Morgunblaðið - 19.09.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.09.1980, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI 211. tbl. 68. árg. FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Lech Walesa. leiðtoKÍ pólskra verkamanna. og Anna Wal- entynowicz. Myndin var tek- in i fyrradag á fyrsta sameig- inlega fundi forvígismanna óháðra verka- lýðsfélaga i Póllandi. Fund- inn sátu rúm- lega 300 full- trúar og hafa þeir ákveðið að stofna óháð verkalýðssam- band. Kennarar vilja áhrif á stjórn Varsjá. 18. sopt. — Al\ VERKFÖLL eru enn í Póllandi og virðast verkfallsmenn vilja semja um það sérstaklega. að Gdansk samningarnir gildi einnig fyrir þá. Kennarar við æðri skóla í Varsjá kref jast þess að þeir fái sjálfir að velja stjórnendur skólanna og stúdentar vinna að því að stofna sín eigin félög. óháð hinu opinbera stúdentafélagi. Illa gengur að mynda stjórn í Tyrklandi Ankara. 18. sept. — AF. HERFORINGJARNIR fimm. sem nú fara með völd i Tyrklandi, sóru i dag eið að þvi. að tyrknesk- um lýðræðishefðum yrði fram- fylgt. Kenan Evren. formaður herráðsins. hét þvi að „leysa öll þau vandamál. sem tyrkncska þjoóin ætti nú við að stríða“. Enn hafa herforingjarnir ekki til- nefnt menn til að taka sæti i borgaralegri stjórn. Ymislegt benti til, að herfor- ingjarnir ættu í nokkrum erfið- leikum með að finna hæfa menn til að taka sæti í borgaralegri stjórn en því hafði verið heitið að hún yrði skipuð fyrir helgi. Helst er hallast að því að Zeyyat Bayk- ara verði valinn forsætisráðherra en hann er hófsamur stjórnmála- maður, sem hefur oft áður komið til greina í embættið. Fléstar opinberar stofnanir í Ankara eru undir stjórn hátt- settra manna úr hernum og herma fréttir að reynt sé að beita heraga við stjórn þeirra. Hirðuleysislegt yfirvararskegg og alskegg hefur verið bannað og konum er tekinn vari fyrir að mæta til vinnu sinnar á skrifstofum í buxum, stuttum pilsum eða mjög farðaðar. Fyrstu Evrópu- búarnir Mönchengladhach. 18. sept. — AP. VÍSINDAMENN hafa nú fundið leifar manna, sem þeir segja að séu elstu Evrópubú- arnir, sem vitað sé um. „Homo rheindahlensis“ eða Rinardalsmaðurinn, eins og visindamennirnir nefna þcnnan fund sinn, er talinn hafa verið uppi fyrir 120.000 árum. Minjarnar um Rínardals- manninn, sem eru 40.000 árum eldri en Neandertalsmaður- inn, fundust í húsagarði í Mönchengladbach í Rínardal. Einnig fundust fleygar, sköfur og sagir úr steini. A þeim tíma sem Rínardalsmaðurinn var uppi náði ísaldarjökullinn langt suður meginland Evr- ópu. Fylgi Thatcher aldrei minna Ijondon, 18. sept. — AP. VINSÆLDIR Margrétar Thatch- er og stjórnar hennar eru nú minni en nokkru sinni sfðan hún tók við völdum. Þetta kemur fram i skoðanakönnun, sem birt var i dag í The London Daily Telegraph. I könnuninni kom fram að 58% kjósenda eru óánægð með frammi- stöðu Thatchers og aðeins 35,5% kváðust mundu kjósa íhalds- flokkinn ef gengið yrði til kosn- inga nú. Verkamannaflokkurinn hlaut stuðning 45% og frjálslynd- ir 16,5%. Skýrt var frá verkföllunum í pólska ríkisútvarpinu og jafn- framt voru allir hvattir til að leiða „hugann að pólitískum, hugmyndafræðilegum og sið- ferðilegum skyldum hvers flokksfélaga". Sagt var að þetta Nýju-Delhi, 18. sept. — AP. FRÉTTIR frá Afganistan herma, að Rússar hafi sent mikinn liðsauka til Panjshir- dalsins þar sem þeir urðu frá að hverfa vegna mikillar mót- spyrnu afganskra frelsissveita. Afganir. sem flúið hafa dalinn. segja að konur berjist við hlið eiginmanna sinna og bræðra gegn rússnesku innrásarmönn- unum. væru hlutir sem fólk væri al- mennt hætt að velta fyrir sér. Ekki var sagt frá því í hvaða starfsgreinum verkföllin eru, en haft er eftir andófsmönnum, að það séu einkum starfsmenn sporvagna og verkamenn í kúlu- Mikið mannfall hefur orðið í bardögunum í Panjshir-dalnum og er talið að Rússar hafi misst 1500 hermenn fallna auk þús- unda særðra. Einnig hafa þeir misst mikið af hergögnum, skriðdrekum, brynvögnum og þyrlum. Fréttir berast einnig af miklum bardögum í nágrenni höfuðborgarinnar, Kabul, og bar- dagar hafa hafist að nýju í leguverksmiðjum, sem hafi lagt niður vinnu. Kennarar við æðri skóla í Varsjá hafa krafist þess að lög frá árinu 1968 verði afnumin en samkvæmt þeim skulu stjórn- völd ráða því hverjir fara með æðstu yfirstjórn skólanna. Nem- endur við skólana hafa einnig hafist handa við að stofna sín eigin nemendafélög, sem ekki eiga að lúta forræði hins opin- bera. Ghazni-héraði í SA-Afganistan. I Wardak-héraði, 45 km vestur af Kabul, snerust 240 afganskir stjórnarhermenn til liðs við landa sína eftir að frelsissveit- irnar höfðu náð héraðinu á sitt vald. Sovéskir embættismenn hafa lýst hermanninum, sem leitaði hælis í bandaríska sendiráðinu í meiri skóla Útvarpið í Gdansk flutti þau boð frá yfirmönnum kommún- istaflokksins í borginni, að verkamenn í óháðum verkalýðs- félögum nytu þeirra réttinda, sem félögin gætu boðið þeim, en hins vegar næði það ekki til þeirra hlunninda, sem þeir hefðu haft með aðildinni að hinu opin- bera alþýðusambandi. Litið er á þessa yfirlýsingu sem mótleik af hálfu stjórnvalda gegn óháðu verkalýðsfélögunum. Kabul, sem „einföldum, rugluð- um hermanni" sem eftirlýstur væri fyrir glæpaverk. Herþyrlur hafa sveimað yfir sendiráðinu og leitað er á öllum sem frá því fara. Hervörður hefur verið aukinn við öll sendiráð annarra en^komm- únistalanda og er talið, að það sé gert til að koma í veg fyrir flótta annarra hermanna. Morðingja Somoza leitað ákaflega Asuncion. 18. sept. — AP. LÖGREGLA og hermenn leituðu i dag ákaft að sex eða átta hryðjuverkamönnum. sem komust undan eftir að hafa ráðið Anastasio Somoza, fyrrv. einræðisherra i Nicaragua, af dögum í Asuncion í Paraguay i gær. Eina alþjóðiega flugvellinum og landama'rum ríkisins hefur verið lokað til að hindra tiiræðismenn- ina í að komast úr landi. Slökkviliðsmenn og læknar koma liki Anastasio Somoza, fyrrv. einræðisherra i Nicaragua, fyrir á börum. Somoza var myrtur i fyrradag ásamt tveimur fylgdarmönnum sinum. Banamanna hans er ákaft leitað i Paraguay. Talsmaður lögreglunnar sagði, að lífverðir Somoza hefðu svarað skothríð tilræðismannanna og sært einn þeirra. Stjórnvöld hafa hvatt alla til að tilkynna ef einhver leitar læknis vegna skotsárs og jafnframt heitið 40.000 dölum hverjum þeim, sem getur gefið upplýsingar sem leiða til handtöku fyrirsáturs- mannanna. Stjórnvöld í Paraguay hafa dreift myndum af manni og konu, sem eru talin hafa tekið þátt í fyrirsátinni. Þau eru sögð vera félagar í Byltingarher al- þýðunnar, vinstrisinnuðum, arg- entínskum skæruliðahóp. Fyrr- verandi utanríkisráðherra Costa Rica, Gonzalo J. Facio, sagði í dag, að hann væri viss um, að hinir vinstrisinnuðu Montoner- os-skæruliðar í Argentínu stæðu að baki morðinu á Somoza. Konurnar berjast við hlið eiginmanna sinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.