Tíminn - 18.01.1944, Blaðsíða 4
24
TÍMIKN. lirigjudagmtt 18. |an 1944
6. blað
| §ölnmiðitöðin 1
| Við umlirritaðir höfuin stofnað fasteigna-, skipa- og verðbréfa- I
| sölai undlr nafninu |
HÖIIIIII i ðstöði II
| Önnuiust einnig allskonar uinhnðssiarfscmi, innl. og erlenda. |
Skrifstofan er á Klapparstíg 16, 3. hæð
1 símar 3323 og 2572.
I Áherzla lögð á áhyggileg viðskipti. 1
| Gerið svo vel að tala við okkur, ef þér Jiúrfið að selja eða |
| kaupa hús, jjarðir, skip, verðbréf, vörulagera, verzlanir eða |
| önnur fyrirtæki. |
1 Virðingarfyllst 1
SöliiBiiiOstödiiB - |
1 Gísli Indriðason. Áki Jakohsson. H
5SWS5S5SSS5SS5Í5S55SSS5555S5K555S55S5S5W5SÍ555J55SSS5SSS555S555555SSJ55SJÍ5S5555SÍS5555S5555S5S5J555555555555S555S5K
Öllum þeim, sem heiðruðu minningu mannsins míns og
föður okkar, BÆRINGS BJARNASONAR, Patreksfirði, sem
andaðist 22. desember s. 1., viljum við biðja guð af alhug
að launa og blessa.
Jóhanma Árnadóttir og börn.
Aðstoðarráðskonu
vantar að Vífilsstaðahæli nii þegar, eða frá 1.
febrúar n. k. — Upplýsingar í skrifstofu rík-
isspítalanna í Fiskifélagshúsinu.
REYKVlKINGAR!
tirvals saltkjöt
fæst nú og framvegis í flestum kjötbúðum
bæjarins.
ÚR BÆIVUM
Skemmtun Framsóknarmanna
verður n. k. fimmtudagskvöld í List-
sýningarskálanum. Hefst hún með
Framsóknarvist kl. 8 'A. Síðan verður
spilaverðlaunum úthlutað, ein stutt
ræða, söngur og lolcs dans undir dill-
andi hljóðfæraslætti hljómsveitar
Bjarna Böðvarssonar. — Áríðandi er,
að fólk panti sem allra fyrst aðgöngu-
miða að þessari samkomu á afgreiðslu
Tímans, því fjölmenni verður. En a.
m. k. takmarkað, sem kemst að spila-
borðunum.
Hjúskapur.
Síðastliðinn laugardag voru ungfrú
Ólöf Björnsdóttir og Magnús Magnús-
son gefin saman í hjónaband. Séra
Árni Sigurðsson framkvæmdi athöfn-
ina. Heimili þessara ungu hjóna er á
Laugavegi 86.
Lýðveldis-
stjórnarskráin
(Pramh. af 1. síðu)
Eysteinn Jónsson lagði á-
herzlu á, að sambandsslitin og
lýðveldisstofnunin fylgdust að,
því að margs konar erfiðleikar
gætu hlotizt af því, ef þessi mál
væru aðgreind. Þetta hefði líka
verið afstaða Alþingis 1941, eins
og glöggt kæmi fram í yfirlýs-
ingum þess þá. Það væri mjög
háskaleg stefna, er kæmi fram
hjá St. J. St., að sambandslög-
unum mætti slíta eftir 19. maí,
en hins vegar skyldi lýðveldis-
stofnuninni frestað um óá-
kveðinn tíma. Til hvers eigum
við að halda í konungssam-
bandið eftir að sambandslög-
unum hefir verið slitið?
Eysteinn bað menn að forð-
ast þann misskilning að setja
lýðveldisstofnunina í persónu-
legt samband við Kristján kon-
ung. Hann hefði reynzt íslend-
ingum vel og sérstaklega hefði
hann reynzt þjóð sinni góður
foringi á örlagatímum. Þess
bæri að minnast, en jafnframt
’gæta þess, að það væri óskylt
lýðræðismálinu og ætti ekkert
erindi inn í umræður um það.
Auk Gísla og Eysteins talaði
Einar Olgeirsson og mótmælti
málflutningi Stefáns. Var hann
óspart minntur á, að hann hefði
stutt að því, að lýðveldið yrði
stofnað 1942 og þá ekki haldið
því fram að tala ætti við kon-
unginn áður. Til hvers ætti líka
að vera að tala við konung, ef
menn væru ákveðið fylgjandi
lýðveldisstofnuninni?
Þá var Stefán minntur á, að
hann og flokksmenn hans
hefðu átt einn aðalþáttinn í
samþykkt þess stjórnarskrár-
ákvæðis, er gerir mögulega
setningu lýðveldisstjórnarskrár,
án undirskriftar þjóðhöfðingja.
Allir áðurnefndir ræðumenn
tóku oftar en einu sinni til
máls og urðu umræður tals-
vert snarpar.
Uppsðgn sambands-
laganna rædd á Alþingi
(Framh. af 1. síðu)
gætt, hvað mun geta unnizt við
slíka andstöðu?
Það er mála sannast, að sund-
urlyndi okkar íslendinga er ær-
ið, þótt okkur mætti auðn-
ast að standa saman um lausn
sjálfstæðismálsins, og ég tel að
ekki þyrfti að verða skotaskuld
úr því að fá góða niðurstöðu í
þjóðaratkvæðagreiðslu um mál-
ið, ef allir flokkar þingsins væru
samtaka, en það er ekki lítils
virði.
Það er að vísu óhugsandi að
andstaða gegn lausn málsins nú
geti haft þau áhrif, að meiri-
hluti þjóðarinnar beiti sér gegn
málinu. Hitt mun sönnu nær, að
slík andstaða sé ekki til neins
annars en að skapa glundroða
í atkvæðagreiðsiunni um málið,
sem verður vitanlega til þess
eins, að veikja aðstöðu okkar út
á við. Slíkt er vissulega iila farið
og vil ég því vænta þess, að sam-
komulag náist um lausn þessa
máls, á þeim grundvelli, sem
samkomulag var orðið um við
athugun þess í þinginu.
Ég trúi því ekki fyrr en ég
tek á, að þeir, sem nú halda uppi
gagnrýni gegn lausn málsins,
skerist úr leik Við endanlega af-
greiðslu þess. Allir Alþingismenn
voru samþykktir því á Alþingi
1941, að við hefðum þá þegar
fullan rétt til sambandsslita. —
Síðan höfum við beðið^ í 3 ár.
Hvernig geta þeir nú skorizt úr
leik, sem stóðu á þeim grund-
velli, sem lagður var 1941?
Hér er vissulega svo hóflega
farið, að enginn má úr leik
skerast.
Einar Olgeirsson gerði að lok-
um grein fyrir afstöðu Sósíal-
istaflokksins, en síðan var um-
ræðum frestað.
Silfurbriiðkaup
(Framh. a1 3. síðu)
allt af vera nægur tími til alls.
En á óregluheimilunum er sí-
felldur eriil og ófriður, því allt
er þar á eftir tímanum.
Nú eru börnin flest flogin úr
hreiðrinu. Og þegar svo var
komið, brugðu hjónin búi og
fluttu í Búðakauptún, eins og
áður er sagt. Keyptu þau þar
snoturt íbúðarhús. En ekki lagði
Þórlindur árar í bát. En nú þótti
honum fiskibátur sinn of lítill
er lengra var að sækja á fiski-
miðin. Keypti hann því stærri
trillubát, 5 tonna og sótti hann
til Akureyrar í fyrra haust. Voru
þeir tveir á bátnum og hrepptu
mótvind og úfinn sjó á'leiðinni,
en tóku þó hvergi land fyrr en
heima á Fáskrúðsfirði. Sýnir
þetta ferðalag, að karlmennska
og kjarkur Þórlindar er óbilað-
ur enn.
Þórlindur er sjálfstæðismað-
ur í orðsins beztu merkingu,
eins og raun ber vitni um. En
ætíð hefir honum verið það
ljóst, að án samvinnu og sam-
taka, verður Grettistökum ekki
lyft, eða þeim málum hrundið
í framkvæmd, er til heilla horfa
fyrir alþýðu. Fylgir hann hik-
laust samvinnumönnum að mál-
um, og hefir ávallt lagst á sveif
með Framsóknarflokknum gegn
öfgastefnum og hnefarétti, og
verið góður félagsmaður og ó-
sérhlífinn.
Oft hefir andað kalt í garð
bænda í blöðum og tímaritum
og þó hefir sá gustur verið mest-
ur nú í seinni tíð. En ég hygg
að ævistarf Hvammshjónanna
og annarra slikra atorkumanna,
sé engu síður þess vert að þess
sé minnst með virðingu og
þakklæti, en sumra annarra,
sem hæst hafa galað og þjóð-
kunnir eru kallaðir.
Það myndi hafa verið mann-
fagnaður á heimili silfurbrúð-
hjónanna á Fáskrúðsfirði, ef
húsfreyjan hefði verið heima
brúðkauþsdaginn. En hún er nú
sjúklingur á Landsspítalanum,
en mun vera á góðum batavegi.
Óska allir góðkunningjar,
vinir og ættingjar henni góðrar
heilsubótar og þeim hjónunum
báðum langra lífdaga og ham-
ingju og heilla á komandi ár-
um.
Þór. Gr. Víkingur.
Hrakoíngar
Séra Hólmgrímur Jósefsson
sóknarprestur á Raufarhöfn
lenti nýlega í miklum hrakn-
ingum. Skall á hann hríð, er
hann var á ferð á leið, sem í
góðu færi tekur 4 klst., og varð
Ræktuiiarstefiian . . . .
(Framh. af 2. síðu)
þegar aflaleysi var eða stopular
sjógæftir. Spyrja sjómanna- og
verkamannakonurnar hvort
mjólkin úr kúnum þeirra og
matjurtirnar úr garðinum séu
ekki mikil blessun í búi, og
hlusta um leið á frásagnir
þeirra af lífinu, meðan það var
„þurrabúðariíf". Spyrja kenn-
arana, hvort þeir finni nokkurn
mun á andlegum og líkamlegum
þroska skólabarnanna, sem áð-
ur liðu af mjólkurskorti og alls-
konar vaneldissjúkdómum, og
biðu tjón á sálu sinni fyrir skort
á hollum viðfangsefnum, meðal
annars af því, að þau voru slit-
in úr tengslum við jörðina og
hið gróandi líf. Spyrja loks
sveitastjórnirnar á þeim stöð-
um, sem ræktunin er lengst á
veg komin, hvort ekki hafi skipt
um til hins betra um fram-
færsluþarfirnar, við það að
fólkið hóf viðskipti við mold-
ina sér til stuðnings í lífsbar-
áttunni.
Ég ætla að svörin við þessum
spurningum verði undantekn-
ingarlaust rökstudd viðurkenn-
ing á nauðsyn ræktunarstefn-
unnar í kauptúnum og sjávar-
þorpum. Og þau eru þung á
metunum, vegna þess að þau
eru vitnisburður .frá fólkinu,
sem ber hita og þunga dagsins.
Þau eru röksemdir frá lífinú
sjálfu.
hann að grafa sig í fönn. Þar
hafðist hann við í 16 klst.
samfleytt, en alls hafði hann 22
klst. útivist.
Séra Hólmgrímur var allþjak-
aður og nokkuð kalinn eftir
þessa ströngu útivist.
Súðin
vestur og norður á morgun.
Kemur við á báðum leiðum á
Sandi, Ólafsvík, Stykkishólmi,
Flatey og helztu Vestfjarða-
höfnum, vegna pósta og far-
þega, ef veður og aðrar ástæður
leyfa.
Skípaútgerð ríkisíns
Bylting í lirezknin
félagsmálum
(Framh. af 3. síðu)
ur til heimila sinna og manna.
Og efalaust láta þær sér það
nægja um stundarsakir.
En að mínum dómi munu þær
ekki til lengcfar láta sér lynda,
að allt falli í sama farið og var
fyrir striðið. Því að það hefir
komist inn hjá þeim að vænta
einhvers betra, einkum til handa
börnum sínum. Og sjálfræði það,
sem þær hafa vanist í stríðinu,
mun ýta undir þær með að gera
kröfur um bætt lífskjör fyrir
sig og börn sín.
Þær munu að því leyti ganga
í lið með mönnum sínum og
bræðrum. Og engin brezk stjórn
mun treystast til að setja sig
upp á móti svo öflugum þjóðar-
vilja eftir ófriðinn. Bretar eru
lýðræðisþjóð, þótt margt gæti
virzt mælaþví gegn, því að
ríkisstjórnin er hér mjög næm
fyrir almenningsálitinu.
GÁMLA BÍÓ—
LÆVIRKI
(Skylark)
Claudette Colbert
Ray Milland
Brian Aherne.
J Sýnd kl. 7 og 9.
| SLÓÐIN TIL OMAHA
(The Omaha Trail).
James Craig
Dean Jagger.
Sýnd kl. 3 og 5.
j Bönnuð börnum innan 12
ára.
-o—o—* nýja bíó —o—o—i
Leyndardómur
danshallarínnar
(Broadway).
Dans- og söngvamynd um
næturlífið í New York.
Georg Raft.
Pat Ó’Brien.
Janet Blair.
Brod Crawford.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuö börnum yngri en
12 áía.
Leikfélag Reykjaviknr
„Topn guðannaM
Sýning aiinaó kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 í dag.
Stulku
vantar í eldluisið á Vífilsstöðuin. Upplýsingar
í skrifstofu ríkisspítalanna í Fiskifélagshiis-
mu.
H.f. Eimskipafélag Islands
Aðalfundur
Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands, verður
haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugar-
daginn 3. júní 1944 og hefst kl. 1 e. h.
1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á
liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandi ári,
og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar end-
urskoðaða rekstursreikninga til 31. desember 1943 og efna-
hagsreikning með athugasemdum endurskoðenda, svörum
stjórnarinnar og tillögum til úrskurðar frá endurskoðend-
um.
2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiptingu
ársarðsins.
3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað. þeirra sem
úr ganga samkvæmt félagslögum.
4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins
varaendurskoðanda.
5. Tillögur til lagabreytinga.
6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp
kunna að verða borin.'
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dag-
ana 31. maí og 1. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð
fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins
í Reykjavík.
Reykjavík, 6. janúar 1944.
S t j ó r n i n.
Fóðurbætír
Fóðurblöndu fyrir mjólkurkýr, 2 tegundir
Hænsnakorn
Hænsnamjöl, 2 tegundir
Hestafóðurblanda
Svínafóðurblanda
Fóðurblanda fyrir sauðfé
Hestahafrar
Okkar langa reynsla í blöndun og sölu fóðurbætis tryggir
viðskiptamönnum okkar bezt, að fá jafnan góða og hentuga sam-
setningu á fóðurbæti fyrir allar skepnur.
Komið sem fyrst og leitið upplýsinga um fóðurbætistegundir
okkar, sem eru blandaðar daglega í okkar fullkomnu fóðurblönd-
unarvélum.
Mjélkurfélag Reykjavíkur.
TÍMINN er víðlesnasta anglýsingablaðið!