Vísir - 30.06.1915, Blaðsíða 1

Vísir - 30.06.1915, Blaðsíða 1
M Utgefaadi: HLUTAFELAG. Ritstj. ANDRES BJÖRNSSON SÍMI 400. Skrifstofa og afgreiðsla í H ó t e I I s I a n d . SIMI 400. 5. á r g ■ 2=^ Miðvikuudaginn 30. jú;í ISlS. 2^=^ 200. ihl. GAMLA BiO Andlitið á glugganum. — GYLDEN DALS-FILM — Áhrifamikill sjónl. í 3 þáttum. Aðalhlutv. Ieika: Holger Reenberg og Poul Reumert! H é r m e ð tilkynnist vinum og vandamönnum að dóttir okkar, Ouðrún, andaðist að heimili sínu þ. 27. þ. m. — Jarðarförin er á- kveðin næstk. mánudag og hefst með húskveðju kl. liy2 f. h. frá heimili okkar, Birtingaholti. Sesselja Jónsd. Simon Ólafsson. Bæjatal á íslandi 1915. þess hefir víst þegar verið getið hér í blaðinu, að nú er búið að gefa út bæjatalið að nýju. þetta er auðvitað ómissandi bók fyrir alla póstafgreiðslu, en hún er og stórþörf öllum þeim, er afgreiðslu blaða hafa á hendi o. fl. Og fróðleg er bókin fyrir alla. Vér höfum verið að líta yfír hana, og satt er það, að margt er bæjsrnafnið fallegt á landi voru. En til eru þau líka ljót og vitlaus. þau nöfn eru eitt af þvi, sem þarf að laga. Og það er alhægt að laga þau, ef eigendur jarðanna vilja. Alþingi samþykti lög um það efni 1913, og samkvæmt þeim þarf ekki annað, ef einhver vill fá betra nafn á bæinn sinn, en að skrifa leyfisbeiðni til stjórn- arráðsins, ef um sveitabæ er að ræða, en sýslumanns, ef það er hús í kauptúni, skýra frá nafni og dýrleika"eignarinnar og ástæð- um til nafnbreytingarinnar, láta fylgja vottorð sýslumanns um eignarheimild og fá honum svo alt saman. Hann sendir svo stjórnarráðinu, og ef það álítur nýja nafnið óhæft, þá koma plöggin endursend og má velja annað nafn. En annars kemur leyfisbref, sem kostar 25 kr. nema ef upp er tekið eldra nafn á býlinu og svo 2 kr. ómakslaun til sýslumanns, auk venjulegs Símskeyti frá fréttaritara Vssis. Khöfn 29. júní. Hermáiaráðherra Rússíands hefir sagi af sér. lialir búasi iil að iaka þáii í árásinni á Heilu>> sund. Bifreiðastöðin við Vonarsiræii (jjfljgr sendir bifreið kl. 7 í kveld tíl Þirtgvalla.~|jteg 4 menn geta fengið farí I WYJA BSO Leyndarmál. Sjónleikur eftir Otto Rung. leikinn af Nordisk Films Co. Aðalhlutv. leika: Olaf Fönss og frú Lily Beck (klichéer) útvegar Einar Hermannss. Brekkug. 3. Rvík. Aukafundur í Hringnum í dag kl. 5 á venjulegum stað. Áriðandi að sem flestar mæti. þinglestrargjalds. Ekki má taka upp samnefni við annan bæ í sömu sýslu. það væri nú ástæða til þess, að fá sumum nöfnum breytt fyrir það eitt, hve mörg samnefnin eru, oft í sömu sveit. Hólarnir eru t. d. ekki færri en 47, Hvamm- arnir 39, Bakkar og Brekkur37, Grundir 36 o. s. frv. En meiri ástæða er þó það, að sum bæja- nöfnin eru til minkunar, eins og þau eru, og málspillingar. þau eru ekki fá, sem eru eitt- hvað afkár, eða jafnvel alveg ó- skiljanleg. Eg skal nefna nokk- ur : Bár, Bjalli, Bjálmholt, Bjóla, Briti, Butra, Eima, Erta, Gaul, ípishóll, Klón, Ossabær, Roðgúll, Rot, Snússa, Spækill, Strilla, Tumsa. það er eftirtektarvert, að öll eru þessi nöfn af Suðurlands- undirlendinu, nema 4. Sorglegt, hvernig þær góðu sveitir liafa orðið gróðrarstía fyrir latmæli og málleysur alls konar. því að nú er ekki nóg með þetta. Sum nöfn eru stórum löguð í bókinni frá því, sem þau eru í daglegu tali. það er sem sé siður í heil- um sveitum, að uppnefna bæina! Herríðarhóll verður „Herra", Arn- þórsholt „Öndusholt“ o. s. frv. Og auðvitað eru ýms af þessum nöfnum, sem nú voru talin, af- bakanir úr góðu og gömlu máli, sem oft er ógerningur að vita, hvað verið hefir í upphafi. þá eru útlend nöfn, sem fara óneitanlega illa á íslenskum bæj- um, t, d. Batavia, Berlín, Bern, Gottorp o. s. frv. Eitt er Sjólyst, sem er farið að tíðkast á Suður- landi. Að vísu eru þau flest í kaupstöðum, en það er lítið betra. Auk þessa er mesti fjöldi af nöfnum, sem ekki eiga vel við á bæjum, þótt á þeim sé, eða eigi að heita, íslenskt mál, eða eru þá eitthvað svo ræfilsleg, að það hlýtur að skaprauna þeim, er þar búa, í hvert skifti, sem þeír þurfa að segja til um heimilisfang sitt. Hér eru nokkur: Andrésfjós, Ausa, Beggjakot, Bráðræði, Brók, Dagsbrún, Dallur, Dunkur, Enda- gerði, Eyvakot, Gloppa, Glóra, Halakot, Kotleysa, Látalæti, Lölu- kot, Siggusel, Simbakot, Sýru- partur, Sölkutópt, Tobbakot og Vindbelgur. — Vælugerði er ekki höfðinglegt, en Vælugerðiskot tek- ur þó út yfir. — Mykjunes, Tað- hóll og Vilpa eru ekki þrifaleg nöfn, en þó er Pula verra, því að það er bjöguð danska líka, fjandinn sá arna. Og enn eru það Austursýslurnar, sem eru iangdrýgstar. það þolist varla í Norðurlandi, að draga af manns- nafninu í samsetningunni. Sum nöfn eru óhæfilega stirð i eða löng. það er von að mönn- • um vefjist tunga um tönn, þegar þeir eiga að nefna Belgsholtskot. Og það tekur tíma að nefna Móeiðarhvols-Suðurhjáleigu eða Voðmúlastaða-Austurhjáleigu jafn- vel Dagverðareyrarvík. Mið-Með- f alholt og Eystri-Efribær eru ekki viðkunnanleg. Vandræðanöfn eru það, sem ; eru eins átkvæðis orð í fleirtölu. ' þáguföllin af þeim, sem mest eru ! notuð, hafa orðið til þess, að i; menn hafa gleymt nefniföllunum ; og búa þau svo til vitlaus: Gilj- j. ir (eða Giljar), Seljar, Skinnar, j þorpar, í staðinn fyrir Gil, Sel, I Skinn, þorp. Bókin hefir þess- : S t j ó r n i n. Fundur verður haldinn í verkakvennafél. ,,Framsókn” fimtudaginn 1. júlí kl. 8 í húsi K. F. U. M. Mjög áríðandi mál til umræðu. Konur f jölmenni! S t j ó r n i n. Thorvaldsensfél. Fundur verður haldinn fimtu- daginn 1. jú'í nœstkomandi, kl. 9 e. h. í Iðnaðarmannahúsinu. Aríðandi mál á dagskrál Félagskonur beðnar að fjölmenna. Stjórnin. ar skökku myndir, eins og þær hafa verið í framtalsskýrslum hreppstjóranna, en reyna hefði mátt að laga þær, til þess að kenna mönnum það rétta. Enn fremur hefði ekki átt að láta sjást annað eins og eignarfallið Vallna. það misskilur enginn, þótt þessu vitlausa n-i væri sleft, sem því miður er í daglegu tali sumstað- ar. Sama er að segja um Vaglir f. Vaglar. Rétt mun vera- að skrifa Seyla, en ekki Seila, og ætti að kenna mönnum slíkt með því, að hafa það rétt í svona bókum. Loks var það alveg ófyrirgefanlegt, að gjöra Egildar- holt úr. Eyhildarholti, sem altaf er stafað rétt þar nyrðra.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.