Morgunblaðið - 04.03.2001, Blaðsíða 1
MORGUNBLAÐIÐ 4. MARS 2001
53. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 4. MARS 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
REYNT Á HÖNNUN
RANNSÓKNAHÚSS
10 Viðtal við Ara
Skúlason
20
KSÍ verður
ekki rekið nema
sem fyrirtæki
30
YFIRVÖLD í Belgíu bönnuðu allan
útflutning á búfé í gær eftir að grun-
ur vaknaði um að gin- og klaufaveiki
væri komin upp á býli í vesturhluta
landsins.
Ef staðfest verður, að um gin- og
klaufaveiki sé að ræða, yrðu það
fyrstu tilfelli sjúkdómsins á megin-
landi Evrópu síðan hann braust út í
Bretlandi fyrir rúmri viku. Bráða-
birgðaprófanir bentu þó ekki til þess
að sjúkdómurinn væri kominn til
landsins. Ekki verður skorið úr að
fullu um málið fyrr en á þriðjudag.
Meðal annarra varúðarráðstafana
sem gripið var til var þriggja daga
bann við öllum flutningi búfjár auk
þess sem svæði í 20 km radíus í
kringum bóndabýlið, þar sem talið er
að gin- og klaufaveiki sé komin upp,
var lokað. Býlið, sem er um 90 km
vestur af Brussel, í grennd við Dik-
ismuide, sérhæfir sig í innflutningi
breskra svína.
Ríkisstjórnin fyrirskipaði einnig
slátrun allra dýra sem var verið að
flytja milli svæða í Belgíu aðfaranótt
laugardags. „Við höfum fundið
blöðrur á munni þriggja af sjötíu og
fimm svínum sem flutt hafa verið inn
frá Bretlandi síðan 1. febrúar sl. og
það er nægilegt til að gripið sé til
varúðarráðstafana,“ sagði belgískur
embættismaður. Hann bætti við að
þrátt fyrir að fyrstu rannsóknir
bentu ekki til þess að sjúkdómurinn
væri kominn til Belgíu, þá væri ekki
búið að taka af allan vafa í málinu.
Belgíska landbúnaðarráðuneytið
hvatti alla „sem hlut eiga að máli“ til
að gæta fyllsta hreinlætis til að koma
í veg fyrir útbreiðslu veirunnar.
Frönsk yfirvöld voru fyrri til en
þau belgísku að lýsa yfir grunsemd-
um sínum um útbreiðslu sjúkdóms-
ins þar í landi og bönnuðu á miðnætti
í fyrrinótt allan innflutning á búfén-
aði frá Belgíu.
Enn sem komið eru eru einu stað-
festu tilfelli gin- og klaufaveikinnar í
Bretlandi og Tyrklandi en þarlend
yfirvöld tilkynntu á föstudag að sótt-
in hefði greinst í fjórum bæjum í hér-
aðinu Konya í miðhluta landsins.
Nýtt tilfelli í Bretlandi
Bretar staðfestu í gær nýtt tilfelli í
sláturhúsi í suðvesturhluta Corn-
wall. Alls eru tilfellin í Bretlandi og á
Norður-Írlandi orðin 41. Um 40.000
dýrum hefur verið slátrað síðan þau
fyrstu greindust. Bretar hafa þó
slakað að hluta til á banni við flutn-
ingi búpenings.
Belgar grípa til ráðstafana vegna óstaðfests tilfellis af gin- og klaufaveikinni
Allur útflutningur bannaður
Brussel, London. AP, AFP.
ÍBÚAR Seattle-borgar í
Bandaríkjunum sleppa við að
breyta póstnúmerinu en samt
búa þeir ekki á sama stað og áð-
ur. Öll borgin færðist til um
fimm millimetra í jarðskjálftan-
um í síðustu viku og lækkaði
um jafn mikið.
Vísindamenn í borginni hafa
reiknað út þessa tilfærslu með
hjálp nýjustu staðsetningar-
tækja og ljóst þykir, að höfuð-
staður Washington-ríkis, Ol-
ympia, sem var miklu nær
upptökunum en Seattle, hefur
færst enn meira til. Þá þrengd-
ist farvegur Duwamish-árinn-
ar, sem rennur um Seattle, um
nokkra þumlunga.
Nýju staðsetningartækin,
sem styðjast við gervihnetti,
eru svo nákvæm, að þau geta
greint hreyfingu á jarðskorp-
unni, sem nemur ekki meira en
millimetra.
Seattle
ekki á
sama stað
Seattle. AFP.
fjölskyldna í voða en óttast er, að um sex milljónir
skepna muni falla í öllu landinu áður en kominn
verði nægur hagi fyrir þær í maí eða jafnvel júní.
Þessi bóndi, Tudev að nafni, sem stumrar hér yfir
dauðum nautgripum, var búinn að missa meira
en helming bústofnsins, 150 skepnur, og hann
MIKLIR kuldar og hörkur eru í Mongólíu, annað
árið í röð, og það sem af er vetri hefur á aðra
milljón gripa fallið úr hor. Myndin er tekin í Hair-
han Bag, einu afskekktasta héraði landsins, en
þar er jafnfallinn snjór um hálfur metri og frostið
hefur farið niður í 50 gráður. Er afkoma 120.000
kvaðst kvíða því á hverjum morgni að fara út til
að telja þær, sem fallið hefðu um nóttina. Hann
hefur sjö munna að metta og óttast algert bjarg-
arleysi á næstunni. Hefur Rauði krossinn lagt
mikið af mörkum til að lina þjáningar lands-
manna en ljóst er, að meira þarf að koma til.
Morgunblaðið/Þorkell
Hörmungarnar í Mongólíu
MIKILL kurr er á norsku lands-
byggðinni um þessar mundir en fólki
þar finnst sem Óslóarvaldið og pen-
ingahyggjan, sem það láti stjórnast
af, hafi ekki lengur neinn skilning á
því lífi, sem lifað er utan höfuðborg-
arsvæðisins.
Í fyrstu var talað um „Finnmerk-
uruppreisnina“ eftir fjölmennan fund
í Vadsø þar sem Jens Stoltenberg
forsætisráðherra fékk það óþvegið
en nú vill fólk í öðrum byggðum, í
Troms, Norðlandi, Heiðmörk, Upp-
löndum, Syðri-Þrændalögum, Sogni
og Fjörðunum, á Mæri og í Raums-
dal og í Agða-fylkjunum báðum, taka
þátt í því, sem það kallar „lands-
byggðaruppreisn“.
Umkvörtunarefnin eru mörg,
meðal annars, að miðstjórnarvaldið í
Ósló sogi til sín fólk og fé á sama tíma
og verið sé að fækka opinberum
störfum úti á landi. Fjárhagur sveit-
arfélaganna fari versnandi en kröf-
urnar til þeirra aukist hins vegar
stöðugt.
„Ríkisstjórnin veður svo í pening-
um, að hún er með sérstaka menn á
sínum snærum til að ávaxta auðinn.
Samt berjast margir í bökkum úti á
landsbyggðinni,“ segir Jan Moen í
Syðri-Þrændalögum og bætir því við,
að Noregur sé orðinn að eins konar
„kauphallarsamfélagi“. „Þær byggð-
ir, sem renta sig ekki nógu vel á þess-
um markaði, eru bara lagðar niður.“
Kvartað undan „Ósló-
arvaldinu“ í Noregi
Uppreisn
á lands-
byggðinni
B