Nýtt kosningablað - 11.04.1914, Blaðsíða 1

Nýtt kosningablað - 11.04.1914, Blaðsíða 1
11. aprií 1919. Um kvað er barisí? Um helll landslns & komandl Jírnm. Uni það, hvort við eigum að hafa góða stjórn eða illa. Um það, hvort friður eigi að vera í landinu til nytsamra fram- kværnda, eða hvort valdabaráttan eigi að yfirgnæfa alt annað. Um það, hvort vinna eigi að því að koma á járnbrautarsam- bandi milli Austur-sýslnanna og Reykjavikur. Um það, hvort fram skuli ganga á þingi i sumar frumvarp kíðasta þings um breytingar á sljórnarskránni þannig, að vissa sje fyrir konungsstaðfestingu. Kjósið Jónana, At þrí að þeir fylla þann flokk, sem unnið hefur og vinna mun eftirleiðis af mestri alúð að öllum framfaramálum landsins og hefur einnig útvegað landinu þann sjálfstæðisauka út á við, sem það hefur fengið á siðari árum. 1 þeim flokki er engin valdabar- átta. Hann hefur losað sig við þann mann, sem vildi vekja hana og er flokkurinti nú hreinni og samhentari eftir. Hann býður framfarastjórn heima fyrir, með vakandi áhuga á þvi, að auka sjálfstæði landsins út á við, eins og tilraunirnar i þá átt áður hafa sýnt. Af því að þeir eru báðir forgarigsmenn í járnbrautarmálinu, sem nú er aðalskilyrðið til framfara þessa bæjar og hlýtur að verða úr þessu meira og meira aðaláhugamál allra kjósenda i bænum. Af því að það er örugt, að stjórnarskrármálið fær framgang, ef sá flokkur, sem þeir fylla, verður i meiri hluta á þingi i sumar. Ef þið kjósið hina, þá styðjið þið að þvi að alt lendi í valdabaráttu á þinginu i sumar, þvi það gerir það áreiðanlega, ef þeirra flokkur verður ofan á. Þeir hafa engan ákveð- inn mann að halda sjer til. Sá af þeim kemst að, sem hæst býður öllum hinum í fylgi og stuðning. Svo lendir alt hjá þeim í fjár- glæfrabralli. Og þegar sá útvaldi ekki getur borgað þeim alt, sem þeir heimta, þá rísa þeir upp á móti honum eins og úlfar og rifa hann í sundur. Verða svo auðvitað eftir nokkur misseri reknir frá með skömm. En skaðinn skellur á þjóðinni, á kjósendum. að járnbrautarmálið verði svæft svo lengi sem þeir sitja að völd- um, því aðalforvigismenn þeirra og flokksblöð þeirra reyna á allan hátt að rifa það mál niður. að ekkert verður úr stjórnarskrármálinu. Það verður svæft með einhverju hálfvelgju flónskukáki út á við út af rikisráðsákvæðinu, sem ekkert verður svo úr heldur. Út á við hefur aldrei neilt unnist meðan sá flokkur hefur farið með stjórn. Og öll líkindi benda i þá átt, að ef þeir yrðu ofan á, mundu þéir lika eyðileggja það, sem þegar hefur áunnist i fánamálinu. Það er heill landsins á komandi árum, sem um er barist cJlíntQní Rneyfisli vekur það í bænum, að þing- mannaefni Sjálfstædismanna skyldu velja daginn í gær, fóstudaginn langa, til þess að troða inn áhvertheim- ili í bænum »Kosningablaði« sinu, íullu af ýmiskonar skömmum og meira eða minna ósönnu æsinga- rugli, hæfilega krydduðu með klúr- yrðum. Allur fjöldi manna reif blaðið sundur og stakk því strax í ofninn, en svo ætla þeir að þakka fyrir sendinguna i dag — inni í kjörklefanum. Ijvers vegna jeg kýs eins og jeg ætlaði að kjésa. Þjer heyrðuð það á mjer hjer um daginn, kunningi, að jeg er ófáanlegur til þess að kjósa þing- mannaefni Sjálfstæðismanna, og þjer spyrjið mig nú, hvers vegna jeg, sem þjer vitið, að ekki er nein- um flokksböndum bundinn, hugsi og tali svo. Jeg hef engan tfma til þess að svara öðru visi en í stuttu máli. Jeg vil ekki þingmannaefni Sjálf- stæðismanna af þeirri einföldu á- stæðu, að jeg trúi ekki flokki þeirra fyrir landinu, eins og hann er nú. Jeg hef enga hugmynd um, i hvaða átt hann kynni að stefna með þjóðina. Þar er hver höndin upp á móti annari. Ef sá flokkur hangir sam- an, eftir þessar kosningar, þá er alveg ómögulegt að giska á, hvað þar veróur ofan á. Þeir láta svo sem þeir vilji leggja alt til hliðar, allar rjettar- kröfur landsins, sem menn hafa verið að berjast við að fá að und- anförnu, til þess að sinna fram- faramálum landsins. En um leið og þeir segja þetta, sýna þeir það allri þjóðinni, að þeir koma sjer ekki saman um nokkurt framfara- mál. Þetta finst mjer svo hrakleg frammistaða, að jeg skil ekki, hvern- ig nokkur maður hugsar til þess að koma þeim í meiri hluta á þingi. Þjer spyrjið líka, hvers vegna jeg kjósi Jónana, þingmannaefni Sambandsflokksins. Jeg geri það meðal annars af því, að jeg veit, livern aðalforingja þeir ætla að styðja, að þeir ælla að styðja foringja, sem þjóðinni er óhætt að treysta, af því að hún hefur reynt hann að góðu um mörg ár. Jeg kýs þá meðal annars af því að jeg veit, að þeim er óhætt að trua fyrir mesta velferðarmáli Reykjavíkurbæjar, járnbrautarmál- inu. Þar eru þeir ótrauðir, og þar er foringi þeirra ótrauður. Þeir gera það sem unt er að gera. Hvað mundu hinir gera undir aðal-forustu Björns Kristjánssonar i þvi máli? Eins er um fjölda af málum. Það er ekkert gagn að þvi, þó að mennirnir sjeu að lofa hinu og öðru, þar sem enginn maður veit, hvert flokkur þeirra muni stefna, þegar þessum gagn- ólíku mönnum slær öllum saman. En jeg ætla ekki að fara að telja upp allar ástæðurnar fyrir því, að jeg kýs eins og jeg ætla að kjósa. Það yrði of langt mál. Jeg tek að eins það, sem er hendi næst. Jeg held, að jeg þurfl ekki að vera að gera grein fyrir þvi, hvers vegna jeg ætla að kjósa Lárus. Hann ætla, hvort sem er, svo sem engir að kjósa. Hann hefur aldrei getað komið til nokkurra mála hjer í Reykjavík eftir framkomu sina á siðasta þingi. Flokksleysingi. í. Ij. 5- í vanðræðum. Fær ekki rúm í ,.Árvakri“? í Lögr. var tekið þannig í L. H. B. síðastl. miðvikudag, að hann varð í vandræðum og ógreitt um svarið. Blað hans kom út á fimtu- daginn og skýrði hann þar frá, að annað kæmi út næsta dag — til þess að svgra Lögr. auðvitað. Hann er heldur klaufafenginn í ritmensku sinni venjulega, eins og menn kann- ast við, og nú fór svo, að því sem sumir segja, að ábyrgðarmaður málgagnsins neitaði honum um að laka svarið, nema hann setti fult nafn undir það, mun ekki hafa trúað honum fyrir að borga sekt- ina, ef til kæmi, og hefur maður- inn vaxið í áliti við þetta, hvar sem á það er minst. L. hringsnerist svo i vandræð- um heimá hjá sjer út úr þessu, þangað til bróðir hans, að sögn, fann þá leið til úrlausnar, að hann bæði J. Ól. að svara fyrir sig. Jón sat með krosslagðar hendur á maga og hallaði undir flatt, er málið var flutt fyrir honum, en færðist lengi undan. Loks hjet hann þó lið- veitslu sinni, og er þess ekki getið, hvort borgun var lofað eða ekki, ef vel tækist, nje heldur hve mik- illi. En L. kvað vera óánægður með sjálfum sjer út afþvi, aðhafa ekki getað gert þetta sjálfur, því öllum þeim, sem hann hefur sýnt svarlilraunir sínar, kvað koma saman um, að svona megi það ekki vera, þótt aldrei nema ábyrgðar- maður væri þægari en hann kvað vera. »Jón getur það«, hafði bróðir hans sagt við hann. Og siðan kvað þessi hugsun ekki vilja út fara úr hans ritstjórakolli: »Jón getur það, en jeg get það ekki«. — »Jón get- ur það, en jeg get það ekki«. En grein Jóns hefur nú ekki staðist próíið enn. Ritstj. Lögr. biður að skila því til Jóns, að hún muni verða athuguð í Lögr. á mið- vikudaginn kemur. Sveinti Björnsson og' flokkstpiiinenska lians. Hann er að pukra móti Sigurði Jónssyni. Sveinn Björnsson átti nýskeð tal við 3 menn í Hafnarfirði, sem kosningarjett eiga hjer i Reyjavik,

x

Nýtt kosningablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kosningablað
https://timarit.is/publication/531

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.