Morgunblaðið - 05.02.1919, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.02.1919, Blaðsíða 1
AUIU 5 •Jebí'- 1919 84 t&lnM&J Ritstj órnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen íssfoldarprentsmiðjii AfgreifisslnMmi nr. 500 Eri simfTegnir Frá fréttaritara Morgunblaðsins Khöfn, 3. fehr. Hermamiaráðið í Weimar hefir verið afvopnað. Hersveitir stjóm- arinnar eru konmar þangað til þess að vernda þjóosamkomima kinn 6. þ. mán. Bolzhewikkar liafa tekið Kie -v. Spartacistar í Bremen hafa gefist upp, vopn hafa verið tekin af verkamönnum. Botha er formaður nefndar þeirr- ar, sem friðarfundurinn sendir til Póllands. Rúmenar krefjast þess, að fá Bukowina, Bessarabiu, Dobrudscha ög Transylvaniu. Mannerheim, forseti Fiuna, er kominn í opinbera heimsókn til Sví- þjóðar. Fulltrúar hlutlausra þjóða eiga með sér friðarráðstefnu I Bern um .miðjan febrviar. Bátur ferst 5 menn drukna. Stykkishólmi, í gœr. í vikunni, seni leið, fórst bátur rir Eyrarsveit. Voru á honum sjö menn, en tveir komust af. Meðal þeirra, sem druknuðu, var Ásmund- nr frá Bár, hreppstjóri þar i sveit- inni. Nánari fregnir eru enn ókomnar af þessu slysi. Húsbruni á ísafirði ísafirði, í gæi'. í gærmorgun kom Upp eldur í íbúðarhúsi Jóns Edwalds kaup- rnanns á ísafirði. Varð eldsins fyrst vart kl. að ganga títi og var liúsið brmmið til ösku kl. 12. Þetta er í annað skifti á íáum jnánuðum, að hrennur hjá þessum manni. Verzlunarhús þeirra Elías- ar Pálssonar og- lians brann til kaldra kola í haust. Eigi er kunnugt með hverjum hætti eldurinn hefir komið upp að þessu sinni. Tlý tjsa á ÍO sturs pimðið fæst í Zimsenspoiti í dag. Rannsóknardómarai. Stjórnarráðið hefir nú orðið við ítrekaðri beiðni bæjarfógeta og skipað Björn Þórðarson, settan skrifstofustjóra, til þess að halda áfram og leiða til lykta rannsókn þá, er hafin var á „hvíta mansal- inu'\ svo nefnda. Hefir hann feng- ið Pál Árnason yfirlögregluþjón til aðstoðar. Hinn nýi rannsóknardómari er engail veginn öfundsverður af þess- um starfa, sem hami hefir tekist á hendur. Málið er áreiðaulega erfitt viðfangs, máske eitthvert erfiðasta mál, sem nokkurn tíma hefir komið fyfir dómstólinn hér. Og mikið liggur við, að komist verði fyrir það 1 il fulls, svo að afstýrt verði í framtíðinni þeim ófagnaði, sem nú hefir sett svartau blett á bæinn. Ver tÖÍum oflaust fyrir ímmn allra góðra manna, er vér óskmn þess, að hinum setta dómara megi verða sem bezt ágengt. f máli Sigurjóns Sigurðssouar liefir cand. jur. Sigurður Lýðssou verið skipaður dómari. 584, en ekki 854, er talsímanúmer Jóhanns Olafssonar & Co. I auglýsingu þeirra liér í blaðinu í gœr liafði þetta misprentast. Sjórinn hitnar. Vestmanneyingar tóku eftir því náttúruundri hér um daginn, að sjórinn þar umhverfis hitn- aði mikið. Vita menn ekki af hverju þetta stafar, en vera má að það sé af völdum Golfstraumsins. Gæftir hafa verið góðar daglego og mokafli þar sem til spvrzt, svo sem í Sandgerði og Vestmannaeyjnm. Danzleik heldur verzlunarmannafé- lagið Merkúr á laugardaginn kemur. Gullfoss fór frá New York á laugar- dagínn. Úr ioftlnEi Loudon, 3. fehr. Frá friSarfundinum. Þ. 3. fébr. gaf Venizelos forsæt- isráðherrum og utanríkisráðherr- um bandamanna og fulltrúum Jap- ana skýrslu um kröfur Grikkja. Frá París er símað, að stórveld- in fimm hafi samþykt stofnun þjóðabandalags. Aðalgrundvöllur- inn verður samkvæmt tillögum Bandaríkjanna, en í mörgum þýð- ingarmestu atriðunum verður farið eftir tillögum Breta. Wilsou for- scti, Rohert Cecil lávarður og Smuts hershöfðingi vimia í sam- einingu að því, að semja..reglnr um gerðardóma og um það, livernig hegniiigu verði komið frani nieð viðskiítaeinangrun, ef sérstök ríki brjóta í bág við samþyktir þjóða- bandalagsins. Frá Þýzkalandi. Spartacus-hreyfingin í Bremen hefir verið bæld niður og verka- menn þar samþykt að láta vopn sín af hendi. Skorað hefir verið á stjóruina að kalla heriun þaðan, en stjórnin hefir ekki emi orðið víð þeirri áskorun. Þýzka þingið á að koma saman 6. febrúar í Weimar, og er þá búist við nýjum atlögum af hálfu Sparta- cus-flokksins. Hefir stjórnin því í hyggju, að draga sarnan allmikinn her í Weimar til varnar. Vöruflutningar í lofti. 1 dag verður farin fyrsta vöru- flutningaferðin í lofti. Verður hún farin frá Folkestone til Ghent og á flugvélin að flytja tvær smálestir af matvörum, klæðavörum og aðr- ar nauðsynjar. Flughraðinn í þess- mn flutningaferðum á að vei*ða 100 mílur á klukkustund, og verður slíkum samgöngum einnig bráðlega komið á til Antwerpen og Bryssel. Miklar vörubirgðir eru fyrirliggj- andi í Englandi og eiga að fara til Belgíu, en það er ómögulegt að koma þeim þangað sjóleiðis vegna þrengsla í höfnum þar í landi. Kröfur danslcra og norskra sjómanna. Það er símað frá Kaupmanna- höfn, að allsherjarfélag danskra sjómanna og fél.danskra skipstjóra hafi í hjTggju að kref jast skaðabóta af Þýzkalandi fyrir tjón það, sem kafbátahernaðurinn liefir valdið. Skipst jórarnir hafa farið þess á leít við stjórnina, að liefja umleitanir í þessa átt við Þýzkalaud, en sjó- mennirnir ætla að senda fulltrúa á alþjóða sjómannaþingið í Lundún- um. Norskir sjómenn Lafa með hönd- um svipaðar fyrirætlanir. Verkföllunum í Buenos Ayres lokið. Sendisveit Argentínu í London hefir borist símskeyti frá stjóm sinni, um að hafnarverkfallinu í Buenos Ayres sé lokið og að byrjað hafi verið aftur að ferma skip þar í dag. London, 4. febr. Czechar og Pólverjar. Vegna deilu þeirrar, er komin. var upp milli Czeeha og Pólverja, hafa fulltrúar stórveldanna gefið út áskorun til þeirra að bera fram landakröfur sínar fyrir friðarráð- stefnuna og að þeir bíði úrskurðar hennar og séu ekki að leggja undir sig’ með valdi þau Iiéruð, er þeir þykjast eiga. Þangað til endanleg- ur úrskurður er fallinn, fá Czcchar að hafa á sínu valdi járnbrautar- brána norðan við Tesehen og námu- héruðin þar, en Pólverjar hafa á sínu valdi járnbrautina sunnan við Teschen, alla leið til Jablungkau. Friðarráðstefnan mun byggja úr- skurð sinn í málinu á skj'rslu nefndar, sem send verður á staðinn, til þess að kynna sér hvað mikið hvorir hafi til síns máls. Fulltrúum Czecha er falið að sjá iim það, að pólskir fangar, sem Czechar hafa tekið, verði látnir lausir, ásamt her- g’ögnum sínum og flutningi. Bolzhewikkar safna her. Bolzhewikka-stjórnm í Rússlandi hefir gefið út skipun um það, að allir varaliðsmenn á aldrinum 29— 45 ára og lieima eiga í Petrograd og Moskwa og níu öðrum héruðum, skuli kvaddir til vopna. Stjórnar- blaðið segir að þetta sé gert til þess að gera friðarráðstefnunni það Ijóst, að Bolzhewikka-stjórnin sé að búa sig undir. ófrið úr öllum átt- um. Kaupirðu góðan hlut, ;|»á mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Kaupirðu góðan hlut, í»á mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson. Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar þú fékst hann. Sigurjón Pétursson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.