Kjósandi - 13.11.1919, Blaðsíða 1

Kjósandi - 13.11.1919, Blaðsíða 1
> * KJÓS 1.3 1. árg'. — 1. tölubl. 13. nóvember 1919. Isatoldarprentsmiðja. <&ram6jóé enóur ^HetfRjaviRur. Alvarleeri athöfn en Alþingis- kosningar en naumast hægt að hngsa sér. Og þó fylgir meiri ábyigð at- höfnum vorum kjósenda við þessar kosningar, en nokkru sinni áður, því nii eigum vér i fyrsta sinni að kjósa fulltiúa til Alþingis hins full- valda islenzka líkis. Er ekki fjarri lagi að gera sér greir; fyrir þvi, hvers vegna vér er- um orðnir fullvalda ríki. Það er hvorki vegna fjölmennis né auðæfa, heldur vegna þess að sambandsriki vort og allur hinn metitaði heimur hefir litið svo á, að þrátt fyrir fá- menni og fátækt, væri þó mennÍDg- ar- og vitsmunaþioski vor svo mik- ill, að vér myndum geta séð söma vorum borgið sem fulivalda ríki. Al- þingi er hjarta þjóðfélags vors. Það á að gæta hags voi s og sóma í við- skiftum við önnur ríki og leiða öll innahlandstail. Þar mega ekki sitja neinir liðléttingar, hvoiki heimskir raenn né mentunarlitlir. Þar verður að vera valinn raaðnr í hverju rúmi. Annars siglir litla islenzka ríkið ó- varlega af stað. Reykjavík hefir meiri skyldu en nokkurt annað kjördæmi i þeim efnum, að senda vel starfhæfa menn á þing. Fjölmennið hér og það, að Reykjavík er miðstöð allrar menn- ingar landsins — höfuðstaður ís- lands — veitir mönnum rétt til þess að heimta meiri hæfilegleikamenn héðan, en úr öðrum kjördæmum. Það vill nú svo vel til, að Reykjavík á kost á að sendi á þing tvo af mikilhæfustu möunum þessa lands. Það eru þeir Jón Magnússon for- sætisráðherra og Sveinn Björnsson yfirdómslögmaður. Þessir menn eru ekki einungis þjóðkunnir, heldur kunnir um öll Norðurlönd og víð- ar, sem fram úr skarandi menn með- al sinnar þjóðar. Þarf eigi að lýsa þessum mönnum, svo kunnir eru þeir kjósendum hér. Ura Jón Magn- ússon nægir að minna á þao, að i hans stjónmtlð varð ísland full- valda riki, og höfura vér ekki heyrt nokkurn mann draga það í efa, að það væri meira honum að þakka en uokkrum öðrum einum manni. Væri ekki úr vegi fyrir þá sem meta full- veldi vort einhvers, að rainnast þess við kosningarnar hverjum vér eigum það mest að þakka. Sveinn Björnsson er ungur maður enn, og hefir þó afrekað n eira en flestir núlifandi íslendingar á hans aldri, Mun óhætt að segja, að is- leuzka þjóðin væntir ekki eius mik- illa dáða af nokkrum yngri sona sinna sem ?f honum. Það er heldur eigi furða, því auk þess að hann hefir setið á Alþingi og oftar en einu sinni verið trúnaðarmaður lauds* ins i öðrum ríkjum, hefir hann hrundið af stað og veitt forstöðu með framúrskarandi dugnaði og hyggindum tveim mestu þjóðþrifa- fyrirtækjum landsins: Eimskipafélag- inu og Brunabótafélaginu. Væri ekki úr vegi, ef kjósendur meta þetta einhvers, að minnast þess nú við kosningarnar. Um hina frambjóðendurna, þá Ól. Friðriksson, Þorv. Þorvarðarson og Jakob Móller. má eflaust ýmislegt gott segja, og án efa bjóða þeir sig fram i þeim tilgangi að vinna Iandi sinu og kjördæmi gagn. En sjálfsagt sjá þó allir kjóseadur að saman- burður milli þeirra og hinna fyr- nefndu : Jöns Magnússonar og Sveins Björnssonar, er eins og milti barna og fullorðinna manua. Og unga ís- leczka ríkið hefir ekki ráð á þvi að hafs þroskalitla menn á þingi. Fjöl- mennið því á kjörstaðinn, háttvirtu kjósendur, og kjósið þá Jón Magnússon og Svein Björnssoíi. Pingmannaefni „alþýðunnar" / Eru íslendingar orðnir litblindir á manngildi? Hafa illar vættir vilt þjóðinni sýn, svo að hún sér ált öfugt, — rispað hana í augað, eins og Dofri konungur vildi gera við Pétur tíaut forðum? Það er hræði- legt að búa undir þeim álögum, að sýnast roðhænsnin vera ernir og skítseiðin stórfiskar. Og vonandi er ekki svo ilt í efni um ráð ís- lendinga, en þó er það sannast, að oft’ á maður bágt með að verjast þeirri hugsun, að þessi þjóð -sé leikin.----- Það er næstum því raunalegt að minnast þess nú, hvílíkar vonir okkar bestu menn gerðu sér um iramtíðina um þær mundir, sem farið var að hugsa til að endurreisa alþingi. Menn trúðu því statt og stöðugt, að þjóðin mundi hefja sjálfa sig til vegs og gengis, ef j hún aðeius fengi að njóta sín, menn j höfðu óbifanlegt traust á því, að svo mikið af manndómi og mann- viti byggi í kyninu, að hin t’orna frægð íslands mundi birtast end- ! urborin, ef þjóðin aðeins gæti slit- j ið sig úr haftinu. Svo kvað J ónas: liíða skulu rekkar, ráðum land byggja, fólkdjarfir firðar til íundar sækja, snarorðir snillingar að stefnu sitja, þjóðkjörin prúðmenni þingsteinum á. övo djarfir og stórilr voru þeir vordi’aumar! Og sem betur fer hafa þeir ekki allir orðið að engu. En ekki igetur maður látið vera að minnast þess, að hin síðustu tutt- ugu ár hefir Stefán frá Pagra- skógi riðið til þings með goðorð Einars Þveræings. Að Sigurður búfræðingur hefir tjaldað Mosfeli- ingabúð nálega jafnlangan tíma. Að Hákon í Haga skipar nú sæti Gests Oddleiiksonar. Að einmitt siíkir „snarorðir snillingar“ sitja hvað fastast í þingsætiuium, óhágg- anlegir eins og goð á stalli. Og rnaður hristir höfuðið, — sú hugs- un ásækir mann, að þjóðin sé að gera heillaspár sinna beztu manna að öí’ugmæluiu. Um kosningar þær, sem nú fara í liönd, er það helzt til nýlundu, að nú skiftast flokkar á annan iiátt, en áður hefir verið. Hingað til hefir í rauninni altaf verið kosið um sjálfstæðismálið. Það mál hefir jafnán verið efst á baugi í huga kjósanda og hefir um langan ald- ur kasað undir sér öll önnur lands- mál, svo að til vandræða hefir horft. En nú er ný öld að renna upp og nýir flokkar að myndast. Á síðustu árum hafa verkamenn bundist samtökum til þess að bæta kjör sín og hafa áhrif á landsmál yfir höfuð, og eru þau samtök svo sjálfsögð og eðlileg að engum skyn- sönium manni ætti að koma til hug- ar að amast við þeim. Ait er undir því komið hver andi drottnar í verk mannafélögunum, hvernig þeim er stjórnað og í hverja átt baráttunni er beint. Því miður hefir byrjunin ekki tekist vel, verkalýðurimi hef- ir látið ginnast til fáránlegra gönu- hlaupa og ef litið er til þess, hverja menn hann hefir sent fram á víg- völlinn nú við þessar kosningar, þá kemur enn í ljós að mikið vantar á, að verkamenn hafi ennþá náð jslíkum pólitiskum þroska, sem þeim er nauðsynlegur, ef hluttaka þeirra í pólitík á að verða annað en skrípaleikur. Þingmannaefni „alþýðunnar“ eru þeir Ólafur Friðriksson og Þorvarður Þorvarðsson. Ólafu mun fyrst liafa orðið þjóð- kunnur rnaður 1916. Þá um vorið kom hann af stað hásetaverkfali- inu, og mundu þá fiestir hafa svar- íð fyrir, að sá maður yrði hafður i íramboði sem þingmannsefni þessa bæjarfélags meðan sá við- burður væri ennþá í fersku minni. Hásetaverkfallið er aðaiviðburður- inn í stjórnmálasögu Ólafs og munu flestir ijúka upp einum munni um, að sjaldan hafi verið unnið meira fólskuverk hér á landi. Sá hluti verkalýðsins, sem áreiðanlega átti við langbezt kjör að búa, var span- aðui- út í þetta heimskulega upp- hlaup, sem hiaut að enda með ó- sigri, enda hélst þar alt í hendur, óbilgirnin, ofsinn og skammsýn- in. Á því gönuklaúpi græddi eng- inn lifandi maður eyrisvirði, allir biðu tjón af því, en þó einkanlega hásetarnir, sem ekkert höfðu ann- að en skömm og skaða upp úr öllu saman. Það kann að hafa verið Ólafi nokkur huggun, að honum hafði tekist um leið að baka út- gerðarmönnum stórtjóm Vitrum mönnum teist svo til, að það tjón, sem hlauzt af Kötlugosinu í fyrra, hafi verið smáræði á móts við það tjón, sem hafðist af hásetaverk- fallinu. Það má nú að vísu segja, að það sé ekki tilþrifalítill borg- ari, sem reynst hefir stórvirkari heldur en gjósandi eldfjall. En þrátt fyrir það ættu Reykvíking- ar eklfi að senda Ólaf á þing fyr en Skaftfellingar hafa kvatt Kötlu gömlu til þingsetu fyrir sína hönd. Þá verður eftirleikurinn óvandari í annað sinn hefir Ólafur vakið eftirtekt alþjóðar á sér, en það var í fyrrasumar, ] egar hann fór að sletta sér fram í sambandsmálið meðan fulitrúar Dana og íslend- inga sátu á rökstólum. Þá heimti liann með venjulegri greind og hæ- versku að Danir skyldu um aldur og æfi jafn réttháir á íslandi sem íslendingar sjálfir. Ef Ólafur hefir vitað, hvað hann var að gera við það tækifæri, þá er hann svikari við málstað Islendinga, ef á annað Lorð nokkurt vit htfir verið íþeirri baráttu, será Jón Sgurðsson hóf og nú er til iykta leidd. En ti’ hann er sá óviti, að hann hefir aldrei skilið, hver var aðalkjarn- inn í réttarkröfum fslendinga, — ja, þá mætti ætla að höfuðstaður- inn gæti útséð sér einhvern sæmi- legri þingmann en hann. Hver sá kjósandi, sem þykist unna sjálfstæði landsins, en greið ii Ólafi Friðrikssyni atkvæði, skirp ir í andlitið á sjálfum sér. Að öðru leyti þarf ekki að lýsa pólitiskri starfsemi þessa manns. Hann vinnur kappsamleg áð því

x

Kjósandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjósandi
https://timarit.is/publication/508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.