Vísir - 24.05.1915, Blaðsíða 2

Vísir - 24.05.1915, Blaðsíða 2
v i S 1 Í< ^riðjudaginn 25. þ. m. hefsí Ný útsala í Bergstaðastræti 27. Þar verða seld brauð frá bakaríi Björns Símonarsonar. Ennfremur verður selt: Mjóik (í glösum og samkv. pöntun) egg, gosdrykkir, öl, niðursoðið kjöt og kæfa o. fl. o. fl. 3r Isiensk frímerki [óbrúkuðj verða þar einnig til sölu. 5J í Heliusondym. Hér getur að líta ytstu vígin við Hellu- sund, rétt úti við Mið>- jarðarhafið. Vígið, sem nær manni er, Asíu- megin, heitir á tyrk- nesku Kum Kale, og þýðir það Sandborg, eða eitthvað því um líkt. En hinum meg- in við sundið, Evrópu- megin, sést Sedd ul Bahr, það þýðir Hafs- loka, eða Sundaslag- brandu'. Þar hata nú . bandamenn skipað . upp sumu af Iand- hernum, er þeir sendu til höfuðs Tyrkjanum. Þarna er því barist bæði á sjó og landi þessar mundir. Það voru þessi tvö vigi, sem fyrst uiðu fyrii flotaarásinni, og munu þau nú vera mjög skemd, eða alónýt, enda voru þau aldrei eins öflug og hin, sem innar liggja og boðið hafa bandamönnum byrginn til þessa. VISIR kemur fyrst um sinn út kl. 12 á hádegi, Afgreiðsla blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- um degi. Inngangur frá Vallarstræti. Skrifstofa á sarna stað, inng frá Aðaistr. — Ritstjórinn til viðtals frá kl. 12-2. Sími 400.— P. O. Box 367. Ytsí Fáheyrð hefnd fyrir trygðarof. Maður er nefndur Arthur Hearn Cawl, einkasonur auðkýfings nokk- urs í Bridgeport í Connecticut, sem á margar miljónir. Konu hafði hann sér festa, er hét Emily Whee- ler, og var hún einnig af fjáðum komin. Einu sinni sagði hún hon- um upp, eins og gengur. Fór hann j þá og hitti hana, en fékk engu j tauti við hana komið. Hann bað hana þá að skilnaði að kippa í spotta nokkurn, og gerði hún það, því að hún hugði, að hann væri eitthvað að gera að gamni sínu. Kom þá hár hvellur og maðurinn datt niður dauður. Hann hafði sem sé fest annan enda spottans við gikkinn á skammbyssu, sem hann geymdi á sér milli fata, og var henni svo miðað, að skotið skyldi drepa manninn, þegar er tekið væri í spottann. Svo vel tólcst hefndin, að stúlk- | an féll þegar í öngvit, er hún hafði unnið þetta óhappaverk, og hugðu menn bæði dauð vera, er að var komið. Enginn grunar hana um morð, en mikið er um málið rætt, því að stórbokkar eiga í hlut. Frá bæj ar stj ói narfundi 20. þ, m. !• Bygginganefndarfundarg.frá 13. þ. m. samþ. að frá teknum 1. iið, (að leyfa fslandsbanka að gera viðbót við Melstedshús). Þar á meðal, að byggja stein- steypuhús við nr. 70 á Lauga- vegi. Gunnari Gunnarssyni leyft að byggja bráðabirgðaskýli á brunatópt verzlunarinnar »God- haab«, með því skilyrði, aö það líti þokkalega út og verði rif- ið niður fyrir 1. maí 1916. Sigurjóni Sigurðssyni leyft að byggja steinsteypuhús á Slátur- húslóðinni við Klapparstíg, 2. Fasteignarnefndargerðir frá 12. þ. m. Tjiboð um vörslu bæj- arlandsins. Samþ. að taka til- boði Ágústs PálmasonaríNarfa- koti um vörsluna gegn 500 kr. gjaldi. 3. Fasteignanefndargerð frá 14. þ. m. Leigjandi Elliðaánna hefir beiðst þess, að losast við leigu- samninginn á veiðiréttinum í sumar, vegna stríðsins, gegn því, að greiða einhverjar skaða- bætur. Samþ. tillaga nefndar- innar um skaðabótakröfuna, og | ef leigjandi, Mr. Davidson.geng- ur að henni, er ætlast til að ; árnar verði leigðar ti! einstakra . manna í sumar, líkt og gert var sumarið 1913. 4. Veganefndargerð frá 17. þ. m. samþ. Þar á meðal, að gert verði við barnaleikvöilinn við - Grettisgötu, með því fé, er safnast hefir til viðgerða á barnaleikvöllum, er frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir skýrði frá á síðasta bæjarstjórnarfundi. Verð- listi trá Böðvari Jónssyni um gangstéttir og holræsapípur o. fl. mál. 5. Hafnarnefndargerð frá 14.p. m. Um hana urðu langar umræð- ur, tvær beiðnir lágu fyrir, önn- ur frá Magnúsi Guðmundssyni trésmið, hin frá fiskiveiðafélag- inu »Haukur«, um að fá til kaups lóð þá, er bærinn á fyr- ir neðan lóð hlutafélagsins »Steinar«, fyrir neðan Mýrar- götu. Loks var samþ. að leigja Magnúsi Guðmundssyni part af lóðinni, 20 metra meðfram sjó, gegn 150 kr. árgjaldi, með þeim skilmála, að bærinn geti sagt upp leigunni með 6 mán- aða fyrirvara. (Magnús ætlar að nota þessa lóð til að smíða á mótorbáta o. fl.). Tillaga var samþ. frá Jóni Þorlákssyni, þess efnis, að bæj- arstjórnm vilji gera ítarlegatil- raun að útvega fiskveiðafélag- inu »Hauk« Ióð innan hafn- arlegunnar, þar sem nauðsyn- Iegt þyki, til kaups eða leigu, og einnig öðrum félögum er samskonar beiðnir komi frá. 6. Brunamálanefndargerð frá 18. þ. m. samþykt. Þar á meðal: Einari Erlendssyni leyft að nota Icopal-pappa tii þaka í T I L M I N N I S: Baðhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. lil 11 Borgarst.skrifát. í brunastöð opín v. d 11-3 og 5-7 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d. íslandsbanki opinn og 5‘/2-7 K. F. U. M. Alm. samk. sunnd. 8l * * * 5 6/2 síðd. Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1. Landsbankinn 11 -21/, og 5l/2-6V2. Banka- stjórn 12-2 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Útlán 1-3 Landssíminn opinn v. d, dagiangt (8-9) Helga daga 10-12 og4-7 Náttúrugripasafnið opið P/,-21/, síðd. Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1 Samábyrgðin 10-12 og 4-6 Stjórnarráðsskritstofurnar opn. 10-4 v. «' Vífilsstaðahælið. Hcimsóknart'mi 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. find. 12-2 stað járns á einu til tveim smá- húsum í útjöðrum bæjarins. Út af bréfi »Hins íslenska steinolíufélags« var ákveðið, að ekkert væri því til fyrirstöðu, að kaupmenn gerðu olíugeyma í kjöllurum eða í jörðu, þó þannig, að þeir rúmi ekki meira en 800 lítra, ef þeir eru í kjölíurum undir húsum og ekki meir en 3500 lítra, ef þeir eru í jörð utan húss. Ákveðið að greiða þetta ár reikning sótarans fyrir hrcins- un reykháfa á sjúkrahúsum í Laugarnesi og á Kleppi. Samþ. að kaupa mótordælu þá af Ágúst Flygenring, sem höfð var við »brunann mikla«, fyrir 3,954 kr., er sé greitt úr brunabótasjóði. Borgarstj. gat þess jafnframt, að von væri á tillögum um að auka meir slökkvitæki bæj- arins, jafnvel fá aðra mótor- dælu, brunastiga o. fl. Samþ. að greiða reikninga manna fyrir skemdir. á fötum m. m. við brunann 25. apríl. Gert ráð fyrir, að það verði yfir þúsund krónur. 7. Fátækranefndargerðir frá ll.þ. rn. lagðar fram. 8. Lagðir fram reikningar elli- styrktarsjóðs fyrir árið 1914. Til að endurskoða þá voru kosnir: Sighv. Bjarnason og Magnús Helgason. 9. Umsókn Magnúsar Blöndahls um Ieigu á Stóra-Selstúni til fiskverkunar um næstu 30 ár vísað til fasteignanefndar. 10. Umsókn Benedikts Jónssonar fyrv. sótara um hækkun á eft- irlaunum vísað til fjárhags- nefndar. 11. Beiðni Gísla Þorbjarnarsonar um leyfi til að setja upp hring- ekju við Bergstaðastræti var feld. 12. Þessar brunabótavirðingar voru samþyktar: Á verkmannaskúr »Defensors«, fiskveiðafélags, kr. 3,947,00. Ný virðing á húsi nr. 2 við Vonarstræti kr. 8,065.00. Eftir það var fundi slitið kl. lO1/^ Hafði staðið fulla A1/^ tíma, auk matarhlés, er fulltrúarnir tóku sér. Hrafnkell.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.