LANÖSb'GKASAPí JVí i355r»«> 1. toIuBTað. T 331. WOS 9. apríl 1934. Fiskstöðvablaðid Gefið út af samfylkingarliði fiskverkunarkvenna. II vað eigum við a5 hækka taxtanu mikið ? Við, sem vinnum við fisk- þvott, þurfum að athuga betur kjör okkar en við gerum, því þau eru ekki glæsileg. 1 taxtanum okkar, sem nú er, eru þessi ákvæði: Himnudreginn þorskur frá 21 þuml. kr. 2,00 pr. 100 stk. Millifiskur frá 1821 þuml. kr. 1,05 pr. 100 stk. Labri. frá 1618 þuml. kr. 0,80 pr. 100 stk.' Labri 16 þuml. og þar fyrir neðan kr. 0,55 pr. 100 stk. Við finnum fyrst hvað ósann- gjarn taxtinn er, þegar við för- um að vinna eftir honum. Að meðaltali vöskum við af þorsk 450 á dag og verða það kr. 9,00. Það er bezti liðurinn. En það er þó langt frá því, að hann sé góður, því það er svo erfitt að vaska, að það er ekki hægt að gera það fyrir minna en að við fengjum kr. 10,00 á dag til jafnaðar. Af millifiski vösk- um við til jafnaðar 500 á dag og verða það kr. 5,25 eftir taxt- anum. Sumstaðar er borgað kr. 2,00 á þennan lið og virðist manni það alls ekki mega vera minna. Nú hafa þær stúlkur kvartað yfir þessum lið, sem hafa taxtakaupið á honum og er það ekki nema sjálfsagt. Það hefir verið rætt um það í Framsókn og komið til orða, að borga skuli kr. 1.40 á 100 stk. En nú hljótum við að sjá, að þó að þetta sé hækkun fyrir nokkrar stúlkur, er það aftur á móti lækkun fyrir þær, sem nú hafa kr. 2,00 á 100 stk. Þess vegna verður að hækka liðinn það mikið, að enginn líði við það. Þar sem sumir at- vinnurekendur borga kr. 2,00 án þess um það sé talað xid þá, verður það svo augljóst, að þeir geta það allir, og við verð- um að krefjast þess, að hækk- aður sé taxtinn. Þar næst kem- ur labrinn. Hann er vaskaður allur saman fyrir kr. 0,80. Okk- Ur er sagt, að hann jafni sig upp, þegar við vöskum þann smærsta fyrir sama verð, en við vitum bezt sjálfar, hvernig það er tæplega einn fjórði hluti, sem er undir 16 þuml., en aft- ur á móti er mest af honum frá 18 þuml og allt að því 23