Morgunblaðið - 26.11.2012, Blaðsíða 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2012
VIÐTAL
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Töfrahöllin er ný skáldsaga Böðvars
Guðmundssonar sem Uppheimar
gefa út. Böðvar er íslenskum les-
endum að góðu kunnur en hann
hlaut á sínum tíma Íslensku bók-
menntaverðlaunin fyrir skáldsöguna
Lífsins tré.
Aðalpersónan í nýrri skáldsögu
Böðvars er Jósep Malmholms og í
verkinu er rakin örlagasaga hans
um leið og saga samfélags er rakin.
Í tileinkun kemur fram að Böðvari
var sögð sagan. Hann er spurður
nánar um það. Hann svarar: „Ég bý
til sögur úr því sem mér hefur verið
sagt, því sem ég hef lesið og því sem
ég hef séð. Og margt hefur mér ver-
ið sagt – þótt ofsagt væri að segja að
mér hefði verið sagt allt.“
Lengi að safna efni
Hefur þessi saga verið lengi með
þér?
„Ætli ég hafi ekki verið að safna
efni í þessa sögu í ein 30 ár. Hún
gerist á 35 ára tímabili. Þetta er
saga sem tengist að miklum hluta ís-
lenskri þjóðarsál síðustu 30 árin.
Þetta er á vissan hátt þroskasaga
manns sem á fráskilda foreldra.
Móður hans líkar ekki við hann en
hann sækist eftir viðurkenningu
hennar alla sína ævi. Hann eignast
ákveðna fyrirmynd og velgjörð-
armann sem hann tekur mikla trú á.
Á vissan hátt er þetta líka ástarsaga
um leit manns að staðfestu í lífinu.
Ég gekk lengi með hugmyndir að
þessari sögu en fór ekki að setja
þær saman af alvöru fyrr en í lok
síðasta vetrar. Og nú er bókin komin
út.“
Þarna eru litríkar persónur, eins
og afinn sem er kommúnisti.
„Hann er kommúnisti og hefur
einfaldar og góðar lausnir á öllum
málum, sem er bæði kómískt og
sorglegt. Ég kynntist kommúnistum
ágætlega á mínum æskudögum og
ætti því ekki að eiga í erfiðleikum
með að skrifa um þann hug-
myndaheim. Þegar bókin hans
Hannesar Hólmsteins um Íslenska
kommúnista kom út fannst mér
ákaflega gaman að lesa hana því ég
þekkti þessa karla og kerlingar frá
því ég var krakki.“
Hafa þínar stjórnmálaskoðanir
breyst mikið með árunum?
„Já, þær hafa breyst mikið. Við
breytumst öll. Verðum við ekki svo-
lítið rólegri með árunum?“
Þetta er mannmörg saga hjá þér,
eins og reyndar stundum áður. Hef-
urðu mikinn áhuga á fólki?
„Já, mér finnst gaman að skapa
persónur og skemmtilegt að spek-
úlera í þeim.“
Breyttur Borgarfjörður
Síðustu 25 árin hefur Böðvar búið
í Danmörku þar sem hann helgar
sig ritstörfum. „Ég kem heim á
hverju ári, stundum oftar en einu
sinni. Það er alltaf gaman að koma
heim en ég sé yfirleitt alltaf ein-
hvern mun og breytingar. Ég get
nefnt sem dæmi að þegar ég flutti úr
Borgarfirðinum sem ungur maður
um tvítugt þá var búið á hverjum
bæ, þar voru karlar og kerlingar
með búskap, kindur og hross. Nú
eru örfáar jarðir eftir í byggð.
Það er fínt að búa í Danmörku.
Danir eru góðir nágrannar og ágætt
fólk að hafa nálægt sér. Hins vegar
er orðið nokkuð erfiðara fyrir mig
en áður að búa í Danmörku vegna
þess að ég vinn lífeyri minn inn á Ís-
landi og krónan hefur lækkað mjög
mikið. Þar bætist við að Danmörk er
dýrasta land í Evrópu, þannig að ég
þarf aðeins að minnka við mig
grjónagrautinn og ekki setja í hann
rúsínur á hverjum degi.“
Pólitíkin í Danmörku berst aðeins
í tal og staða innflytjenda en stund-
um heyrist að þar í landi sé afstaðan
til þeirra afar neikvæð. „Í fréttum
heyrir maður frá leiðindaatvikum,“
segir Böðvar. „Það er hins vegar
misskilningur að það sé rótgróin
andúð í Danmörku á innflytjendum.
Ákveðnir hópar innflytjenda eru
vandamál. Sérstaklega hafa verið
erfiðleikar í kringum drengi sem
detta út úr skóla. Þetta er afar mis-
jafnt eftir innflytjendum. Tyrkir
sem búa í Danmörku eru yfirleitt
mjög lítið vandamál, þeir eru vinnu-
samt fólk. Flóttafólkið frá araba-
heiminum er miklu meira vandamál
því það á erfiðara með að aðlaga
sig.“
Hvernig gengur þér, búsettum í
Danmörku, að fylgjast með því sem
er að gerast hér heima?
„Það gengur ágætlega. Ég fylgist
með á netinu, horfi á íslenskt sjón-
varp og hlusta á íslenskt útvarp. Svo
sé ég töluvert af íslenskum bókum.
Ég kaupi svo að segja allar ljóða-
bækur sem koma út á íslensku. Ég
held mikið upp á ljóð og það eru
mörg góð skáld á Íslandi. Það eru
reyndar tvö skáld sem ég held meira
upp á en önnur sem eru Gyrðir Elí-
asson og Gerður Kristný.“
Nú hefurðu sent frá þér skáld-
sögu, hvað er næst á dagskrá?
„Í vetur ætla ég að hvíla mig á
skáldsagnagerð. Ég er að þýða tvær
bækur sem ég ætla að ganga frá fyr-
ir vorið. Önnur er eftir nóbels-
verðlaunahafann Mo Yan, og er
sjálfævisögulegt verk, og hin er eftir
kanadískan rithöfund sem er af ís-
lensku bergi brotinn og margir
kannast við, Bill Valgardson en
hann er þekkt nafn í Kanada. Bókin
eftir hann er um þjóðsögur frá
Nýja-Íslandi. Við getum kallað þetta
íslenskar þjóðsögur því það var ekki
bara íslenskt fólk sem flutti vestur.
Það gerðu einnig Þorgeirsboli og
Írafellsmóri.“
Gaman
að skapa
persónur
Böðvar Guðmundsson sendir frá
sér nýja skáldsögu, Töfrahöllina
» Þetta er á vissan hátt þroskasaga manns sem áfráskilda foreldra. Móður hans líkar ekki við
hann en hann sækist eftir viðurkenningu hennar
alla sína ævi. Hann eignast ákveðna fyrirmynd og
velgjörðarmann sem hann tekur mikla trú á. Á
vissan hátt er þetta líka ástarsaga um leit manns að
staðfestu í lífinu.
Jólavörurnar eru komnar í Álnabæ
JÓLAGARDÍNUR, JÓLADÚKAR OG JÓLAEFNI
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Lítið við og
skoðið úrva
lið