, þó nokk- uð hafi skipst á skin og skúrir, eins og að vanda lætur. Hefir mér verið það gleðiefni, að svo vel skuli hafa til tekist á þvi ári, sem mér, svo óvænt og ókunnugum, var falin forusta í stjórn félags- ins. Ég er og af hjarta þakklát- ur öllum þeim, sem á einn eða annan liátt hafa stuðlað að því, að svo mætti verða, en þeir eru margir, sem það þakklæti eiga skilið. Urvalslið okkar færði félaginu bæði Reykjavíkur- og íslands- meistara titilinn, en þá titla báða hefir félaginu ekki fyr auðnast að bera á sama ári. Hefir flokk- ur þessi ekki aðeins með þessum sigrum, heldur einnig með fram- komu sinni og öðrum e. t. v. ekki minni sigrum, aukið hróður fé- lagsins út á við sem inn á. Sem úrvalsflokkur er og verður hann ælíð aðalfulltrúi félagsins út á við, enda er í honum sameinað allt það fullkomnasta og besta, sem við höfum upp á að bjóða á sviði knattspyruunnar. Er okk- ur þvi altaf sérstök gleði að, er hann sýnir yfirburði yfir keppi- nauta sína. Vil ég því sér- staklega þakka þeim, er þennan flokk skipa, þá árvekni, dugnað og hæfileika, er þeir hafa sýnt á Jiðnu ári. Ennfremur vil ég þakka þeim keppendum, sem komio liafa fram fyrir félagsins hönd í yngri flokkunum, en þeir liafa sýnt alveg óvenjulega framför á liðnu ári í öllu, er að knattspyrnu lýtur, en eru auk þess fyrirmynd jafnaldra sinna í einu og öllu. Auk þeirra manna, sem æft iiafa og keppt fyrir félagið, hafa fjölmargir aðrir unnið félaginu mikið og óeigingjarnt starf, við stjórn þess, fjáröflun, sem full- trúar þess út á við, við eitt og annað tækifæri, auk ýmsra ann- ara starfa, sem telja má orðið næstum jafn nauðsynleg og iðk- un knattspyrnunnar sjálfrar. í fremstu röð þessara manna eru: fulltrúi vor í knattspyrnuráðinu, Einar Björnsson, en hann hefir staðið í slröngu allt árið, því sam- vinnan við hin félögin hefir ver- ið með afbrigðum stirð þetta ár, kennari félagsins Murdo Mac- Dougall, Bjarni Bjarnason, sem annaðist fararstjórn III. flokks til Vestmannaeyja, fráfarandi for-- maður og gjaldkeri félagsins, þeir Frímann Helgason og Andreas Bergmann, sem báðir áttu mik- inn þátt í stjórn og störfum fé- lagsins á árinu, og loks með- stjórnendur mínir, sem ég hef haft alveg sérstaka ánægju af að vinna með, enda eru þeir allir mjög lægnir, tillögugóðir og öt- ulir starfsmenn. Öllum þessum mönnum, sem og þeim öðrum, er stutt hafa fé- lagið með störfum, gjöfum og vinarhug, og þar með átt sinn þátt í því að félagið skipar nú. æðsta sess hérlenda knattspyrnu- félaga, nýtur almenns trausts og vinsælda, stendur vel fjárhags- lega og hefir nú fleiri og fegurri verkefni og hugsjónir að keppa að, en nokkru sinni fyr, færi ég hér með alúðarfyllsta þakklæti mitt og félagsins. Er við nú leggjum út i' nýtt ár,