Morgunblaðið - 17.09.1991, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
210. tbl. 79. árg._______________________________ÞRIÐJUDAGUR 17. SEPTEMBER 1991______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Harðnandi bardagar í Króatíu:
Reuter
Úkraínumenn mótmæla sambandssáttmála
Úkraínskir andstæðingar Sovétríkjanna gengu um
götur Kíev í gær til að leggja áherslu á kröfur
sínar um fullt sjálfstæði landsins. Ríkisráð Sov-
étríkjanna, sem nú er valdamesta stofnun sam-
bandsríkisins, kom saman í gær til að ræða sam-
vinnu lýðveldanna í framtíðinni. Engir fulltrúar
voru frá Georgíu og Moldovu, sem hafa eins og
Eystrasaltsríkin lýst yfir fullu sjálfstæði, en sam-
þykkt var i grundvallaratriðum áætlun tíu lýðvelda
um efnahagsbandalag sem gera skal hveiju lýð-
veldi kleift að halda sjálfstæði sínu. Áætlunin verð-
ur lögð fyrir ráðið til fullnaðarsamþykktar í byijun
næsta mánaðar.
Sjá „Þúsundir manna krefjast...“ á bls. 28.
skotið niður tvær júgóslavneskar
herþotur en ungversk stjómvöld vís-
uðu því á bug.
Loftvarnaflautur voru tvisvar
þeyttar í Zagreb, höfuðborg Kró-
atíu, í gær og Andrija Raseta, næst
æðsti yfirmaður herdeildar Júgó-
slavíuhers á svæðinu, kvaðst ekki
geta útilokað að þotur hersins gerðu
loftárásir á borgina.
Carrington lávarður kom í gær
til hafnarborgarinnar Dubrovnik við
Adríahaf og hyggst ræða við for-
seta Serbíu og Króatíu og yfirstjórn
júgóslavneska hersins í bænum Ig-
alo í Svartfjallalandi. Hann sagði
það afar ólíklegt að ráðstefnan um
frið í Júgóslavíu, sem haldin er í
Haag, bæri árangur ef ekki næðist
samkomulag um vopnahlé á
næstunni.
Bandaríkin;
Máli Norths vísað frá
Sænski Jafnaðarmannaflokkurinn bíður annan mesta kosningaósigur sögu sinnar:
Washington. Reuter.
DÓMARI í bandarískum alrík-
isdómstóli féllst í gær á beiðni
saksóknara í íran-kontramál-
inu svokallaða um að allar
ákærur á hendur Oliver North
yrðu felldar niður.
North var
sakfelldur árið
1989 fyrir aðild
að leynilegri
sölu á vopnum
til írans á árun-
um 1985-86, en
hann var þá ráð-
gjafi Banda-
ríkjaforseta í ör-
yggismálum.
Ágóðanum,
milljónum dala, var síðan varið
til stuðnings við kontra-skæruliða
í Nicaragua þótt Bandaríkjaþing
hefði bannað aðstoð við þá. Hann
var fundinn sekur um að hafa
eyðilagt leyniskjöl í Hvíta húsinu,
reynt að torvelda rannsókn þings-
ins á málinu og þegið gjöf sem
hefði brotið í bága við lög. Banda-
rískur áfrýjunarréttur vísaði hins
vegar málinu aftur til alríkisdóm-
stólsins á þeirri forsendu að vitnis-
burður Norths við yfirheyrslur á
þinginu kynni að hafa haft of
mikil áhrif á vitni gegn honum
við réttarhöldin.
Sérlegur saksóknari í íran-
kontramálinu bað síðan um að
ákærurnar yrðu felldar niður og
viðurkenndi að hann gæti ekki
fengið North sakfelldan að nýju.
Myndun sterkrar borgara-
legrar stíóraar framundan
- segir Carl Bildt formaður Hægriflokksins
helgina, þann næstmesta í sögu
flokksins. Hlutu þeir 37,6% at-
kvæða. Tveir borgaralegu flokk-
anna, Hægriflokkurinn og
Kristilegi demókrataflokkurinn,
bættu við sig og fengu kristileg-
ir kjörna menn á þing i fyrsta
skipti. Miðflokkurinn og Þjóðar-
flokkurinn töpuðu hins vegar
töluverðu fylgi. Flokkurinn Nýtt
lýðræði fékk 6,7% atkvæða, og
Vinstriflokkurinn náði naum-
lega þeim 4% sem nauðsynleg
eru til að fá menn á þing, hlaut
4,5% atkvæða. Umhverfisflokk-
urinn, sem fékk 3,4%, hverfur
hins vegar af þingi.
Eftir að Carlsson hafði afhent
lausnarbeiðni sína gengu formenn
flokkanna hver á fætur öðrum á
fund þingforsetans. Almenn sam-
staða er um að Carl Bildt, for-
manni Hægriflokksins, verði veitt
umboð til að mynda nýja ríkisstjórn
og mæltu formenn allra flokka með
því við forseta þingsins. „Verkefnið
framundan er að mynda eins sterka
borgaralega ríkisstjórn og kostur
er á,“ sagði Bildt eftir klukkustund-
ar langan fund með Peterson, en
þeir hittast aftur í dag.
Fyrir kosningar stefndu borg-
araflokkarnir að því að mynda sam-
an fjögurra flokka ríkisstjórn en
fyrir slíkri stjórn er ekki þingmeiri-
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra Svíþjóðar, afhendir Thage Peter-
son, forseta sænska þingsins, afsagnarbeiðni sína í gær.
hluti. Störf hennar væru háð því
að þingmenn Nýs lýðræðis greiddu
ekki atkvæði gegn henni. Bengt
Westerberg, formaður Þjóðar-
flokksins, og Olof Johansson, for-
maður Miðflokksins, hafa þegar
sagt að ekki komi til greina að sitja
í stjórn sem þarf að reiða sig á
atkvæði Nýs lýðræðis. Westerberg
ítrekaði í gær að hann vildi ekki
sitja í fjögurra flokka ríkisstjórn,
sem væri í slíkri stöðu, og Johans-
son sagði ólíklegt að flokkur hans
myndi eiga aðild að ríkisstjórn eft-
ir fylgistapið í kosningunum. Alf
Svensson, formaður Kristilegra
demókrata, sem hingað til hefur
útilokað hvers konar samvinnu við
Nýtt lýðræði, sagði í gær að at-
hug;a yrði þann kost að mynda rík-
isstjórn sem væri háð þeim
flokki.Ian Wachtmeister, annar for-
ystumanna Nýs lýðræðis, sagði í
sænsku sjónvarpi á sunnudags-
kvöld að hann sæi enga vankanta
á því að styðja borgaralega stjórn.
Hins vegar myndi flokkurinn fella
slíka stjórn ef störf hennar væru í
anda jafnaðarmanna.
Sjá fréttir á miðopnu.
INGVAR Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, gekk í gær á
fund Thage G. Petersons, for-
seta sænska þingsins, og bað um
lausn fyrir sig og ráðuneyti sitt
eftir mikinn ósigur Jafnaðar-
mannaflokksins í kosningum um
Níu EB-ríki íhuga að
senda vopnaðar her-
sveitir til Júgóslavíu
Amsterdam, Belgrad, Zagreb. Reuter, The Daily Telegraph.
NÍU ríki Evrópubandalagsins (EB) íhuga nú að senda vopnaðar sveit-
ir á vegum Vestur-Evrópusambandsins til að binda enda á blóðsút-
hellingarnar í Króatíu. Bardagarnir í lýðveldinu færðust enn í auk-
ana í gær á sama tíma og Carrington lávarður, sem stjórnar ráð-
stefnu um frið í Júgóslavíu, kom til landsins til að reyna að koma
á vopnahléi.
Hans van den Broek, utanríkis-
ráðherra Hollands og formaður ráð-
herraráðs Evrópubandalagsins,
lagði til að rætt yrði á fundi Vestur-
Evrópusambandsins á fimmtudag
hvort það æiti að senda friðargæslu-
sveitir til Júgóslavíu. Hann kvaðst
gera ráð fyrir því að þær yrðu að-
eins vopnaðar léttum byssum. Vest-
ur-Evrópusambandið er varnar-
bandalag níu EB-ríkja af tólf, en
írland, Danmörk og Grikkland eiga
ekki aðild að því.
EB hefur þegar sent óvopnaða
friðargæslusveit, skipaða óbreyttum
borgurum, til Júgóslavíu. Luka
Bebic, varnarmálaráðherra Króatíu,
sagði í gær að tilraunir bandalags-
ins til að koma á friði hefðu hingað
til líkst „skrípaleik“. Ante Markovic,
forsætisráðherra Júgóslavíu, sagði
að júgóslavnesk stjórnvöld gætu
ekki bundið enda á blóðsúthelling-
arnar án áðstoðar EB og Sameinuðu
þjóðanna.
Króatískir þjóðvarðliðar börðust
í gær við serbneska skæruliða og
sveitir Júgóslavíuhers víðs vegar um
Króatíu. Um 40 manns höfðu þá
fallið í bardögunum frá því á laugar-
dag en alls hafa hátt í 500 manns
beðið bana síðan átökin hófust fyrir
þremur mánuðum, er Króatar lýstu
yfir sjálfstæði.
Bardagarnir virðast vera að
breiðast út til Bosníu-Herzegovínu
því útvarpið í Belgrad skýrði frá því
að herinn hefði auglýst eftir sjálf-
boðaliðum í lýðveldinu. Þá skýrði
breska útvarpið BBC frá því í gær-
kvöldi að ungverski herinn hefði
aukið viðbúnað sinn við landamærin
að Júgóslavíu vegna þess að júgó-
slavneskar herþotur hefðu ítrekað
rofið lofthelgi Úngveijalands í árás-
arferðum til Króatíu. Króatíska út-
varpið sagði að Ungveijar hefðu