Helsingi - 01.06.1945, Page 1

Helsingi - 01.06.1945, Page 1
l.TBL. |Ntl íjimtamuu a mc altcmmt pittu- 1. ÁRG. Helsingi Ritstj. og útgef.: Steindór Sigurðsson GEFINN ÚT FRÁ KRISTNESHÆLI Júní 1945 Þess skal fyrst og fremst getið að þetta litla blað, sem hér leggur upp í ferð, á ekki að koma í stað hins boð- aða rits míns „Eins helsingja,“ eða verða í framtíðinni eitthvert fylgirit hans á einn eða annan hátt. Þessi Helsingi verður því riti útgáfu þess og vœntan- legu hlutverki algjörlega óháður í nútíð og framtíð, þegar því sleppir, að ég tel mér skylt, persónulega, að verja mestu rúmi blaðsins að þessu sinni, til að flytja áskrijendum „Eins helsingja“, víðsvegar um landið, nokkra greinargerð fyrir því, að útkoma hans, frá þeirra sjónarmiði, má virðast dragast óþarflega lengi. Og þá ekki sízt þeim, sem fengið hafa í hendur hina fjölrituðu orðsendingu mína í desember síðastliðnum, þar sem ráð er fyrir því gert, að ritið komi út snemma á þessu ári. Margt annað í sambandi við útgáfu „Eins helsingja“ og stofnun „Hels- ingjasjóðs“, finn ég að eigi má dragast öllu lengur að gefa skýringar um, gagnvart hinum mörgu samfélagslega hugsandi körlum og konum, sem svöruðu ákalli mínu. En svo og síðan mun „Einn helsingi“ sjálfur bera sín boð og annast flutning sinna mála í eitt skipti fyrir öll hvað mig persónulega snerlir. Ef allt fer svo sem skyldi um hans framgang, þá œtti honum að verða lengra lífs auðið. En það verð- ur þá undir annarra stjórn og umsjá en minnar. En þetta litla blað, — þessi Helsingi, samnefnari allra þjóðfélagslegra og sam- félagslegra helsingja, — það verður mitt blað, hvort sem það lifir langt eða skammt, — mitt persónulega blað, óháð öllum flokkum og félögum, skoðunum og sannfœringartrú einstakra hópmenna eða fjöldans. Það mun aðeins fara undir einu merki, — aðeins fylgja óskift og stöðuglega með einni hugsjón, — aðeins fylgja einni grundvallarlínu, — og gera það svo langt sem geta þess og möguleikar frekast mega. Það er undir merki frjálsrar og fordómalausrar hugsunar, sem það skipar sér, — um hvaða mál sem það fjallar um — frá hvaða sviði, — úr hvaða átt sem máb efnin koma. Og það telur sér ekkert mannlegt óviðkomandi, hverju nafni sem nefnist og hvers eðlis sem er, og því valið sér hið forna latneska spakmœli að einkunnar- orðum. Vitanlega getur það þó ekki lagt orð að nema að mjög óverulegu broti þess er á dagskrá kemur manna á meðal á hverjum tíma, bœði sökum smœðar sinnar og svo eðlilegra takmarkana á þekkingu og reynslu, á hinum ýmsu sviðum. En því skal heitið, að það litla, sem unnt verður að taka til athugana og umrœðu, verður aðeins umfjallað út frá þeirri grundvallarreglu, að beita algetu sinni að því, að reyna að skyggnast gegnurn alla fordóma, erfðum bundnar skoðanir og múgsefj- anatrú, á hverju einstöku viðfangsefni; — reynt að komast inn á öll viðhorf hinna ýmsu aðstœðna og öll sjónarmið hinna ólíku aðila, svo langt sem möguleikar mann- legs skilnings og persónuleg reynsla og þekking ná. Blaðið mun þar af leiðandi eingöngu fjalla um þau efni, sem ég tel mig hafa nokkra þekkingu um og reynslu af á einn eða annan hátt, — einhverja persónu- lega kynningu af eða yfirsýn. Eg býst því við, að er frá líður muni bókmenntum verða helgaður all víður vettvangur á síðum þess, ýmsar lífsskoðanir, og stefnur og straumar í listum og lífi þjóða og einstaklinga. Og svo hefi ég ráð fyrir gert að í nœstu blöðum byrji greinarflokkur um drykkjuskap og langdrykkjumenn, bindindisboðun og almenningsálit, með tilheyrandi postulum hvers fyrir sig og Framhald á 3, siðu. EFNISSKRA 1. TBL. Fylgt aS heiman Úr ntyrkri .... 1030 atkvæði Minningarsjóður frjálsrar hugsunar á íslandi 1944 Orðsending Dýrt er drottins orðið Stuttar hugvekjur: Sparsemin Svo mikið' fyrirliggjandi... Boðsbréf Dreifar og dægurskraf Af hugleiðum Stakan Til áskrifenda. Úr myrkri hinna löngu nóita í aðstreymandi skugguní hins nóttlanga, íslenska skammdegis, lagði ákall mitt í Opnu bréfi af stað héðan, úr hrunheimum hinnar bleiku vofu. Hvað viðtökur mannanna á veg- ferð þess mundu gilda fyrir hróp- andann flutti það sjálft með sér, og verður það ekki endurtekið hér eða annars staðar oftar. En rödd hrópandans, — hróp helsingjans fékk bergmál úr bláum fjarska áður en sársaukinn að baki þess fengi það knúð upp í hæðir hins gjallandi helóps, — helóps, sem deyr svo skyndilega í hinni algeru þögn yfirskynjanlegrar tónhæðar. Enginn nema ég sjálfur mun nokkru sinni geta skynjað hvað bergmálið sem barst mér utan frá þjóðinni færði aftur heim í hug minn, bergmál hinna ákallandi orða minna, — hve stór þau lífsverðmæti voru, er það gaf mér að nýju. En um mánaðamótin nóv.—des. s. 1. sendi ég svo frá mér fjölritaða Framhald á 6. síðu.

x

Helsingi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helsingi
https://timarit.is/publication/949

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.