Morgunblaðið - 02.11.1913, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.11.1913, Blaðsíða 1
Talsími ðOO (Ritstjórn) OKfiDNBLADID Talsími 48 (afgreiðsla) Reykjavík, 2. nóvember 1913. Bio Biografteater Reykjavlkur. Bio Leijndarmál vagnsíjórans. Leikrit i 2 þáttum. Leikið af dönskum leikurum. Aðalhlutverkið leikur Holger Reenberg. Hr. ,Kakerlak‘áferðalagi. Gamanmynd. Bio~kaffif)úsið (ingargur frá Bröttugötu) mælir með sínum á la carte réttum. smurðu brauði og miðdegismat, Nofekrir menn geta, fengið fnlt fæði. Virðingarfylst, Tfarívig Tlieísen Talsími 349. Nýja Bíó: Einstæðingarnir Leikrit í 3 þáttum og forleik. Leikið af frakkneskum leik- endum. Orkester kl. 7—9 í kvöld. UOJUUUULXZKXJUtl Heijkið Godfrey Phillips tókbak og cigarettur sem fyrir gæði sín hlaut á sýningu í London 1908 sjö gul medaiiur og tvær silfurmedalíur Fæst í tóbaksverzlun H. P. Leví. Sa =1 L L ðin I Sælgætis ng tóbaksbúðin LANDSTJARNAN £ á Hótel Island. IE Skrifsíofa ^ Eimskipaféíags Ísíands Austurstræti 7 Opin kl. 5—7. Talsími 409. rFJFTirrjiaTi^FÆjnrrrTTi: H. Benediktsson. Umboðsverzhin. — Heildsala. Hvar verzla menn helzt? Þar aam vörur eru vandaðastar! Þar sem úr mestu er að velja! Þar sem verð er bezt eftir gæðum! Hver uppfyllir bezt þessi skilyrði? Óefað Vömhúsið Reykjavfk. Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. | Isafoldarprentsmiðja j 1. árgangur, i. tölublað JTlorgunbíaðið Dagblað það, sem hér byrjar starf sitt, á fyrst og fremst að vera áreið- anleqt, skemtilegt og lipurt ritað fréttablað. Reykjavíkurbær hefir enn eigi eignast slikt blað, þó þörfin hafi verið mikil um mörg ár og mörg nauðsynleg skilyrði hafi þegar verið fyrir hendi. Stjórnmálabarátta sú, sem þjóðin hefir átt i síðasta ára- tuginn, hefir tekið svo mikið rúm í blöðunum, að þeim hefir eigi verið unt að rita um margt hið skemtilega og nýstárlega, sem gerst hefir innan- lands og utan. En Morqunblaðið tekur enaan pátt i flokkadeilum, þó það auð- vitað muni gefa lesendum sínum kost á að kynnast fljótt og greinilega öllu því helzta er gerist í lands- og bæjar málum. Þær fréttir munu ritaðar með öllu litlaust. Hugir manna yfirleitt hverfa æ meir og meir frá stjórnmáladeilum, en þaðsem menn fremur öðru heimta af dagblaðafyrirtækjum, hvar sem er í heiminum, eru áreiðanleqar fréttir. í því efni hefir Morgunblaðið þegar búið svo i haginn, að óhætt mun að fullyrða, að vér í því efni stöndum eigi að baki öðrum hérlendum blöð- um. Morgunblaðið hefir fréttaritara í Lundúnum, Kaupmannahöfn og Kristjaníu og þaðan munu heims- f éttirnar koma daglega — þó ekki frá öllum borgum sama dag — og tiikynna lesendum vorum alt hjð markverðasta er gerist í heiminum. Gamla Frón flyzt nær menta mið- stöðvum heimsins og gætum vér unnið að þvi, væri aðal-tilgangsatriði voru náð. Fréttir hvaðanæfa af landinu mun og eigi skorta í blað vort. Símfréttir munu við og við birtast frá öllum stærri bæjum og kauptúnum lands ins, og úr sveitum, þegar þess gefst kostur, Þá munum vér og einnig gera vort ítrasta til þess að hafa efni blaðsins að öðru leyti eins skemti- legt og fræðandi sem frekast er unt. Það er ekkert »stórblað« — eins og sumir í skopi hafa kallað það —, sem hér hleypur af stokkunum. Vér hefðurn vissulega óskað þess, að bæði brot og lesmál þegar frá byrjun hefði getað orðið stærra og fjölbreyttara, en það nú er. En það á að geta orðið »stórblað«, eftir ís- lenzkum mælikvarða, þegar fr.im líða stundir, ef blaðið fær góðan byr. Þá fyrst hefir Reykjavík eignast dagblað, sem með réttu getur borið það nafn. »Mjór er mikils vísir«, segir máltækið, og ef þér, heiðraðir lesendur, viljið styðja þetta fyrirtæki með því að kaupa blaðið, auflýsa i pvi 0% ráða vinum yðar til hins sama, þá hafið þér hver um sig unnið yðar starj til fullkomnunar fyrirtæk- inu. Og þá eigið þér heimtinq á, að öllum kröfum yðar til dagblaðs sé fullnægt. Eg hefi um tíma unnið við stór- blöð í New-York, Khöfn og Krist- janíu með það fyrir augum, að reyna að koma hér á einhverju lítilsháttar af því blaðamenskusniði, sem þar tíðkast. Þekkingu mína þaðan mun eg reyna að nota í sem rikustum mæli í starfi mínu við Morqunblaðið. Ennfremur hefir oss tekistað fá nokkra af þeim mönnum, hér í bæ, sem bezt og skemtilegast rita til að lofa aðstoð sinni við Morgunblaðið. Enginn einn maður skapar nýtizku dagblað. En með góðri samvinnu rithöfunda, lesenda og auglýsenda, virðast öll skilyrði vera fyrir hendi til þess að Reykjavíkurbær geti eignast hið langþráða frétta-, fræði- og skemti- dagblað, sem er markmið Morgun- blaðsins að verða. 1. nóv. 1913. Vilh. Finsen. Brunamál Reykjavíknr. Samkvæmtskýrslu brunabótafélags- ins nam vátryggingarupphæð húsa í Reykjavík hjá félaginu þ. 1. október 1912 tæpum 12 miljónum króna (11,700,948). Iðgjaldaupphæðin var þann dag kr. 10,642,27. Tala vá- trygginga 1228. A árinu síðasta hafði vátryggingarupphæðin öll auk- ist um rúma hálja milljón króna (kr. 511,729). Greiddar skaðabætur voru á árinu kr. 21,092, af þeirri upphæð kr. 19,850 fyrir eitt hús (hús Sturla Jónssonar). Rafveita Seyðisfjarðar. [Símjregn jrá Sj.). Þ. 18. okt. var haldin Ijósahátíð bér í bænum, vigsluveizla rafveit- unnar; voru þá kveikt fyrsta sinni rafljós Seyðisfjarðar, og mikið um dýrðir, eins og nærri má geta. Aðalræðuna hélt Jóhannes bæjar- fógeti, en margir aðrir töluðu. Valurinn var staddur á Seyðisfirði og voru foringjar hans boðnir. Ekki minna en 7 kvæði voru ort við þetta tækifæri og sungin í veizl- unni, 3 eftir Sig. Arngrírasson og 4 eftir Karl Jónasson. F£YIF£MYMDALrEIKMÚjBIN. Nýja Bíó sýnir þessa dagana langa, frakkneska mynd sem heitir »Einstæðingarnir«. Hún byggist á sögulegum atburðum, sem gerðust á Frakklandi á átjándu öld. — Tvær ungar stúlkur koma til höfuðborgar- innar, París, að leita hamingjunnar. Önnur þeirra er blind. Þegar til Parísar kemur falla þær í hendurnar á bófum nokkrum, sem selja aðra þeirra, en láta þá sem blind er betla Alþýðufól.bókasafn Templaras. 8 kl. 7—9 Augnlækninfc ókeypis i Lækjarg. 2 mvd. L~8 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga J ) -8 Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og *-7 Bæjargjaldkerinn Laufásv. B kl. 12—8 og 5 -7 Eyrna- nef- hálslækn. ók. Auaturstr.22 fstd 3 -8 íslandsbanki opinn 10—21/* og B1/*—7. K.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8árd,—10 iM. Alm. fnndir fid. og sd. 81/* sibd. Landakotskirkja. Gubsþj. 9 og 6 á helpiim. Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1. Landsbankinn H-21/*, B1/*—61/*. Bankastj. 12*2 Landsbókasafn 12—8 og B—8. Útlán 1—8 Landsbúnabarfélagsskrifstofan opin frá i2 —2 Landsfébirbir 10—2 og B—6. Landsskjalasafnib hvern virkan dag kl. 12-2 Landssiminn opinn daglangt (8—9) virka daga helga daga 10—12 og 4—7. Lækning ókeypis Anstnrstr. 22 þd. og fsd. 12 -1 Náttúrngripasafnib opib l1/*—21/* á sunnnd. Samábyrgð Islands 10—12 og 4—6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl. Talsimi Reykjavíknr Pósth.8 opinn daglangt (8—10) virka daga helga daga 10—9. Tannlækning ókeypis Anstnrstr. 22 þrd. 2 -8 Vifilstabahælib. HeimsókL.irtimi 12—1 Þjóbmenjasafnib opib sd, þd. fmd. 12—2. Morgunblaðið. Kemur út á hverjum morgni, venjulegt blað (4 bls.) á rúmhelgum dögum, tvöfalt blað (8 bls.) á sunnu- dögum. Auglýsingúm sé skilað fyrir kl. 2 deginum áður } Isafoldarprentsmiðju. Kostar 65 aura um mánuðinn. Tekið við áskriftum í ísafoldar- prentsmiðju. Einstök blöð kosta 3 aura. Talsímar 500 og 48. fyrir sig. Lýsir myndin mjög átak- anlega meðferðinni á stúlkuaumingj- anum, meðan hún er hjá þessum óaldarlýð. En á skammri stund skip- ast veður í lofti. Fóstursystir henn- ar kemst til vegs og virðingar fyrir drengskap góðra manna, og þá hættir hún ekki fyr en hún finnur og frels- ar vinkonu sína úr ánauðinni. Er sá þáttur áhrifamikill, og vel leikinn, eins og öll myndin. Búningar og tjöld eru með þeirr- ar aldar sniði, er sagan gerist á, og fróðlegt að sjá allan ramma mynd- arinnar. — Leikendurnir eru frakk- neskir. Gamla Bíó sýndi fyrsta sinni í gærkvöldi zLeyndarmál vagnstjór- ans« Myndin er leikin af dönskum leik- urum af mikilli snild, er bæði áhrifa- mikil og rðlileg. Vagnstjóri nokkur sem þykist eiga öðrum mann heiptir að gjalda, fals- ar ábyrgðarskirteini til þess að hefna sín. Maðurinn, sem er saklaus, er dæmdur eftir líkum til fangelsisvist- ar. Þegar hegningartiminn er lið- inn leitar hann sér atvinnu og kemst að lokum í brunaliðið. Nú vill svo til við húsbruna nokkurn siðar, að haun bjargar vagnstjóranum út úr eldshafinu, en hann var þá svo brunn- inn að fara varð þegar með hann á sjúkrahús,- og þar deyr hann. En áður en hann gefur upp öndina meðgengur hann glæp sinn, og end- ar þessi átakanlega saga á því að sýkna brunaliðsmannsins er leidd í ljós. Auk þessarar löngu myndar sýnii leikhúsið aukamynd: »Hr. Kakerlak á jerðálagi* sem er bæði skemtileg og ákaflega hlægileg. Það er alveg furðulegt hvernig mönnum hetir hér tekist að ná lifandi myndum af at- burðunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.