Fiskifréttir - 08.01.1988, Blaðsíða 1
Faxanrtarkaðurinn hf.
við Austurbakka
pósthólf 875 121 Reykjavík
Sími 623080
Fiskuppboð
virka daga 07.30
Nýtt
dragnót-
arskip
til Ólafs-
víkur
Nýtt skip bættist nýlega í flota
Ólafsvíkinga. Er þetta Auðbjörg
SH 197 sem Enni hf. í Ólafsvík lét
smíða í Póllandi. Skipið sem er 67
brúttórúmlestir að stærð, kemur í
stað eldra skips með sama nafni
sem var úrelt í fyrra.
Að sögn Óttars Guðlaugssonar,
skipstjóra og eins eiganda skips-
ins, er það tæpur 21 metri á lengd
og 6 metrar á breidd. Það er smíð-
að hjá Visla Yard í Póllanci en sú
stöð tilheyrir Navimor - skipa-
smíðastöðinni sem mikið hefur
unnið fyrir íslendinga. Ekki var
lokið við skipið í Póllandi, heldur
var það dregið til Hamborgar þar
sem vélar og spil voru sett niður.
Að því loknu var siglt til íslands og
hreppti skipið versta veður á leið-
inni.
Auðbjörg SH197 verður gerð út
á dragnótaveiðar að sögn Óttars
Guðlaugssonar, auk hefðbund-
inna netaveiða. Akveðið var að
sleppa togspilinu en einbeita sér
þess í stað að dragnótinni. Nú er
verið að vinna við ýmislegan frá-
gang á skipinu áður en það heldur
til veiða.
Samkvæmt upplýsingum Óttars
Guðlaugssonar, kostaði Auðbjörg
um 40 milljónir króna en samið var
um smíðina í febrúar í fyrra.
Gamii
Skúmur
seldur til
Kolumbíu
Gamli Skúmur GK frá Grinda-
vík, sem gekk upp í kaupin á nýja
Skúm, hefur verið seldur til Kol-
umbíu í Suður-Ameríku.
Skipasmíðastöðin Lunde Varv
och Verkstads AB í Svíþjóð, sem
smíðaði nýja skipið, tók eldra
skipið upp í á 3,7 milljónir sænskar
krónur, sem jafngildir 22,5 mill-
jónum ísl. króna á núverandi
gengi. Ekki er vitað hversu mikið
fé Kolumbíumenn gáfu fyrir skipið
og ekki heldur til hvers á að brúka
það.
Togurum meinaðar rækjuveiðar?
„ Við munum fara í hariu
— Við fórum á rækju í fyrra og
hittifyrra til þess að kaffæra ekki
allt í þorski hér yfír vertíðarmán-
uðina. Við höfum lagt í verulegar
fjárfestingar vegna þessa og m.a.
byggt upp rækjuverksmiðju í
landi. Við munum ekki taka því
þegjandi, heldur fara í hart ef það
á að útiloka okkur frá rækjuveið-
unum.
Þetta sagði Runólfur
Guðmundsson, skipstjóri á Run-
ólfi frá Grundarfirði í samtali við
Fiskifréttir, en hann líkt og margir
togaramenn, hefur nú miklar
áhyggjur af þeim hugmyndum
stjórnvalda að útiloka togarana frá
rækjuveiðum á þessu ári. I frum-
varpi sjávarútvegsráðherra er ekki
gert ráð fyrir því að togararnir sem
verið hafa á bolfiskveiðum, fái
leyfi til rækjuveiða en kveðið er á
um að hægt sé að bæta rækjumiss-
inn upp með auka þorskkvóta ef
mönnum bjóði svo við að horfa.
— Þetta getur verið afgerandi
fyrir okkur og því er ekki að neita
að þessar hugmyndir draga úr okk-
ur móðinn, sagði Valdimar Braga-
son, framkvæmdastjóri Útgerðar-
félags Dalvíkinga hf. en fyrirtækið
á von á nýjum togara í stað Björg-
vins EA, til landsins um mitt þetta
— segir Runólfur
Guðmundsson
skipstjóri
ár. Verið er að smíða togarann í
Flekkefjord í Noregi og nýlega
leitaði útgerðarfyrirtækið eftir til-
boðum í smíði og niðursetningu
rækjuverksmiðju um borð í nýja
skipinu. Þetta er fjárfesting upp á
tugi milljóna króna en rekstrar-
áætlanir útgerðarinnar ganga út á
að togarinn verði á rækjuveiðum
samhliða þorskveiðunum.
— Við höfum verið á rækju allt
að sex vikur á ári undanfarin ár og
ætlun okkar var sú að láta rekstur-
inn m.a. standa undir sér með
auknum rækjuveiðum. Við sáum
áform stjórnvalda ekki fyrir og ef
svo heldur sem horfir verðum við
að hætta við rækjuna með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum, sagði
Valdimar Bragason.
Þess má geta að verulegar fjár-
hæðir eru í húfi fyrir þá togaraeig-
endur sem hafa verið með skip sín
á rækjuveiðum einhvern hluta árs-
ins. Runólfur Guðmundsson taldi
aflaverðmæti Runólfs á rækjunni í
fyrra nema a.m.k. níu milljónum
króna en aflinn var 150 tonn á rúm-
um mánuði. Þess munu einnig
dæmi að menn hafi haldið togur-
unum á rækjuveiðum í þeirri trú að
þeir væru að skapa sér viðmiðun í
komandi kvótakerfi. Munu ein-
hverjir þeirra ekki hafa náð bol-
fiskkvótanum af þessum sökum.
Fjögur ný skip bættust í fískiskipaflotann nú um jól og áramót. Hér að ofan er stærsta skipið, Hákon ÞH (sjá grein bls. 10—11), en auk hans komu
Skúmur GK, Auðbjörg SH og Freyja RE (nánar segir frá henni í næsta blaði). Mynd: Grímur.