Alþýðublaðið - 02.06.1927, Síða 3
ALIiYÐUBLAÐIÐ
3
I)) Mhtihbni & QlsehC
Glenora hveiti
Canadian Maid
væntanlegt næstu daga.
Dæmi þetta, sem hér er nafnt,
er að eins lítill hluti af þeim
ómannúðarverkum, sem atvinnu'
rekendur vinna og hafa unnið,
enda er nú svo komið, að fólki
fækkar hér árs árlega, — flýr
burt frá harðstjórn og volæði.
Atýinnulífið er í kalda 'koli. Hið
marglofaða framtak einstaklings-
ins hefir ekki sýnt sig hér. Hér
heldur íhaldið dauðahaldi í alt
gamaJt, feyskið og fúið. Fólkinu
er haldið á skuldaklafa og þar
með reynt að kaupa sál þess og
líkama og gera sér það undir-
gefið. Upp úr þessu díki drott-
invalds íhaldsins vill verkalýður-
inn reisa sig, og hann er þegar
byrjaður. En því miður er verka-
lýðurinn enn þá ekki nógu skiln-
ingsgóður á það, að hann sjálfur
verður að slá skjaldborg um trún-
aðarmenn sína, þá menn, sem eru
að vinna fyrir þá mestu trúnað-
arverkin, eins og dæmið hér að
framan greinir, — þvi að atvinnu-
rekendurnir með íhaldssálinni
virðast enga siðfræði þekkja í
þessum efnum. Því er það verka-
lýðsins hér að láta slíkt ekki
koma fyrir aftur og kippa því í
lag, sem orðið er.
Kunnugur.
ErleMGÍ simskeyti.
Khöfn, FB., 1. júní.
Gylling á drottnunarsýki.
Frá Lundúnum er símað: Blöðin
í Bretlandi óttast, að áhrif þjóð-
ernissinna í Egyptalandi fari mjög
vaxandi. Telja brezku [auðvalds-j
blöðin nauðsynlegt, að Englend-
ingar hafi áfram á hendi yfirstjóm
hersins í Egyptalandi vegna ör-
yggis Suezskurðarins.
Bretar og Japanar senda her
inn i Norður-Kina.
Frá Lundúnum er símað: Bret-
ar og Japanar senda her inn í
Norður-Kína vegna þess, hve al-
varleg aðstaða Norðurhersins er
nú. Norðurherinn er á undanhaldi
í Honap>héraði. — Blaðið „Daily
Telegraph" býst 'við þvi, að Jap-
an muni koma í veg fyrir, að
þjóðernissinnar taki Norður-Kína
vegna hagsmuna Japana í Man-
cburiu og Kóreu.
im daglnM veginn.
Næturiæknir
er í nótt Kjartan Ólafsson, Lækj-
argötu 4 uppi, sími 614.
Vegabótum
er Ólafur Syeinsson, vitavörð-
ur á Reykjanesi, að vinna að
milli Reykjaness og Grindavíkur,
og eru þær komnar yfir mikinn
hluta hraunsins. Var þess mikil
nauðsyn. Einnig hefir hann fært
áð mun út túnið á Reykjanesi til
nýræktar og hlaðið grjótgarð um.
Hellir
einkennilegur er í sjávarhömr-
úm nálægt Reykjanessvita, í Litla
Valahnúk. Tekur hann breyting-
um miklum af völdum sjávar-
ins og hefir stækkað mjög og
gerst margbreyttari upp á síð-
kastið. Er gengt í hellinn og um
hann með lágsævi og alt gegn
um bergið. Venja ferðamenn
þangað komur sínar.
Karl Kiichler,
íslandsvinurinn þýzki, hefir
haldið fyrirlestra um Island í vet-
ur á Þýzkalandi. Ráðgerir hann
að koma hingað aftur árið 1930
og langar til að dvelja þá um
hríð við Reykjanessvita. Eru þau
hjónin mjög hrifin af náttúrufeg-
urð og einkennileik umhverfisins
á Reykjannesstánni.
Fyrsti fardagur
er í dag.
j i \sm if?r« íisi ; :
Póstar.
Vestan- og norðan-póstur kem-
ur hingað á sunnudaginn.
Ðánarfregn.
Guðrún Eiríksdóttir, kona Ein-
|ars Sigurðssonar verkamanns,
Þingholtsstræti 26, andaðist í
fyrra kvöld eftir stutta legu.
Banameinið var lungnabólga.
Guðrún heitin var nær hálfsjötug
að aldri. Hún var áhugasöm um
málefni alþýðunnar eins og mað-
ur hennar. Eignuðust þau hjónin
15 börn, og eru 12 þeirra á Hfi.
Lísti Alþýðuflosksins
í Reykjavik við alþingiskosn-
ingarnar hefir verið lagður fram
og verður A-listi. Á honum eru:
Kvensbér
Hargar fallegar, l|ósar tegnndlr nýkomstar.
¥erll að eins 17,5®
Hvaimliergst»i*æður.
NB. Það eru vinsamleg tilmæli, að þeir viðskiftavinir, sem sjá
sér fært, komi fyrri hluta dags.
Héðinn Valdimarsson alþm., Sig-
urjón Á. Ólafsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavíkur, Ágúst
Jósefsson bæjarfulltrúi og Krist-
ófer Grímsson búfræðingur. AI-
þýðumenn! Fylkið ykkur um lista
flokksins ykkar!
Veðrið.
Hiti 9—5 stig. Norðlæg og aust-
iæg átt, hæg. Regnskúrir á Suð-
urlandi og Austfjörðum. LoftvaBg-
islægð fyrir sunnan land. Otlit:
Regn í dag á SuðvesturlandL en
sennilega þurt í nótt. Dálítið regn
á Austuriandi.
Byggingarfélag Reykjavikur.
I auglýsingu þess hér í blað-
!inu í gær misprentaðist í nokkru
af upplaginu: mánudag 16. júni,
en átti að vera 6. júní. Fyrir há-
degi þann 6. júní séu umsóknirnar
komnar.
Bæjarstjórnarfundur
er í dag. 10 mál eru á dagskrá,
þar á meðal kosning yfirkjör-
stjórnar við alþingiskosningarnar.
Húsasmiðir.
Byggingarnefnd Rvíkur hefir
viðurkent til að standa fyrir
húsasmíði í Reykjavík trésmiðina
Ágúst Pálsson, Suðurgötu 16, Jens
Jónsson, Stýrimannastíg 4 og Jón-
as H. Jónsson, Vonarstræti. 11
(Báruhúsinu), og Einar Sveinsson
múrara, Njarðargötu 39.
Framboðsfrégn.
Sagt er, að séra Ásgeir í
Hvammi i Dölum muni verða þar
í kjöri fyrir Ihaldsflokkinn.
Knattspyrnukappleikarnir
í ga^rkveldi fóru þannig, að „K.
R." sigraði Vestmaunaeyjaflokkinn
með 3 gegn 2,og „Vikingur" vann
sigur á „Fram“ með 6 gegn 1.
Knattleikirnir halda áfram annað
kvöld, og er aðgangur ókeypis
fyrir böm.
Hljómleikur Önnn Pjetarss.
er í kvöld kl. 71/* í Nýja Bíó.
Mun mörgum Ieika hugur á að
heyra hann.
„Vísir“
er byrjaður að fiytja kauplækk-
tmarpistía og um nauðsyn ótak-
■markaðs vinnutíma. Er það i
samræmi við framkomu Jakobs
Möllers í vökulagamálinu, þegar
hann stóð utan gátta á meðan
frumvarpið um lengingu hvlldar-
Aígrelði
allar skó- og gummi-viðger<$ir bezt,
fljótast og ódýrast. — Að eins
handunnið.
Sigurgisli Jónsson,
Oðinsgötu 4,
tíma háseta á togurum var felt,
og kom sér þannig hjá að greiða
atkvæði. Mun hvorugt verða
honum að flothoiti til að svamla
á aftur inn í þingið. Mun og
„Vísi“ ekki takast að ginna hugs-
andi sveitamenn til kjörfylgis við
utangáttaflokk sinn með því að
rægja verkafólk í kaupstöðum við
þá. Munu þeir og óðum vera að
sannfærast um, að hæfilegur
vinnutími gefur beztan árangur af
starfi fólksins, og að aukin sam-
tök og vinnuvélar eru líklegri til
að verða sveitabúskapnum lyfti-
stengur heldur en kauplæklmnar-
þjark og mannaníðsla, sem „Vís-
xs“-ritarinn og fleiri íhaldspostular
predika. Getur verið, að „Vísir"
sé þarna að vekja upp þann
draug, sem verði liði hans skæðari
í næsta mánuði heldur en tóftar-
draugurinn varð Gilsbóndanum,
sem pistilritarinn beitti með á
krókinn.
Togararnir.
„Apríl" kom af veiðum í gær-
kveldi með 90 tunnur lifrar.
„Draupnir" fór á veiðaf í moigun.
#
Af ntanríkisráðuneytinu í
Khöfn.
er ágætismynd í síðustu „Les-
bók“ „Mgbl.“, og fylgir mynd af
Struense ráðherra, og segir þar
til greinisemi þeim lesendum
blaðsins, sem ekki þekkja grein-
armun á húsum og mönnum:
„Mannsmyndin er af honum.“ Er
fræðslustarfsemi blaðsins einkar-
virðingarverð; þó er sá ljóður á
henni, að fræðslan er ekki alt af
sem réttust. T. d. er utanríkisráðu-
neyti Dana ekki í þessu húsi og
befir ekki verið þar síðan 1923,
heldur er það í Kristjánsborgar-
höll. Skrítið, að „Mgbl.“ skuli
vera svona illa að sér um dönsk
málefni!
Geagi erlendra mynta í dag:
Sterlingspund. . .
100 kr. danskar . .
100 kr. sænskar . .
100 kr. norskar . .
Dollar..............
100 irankar franskir.
100 gyllini hollenzk
«00 guUmörk pýzk.
kr. 22,15
- 121.90
- 122,15
- 118,55
- 4,56V3-
- 18,04
- 183,04
- 108.13