Morgunblaðið - 04.09.1980, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1980
Bjarni Bjarnason kaupmaður:
Við gegnum þjón-
ustuhlutverkinu
KJÖRBÚÐ Bjarna er einhver stærsta neysluvöruverslun í einkaeign á Akureyri og
því ástæða til að ætla, að stækkun og flutningur útibús Hagkaups hefði einhver áhrif
á viðskiptin þar. Tíðindamaður Mbl. spurði Bjarna Bjarnason kaupmann. hvort hann
hefði misst mikil viðskipti við opnun þessarar nýju verslunar.
— Ég neita því ekki, að
fyrsta mánuðinn dró aðeins úr
versluninni hjá mér, meðan
nýjabrumið var á, en ég sé
ekki betur en það hafi alveg
jafnað sig. Júlímánuður kom
betur út hjá mér en oft áður.
Ég sé ekki betur en ég haldi
alveg mínum hlut. Fólk, sem
skipt hefur við mig, heldur því
áfram. Nei, ég þarf ekki að
kvarta.
— Þú hefur ekki þurft að
grípa til tímabundinna verð-
lækkana á neinum vöruteg-
undum til að laða að þér
viðskiptamenn?
— Nei, ég hvorki vildi né
þurfti að grípa til neinna
slíkra hundakúnsta, enda er
fólk fljótt að sjá og skynja, að
þessar verðbreytingar hjá öðr-
um fyrirtækjum eru tóm
blekking. Þeir hjá Hagkaup
sögðust ætla að flytja vörur
norður án þess að leggja
flutningskostnaðinn á vöru-
verðið, til dæmis Coca Cola, og
bjóða þannig lægra verð en ég
gat boðið, því að ég verð að
kaupa af umboðsmanninum á
Akureyri, sem bætir flutn-
ingskostnaðinum vitanlega
ofan á, annað er einfaldlega
ekki hægt. En það leið ekki á
löngu, þar til við vorum farin
að fá inn í búðina til okkar
kókflöskur með verðmiðum
frá Hagkaupi, og þar sást að
þeir voru strax komnir með
annað og hærra verð en þeir
auglýstu fyrst.
— Telur þú, að Hagkaup
hafi tekið viðskipti frá öðrum
smásöluverslunum í bænum?
— Ég veit það ekki. Senni-
legt er, að Hagkaup hafi tekið
einhver viðskipti frá KEA og
er reyndar enginn vafi á því,
en ég veit ekki, hve það endist
lengi. Mér skilst, að sala hafi
eitthvað minnkað fyrst í stað
hjá öðrum smásöluverslunum
í bænum, en mér er sagt, að
þar sé sama sagan og hjá mér,
það sé að jafna sig aftur. —
Við verðum líka að athuga, að
Hagkaup var búið að versla
hér lengi, áður en nýja búðin
kom, þó að hún sé vitanlega
miklu stærri í sniðum en sú
gamla.
— Hvað úm þjónustuna?
— Þar er ég heldur ekkert
kvíðinn. Þeir geta aldrei veitt
sömu þjónustu og ég veiti.
Húsmæður geta ekki farið'
þangað á mánudagsmorgnum
og keypt fisk í matinn, þeir
eru með allt frosið, ekkert
ferskt. Þeir eru ekki að standa
í því að keyra út á Dalvík eða
Ólafsfjörð á sunnudögum til
þess að ná í nýjan fisk til að
hafa á boðstólum á mánudög-
um.
— Þessi mál öll eru býsna
mikið rædd hér í bænum.
— Já, og það er líka mikið
rætt um það hér á Akureyri
hvernig Morgunblaðið hamast
við að auglýsa Hagkaup í
hverri stórgreininni eftir aðra.
Ég hefði þakkað fyrir að fá
brot af þessari óbeinu og
ókeypis auglýsingu, þegar ég
var að byrja að versla og koma
á fót kjörbúð minni, og var
það ekki minna átak. Það er
rétt eins og nýr Messías hafi
verið að fæðast. Það er athygl-
isvert, að í síðustu heilopnu-
greininni, þeirri þriðju á
tveimur mánuðum, var ekki
hægt að fá einn einasta Akur-
eyring til að hæla þessari
verslun, það varð að fá utan-
bæjarfólk og ferðamenn til
þess. Ég skil ekki þessa af-
stöðu blaðsins að hefja þessa
nýju búð upp til skýjanna á
kostnað okkar, sem erum og
höfum verið að halda uppi
þjónustu við neytendur á Ak-
ureyri um langt skeið.
— Hvað segirðu annars um
framtíðina?
— I framhaldi af þessu
mætti gjarnan nefna, að nú er
langt komið viðbótarbyggingu
við Kaupvang og búið að selja
meginhluta hennar ýmsum að-
iljum. Það er byggingarfyrir-
tækið Smári, sem byggir. Þar
verða tannlæknastofur, augn-
lækningastofur og gleraugna-
sala, Norðurfell stækkar við
sig og þar að auki verða einar
fjórar eða fimm verslanir. Öll
sú umferð, sem þessari starf-
semi fylgir, eykur auðvitað
aðsókn og viðskipti hjá öllum
fyrirtækjunum í verslunar-
miðstöðinni. Það er sko engin
ástæða til svartsýni.
Sv.P.
Bjarni Bjarnason fyrir utan verslun sína í Kaupvangi.
Kjörmarkaður KEA í Hrisalundi.
Björn Baldursson, verslunarfulltrúi KEA:
Heiðarleg
samkeppni
eðlileg og
nauðsynleg
NÝLEGA birti Morgunblaðið viðtal við einn af framkvæmda-
stjórum Hagkaups um áhrif nýju verslunar Hagkaups á
viðskiptahætti á Akureyri, en þar segir framkvæmdastjórinn,
að vöruval hafi batnað og vöruverð lækkað. Af þessu tilefni
sneri Morgunblaðið sér til Björns Baldurssonar verslunarfull-
trúa Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri og innti hann eftir
áliti hans á ummælum Hagkaupsmanna.
Hversu stórt er Kaupfélag Ey-
firðinga?
KEA er eitt af stærstu fyrir-
tækjum landsins og rekur marg-
háttaða starfsemi. Kaupfélagið
samanstendur af 25 félagsdeild-
um, með um 7200 félagsmenn, en
þess má geta að velta verslunar-
deilda Kaupfélags Eyfirðinga nam
16,6 milljörðum á árinu 1979 og
mun það einsdæmi hérlendis. Fé-
lagsdeildir hafa áhrif á rekstur
fyrirtækisins, þær kanna t.d. óskir
um opnun nýrra verslana í nýjum
hverfum hér á Akureyri og hafa
margs konar önnur áhrif.
Rekur KEA umfangsmikla
verslun hérna á Akureyri?
Við rekum 10 kjörbúðir auk
kjörmarkaðs, sem er að flatarmáli
stærsta verslun á Akureyri. Utan
Akureyriar rekur KEA verslun í 7
byggðakjörnum.
Eg vil bæta því við að KEA er
að láta byggja nýja kjörbúð í
verslunarmiðstöð nyrst í bænum,
þar sem um það bil 10" kaupmenn
munu einnig versla, þannig að það
getur enginn með rökum sagt að
kaupmannaverslanir séu útilokað-
ar, enda teldi ég það mjög miður.
Hverfaverslanir og
stórmarkaöir
Hver er munurinn á minni
verslunum ykkar og stórmarkaðn-
um?
Munurinn er einkum fólginn í
því, að stórmarkaðir eins og kjör-
markaður KEA og verslun Hag-
kaups á Akureyri halda niðri
vöruverði, þ.e. nota ekki leyfiiega
álagningu, sem er mögulegt vegna
mikillar magnsöln.:Og oft -mimþ,
þjónustu.
Hlutur KEA 65-70%
af heildarverslun
Það gleður mig, að Morgunblað-
ið vill einnig heyra raddir úr
röðum Kaupfélagsmanna, en sem
kunnugt er, mun hlutur KEA í
svokallaðri dagvöruverslun á fé-
lagssvæði þess, nema á bilinu
65—70% af heildarversluninni!
Hvað vilt þú segja um þau
ummæli Hagkaupsmanna að vöru-
verð hafi lækkað hér á Akureyri?
Ég vil byrja á því, að mótmæla
þeim ummælum sem birtust í
blaðinu að viðskiptahættir Norð-
urlands, er þar trúlega átt við
Akureyri, hafi borið mörg ein-
kenni einokunaraðstöðu. Ég vil
einnig mótmæla því, þegar sagt er,
að ef til vill eru landsmenn að
verða vitni að skólabókardæmi um
gildi frjálsrar samkeppni. Að
mínu mati er þarna verið að vega
ómaklega að samvinnuhreyfing-
unni og ég vil geta þess að hér á
Akureyri eru margir ágætir kaup-
menn, sem starfað hafa hér um
áratugaskeið og með slíkum um-
mælum finnst mér þeir vera
afgreiddir heldur ódýrt.
Ég vil geta þess, að með því að
nota orðið einokun í þessari
merkingu er verið að misnota það
orð. Við gátum t.d. talað um
einokun þegar Islendingar máttu
ekki versla við nema einn aðila,
Dani og við gátum talað um
einokun, þegar bændur á Sval-
barðseyri urðu að versla á Húsa-
vík, en máttu ekki versla við
Eyjafjörð, en það fer fjarri að
slíkt ástand ríki í dag. Nú geta
landsmenn verslað þar sem vörur
og þjónusta er best að þeirraídómi-
og vöruval best.