Vísir - 30.03.1915, Blaðsíða 2

Vísir - 30.03.1915, Blaðsíða 2
VJSl K Svningin í San. Francisco. Ameríkumenn hafa opnað heljarstóra sýningu i San. Francisco, en henni er veitt minni at- hygli nú, en ella hefði verið, sökum stríðsins. Á sýning þessi að standa til 4. desember. það sem meðal annars hefir komið sýningu þessari á stað, er Panama skurðurinn, er hefir breytt mjög allri verslun þar vestra. Borgirnar á vesturströndinni standa nú mikið betur að vígi en áður, og aukast því og margfaldast. Mynd sú, er hér fylgir, er yfirlitsmynd yfir sýningarsvæðið, er tekur yfir stórt svæði. Fremst á myndinni eru skemtihallirnar, en án þeirra fær engin sýning staðist, því þær eru ein af aðaltekjulindum sýninganna. Á miðju sýningarsvæðinu liggur aðalhöllin, þar sem hinar einstöku at- vinnugreinar hafa bækistöðu sína, en á bak við þær koma sýningarhallir fylkjanna. Á þessari sýningu, er, eftir því er vér höfum heyrt, sýnt mikið af uppfyndingum landa vors H. Thordarson, er nú er frægur orðinn fyrir uppgötvanir sínar. Ráðherraefni. iii. Þegar Pugnax, vinur vor, forfall- aðist á dögunum, bað Vísir mig að hafa tal af prófessor O. H. Eg er ákaflega mikil höfðingjasleikja og lofaði því þegar í stað að gera þetta, lagði af stað upp á Hverfis- götu og barði að dyrum hjá pró- fessornum. Frúin kom til dyra. »Eg þurfti nauðsynlega að finna prófessorinn«, sagði eg. »Hann er ekki heima sem stend- ur«, svaraöi frúin, »en |ann kernur von bráðar til að borða, kanske þér viljiö biða eftir honum — gerið þér svo vei og koma inn«. Og eg fór inn og beið á kont- órnum. Helstu húsgögnin eru kvist- óttar syllur, olíubornar og kvala- bekkir, konstrúeraöir af eigandanum, sem er specialisti í hygiæne, og þar sem það þykir betra, erstráð ryðg- uðum hnífum og klípitöngum, frá þeim dögum, er húsbóndinn fékst við skurðlækningar. Aftur á móti eru þar reglustikur, tálguhnífar og teikniáhöld, öll nyfengin frá Julius Busse í Berlín. Meðan eg var að virða þetta fyrir mér, kom húsbóndinn alt í einu eins og skriða inn úr dyrunum. »Sæl vertu kona og sæl veri þið blessuð börn — og sæll vertu, þarna maður. Ja, nú stendur mikið til. Kongurinn vill fá að tala við mig. Hann ætlar líklega að gera mig að ráðherra, og eg er að hugsa um, að taka við því, þó að ekki verði nema í hálft ár — og eg fer«. »Viltu ekki fara að borða, góði minn?« sagði frúin. »JÚ, gott er nú það. Og viljið þér ekki fá yður bita með ? Matur er mannsins megin«. Eg þakkaði fyrir og við settumst að snæðingi í borðstofunni. »En kona góð, pakkaðu nú nið- ur dótinu minu í flýti. Skipið fer í kvöldt, kallaði hann upp um leið og við settumst. »Ja, góðurinn minn. Hér er nú sölt síld. Besti matur og kröftug- ur og ódýr að sama skapi. Maður getur svo sannarlega iifað á síld og kartöflum fyrir 20 aura á dag. Og hér er brossaket norðan úr Svína- dal. Ja, eg hefi nú með sjálfum mér verið að útbúa frumvarp til alþingis um lögskipað síldar- og hrossaketsát. Á því einu myndi landið græða, ja, eg man það nú ekki í svipinn. Kona, komdu meö skrifmöppuna mína«, (fær hana og les): »Á lögboðnu hrossaketsáti myndi því landið græða netto 25 þús. 173 kr. og 99 aura á ári og 30 þús. og 12 kr. og 5 aura á síldaráti. Ja, þér sjáið, hvað mikið vinst á því, að vera praktiskur, góð- urinn minn. En nú má eg ekki vera að borða meira. Hvað er að þér, kona góð. Því kemurðu ekki ? Ertu farin að elda aftur? Oleymdu nú engu. Hérna er Jellinek. Vefðu utan um hann pappír og láttu hann vera ofan til í koffortinu — og Statesmans Yearbook frá síðasta ári. Strákar, komið þið með hattinn minn — ) þann hvíta — ekki vil eg fá sól- sting eða sólbrenna. Og eitthvað þarf eg við þessu bölvuðu ekki sinns hárroti. Kristói, phenólspritt 200 grm, 190 grm spritt og 10 grm phenhóU, (skrifar recept). »Fari þið með þetta í apótekið, strákar, og flýtið ykkur. Nei, b;ðið þið við, þeir færa það iiklega inn, og í á- fengisbókina vil eg andskotann ekki komast«. (Klórar sér bak við eyr- aö). »Nei, fari þið heldur ofan í Þingholtsstræti til hennar frú Mein- holt og kaupið þið eitt glas af Eau de Juventine, það er bæði við hærum — cheveux gris — og skaila, en ekki dugar að koma með skalla fyrir konginn. Svona, drífi þið nú ofan í koffortið: Hatt- inn, ekki að bögla að óþörfu, bún- aðarrit Hermanns, Monde medicale eldspýtur, heilsufræ ðiSteingríms, skro og læknablaðið, með greininni minni. Eg ætla að sýna konginum hana. Jæja, þá er ekki annað eftir, en aö skrifa úrsögnina úr flokknum og taka hana aftur um leið. Með svona grábölvaðri miðstjórn vil eg auðvit- að ekki vera nema hálfur í flokkn- um, í mesta lagi. Jæja, vertu nú blessuð og sæl, kona — þið fylgið mér börnin góð ofan á bryggju — og ekki þarftu að halda, að eg fari mér að voða— nema ef vera skyldi, að eg yrði hertekinn í Leith. Maður má auð- vitanlega ekki svo mikið sem líta á rennusteinana nýju eða mæla út í hlutföllum gluggastærðir, án þess að verða tekinn. En skítt veri með það og svei því. Veri þið sæl«. Snorri. Skrautgirni og lfkamsfegurð. íslendingar hafa ætíð verið mjög skrautgjarnir — bæði karl og kona — að því er sögurnar segja. Að því leyti mun þjóðin ekki hafa úr- ættast svo mjög. Lítum á klæðn- aðina. Athugum hinn tvokallaða íslenska kvenbúning, bæði hvers- dagsbúninga og hátíðabúninga. Það eru oft dýrar flíkur með öllu til- heyrandi, og eru gerðir til að glóa eða ganga í augun. Eða hversu mikið verðmæti getur ekki legið í gull- eða silfurhólkunum, í spenn- unum og spöngunum, í beitunum og næluuum og öllu því »stássi«, nauðsynlegt er talið að fylgi fyrirmyndar búningi. En flest ó- þarft og óhentugt. Menn, sem ókunnir eru hðgum vorum — efnum og ástæðum — en kyntu sér búninga kvenþjóðar- innar, gætu haldið að hér væru ekki sjaldgæfar miljónara dætur. Margt fleira mætti nefna, sem bendir á skrautgirni fólks, bæði karla og kvenna, en eg vil ekki þreyta lesandann með slíkum upp- talnigum. Hver og einn getur gert' sínar eigin athuganir og veitt því eftirtekt, sem fyrir augun ber. Bendir það á fegurðarsmekk, að fólk hengir utan á sig alls konar skrautgripi og klæðist skrautlegum fötum? Ekki þarf það að vera. Oft getur slíkt verið tómt prjál og tildur, sem ekki á neitt skylt við smekkvísi. Fegurðartilfinningin krefst samræmis í hlutunum. Er þá samræmi í því, er menn sjá luralegan og illa hirtan líkama hlaðinn skrauti og gersemum? Hver hefir ánægju af að horfa á dýr klæði, fingurhringa, armbönd og hálsfestar, sem flest ungt fólk keppist um að skreyta Ifkami sína með, einkum þegar það ætlar á mannamót, og horfir þá ekkí í skildinginn til þess að alt sé sem glæsilegast, hver gæti notið þess að horfa á slíkt, ef fólkið hefir svo í önnunum gleymt að fara í bað, og svitalyktin yfirgnæfir öll ilm- vötn, og þeir, sem hafa heilar lykt- artaugar, verða að grípa um nefið. Eða lýsir það nokkrum fegurð- arsmekk, er menn sjá skrautbúnar blómarósir brosa og í Ijós kemur, að þær hirða ekkert um það, þótt munnur þeirra sé svartur eöa skaö- skemdur af tannsýki og ein og ein heil tönn sitji á stangli í tanngarð- inum, eins og í tröllskessunum forðum. Og hvernig njóta sín skrautklæðin, ef menn eru klunnalegir í fram- kornu, stirðir í öllum hreyfingum og ganga slánalega, og eru skakkir og skældir á velli. En svona virðist í raun og veru fyrirmynd manna á vorum dögum vera í þessum efnum. Menn skeyta alt of lítið um líkamsrækt og hafa æði sljóan smekk fyrir Hkamsfeg- urð og hreysti, og standa menn mjög að baki fornmönnum í því, en það er illa farið. Svo viröist næstum, sem fólk keppi helst að því, að geta hulið Hkamslýti sín með aðkeyptum vam- ingi úr búðum, en gæta þess lítt, að mesta prýðin liggur í vel tömd- um og vel hirtum líkama, og hann einn er fær um að bera skrautleg klæði, svo vel fari. Óhætt mun að fullyrða, að hér eyða menn tiltölulega miklu fé f klæðabuiöi, en óvíst er, hvort hægt er að hrósa oss fyrir smekkvísi eða hygni i þeim hlutum að sama skapi. Það er list fyrir sig, að búa sig snyrtilega, einkum ef menn hafa litlu úr að spila, og mundi ekki vera ilia fallið fyrir pyngjur margra feðranna hér, að kvenþjóðin setti stolt sitt í það, að fara vel með Htil efni. Ef fólk vill klæða sig svo, að það »taki sig út«, þá þarf það að hafa næman smekk og opið auga fyrir samræminu í hlutunum. Sömu flíkurnar fara ekki öllum margreynt . sem

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.