Morgunblaðið - 05.03.1915, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.03.1915, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ A|s. John Bugge <£ Co. Bergen. Kaupir: Hrogn og Lýsi. Selur: Tunnur og Salt. Símnefni: „Bugges“ Bergen. enn sókn af hendi Rússa norðvest- an við Lotnza. í Przasnyzs-héýaði hafa Rússar náð ágætum sigri og fullkomnum. Þjóð- verjar flýja undan í áttina til Janow og Mlawa. Tvær þýzkar höfuð- deildir voru aigerlega sigraðar og biðu þær fádæma manntjón. Rússar handtóku rúmlega io þúsund manns. Austurrikismenn drógu saman ógrynni liðs í Karpatafjöllum þann 28. febrúar. Höfðu þeir stórar fall- byssur og gerðu grimmileg áhlaup sunnan og austan við Tarnov, en þeim áhlaupum var hrundið og biðu óvinirnir gríðarlegt tjón. Aköf orusta stóð einnig á sunnu- daginn sunnan við Przemysl. Voru margar sveitir Austurríkismanna strá- drepnar þar og Rússar ráku herafla þeirra algerlega af höndum sér í byssustingjaorustu. Á fáum dögum hafa Rússar tekið rúmlega ^iooo menn höndum á þessum stöðvum. í Austur-Galizíu biðu Austurríkis- menn stóran ósigur hjá vegunum sem liggja til Stanislaus og hand- tóku Rússar þar rúmlega 1250 manns og náðu 4 vélbyssum að herfangi. í Bukowina náðu Rússar Sadagora aftur og sókn Austurríkismanna í þessu héraði er því algerlega hnekt. Her Rússa í Kákasus hefir tekið tyrknesku höfnina Khopa, sem hafði mikla hernaðarþýðingu fyrir óvinina. Hvar er Pau hershöiðingi? Yms blöð og fregnir hafa stað- hæft það að Pau hershöfðingi hafi verið sendur til Rússlands í þeim erindagerðum, að stjórna her þeirra Rússanna. Blöð bandamanna hafa þó haft fá orð um ferð hershöfðingj- ans. Þykir það reka sig nokkuð hvað á annað, lofið sem borið var á herkænsku Rússa fyrst í stað, og svo hitt, að Frakkar skuli þurfa að senda þeim hershöfðingja sína. Norsk og dönsk blqð fluttu þær fregnir, að Pau hefði farið norður til Noregs fyrst og þaðan til Svíþjóðar og Rússlands. Nú er það sannað að svo hefir ekki verið, því á sama tíma sat Pau veizlu hjá Venezelos forsætisráðherraGrikkja suður í Aþenu- borg og var þar mikið um dýrðir. En enginn veit enn hvernig á þvi hefir staðið, að hann valdi þá leiðina. ! wmÁt/os \P<ziert>eaci JjA^'rcleiVi tnder’i&nd < ' <■' > * u[V« ’ voly heóáQ^^&uji/evpoot , \ : p.1 , jÆaeJfam/cn vðorci cf\ Birmjaqham f Á* 4 jpswich ; J’’ Colchester* —IONHONjL^s ’ 15 fJjSulhampton. B Mhhn . * jflyerne&s mm \eyyCCX5l> ú'atU-Qy * Dublin f SOnffífvív/ £,Limertck \Ýanxc "t mmfem 'KfUanney tv**np. - _ 1. / ÍTcrgaat,. YV/t . 7 •, ui- JCau Ji,, CIl “v -{ '^Mcive ‘ - ' ,.x l FAWC I ———"■ l"v---:-llr= Hafnbannið. Kort þetta er af stóra Bretlandi og siglingarsvæði því, er Þjóðverjar hafa lokað með kafbátum sínum, eða lýst yfir að þeir ætli að Ioka með kafbátum. Á efri myndinni sést kafbátur, sem sökkur kaup fari. Er það lítið sýnishorn þess ófriðar er Þjóð verjar reka nú. Og þótt Bretar hafi látið svo sem þeir tækju yfirlýsingu Þjóðverja með jafnaðargeði, og telji hana að eins birta til þess að »sýnast«, bendir þó margt á að þeir séu ekki jafn öruggir sem þeir bera sig borginmannlega. Má þar til dæmis nefna það örþrifaráð, sem þeir hafa gripið til, að láta skip sín sigla undir fölsku flaggi. Hefði þó fæsta grunað það fyrirfram, að Bretinn mundi fara í felur með þjóðernistákn sitt úti á heimahöfum þar sem hann hefir verið talinn alvaldur. I :if= ..|L ^trrrrrri Kolakaup landsstjórnarinnar. Þegar eg hafði sannfrétt, að stjórn- in hefði nýlega fest kaup á kola- farmi hjá firma einu hér í bænum án þess þó að hafa gert öðrum koia heildsölum eða umboðsmönnum hér viðvart um að hún (stjórnin) hefði slík kaup í huga, heldur þvert á móti, ekki aíls fyrir löngu, svarað fyrifspurn í þá átt neitandi, hringdi eg til eins velferðarnefndarmannsins og spurði hverju þetta sætti, þareð mér fanst málið mér ekki með öllu óviðkomandi. Nefndarmaðurinn vís- aði frá sér til stjómarinnar og Ieyfi eg mér þvl hérmeð að beina spurn- ingum minum þangað, — spurning- um, sem eg tel að hafi fyllilega rétt á sér. Stjórninni má vera kunnugt um, að oft fást betri kjör á sömu vöru og á sama tima hjá einu firmanu en öðru — eða hefir hún gleymt því að hún sjálf geiði ca. tveim shillings betri kaup pr. ton á öðr- um kolafarminum sem hún keypti i haust en hún átti kost á að fá ann- arsstaðar? Skildist henni þá ekki, að fyrir milligöngu umboðsmanna þeirra, sem seldu henni ódýrari farm- inn, sparaði hún landinu ca. 3—4000 krónur? Landið munar um minna. Hversvegna sparkar hún nú til sinna fyrri »Leverandöra« og leyfír þeim ekki að senda tilboð samhliða öðru firma, sem þó hefir ekki áður selt henni kol? Seldu Blöndahl & Sivertsen of ódýrt? Eða var það vegna þess að farmurinn var kom- inn hér á höfn rúmum fjórum dög- um eftir að kaupin \oru afráðin og söluskilyrðum fullnægt og afgreiðsla þar af leiðandi óvenjugóð ? Eða hvað var það? Mér er og kunnugt um, að fyrir skemstu voru hér sömu kolategund- ir á boðstólum bæði hjá firma t,v' sem landsstjórnin nú hefir keyp11 og firma þvi, sem hún áður hefir keypt frá — var þá tilboðið (ri Þvl siðarnefnda mun ódýrara; eins verið nú, þó það sé auðvitað e^ sjálfsagt. Spurningin er aðeins Var stjórninni ekki skylt, nú seta endranær, að leita tilboða ftá ^e1^ um en einum? Er henni ekki s að gera sitt ýtrasta til að fá s bezt innkaup á öllum þeim vöm^ sem hún þarf nð festa kaup á J landsins fé? Hafi ráðherra ^ því fram, eins og eg hefi « stjórnin ráði þvi hvar hún ger'r 3 gr sin, þá er það eflaust rétt, eri * henni ekki um léið skylr að ^ verði og par sem hún kaupir ^ legast? — en það getur hún P eins, að hún leiti fyrir sér á ^ en einum stað. Slikt gera Peir’0ní kaupa fyrir eigið fé, hvað P& þeir, sem kaupa fyrir annarí Jón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.