Nóvember-blaðið - 01.11.1919, Page 1

Nóvember-blaðið  - 01.11.1919, Page 1
NÓVEMBER-BLAÐIÐ Útbýtt ókeypis. Akureyri 1919. Útg.: kapt. Johnsen. Dauði Voltaires. Þó að margir fríhyggjumenn og guðsafneit- andi heimsspekingar hópuðust um Voltaire í byrjun sjúkdóms hans, kom samt í ljós löng- un og óskir um það, að snúa sjer aftur til þess Quðs, sem hann svo oft hafði smánað. Hann Ijet sækja trúaðan prest; og seinna samdi hann viðurkenningu, þar sem hann af- neitar öllum hugmyndum fríhyggjunnar. Pessi viðurkenning var undirskrifuð af honum sjálf- um og tveimur vitnum. Qömlum vinum sín- um, sem heimsóttu hann, bölvaði hann og hrópaði til þeirra: »Farið burtu, það eruð þið, sem hafið leitt mig í mitt núverandi ástand. Farið burtu; jeg hefði getað verið án ykkar, en þið gátuð ekki verið án mín,« Stundum var hægt að heyra hann vera að spotta, en hina stundina hrópaði hann með bænarrómi: »Kristur, ó, Drottinn Jesús Krist- ur!« jafnhliða því sem hann kvartaði yfir, að vera yfirgefinn bæði af Guði og mönnum. Einu sinni sá ein af hjúkrunarkonunum hann með bænabók í hendinni, og hann leitaðist við að hafa yfir nokkrar bænir, sem voru beiðni um náð frá þeim Quði, sem hann hafði svo oft smánað. í hinum miklu krampaflogum fjell hann einu sinni fram úr rúminu og lá froðufellandi á gólfinu. í dauðans angist hrópaði hann: »Vill sá Quð, sem jeg hefi afneitað, ekki einnig frelsa mig? Nær hin óendanlega náð ekki líka til mín?« Læknirinn, sem stundaði hann, kom inn til að lina þrautir hans, en hrökk til baka sem sleginn af eldingu. »Læknir,« sagði Voltaire, »jeg vil gefa yður helming eigna minna, ef þjer getið lengt líf mitt um sex mánuði.« »Herra minn, þjer getið einu sinni ekki lif- að í sex vikur,« svaraði læknirinn. »Svo fer jeg til helvítis, og þú vilt fara með mjer^ hrópaði Voltaire. Og rjett eftir að hann hafði mælt þessum orðum dó hann. Hver, þori jeg að spyrja, vill voga að byggja traust sitt á grundvallarsetningum guðleysis og fríhyggju, þegar maður sjer, að jafnvel hinir mestu guðsafneitendur og fríhyggjumenn svíkja merki sitt, þegar þeir horfast í augu við dauðann, til þess að hefja merki kristin- dómsins? Hefir þú nokkru sinni heyrt nokk- urn kristinn mann afneita trú sinni a dauða- stundinni? Vantrú og fríhyggja getur ekki friðað nje fullnægt neinum nema í meðlætinu, þegar hamingjan brosir við. Beri mótlætið að hönd- um, eða dauðann, þá megnar vantrúin ekkert, þá vilja allir vera Guðs megin — jafnvel Voltaire hrópaði til Quðs á dauðastund sinni. Vinur! Með skelfingu lest þú frásögnina um dauða Voltaire — hann var að heimsins dómi einn af hinum stóru —- en hann var lít- ilmótlegur í Guðs augum. — — Ef þú ert vantrúaður — ef þú getur ekki trúað, — þá veit jeg að þjer Iíður ekki vel; þú finnur oft hjá þjer þörf eftir einhverju, sem þú raunar ekki veist hvað er. Þú finnur tómleika í djúpi hjartans. Jeg bið þig, vinur, í kærleika: Vertu á nóvember-samkomum Hjálpræðishersins hjer á Akureyri, sem haldnar eru á hverju kvöldi kl. 8V2 (að undanskildum mánu- og miðviku- dögum). Komdu, og komdu eius oft og þú getur. — Quðs orð mun áreiðanlega tala til þin og tómleiki hjartans hverfa. Leitið að hinu týnda. Lúkas 15. kap. Prestur nokkur byrjaði að tala um andlega hluti í húsi vantrúaðs aðalsmanns. Aðalsmað- urinn vildi gera enda á þeirri samræðu og sagði mjög hæðnislega: »Herra prestur! Þjer ættuð ekki að kasta perlum yðar fyrir svín.« »Herra barún«, svaraði presturinn, »jeg kem með svona umtalsefni i húsi yðar einmitt vegna þess, að jeg tel yður ekki tilheyra svínunum.« Pað sem eiginlega veltur mikið á, er að maður sje ekki of fljótur á sjer að gefast upp við nokkurn mann. Á nóvember-samkomum Hjálprœðishersins verður glötuðum sonum og dætrum bent á himinveginn. »Heimskingi, á þessari nóttu verður sál þín af þjer heimtuð.-« (Lúk. 12, 20). Hinn frægi kardináli og ráðgjafi Masarín (dó 1661), sem með fjegirni sinni og nísku safn- aði sjer auðæfa, að upphæð 200 miljónir franka, hrópaði á dauöastundinni: »Ó, þú mín vesæla sál, hvað verður af þjer?« — Næstum því 1000 árum eftir fæðingu Krists lifði í ítaliu munkur nokkur, Nílus að nafni, sem var vel þektur fyrir sitt heilaga líferni. Eitt sinn fjekk hann heimsókn af Otto keis- ara 3. og þeir ræddu saman um andlega hluti. Áður en þeir skildu vildi keisarinn, að Nílus bæðist einhvers af sjer. Munkurinn hugsaði sig ekki lengi um, gekk til keisarans, lagði höndina á öxl honum og sagði: »Yðar hátign getur ekki veitt mjer neitt, sem mjer er kær- ara, en að þjer annist vel um sál yðar, svo að hún glatist ekki.« — Keisarinn kvaddi hann með tár á hvörmum. Nóvember-samkomur Hjálpræðishersins ættir þú að sækja sjálfs þín vegna. Sælir eru fátækir í anda. Lúther heimsótti einu sinni ungan mann í Wittenberg, sem var mjög veikur, og spurði hann hvað haan vildi færa Quði, þegar hann mætti frammi fyrir honum. »Jeg vil«, svaraði hinn guðhræddi unglingur, -»færa honum auð- mjúkt, endurskapað hjarta, sem er þvegið í hinu dýrmæta blóði Jesú Krists.« Pá svaraði Lúther: »Farðu þá í Guðs nafni, sonur. Pú munt komast vel áfram og verða hinum him- neska föður kærkominn gestur.« Pú œttir að sœkja nóvember-samkomur Hjálp- rœðishersins. Sitt af hverju. Pað er sagt, að Walter Scott hafi eitt sinn látið setja sig yfir stöðuvatn nokkurt í Skot- landi, og á leiðinni tók hann eftir því, að ár- ar ferjumannsins voru með áletrun, Á annari stóð: »Trú,« en á hinni; »Verk.« Hið fræga skáld spurði ferjumanninn, hvað þetta ætti að þýða. »Pað skal jeg segja yður, herra minn,« svaraði hann, og með þessum oróum lagði hann aðra árina frá sjer og notaði að eins aðra, sem á var letrað: »Verk,« og báturinn snerist strax í hring. Svo lagði hann þessa ár frá sjer, en tók hina, sem á var letrað : »Trú,« og aftur snerist báturinn í hring. Að síðustu greip hann báðar árarnar og nú rann bátur- inn jafnt og ákveðið að takmarkinu. »Jeg spyr ekki eftir lofi heimsins,« skrifar General Gordon. »Sá, sem einu sinni hefir viðurkent, að Quð býr í okkur og að við að eðlinu erum í raun og veru spiltir, hann get- ur ómögulega tegt áherslu á hrós heimsins. Mannlegt hrós er, nánara athugað, ekkert ann- að en Quðs afneitun, því að með því er raun- ar sagt, að maðurinn geti verið góður án Guðs.« Aðalrit stjörnufræðingsins Kepplers endar með eftirfarandi orðum: »Jeg þakka þjer Drott- inn minn og skapari, að þú hefir veitt mjer joessa gleði í sköpun þinni, þennan unað yfir verkum handa þinna. Jeg hefi kunngert dýrð verka þinna fyrir mönnunum, eftir því sem minn takmarkaði andi hefir getað skilið óendanleik þeirra. Hafi jeg einhversstaðar sagt nokkuð jjað, sem er þjer óverðugt, þá fyrirgefðu mjer það vegna þinnar miklu náðar.« Nokkru fyrir dauða sinn lýsti hinn víðfrægi franski prjedikari Adolf Monod árangrinum af vísindanámi sínu og guðfræðislega starfi með þessum orðum: »Jeg þakka Guði fyrir það, að hann hefir gefið injer barnslega trú.« Ungur fjárreiðumaður í Lundúnum fjekk höfuðkrampa. Læknirinn, sem sóttur var, skoð- aði manninn og sagði: »Pjer þjáist af bólgu í heilahimnunni. Eftir þrjár klukkustundir er úti um yður.« Fjárreiðumaðurinn varð bleikur sem nár. Skjálfandi af ótta starði hann á lækn- irinn og sagði: »Er það alveg áreiðanlegt?« — »Já. Mjer fellur illa að þurfa að segja yð- ur, að það er ábyggilegur sannleikur.« »Lækn- ir!« hrópaði þá hinn sjúki, »ef þjer getið lengt lif mitt til morguns, lofa jeg yður 100,000 pundum Sterlings.« Læknirinn leit alvarlega á hann og sagði: »Jeg get skrifað lyfseðla og ráðlagt lyf, en tímann get jeg ekki selt; hann stendur í Quðs höndum.« Umsjónarmaður Reinhard Zeller í Bluggen hjelt mjög einkennilega fagnaðarhátíð árið 1888. Hann hafði þá legið sjúkur í 25 ár, og allan þann tíma verið rúmfastur. Eftir byltu eina misti hann máttinn og var alveg ósjálf- bjarga. Hann sagði sjálfur við þetta tækifæri: »Jeg held nú 25 ára sjúkdómshátíð mína; jeg gleðst yfir því, að trú mín hefir staðist og yfir að jeg í trúnni er eigandi Quðs sonar og er eitt með honum. Jeg gleðst yfir því, að enginn maður nje sjúkdómur getur skilið mig við kærleika Quðs f Jesú Kristi Drotni mínum.« Mundu eftir nóvember samkomum Hjálprœð- ishersins. ÍLAKOSBóKm.a JSi "í'slánTís"

x

Nóvember-blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nóvember-blaðið
https://timarit.is/publication/542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.