Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 14

Neytendablaðið - 01.03.2015, Blaðsíða 14
eldsneyti Loftþrýstingur Það borgar sig að mæla loftþrýsting í hjólbörðum bif­ reiðarinnar reglulega. Ef of mikill eða of lítill loftþrýst­ ingur er í dekkjum getur það aukið slit á dekkjum og stuðlað að aukinni eldsneytisnotkun. Einnig getur það haft mikil áhrif á aksturseiginleika bifreiðarinnar og dregið úr öryggi hennar, t.a.m. í hálku eða bleytu. Upplýsingar um hvaða loftþrýsting á að hafa í dekkjum er yfirleitt að finna í hurðarfalsi bifreiða, á eldsneytis­ lokinu eða í handbók bifreiðarinnar, en ef þú ert í vafa er best að leita ráða hjá hjólbarðaverkstæði. Best er að mæla loftþrýstinginn í köldum dekkjum en ekki strax eftir að búið er að keyra langar vegalengdir. Það getur munað allt að 6 börum (psi) á köldum og heitum dekkjum. Hjólabúnaður Hjólbarðar eru afar mismunandi hvað varðar gæði og eiginleika. Eitt af því sem hefur áhrif á eldsneytisnotkun bifreiða er hversu mikið vegviðnám dekkin hafa, en eyðsl an eykst eftir því sem vegviðnámið er meira. Frá og með 1. nóvember 2012 þurfa allir hjólbarðar sem seldir eru innan ESB að vera með áber andi límmiða sem festur er á hjól barða eða er sýn i legur á út­ sölu stað. Þessar regl ur gilda einn­ ig á Íslandi. 1 Merk ing arnar eru svip aðar þeim sem sést hafa á ýmsum raftækj­ um, en þær gefa til kynna hversu mikið veghljóð, viðnám og veg­ grip í bleytu dekk hafa. Óhreinindi Nennirðu ekki að þrífa bílinn? Það gæti þó borgað sig þar sem því hefur verið haldið fram að hreinn bíll eyði minna eldsneyti. Er þá m.a. vísað til þess að óhreinindi á bifreiðinni hafi áhrif á streymi lofts og auki þ.a.l. elds­ neytisnotkun. Ekki eru þó allir sammála þessari kenn­ ingu eða telja áhrifin af skítnum í öllu falli lítil. Flestir eru þó sammála því að það er töluvert skemmti legra að Efst til vinstri á límmiðanum sést hversu mikið vegviðnám dekk hefur. Munur á eldsneytisnotkun á milli flokka er 0,1 l/100 km.2 - betri nýting Frá síðasta sumri hefur verð á eldsneyti raunar lækkað töluvert en bíleigendur geta jafnframt stuðlað að auknum eldsneytissparnaði bifreiða sinna. Hér verður fjallað um helstu þættina sem talið er að geti haft áhrif á eyðslu bifreiða. Upplýsingar um hjólbarða í hurðafalsi bifreiðar 14

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.