Tíminn - 15.01.1944, Qupperneq 4
20
TÍMINX, laiigardagiim 15. jan. 1944
5. blað
Ú R BÆNUM
Atkvæðagreiðslan í Dagsbrún.
Atkvæðagreiðslan í verkamannafé-
laeinu Dagsbrún um uppsögn kaup-
samninga félagsins hófst í gær og mun
standa yfir í dag og á morgun. Fer
hún fram á skrifstofu félagsins. Nær
3000 menn eru skráðir fullgildir fé-
lagsmenn.
Fangahúsið yfirfullt.
Rannsóknarlögreglan hefir orðið að
handsama svo marga menn undanfar-
ið vegna grunsemda um ýms brot
(svik, innbrot, þjófnaði), að fanga-
húsið við Skólavörðustíg 9 hefir yfir-
fyllst og hefir orðið að fé rúm fyrir
allmarga menn í Farsóttahúsinu.
Húsaleigubrot.
Hæstiréttur hefir nú fellt dóm 1 máli
því, sem höfðað var gegn einum bæjar-
fulltrúa Sosialistaflokksins, Steinþóri
Guðmundssyni, fyrir brot á húsaleigu-
lögunum. Hafði Steinþór látið félag,
sem hann ræður yfir, leigja flokknum
íbúðarhúsnæði fyrir skrifstofur. Hæsti-
réttur dæmdi Steinþór í 300 kr. sekt
fyrir brot á húsaleigulögunum.
Tveir piltar . . .
(Framh. af 1. síðu)
2 og stálu þar 1400 krónum í
peningum' sem Samband ís-
lenzkra berklasjúklinga átti.
Einnig brutust þeir inn í við-
byggingu Útvegsbankans við
Lækjartorg við þriðja mann og
stálu þar peningum og skipti-
mynt.
Enn brutust þeir inn í kjall-
ara Mogensens lyfsala og stálu
áfengi og ávöxtum. Til þessa
höfðu þeir enn einn fylgdar-
mann.
Loks brutust þeir inn í veit-
ingastofuna „Fróðá“ við Lauga-
veg við fjórða mann og stálu
þar peningum.
Alls flæktust fimm menn í
innbrot með piltum þessum.
Þá hafa allmörg börn gerzt
sek um og orðið uppvís að hnupli
og þjófnaði. Skýrði Sigurður
Magnússon kennari svo frá, að
þarna hefðu verið að verki 9—16
ára gömul börn. Aðsópsmestir
hefðu þó verið 6 drengir, sem alls
hefðu framið ellefu margvíslega
þjófnaði, og þrír, sem framið
hefðu 27 þjófnaði og einkum
stolið munum í búðum og selt.
Hinir fyrrnefndu stálu pen-
ingum úr mannlausum íbúðum.
frömdu innbrot í Sanítas við
Lindargötu, tveir stálu herbíl,
fjórir stálu áfengi og seldu, tveir
stálu gullúri, tveir stálu skamm-
byssu um borð í „Esju“ og tveir
armbandsúri af drukknum
manni sem bað þá að fylgja
sér Mim.
Mjög oft er hnupl barna
því að kenna, hve illa fólk gætir
eigna sinna. Mannlausar íbúðir
eru iðulega skildar eftir opnar
og peningar látnir liggja á
glámbekk. Með þessum hætti
er barnanna oft beinlínis freist-
að. Mundi mjög draga úr þess-
um afbrotum barna, ef fólk
sýndi meiri aðgát í þessu efni,
en gert er.
Víðskiptajöfnuður-
inn óhagstæður um
14,8 milljónir
Samkvæmt bráðabirgðayfir-
lit Hagstofunnar hefir hallinn
á viðskiptajöfnuninni á síðast-
liðnu ári orðið um 15 milj. kr.
Samtals hefir útflutningur-
inn á árinu numið 233 milj. kr„
en innflutningurinn 247.8 milj.
kr.
Árið 1942 vár verzlunarjöfn-
uðurinn óhagstæður um nærri
50 milj. kr. Þá nam andvirði
útfluttra vara samtals 200.4
milj. kr„ en innfluttra vara
samtals 248.1 milj. kr.
Aftur á móti var verzlunar-
jöfnuðurinn hagstæður árið
1941. Þá var flutt út fyrir 188.5
milj. kr?f en inn fyrir 129.6
milj. kr.
Lesendur!
Vekjið athygli kunningja yð-
ar á, að hverjum þeim manni,
sem vill fylgjast vel með al-
mennum málum, er nauðsyn-
legt að lesa TÍMANN.
Skrifið eða símið til Tímans
og tilkynnið honum nýja áskrif-
endur. Sími 2323.
Max Pemberton
(Framli. af 1. siðu)
ar um kl. 11,30 f. h. hafi Max
komið til Patreksfjarðar og sett
þar á land Magnús Guðjónsson,
sem verið hafði annar vélstjóri
á skipinu síðan 3. janúar.
Ekki hefir tekizt að frétta
neitt um ferðir skipsins síðan
kl. 7,30 á þriðjudagsmoguninn.
Leitað verður að skipinu með
flugvélum strax og veður leyfir.
Skipstjóri á skipinu er Pétur
Maack, og er áhöfn alls 29
manns.
EHrleut yflrlit
(Framh. af 1. síðu)
4. Lög, sem ákveði skaðabæt-
ur til handa þeim, er orðið hafa
fyrir fjárhagslegu tjóni vegna
hinnar þjóðlegu afstöðu sinn-
ar á tímum hernámsins, t. d.
atvinnumissi.
5. Lög um eignarnám stríðs-
gróða.
6. Lög um refsingar fyrir naz-
istiska og ólýðræðislega starf-
semi á tíma hernámsins.
7. Stofnun sérstakrar dóm-
stóla, er fjalli um mál samkv.
næstseinasta tölulið.
í ávarpi frelsisnefndarinnar
er hver einstakur liður skýrð-
ur sérstaklega. Þess er getið, að
frelsisnefndin telji ekki uppgjöf
landsins 9. apríl 1940 refsiverða
samkv. landslögum né samvinnu
ríkisvaldsins við Þjóðverja þar
á eftir, þótt vafalaust hefði
verið betra að samvinnan hefði
engin verið. Hins vegar kunni þó
einstakir ráðherrar að hafa
unnið sér til sakfellingar. En
þegar það sé undanskilið, verði
ekki hægt að refsa þeim mönn-
um, sem ábyrgð báru á þessari
stjórnarstefnu nema þá á þann
hátt, er þjóðin kann að gera
það sjálf við kjörborðin.
Hins vegar telur frelsisnefnd-
in það nauðsynlegt, að þeim,
sem hafi verið Þjóðverjum ó-
eðlilega hliðhollir, sé refsað
sérstaklega og sömuleiðis dönsk-
um nazistum. Það sé líka þess-
um mönnum bezt, að ríkið taki
það að sér að refsa þeim, því
að annars kunni almenningur
sjálfur að taka það verk að
sér og gæti það orðið þeim enn
verra, auk þess sem það gæti
skapað óöld í landinu.
Á framangreindum atriðum
úr ávarpi dönsku frelsisnefnd-
arinnar má sjá, að stjórnmál
Dana fyrst eftir styrjöldina
munu að verulegu leyti snúast
um uppgjörið við hin nazist-
isku öfl í landinu. Slíkt upp-
gjör mun þó valda enn meiri á-
tökum í flestum hinna her-
numdu landanna, einkum þó í
Noregi, þar sem nazistar hafa
látið enn meira að sér kveða.
Norska stjórnin í London hefir
þegar fjölda manna á „svört-
um lista“, er fá að standa
reikningsskap ráðsmennsku
sinnar, þegar tími frelsisins
kemur.
.... og svo umfram allt a8 senda
mér 1 stykki SAVON DE PARIS,
hún er svo ljómandi góS.
_____________________________________)
— Já, með ánægju, kæra frö-
ken, enda seljum við langmest
af þeirri handsápu.
Tryggíngarráð
Tryggingarstofnunar
ríkisins
Alþingi kaus á miðvikudag
tryggingarráð Tryggingarstofn-
unar ríkisins til næstu fjögurra
ára.
Kosnir voru þesir aðalmenn:
Kjartan Ólafsson, bæjarfulltrúi,
Helgi Jónasson, læknir, Brynj-
ólfur Stefánsson, forstjóri, Gunn
ar Möller, lögfræðingur.
Varamenn voru kosnir:
Stefán Jóh. Stefánsson, Jens
Hólmgeirsson,- Sigfús Sigur-
hjartárson, dr. Björn Björns-
son, Einar Ásmundsson.
ORÐSENDING
til kaupcnda Tímaiis.
Ef kaupendur Tímans verða
fyrir vanskilum á blaðinu, eru
þeir vinsamlega beðnir að snúa
sér STRAX til
ÞÓRÐAR ÞORSTEINSSONAR,
afgreiðslumanns,
í síma 2323, helzt kl. 10—12 f.
hád. eða kl. 3—5 e. hád.
Blaðagreinar . . .
(Framh. af 2. síðu)
að stefnuskrá flokksins þarf að
endurskoða, því að nýir og
breyttir tímar fara í hönd, án
þess þó að grundvallarstefnu
flokksins sé raskað. Á meðan
grundvallarstefna flokksins er
óbreytt, er ekki völ á öðru betra
nafni en hann ber nú, auk þess,
sem það hefir unnið sér verð-
skuldaða hefð og virðingu. Ég
hefi lika engan mann heyrt
hreyfa þessu í alvöru, nema ör-
fáa menn, sem hafa farið úr
flokknum yfir til kommúnista,
og svo Egil Thorarensen. Kom-
múnistarnir segja, að flokkur-
inn eigi að breyta um nafn, því
að hann sé ekki framsóknar-
flokkur lengur, en Egill færir
fram þau rök, að nafnið standi
í vegi þess, að gamlir Sjálfstæð-
ismenn gangi i flokkinn. Þeir.
menn skipta hundruðum, er
hafa afsannað þessi rök Egils
með breytni sinni, og er Egill
sjálfur meðal þeirra.
Vel get ég samsinnt því hjá
B. B„ að mikill glundx-oði sé á
Alþingi. En hins vegar get ég
ekki fallizt á, að leiðin úr ó-
göngunum sé að fjölga flokk-
unum. Ef bændur ætla að leggja
fram sinn skerf til að lækna
glundroðann, þá er hann ekki
sá að bæta við nýjum flokki,
heldur að efla og treysta þann
flokk, sem þeir hafa fyrir og
gera hann sem öfíugastan til að
ráða bót á vandræðunum.
Reynslan hefir jafnan sýnt, að
fjölgun flokka leiðir til aukins
glundroða. Bændur hafa heldur
ekki það marga málssvara á
Alþingi, að þeir megi við því að
veikja aðstöðu sína þar með
því að eitthvert brot þeirra
efni til „fimmta flokksins“.
Glundroðinn, sem af slíku hlyt-
ist, gæti orðið bændum sjálfum
verstur.
Vel get ég skilið það, að B. B.
vill að þessu sinni ekki leggja
neinn dóm á flokkshugmynd
Egils Thorarensen, því að það
væri næsta ósennilegt, að slík-
ur dómur hans myndi verða til
þess að mýkja sár Egils. B. B.
er áreiðanlega ekki hlynntur
þeirri hugmynd, að reynt sé að
skipa bændum, stórframleiðend-
um og kaupmönnum í einn
flokk eða eins konar Alþýðu-
samband. Hann telur áreiðan-
lega, að verkamennirnir á
Sandi, Ólafsvík og Eyrarbakka
séu eðlilegri og æskilegri sam-
starfsmenn bænda en stór-
gróðavald höfuðstaðarins.
Það er misskilningur hjá B. B„
að veitzt hafi verið hér í blaðinu
með talsverðum þjósti að Agli
Thorarensen fyrir störf hans við
félagsskap bænda á Suðurlandi.
Því fer fjarri, heldur hafa verk
hans á því sviði verið fullkom-
lega viðurkennd.
Hins vegar er bezt að lofa
svo einn mann, að það sé ekki
gert á kostnað annara. Ég hygg,
að B. B. sjái það við nánari at-
hugun, að það sé helzt til of-
mælt, að önnur vinna við
framkvæmdir mjólkurlaganna
hafi verið „barnaleikur“, sam-
anborið við vinnu Egils og
I Sveinbjarnar Högnasonar. Öll
| baráttan við klofning Fram-
sóknarflokksins og kosninga-
baráttan 1934, var undirbún-
ingur þess, að mjólkurlögin
: og fleiri umbótalög yrði sett.
1 Áður hafði E. Th. reynt að
koma sæmilegu skipulagi á
mjólkurmálin með samningum
við Sjálfstæðismenn, en öll sú
vinna hafði orðið árangurslaus.
Stórframleiðendurnir og kaup-
mennirnir, sem bændum er sagt
að samfylkja með nú, reynd-
1 ust þá ekki betri viðskiptis.
! Kosningasigurinn 1934, og það,
j að Magnús Torfason vildi ekki
J fylgja Bændaflokknum eftir að
hann sá, að um dulbúinn í-
| haldsflokk var að ræða, gerði
setningu mjólkurlaganna mögu-
1 lega. Án þeirra hefði Egill
i Thorarensen og aðrir verið
xiæsta máttlausir í starfi sínu
fyrir mjólkurframleiðendur,
! eins og reynslan hafði líka
| sýnt. Öll þessi barátta, er var
jaðdragandi mjólkurlaganna, var
vissulega enginn barnaleikur.
! Það verk, sem Egill hefir unn-
ið í þessum málum, er vissu-
lega ágætt. En þegar mest
reyndi á, var það ekki hann, er
gerði þau átök, er riðu bagga-
muninn. Auðvitað var það ekk-
ert sérstaklega þakkarvert,
þótt Hermann Jónasson, sem
landbúnaðarráðherra Fram-
sóknarflokksins, héldi uppi
framkvæmd mjólkurlaganna og
vörnum fyrir þeim. Ef einhver
annar hefði verið ráðherra af
hálfu Framsóknarflokksins,
myndi hann hafa unnið svipað
verk. Á sama hátt myndi ein-
hver annar, sem bændur hefðu
til þess kjörið, getað unnið verk
E. Th. austanfjalls. Samskonar
verk hefir verið unnið af kaup-
félagsstjóranum og mjólkurbús-
stjóranum í Borgarnesi, og ekki
síður hefir það starf verið unn-
ið á Akureyri af kaupfélags-
og mjólkurbússtjóranum þar.
Fyrst byrjað er á því að
þakka einstökum mönnum fyrir
framkvæmd mjólkurskipulags-
ins, virðist það ekki úr vegi að
minnast þess manns, sem borið
hefir hita og þunga hinna dag-
legu framkvæmda. Þessi maður
er Halldór Eiríksson. Hann tók
við stíörn Mjólkursamsölunnar,
þegar óvænlegast horfði, og
hefir gert hana að einu bezt
rekna stórfyrirtæki landsins.
Tillögur þeirra manna, sem
hafa gengið inn í raðir bænda
og fara ,með trúnaðarmál fyrir
þá, eru náttúrlega mikils virði,
en því má samt ekki gleyma,
að þessir menn eru starfsmenn
bænda, en ekki húsbændur.
Hetjudýrkun hefir aldrei verið
siðfræði Framsóknarflokksins og
verður vonandi aldrei. Það er
vissulega slæm hetjudýrkun og
siðfræði, ef bændur ættu, vegna
þess, að þeir hafa falið ein-
hverjum verzlunarlærðum
manni trúnaðarstarf, að trúa á
pólitískar skoðanir hans.
Það skal ekki efað, að E. Th.
vilji kaupfélagsskapnum og
bændum vel. En það er ýmislegt
í lífi ýmsra manna, Egils og
annara, bæði gamlar og nýjar
^ .. . . jvfÝJA BÍÓ m - - - ■
| Skógarvefðiriih* | Forðum j
(Forest Rangersx í Califoriiíu.
Kvikmynd í eðlilegum j (In Old California). í
i litum. Spennandi og ævintýra- j | rík mynd. \ Aðalhlutv.:
FRED MACMURRAY j
PAULETTE GODDARD. j
| Sýnd kl. 7 og 9. JOHN WAYNE, ! BINNIE BARNES, HELEN PARRISH.
KONUDAGUR.
(Ladies Day). j Börn fá ekki aðgang. j
Lupe Velez. Eddie Albert. j Sýnd kl. 5. Sýnd kl. 5, 7 og 9. J
Leikfélag Rcykj a víknr
„Topn gHðannaéi
Sýning annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í dag.
Tilkynning
Bókaverzlun mína, bókaforlag og fornbækur, hefi ég selt nú
frá áramótum, þeim Jóhanni Péturssyni, Bi-æðraborgarstíg 52.
og Vilhjálmi Guðmundssyni, Sogabletti 1, Reykjavík, og reka.
þeir hana áfram undir firmanafninu: Bókavei’zlun Guðmundar
Gamalíelssonar. _ 8
Allar útistandandi skuldir verzlunarinnai; greiðast til mín, og
ég er líka ábyrgur fyrir þeim skuldaki’öfum, sem kunna að koma
fram á verzlunina og áfallnar eru fyrir áramót.
Úm leið og ég þakka öllum hinum mörgu viðskiptavinum nær
og fjær ánægjuleg viðskipti um 40 ára skeið, vil ég láta þá ósk
og von í ljós, að hinum nýju eigendum verzlunarinnar verði
sýnd hin sama velvild og ég hefi ávallt notið víðsvegar að um
land allt.
Reykjavík, 3. janúar 1944.
Gnðm. Gamalíelsson.
Samkvæmt framanrituðu höfum við undirritaðir keypt „Bóka-
verzlun Guðmundar Gamalíelssonar“, og munum reka hana á-
fram undir sama nafni og á okkar ábyrgð að öllu leyti.
Munum við kappkosta að reyna að fullnægja óskum viðskipta-
manna, og vonum að við reynumst verðugir þess sama trausts
og velvildar, sem verzlunin hefir ávallt notið fram að þessu.
Vilhjsilmur Guðmiiiidsson. Jóliaiin Pétursson.
Aðalfundur Fiskífél. Islands
verdur lialditm laugardaginn 15. janúar kl. 2
e. h. í Kau|)l»iiigssalnum.
DAGSKRÁ: Venjuleg aðalfundarstörf.
FELAGSSTJÓRMA.
Halldór Stefánsson:
Refskák stjórnmálaflokkanna
Þættir úr sögu stjórnmálanna 1017-1942
Frásögn — ályktanir — tillögur.
Framsóknarútgáfan, Rv.
Fæst hjá hóksölum um land allt.
Húsmæðrakennara-
skóli Islands
Vegna mikillar aðsóknar eru þær stúlkur, sem hafa hug á að
stunda nám í kennaradeildum skólans, næsta skólaár, beðnar
að senda umsóknir fyrir 1. maí n. k. Umsóknum fylgi upplýsing-
ar um aldur og menntun.
Viðtalstími forstöðukonu er kl. 11—12 f. h. hvern miðviku-
dag í Háskólanum. Fyrirspurnum einnig svarað skriflega.
HELGA SIGLKÐAHHÓTTIR,
forstöðukona.
persónulegar og málefnalegar
ástæður, er geta haft annarleg
áhrif á skoðanir þeirra, og
beint þeim inn á óheppilegustu
brautir eins og flokkshugmynd
Egils Thorarensen er. Þ. Þ.