Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.09.2004, Blaðsíða 36
MENNING 36 MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ verk litlu stúlkunnar, fer Þórunn Arna Kristjánsdóttir, nemandi í tónlistardeild LHÍ. Söngleikurinn er fyrir alla fjöl- skylduna og verða sýningarnar síð- degis á laugardögum og sunnudög- um. Leikstjóri sýningarinnar er Ástrós Gunnarsdóttir. Tosca eftir Puccini Frumsýnd 11. febrúar 2005 Tosca verður aðalverkefni Óper- unnar á vormisseri, en í helstu hlutverkum verða Elín Ósk Ósk- arsdóttir, sem syngur titilhlut- verkið, en hlutverk Cavaradossi verður í höndum Jóhanns Frið- geirs Valdimarssonar. Þá fer Ólafur Kjartan Sigurðar- son með hlutverk Scarpia og Berg- þór Pálsson syngur hlutverk Ces- are Angelotti. Leikstjóri Toscu verður Jamie Hayes. Sweeney Todd, rakarinn morðóði eftir Stephen Sondheim Frumsýnt 8. október 2004 Hér er um að ræða stærsta verkefni óperunnar á haustmiss- eri. Hefnd og kynferðisleg brenglun spila lykilhlutverk í verkinu og eru drifkraftar tveggja meginpersóna verksins, bartskerans Sweeney Todd sem kominn er heim til Lond- on til að hefna harma sinna og dómarans sem dæmdi hann órétt- látt og hefur vægast sagt brengl- aðar hugmyndir um réttlæti, kynlíf og sómatilfinningu. Þótt stutt sé í blóð og grimmd í Sweeney Todd er það þó fyrst og fremst grátt gamanið sem er í fyr- irrúmi og persónurnar margar hverjar afar litríkar. Með titilhlutverkið fer Ágúst Ólafsson og er þetta fyrsta hlut- verk hans hjá Íslensku óperunni. Þá er hlutverk bakarans frú Lóett í höndum Ingveldar Ýrr Jónsdóttur og dómarinn brenglaði er leikinn af Davíð Ólafssyni. Leikstjóri sýning- arinnar er Magnús Geir Þórðar- son. Litla stúlkan með eldspýturnar eftir Keith Strachan. Frumsýning 23. október Söngleikur byggður á sam- nefndu ævintýri H.C. Andersens. Uppsetningin á Litlu stúlkunni með eldspýturnar er í samstarfi við framkvæmdahópinn Flóð og fjöru, söngskólann Domus Vox og H.C. Andersen-sjóðinn. Rúmlega 30 sviðslistamenn munu koma að verkinu, þar af yfir 20 börn og unglingar frá átta ára til tvítugs. Með titilhlutverkið, hlut- Verk á dagskrá Íslensku óperunnar í vetur VETRARSTARF Íslensku óp- erunnar var kynnt á dögunum, en að sögn talsmanna Óperunnar er stefnt að því að dagskrá starfsárs- ins verði í senn fjölbreytt og metn- aðarfull. Þrjú meginverk verða færð upp, Sweeney Todd, Tosca og Litla stúlkan með eldspýturnar. Þá verður einnig haldið áfram samstarfi við landsbyggðina og farið í heimsóknir út á land, meðal annars með ferðum norður í Laug- arborg í Eyjafjarðarsveit, en Bjarni Daníelsson óperustjóri seg- ir samstarf Óperunnar við Tón- vinafélag Laugarborgar hafa verið með ágætum. Þá er á prjónunum að vinna með óperustúdíói Austur- lands, en samstarfið við óp- erustúdíóið á síðasta ári var einnig afar gott að sögn Bjarna. Tónlistarstjóri Óperunnar er Kurt Kopecki, en hann hóf störf við Óperuna síðasta haust. Þá mun óperan efna til sam- starfs við nemendur úr Listahá- skóla Íslands við uppsetningu á óperu. „Það er mikilvægt að nem- endur fái taka þátt í uppfærslum, en þar fá þeir verðmæta reynslu,“ segir Bjarni og bætir við að báðir aðilar græði á slíku samstarfi. „Ávinningurinn fyrir nemendur er sá að kynnast starfi í óperuhúsi og þá um leið að átta sig á því hvar þeir standa með gleggri hætti heldur en áður. Þarna myndast mikilvæg tengsl og það eru þau sem ég lít á sem ávinning fyrir óp- eruna, að kynnast þessu fólki í svona vinnu og svo lít ég líka þannig á að þetta sé tækifæri til að sýna verk sem eru útvíkkun á verkefnaskrá óperunnar, vegna þess að við erum með svo fá verk- efni á hverju ári að það er mjög mikilvægt að nota þetta tækifæri til að sýna eitthvað sem við værum annars ekki að sýna. Því nemend- urnir læra eins vinnubrögðin þó það sé ekki verið að vinna ein- hverjar þekktar óperur.“ Þá segir Bjarni ekki ósennilegt að nem- endur í hönnunardeild LHÍ komi að slíku verkefni. Samstarf við LHÍ örvandi Hádegistónleikum fækkar nokk- uð frá síðasta ári. „Það var hluti af starfsskyldu fastráðinna söngvara að sjá um hádegistónleikana og nú þegar samningar þessa til- raunahóps eru að renna út kemur það af sjálfu sér að hádegistón- leikum fækkar, þótt þeir hafi verið geysivinsælir og út af fyrir sig mjög skemmtileg leið fyrir óp- eruna til að koma á framfæri alls konar músík og kynna nýja söngv- ara,“ segir Bjarni. „Við ætlum að halda þessu áfram eitthvað. Það hefur reyndar lengi verið draum- urinn að vera með litlar, stuttar óperur í staðinn fyrir tónleika- dagskrá og við erum hugsanlega að reyna að færa okkur í þá átt- ina.“ Meðal áhugaverðustu flata starfsins í vetur segir Bjarni mega telja tvo sérstaklega. „Annars veg- ar verður þessi Sweeney Todd uppfærsla í haust áhugaverð að því leyti að hún liggur á landa- mærum óperu og söngleiks og það fer svolítið eftir því hverjir flytja hana hvort hún er,“ segir Bjarni og bætir við að starfsfólk Óp- erunnar vonist til að hún veki áhuga og athygli fólks sem ekki hefur stundað óperuhús til þessa. „Við erum þannig að hugsa um unga fólkið eins og menning- arstofnanir gera gjarnan. Sam- vinnuverkefnið við listaháskólann er einnig mjög mikilvægt og þar gefist í framtíðinni tækifæri til að vinna á markvissan hátt með spurningar sem varða framtíð óp- erulistarinnar.“ Ópera | Fjölbreytt dagskrá Íslensku óperunnar í vetur „Við erum að hugsa um unga fólkið“ Morgunblaðið/Golli Bjarni Daníelsson kynnti vetrardagskrá óperunnar á dögunum ásamt fríðu föruneyti óperulistamanna. Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20 Sun. 10. okt. kl. 20 • fös. 15. okt. kl. 20 • sun. 17. okt. kl. 20 ATH. Allar sýningar hefjast kl. 20 Miðasala á Netinu: www.opera.is Símasala kl. 10-18 virka daga: 511 4200 Rakarinn morðóði Óperutryllir eftir Stephen Sondheim F im. 16 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI Lau . 18 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI Fös . 24 .09 20 .00 AKUREYRI Fös . 1 .10 20 .00 NOKKUR SÆTI Lau . 2 .10 20 .00 LAUS SÆTI ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA „Sexý sýn ing og s júk legur söngur ! Bu l land i k ra f tu r f rá upphaf i t i l enda . Hár ið er orkuspreng ja . “ -Brynh i ldur Guð jónsdót t i r le ikkona- CHICAGO Á LAUGARDAGINN! Stóra svið Nýja svið og Litla svið Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00 Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is GEITIN - EÐA HVER ER SYLVÍA? e. E. Albee Frumsýning su 26/9 kl 20 - UPPSELT Fi 30/9 kl 20 Fö 1/10 kl 20 PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert í samstarfi við Á SENUNNI Fi 16/9 kl 20, Fö 17/9 kl 20 Fi 23/9 kl 20 Fö 24/9 kl 20, Síðustu sýningar LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14 Su 3/10 kl 14, Su 10/10 kl 14 CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse Gríman fyrir vinsælustu sýningu ársins og fyrir bestu búningana. Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20, Lau 2/10 kl 20, Lau 9/10 kl 20 Aðeins örfáar sýningar í haust KYNNINGARVEISLA - OPIÐ HÚS Við kynnum leikárið: Stutt atriði, dans, söngur, gleði og grín Allir velunnarar velkomnir! Su 19/9 kl 20 - Aðgangur ókeypis ÁSKRIFTARKORTIN GILDA Á SEX SÝNINGAR: ÞRJÁR Á STÓRA SVIÐI OG ÞRJÁR AÐ EIGIN VALI - AÐEINS KR. 10.700 (Þú sparar 5.500) TÍU MIÐA AFSLÁTTARKORT - FRJÁLS NOTKUN - AÐEINS SELT Í SEPTEMBER - AÐEINS KR. 18.300 (Þú sparar 8.700) VERTU MEÐ Í VETUR KVÆÐAMANNAFÉLAGIÐ IÐUNN SIGURRÓS ofl. Afmælis- og útgáfuhátíð Í kvöld kl 20 - Aðeins þetta eina sinn 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími SVIK e. Harold Pinter frumsýn. fös. 1/10 kl. 20 UPPSELT 2. sýn. sun. 3/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI 3. sýn. fim. 7/10 kl. 20 UPPSELT 4. sýn. fös. 8/10 kl. 20 UPPSELT HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni fös 24/9 kl. 20 - sala í fullum gangi HÁRIÐ tryggðu þér miða MIÐASALAN er opin á fame.is, á þjónustuborði Smáralindar og í síma 528 8008 JÓNSI SVEPPI ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR Söngleikurinn FAME þakkar fyrir sig og kveður Smáralindina Fös. 17. sept. kl. 19.30 Sun. 19. sept. kl. 19.30 Fim. 23. sept. kl. 19.30 LOKASÝNING Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.