Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 20.09.2004, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI LIFANDI VÍSINDI Áskriftarsími 881 4060 UM þrjátíu hjólreiðakappar á aldrinum 13– 30 ára sýndu glæsileg tilþrif í Nauthólsvík á laugardaginn á sýningu sem Brettafélag Ís- lands stóð fyrir. Settir höfðu verið upp moldarhólar fyrir ofurhugana til að sýna listir sínar á svoköll- uðum freestyle- og mudbike-hjólum og ekki stóð á ævintýralegum stökkum og snún- ingum eins og sjá má á myndinni. Brettafélagið vildi með sýningunni vekja athygli á aðstöðuleysi sem freestyle- hjólreiðamenn þurfa að glíma við og skora á stjórnvöld að skapa þeim aðstöðu í borginni. Morgunblaðið/Þorkell Glæsileg tilþrif í Nauthólsvík  Heljarstökk/26 FJÖRUTÍU umsækjendur af 140, sem sóttu um inngöngu í nám og starfsendurhæfingu fyrir geðsjúka í haust á vegum Fjölmenntar og Geðhjálpar, fá ekki inni vegna fjár- skorts. Aðsókn í námið hefur auk- ist jafnt og þétt frá því kennsla hófst í húsnæði Geðhjálpar við Túngötu á vorönn 2003 og er þetta í fyrsta sinn sem vísa verður fólki frá. Fjölmennt, sem er sjálfseignar- stofnun Landssamtakanna Þroskahjálpar og Öryrkjabanda- lags Íslands, fékk í upphafi 2 millj- óna króna styrk frá starfsmennta- ráði félagsmálaráðuneytisins vegna verkefnisins en að öðru leyti hefur Fjölmennt fengið 15 milljón- ir samkvæmt þjónustusamningi til undirbúnings verkefninu og fyrir stofnkostnaði. Ráðuneytunum fullkunnugt um aukna ásókn Í nýrri skýrslu um mat á verk- efninu kemur fram að vel virðist hafa verið staðið að starfseminni en eðlilegra sé að hún sé hluti af heildarstarfsemi og innan rekstr- arsvigrúms Fjölmenntar í stað þess að vera sérstakt verkefni án vissu um fjármögnun að loknu til- raunatímabili sem upphaflega var til eins árs. Í haust fengust 6 millj- ónir króna frá ríkinu til að standa undir kennslu á haustönn, en ein- ungis fyrir 100 manns og ekki fyrir fulla kennslu. Hafa stjórnvöld boð- að að hafnar verði viðræður milli menntamálaráðuneytisins og Fjöl- menntar um hvernig staðið verði að fræðslumálum geðsjúkra í framtíðinni. Sveinn Magnússon, fram- kvæmdastjóri Geðhjálpar, segist ánægður með skýrsluna í heildina tekið en bendir á að ráðuneytunum hafi verið fullkunnugt um aukna ásókn í námið eftir að hafa fengið fjölmargar bréfa- og tölvupóst- sendingar með upplýsingum þar að lútandi. Erfiðlega hafi gengið að fá fundi með embættismönnum ráðuneyt- anna og reyndin hafi verið sú að það kom mönnum í opna skjöldu hversu margir sóttust eftir að komast í námið. Sveinn segir að nú ríði á að hefja viðræður um framtíðarfyrirkomu- lag kennslunnar sem allra fyrst og eðlilegt sé að greiðslur miðist við fjölda þeirra sem sæki námið í stað fastrar summu. Miðað við rekstraráætlun fyrra árs er fjárþörf verkefnisins vegna næsta árs um 22 milljónir króna. Óvissa um framhald náms á vegum Geðhjálpar og Fjölmenntar Fjörutíu umsóknum af 140 hafnað vegna fjárskorts FIMLEIKAFÉLAG Hafnarfjarðar varð í gær Íslandsmeistari karla í knattspyrnu í fyrsta sinn í sögu félagsins, þegar liðið sigraði KA, 2:1, í lokaumferð Íslandsmótsins á Akureyri. FH-ingar töpuðu aðeins einum leik í mótinu, gegn Fylki í annarri umferð, og hlutu samtals 37 stig, sex stigum meira en ÍBV og ÍA. FH- ingar bera því sæmdarheitið með réttu, besta knattspyrnulið landsins. „Þetta er stór stund fyrir okkur, ótrúleg stund,“ sagði Ólafur Jóhannsson, þjálfari Ís- landsmeistaranna, í samtali við Morgunblaðið í gær. „Við erum langbesta liðið á Íslandi, það á ekkert lið sjens í okkur. Ekki sjens! Það var algjörlega klárt fyrir mótið að við ætluðum að taka þátt í toppbaráttu. Og við vissum að við gætum alveg unnið mótið en við vissum líka að við gætum klúðrað þessu. En við erum búnir að vera í forystu síðan um mitt mótið og við bara kláruðum þetta með stæl,“ sagði Ólafur. /B 1–16. Morgunblaðið/Kristján Fyrsti meistaratitill FH-inga SJÖ manns, þar af þrjú börn, voru flutt á slysadeild Landspítalans eftir harðan árekstur fjögurra bíla á Suðurlandsvegi við Hafravatn um klukkan 18 gær. Flestir sluppu með minni háttar áverka. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík varð áreksturinn með þeim hætti að ökumaður fólksbíls á austurleið hafði stöðvað bíl sinn á vegamótunum að Hafravatnsvegi og hugð- ist aka inn á veginn þegar öðrum fólkbíl var ekið aftan á bílinn. Við það kastaðist bíllinn í veg fyrir umferð sem kom á móti og skullu þá tveir bílar saman til viðbótar. Öðrum bílnum hvolfdi við áreksturinn. Þrír bílanna eru ónýtir. Miklar umferðartafir urðu á Suðurlandsvegi vegna slyssins. Sjö á slysa- deild eftir harðan árekstur MEÐAL mála á kirkjuþingi Þjóð- kirkjunnar í næsta mánuði er til- laga frá biskupafundi um að fækka prófastsdæmum og breyta skipan þeirra, tillaga til þingsályktunar um að árið 2006 verði minnst 950 ára sögu biskupsstóls í Skálholti og 900 ára sögu biskupsstóls að Hólum í Hjaltadal. Tillaga biskupafundar er að fækka prófastsdæmum landsins úr 16 í 10 og er tilgangur þess að styrkja þau í sessi með því að stækka þau og gera að öflugari ein- ingum. Hugmynd biskupanna er að fá málið rætt á kirkjuþingi til að kanna stuðning við það áður en það er kynnt frekar. Gert er ráð fyrir að breytingarnar geti gengið gegn í ársbyrjun 2006 eða við starfslok prófasts sem kynni að láta af emb- ætti fyrir þann tíma. Telja smæðina hafa hindrað „Þýðing héraðsfunda og pró- fastsdæma í stjórnsýslu kirkjunnar hefur aukist á undanförnum árum og verkefni þeirra og skyldur vaxið að umfangi þar af leiðandi. Miklar breytingar hafa orðið á búsetu, samgöngur batnað og samskipta- tækni fleygt fram. Það hefur komið fram að smæð sumra prófasts- dæma hefur hindrað eðlilega vald- dreifingu og þátttöku í stjórnsýslu kirkjunnar. Þannig hafa einstakar héraðsnefndir ekki treyst sér til að gera tillögur að forgangsröðun verkefna í prófastsdæminu, sem fái styrki frá Jöfnunarsjóði sókna, erf- itt hefur reynst að fá frumkvæði frá héraðsfundum að tillögum um skipulagsmál og prófastar taka ekki lengur þátt í vali á sóknarprestum og prestum til starfa í prófasts- dæminu, eins og ákveðið var 1998. Algengt er að bent sé á að návígið sé of mikið til að gerlegt sé að taka þátt í viðkvæmum málum af því tagi sem nefnt hefur verið. Ánægjulegt er að sjá að prófastsdæmi víðast hvar hafa tekið frumkvæði að því að hafa með sér samvinnu um marg- vísleg verkefni til eflingar kirkju- legu starfi. Á umræðum á prófasta- fundi í Skálholti 2004 mátti greina vilja prófasta til endurskoðunar á skipulaginu, á grundvelli þeirra þátta sem raktir hafa verið,“ segir í greinargerð með tillögunni. Próföstum fækki úr 16 í 10 Nýjar hugmyndir biskupafundar um skipulag prófastsdæma lagðar fyrir kirkjuþing ÆTLUNIN er að prófastsdæmin geti verið 10 að tölu en þau eru 16 í dag. Hugmynd biskupafundar er að eitt pró- fastsdæmi nái yfir Vesturland, annað yf- ir Vestfirði, þriðja yfir Norðurland vestra, það fjórða Norðurland eystra, fimmta yfir Austfirði og að tvö prófasts- dæmi nái yfir Suðurland. Þau þrjú sem þá eru eftir myndu taka til suðvest- urhorns landsins, þ.e. Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Ætlunin er að ræða hugmyndirnar á kirkjuþingi til að kanna afstöðu þess áð- ur en þær fara í frekari kynningu. Hugmyndir að nýrri skipan ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.