Þjóðvinurinn - 13.10.1926, Blaðsíða 1
PJODVINURINH
▼
Ritstjóri og útgefandi: Jóhann Sch. Jóhannesson.
I. árg.
Akureyri 13. október 1926.
1. tbl.
Ávarp.
Það þarf ekki langan formála
fyrir lítilli bók, segir máltœkið, og
á það við þetta litla blað, sem nú
hefur göngu sína í fyrsta sinn.
Ýmsum finst líklega aif það sje
að bera í bakkafullan lækinn, að
gefa út fleiri blöð en nú er gert. En
þegar betur er aðgæU sjest, að blöð-
in eru yfirleitt smávaxin og annað,
sem verra er, að þau eru flest stétta-
blöð, sem bera aðeins fyrir brjóstinu
heill vissra stjetta. Auka þau því
mörg hinn óheppilega stjettaríg, og
reka fleyga stjettarígs og sundrung-
aranda dýpra og dýpra inn í með-
vitund þjóðarinnar. Þetta blað á
ekki að vera málgagn neinnar
vissrar stjettar. Það vill líta
jafn sanngjörnum augum yfir alt
þjóðfjelagið og láta alla njóta sann-
mœlis, og þjóðina vantar einmitt
slík blöð. Það vill sameina þjóð-
ina en ekki sundra henni.
Blaðið mun flytja frumsamdar og
þýddar greinar, Ijóð, smásögur og
frjettir, ef því endist aldur til. Inn-
an skams birtist í því dálítil ferða-
saga eftir útgefandann úr utanför
til Danmerkur og Noregs. Og yfir-
leitt verður reynt til þess að gera
blaðið fróðlegt og skemtilegt.
í stjórnmálum fylgir það stefnu
íhaldsflokksins.
Ihaídsflokkurinn.
Enginn stjórnmálaflokkur í land-
inu er atyrtur eins mikið og íhaids-
flokkurinn. Einn andstæðingur hans
sagði hjer á fundi í fyria, að hann
væri á móti öllu góðu. Álíka óvit-
urlegum og ósanngjörnum ummæl-
um rignir yfir hann. Bölvað íhaldið
eða afturhaldið, segja menn. Þegar
eitthvað fer miður í þjóðmáiunum,
segja andstæðingarnir að alt sje það
verk íhaldsins.
Sá, sem þetta ritar, er einn af
þeim mönnum, sem telja fhalds-
flokkinn besta stjórnmálaflokk lands-
ins. Og skal nú farið nokkrum
orðum um hann.
Það má segja, að nafnið íhaids-
flokkur sje ekki að öllu ieyti heppi-
legt eða rjett valið. Það var tekið
með tilliti til fjárhagslegrar viðreisn-
ar og andstöðu á móti óhollum
byltingastefnum. Annars er flokk-
urinn bæði frjálslyndur og styður
hverskonar framfarir, svo að íhalds-
nafnið á þar illa við. Hefði verið
heppilegra að nefna hann viðreisn-
arflokk, frjálslynda flokkinn (því að
hann er á móti öllu ófrelsi) eða eitt-
hvað því um líkt. En nafnið ætti
ekki að hafa svo mikið að segja.
Menn eiga að líta á verkin, en ekki
nafnið. Og óþarft er, að nöfn stjórn-
málaflokka sjeu mjög skrumkend.
íhaldsflokkurinn er ekki stjetta-
flokkur. í honum eru menn úr öll-
um stjettum: embættismenn, kaup-
menn, bændur og verkamenn. Þar
fylkja menn sjer utan uin mál og
hugsjónir, en flokkast ekki eftir
stjett eða stöðu. Er það því rang-
nefni, að nefna hann kaupmanna-
flokk, og þá, sem hann fylla, kaup-
mannasinna.
Stefnuskrá íhaldsflokksins er í
þrem greinum:
1. Fjárhagsleg viðreisn landsins.
2. Efling allra atvinnuvega.
3. Að styðja almenna mentun, vís-
indi og listir.
Það sjest á stefnuskránni, að
hugsað er um allar stjettir. Engan
á að bera fyrir borð. Það er ekki
meining þessa flokks, að gera neinn
hluta þjóðarinnar að olnbogabörn-
um eða níðast á neinum flokki
manna eða stjett hvað gjöld snertir,
eða neita neinum um styrk, sem
vill bjargast áfram, hvort sem hann
er bóndi, verkamaður eða útgerðar-
maður.
í engum flokki eru eins margir
framtakssamir menn eins og íhalds-
flokknum. í honum eru flestir út-
gerðarmenn landsins og atvinnurek-
endur (að sumum bændum undan-
skildum). Og það er fje frá þeim.
sem mest og best hefir forðað land-
inu frá fjárhagslegu hruni og gert
það kleift, að verja fje til ýmsra
framkvæmda og menningarbóta fyrir
almenning.
Það þurfti sterkt átak til að forða
landinu frá fjárhagslegu hruni. Hefir
íhaldsstjórnin verið ásökuð mjög
fyrir þungar álögur. Hafa andstæð-
ingarnir kvartað undan því, hve al-
þýða hefir orðið að borga mikið
og tekjur ríkissjóðs farið mjög fram
úr áætlun. En síst ættu menn að
harma það, hve mikið hefirborgast
af skuldunum. Og nú er farið að
Ijetta byrðunum af bökum almenn-
ings. Eiga allir þakkir fyrir það,
hve drengilega og möglunarlaust
þeir hafa borið hin þungu gjöld.
Enda hafa tvö undanfarin ár verið
mikil veltiár.
Þá hefir stjórn íhaldsflokksins
v