Tíminn - 11.03.1944, Page 4
108
TÍMIM, laiigardagiim 11. marz 1944
27. blað
ÚR BÆNUM
Framsóknarfélag Reykjavíkur
hélt fund í Kaupþingssalnum s. 1.
þriðjudagskvöld. Fundinn setti Sigur-
vin Einarsson formaður félagsins, en
fundarstjóri var valinn Vigfús Guð-
mundsson og fundarritari Guðjón P.
Teitsson. Hermann Jónasson var frum-
mælandi um atvinumálin í framtíð-
inni. Flutti hann snjalla ræðu um
stefnur þær, sem mest gerðu nú vart
við sig í þessum málum í hinum vest-
rænu löndum og líkurnar fyrir hver
bezt yrðu úrræðin fyrir okkur íslend-
inga í íitvinnumálunam. Auk Her-
manns tóKu til máls: Guölaugur Rós-
enkranz, Eysteinn Jónsson, Gunnar
Bjarnason, Kristján Friðriksson, Stein-
grímur Steinþórsson og Hannes Páls-
son. — Ýmsar athyglisverðar tillögur
komu fram í þessum mestu vandamál-
um, sem nú eru framundan þjóðinni.
— Þrettán menn gengu í félagið. Var
íundurinn fjölmonnur og hinn allra
ánægjulegasti. Fóru mjög fáir af fundi
fyrr en um tólfleytið, að fundinum
var slitið með því að allir fundarmenn
sungu nokkur lög.
Samkoma.
Næsta skemmtun Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík verður n. k. fimmtu-
dagskvöld.
Árásir.
Nokkrir árekstrar hafa orðið nýlega
í sambúðinni við setuliðið. 25 ára göm-
ul stúlka varð fyrir árás tveggja her-
manna á Framnesvegi og meiddist
nokkuð. Lögreglan hafði upp á árás-
armönnunum. Maður nokkur kom nú
í vikunni á lögreglustöðina og tjáði
að her'menn hefðu rænt sig 4—500 kr.
Hefðu þeir fært sig inn í skotbyrgi og
otað að sér hníf. Mál þetta er í rann-
-sókn. — Þú var vélbyssukúlu skotið
inn um glugga á húsi einu við Víði-
mel nýlega. Engan sakaði, samt er það
talið sérstakt lán, þvi fólk sat rétt
við þar sem kúlan kom inn.
Dvalarheimili sjómanna.
Hampiðjan h. f. átti tíu ára afmæli
í gær og í tilefni af því afhenti hún
tíu þúsund króna gjöf til dvalarheim-
ilis sjómanna. í bréfi til fjársöfnunar-
riefndarinar, sem fylgdi gjöfinni, tók
félagið fram að ef einstök herbergi
yrð’.j kölluð sérstökum nöfnum, þá yrði
eitt herbergið kennt við Hampiðjuna
Einnig var tekið fram m. a. í bréfinu,
að gjöf þessi væa-i þakklætisvottur frá
félaginu til fjölmargra sjómanna, sem
það hefði haft mikil kynni af.
300 MYNDIR EFTIR FRÆGUSTU LISTAMENN NOREGS
Eilif Petersen
Gerhard Munthe
Christian Krogh
Erik Werenskiold
HEIMSKRINGLA SNORRA STLRLLSONAR, liið sígilda foruíslcnzka lisíavcrk, er að koma úí. — Skreytt
300 tcikningum cftir 6 frægustu listamenn Noregs. — Myndirnar gcfa verkinu margfalt mcnningarlegt
gildi — ckki sxst fyrir börn og unglinga. —
Allt verkið kcmur xit í 2 bindum, 700—800 síður að stærð, MJÖG VANDAÐ að ö 11 u m frágangi.
Gerist áskrifcndur að IIeimski*inglu.
Útfyllið þennan miða — og skrifið nafn yðar og lieim-
ilisfang greinilega — og merkið Rox 2000, Reykjavík.
Látið ekki þetta einstaka tækifæri renna yður úr
greipum. ' ,
Gerist áskrifendur að Heimskringlu strax í dag.
Verð fer ekki fram lir kr. 140.00.
Má sendast ófrímerkt.
Eg undirrit gerist hér með áskrifandi að Heimskringlu
Box 2000 — Reykjavík.
GJAFAKORT útfyllt ef óskað er, og skal þá sérstaklega tilgreint nafn þess er móttaka skal gjöfina —
einnig þess er greiðir andvirði bókarinnar. — Tilvalin fermingargjöf.
Knattspyrnufélagið Valur
hefir nú ákveðið að koma upp stór-
um malarvelli til _ knattspyrnuiðkana
ú landi sínu við Öskjuhlíð. En þar á
það fimm hektara lands. Márgar aðr-
ar fyrirætlanir hefir félagið í huga,
að framkvæma til þess, að gera á
landi sínu alhliða íþróttasvæði. —
Valur efnir nú til happdrættis um
nýja og vandaða bifreið til stuðnings
við fyrirhugaðar framkvæmdir. —
Æskumenn, sem bindast samtökum til
þess að hrinda umbótum fram með
samtakamætti og frjálsúm framlög-
um frá sjálfum sér, cru góðs stuðn-
ingr, maklegir.
Björgun.
M.b. Ægir frá Gerðum, sem rak upp
í Melasveit í mannskaðaveðrinu um
daginn, hefir nú verið bjargað. Var
það Dráttarbraut Keflavíkur h. f., sem
náði bátnum út.
Lýðveldísstjórnarskrá
(Framh. af 1. siðu)
þannig út, að forseti hafi hér
minna vald en konungur, má þó
segja, að honum hafi verið veitt
meira vald með málskotsheim-
ildinni en konungur hafði með
synjunarákvæðinu, er komið var
úr hefð að nota.
Nokkur deila var um það á
þinginu, hvort lög, sem forseti
synjaði staðfestingar, tækju
gildi fyrr en eftir atkvæða-
greiðsluna, ef hún þá gengi þeim
í vil. Beittist forsætisráðherra
fyrir því, að lögin skyldu ekki
taka gildi fyrr. Meirihluti þing-
manna leit svo á, að rétt væri,
að Alþingi hefði ekki minna
vald en forseti til að gefa út
bráðabirgðalög, ef nauðsyn
krefði, en forseti hefir nú slíkt
vald milli þinga.
Ex*lent yfirlit.
(Framh. af 1. síðu)
sem er þeim líka vafasamur
vegsauki hér eftir, þá hafa þeir
samt véitt Bandamönnum ó-
metanlega hjálp í styrjöldinni.
Þeir hafa lokað fyrir Þjóðverj-
um beztu leiðinni til Austur-
landa. Hefðu þeir gengið í sveit
með Þjóðverjum snemma í
styrjöldinni, myndu möndul-
veldin nú alls ráðandi við Mið-
jarðarhaf.
Ekki er ólíklegt, að Tyrkir hafi
tregðazt til þátttöku í styrjöld-
inni, vegna óttans við Rússa.
Rússar hafa lengi haft augastað
á Bosporus- og Dardanella-
sundunum. Ef Tyrkir hefðu
hlotið verulegt áfall fyrir stríðs-
lokin af völdum Þjóðverja,
mætti vel álykta, að Rússar
hefðu notfært sér það.
Rygging þjóömmja-
og Isókasafnsliúss
(Framh. af 2. síðu)
Fé, sem listamaður vinnur sér
inn fyrir vel leyst verkefni, er
meira virði en beinir styrkir.
Mörgum listamönnum hefir
verið hjálpað til að byggja
vinnustofur. Það var nauðsyn-
legt. En listin verður framandi
og útlæg, nema hægt sé að njóta
hennar í hæfilegu umhverfi.
Það er í því sambandi nærtækt
dæmi, er íbúar höfuðborgar-
innar hafa átt kost á að sann-
prófa nú nýlega. Mesta einka-
safn, sem til er á íslandi,
var nú til sýnís í skála mynd-
listamanna, alls hátt á annað
hundrað listaverk. Markús
ívarsson vélsmiðjueigandi varði
öllu því fé, er hann mátti, til
kaupa á málverkum. Alla sína
starfsömu ævi hafði hann glöggt
auga með því, er gerðist í heimi
listarinnar, heimsótti listamenn,
styrkti þá með ráðum og dáð
— var þeim sem faðir, góður
faðir. Hið mikla safn hans var
dreift víðsvegar, og eigi sá hann
þann draum rætast, að safnið
kæmist undir eitt þak. Þegar
maður nú athugar þann skerf,
er einn maður hefir lagt til list-
arinnar, vaknar sú spurning,
hvort landsmenn allir séu eigi
þess umkomnir að reisa safnhús
og veita sér aðstöðu til þess að
skoða listaverk. Hefir þjóðin at-
hugað, að „vorir ungu lista-
menn“ eru nú milli 30 og 40 ára
gamlir, og gróandi í listinni
meðal æskunnar er sorglega lít-
ill? Við höfum efni á að sýna
æskunni sex kvikmyndir viku-
lega ofe búa til smjörlíki handa
henni í fimm verksmiðjum. En
hvar á æskan að ferðast um
heima listarinnar? í skólum er
kennd teikning, en við eigum
ekkert afsteypusafn. Þó eru
gibsafsteypur af öndvegis mynd-
höggvaraverkum heimsins svo
ódýrar, að erlendis eiga jafnvel
barnaskólar álitleg söfn af þeim.
Enga þjóð veit ég í heimin-
um, sem er jafn annt um mynd-
list og Norðmönnum, enda hafa
þeir átt mikla listamenn. Borg
eins og Stafangur á svo fögur
söfn, að í stórborgum megin-
landsins mættu þau góð þykja.
í smábæjum hinna skandín-
avísku landa eru víða bæði
byggða- og listasöfn. En yngsta
ríkið á ekkert hús fyrir þjóð-
minja- og málverkasafn sitt.
í stuttu máli: Eitt fyrsta verk
hins unga íslenzka lýðveldis
verður að reisa veglega bygg-
ingu yfir þessi söfn og stofna
þar vandað afsteypusafn, til af-
nota við teiknikennslu.
Tónlistarmenn eignazt einnig
sína tónlistarhöll, og þjóðleik-
húsið, — sem telja má fegurstu
byggingu á íslandi — verður
fullgert. Þá mun vel vora.
Pétur Þórðarsou
(Framh. af 3. síðu)
síðustu kosningar hlotið þing-
sætið án mótframbjóðanda eða
það sem kallað er, verið sjálf-
kjörinn.
Pétur er sérlega reiknings-
glöggur maður, og liggur öll
reikningsfærsla mjög opin fyrir
honum, enda mun honum að
jafnaði hafa verið falin endur-
skoðun reikninga í flestum þeim
félagsgreinum, er hann starfaði
við. Var hann og um skeið end-
urskoðandi landsreikninganna,
svo og endurskoðandi Búnaðar-
banka íslands um nokkur ár, og
leysti þau störf af hendi með
mikilli samvizkusemi og ná-
kvæmni sem ánnað, er hann
tók sér fyrir hendur. Enga sér-
staka tilsögn mun hann þó hafa
fengið í þeim fræðum fremur
en öðrum, nema þá, sem lífið
sjálft og starfið veitti honum.
Er hann gott dæmi þess hve
greindum og fróðleiksfúsum al-
þýðumönnum varð ágengt í því
að afla sér almennrar mennt-
unar og margvíslegrar þekking-
ar, á eigin spýtur, með þvi að
nota sér hinar fáu tómstundir
er gáfust á þeim tímum, er allt
árið var óslitin röð langra
vinnudaga.
Af þessu stutta yfirliti er
það ljóst, að Pétri Þórðarsyni
hefir auðnazt að lifa langan og
athafnaríkan ævidag. Hann
hefir mikils trausts notið svéit-
unga sinna og samtíðarmanna,
enda verið mikils trausts verð-
ur. Hann hefir jafnan verið
starfsfús og starfsglaður og æ-
tíð viljað hvers manns vanda
leysa þann er hann mátti. Lang-
samlega mestur hluti hans
mikla starfs hefir því farið til
starfa fyrir aðra, beint og ó-
beint. Er það nú viðurkennt og
þakkað af öllum, sem þar hafa
átt hlut að máli. En æði oft mun
hann hafa goldið góðmennsku
sinnar og hjálpsemi við óverð-
uga, og einnig fúslega lagt á sig
byrðar og óþægindi vegna þeirr-
ar hneigðar sinnar að starfa fyr-
ir aðra. En ætíð hefir hann
tekið öllu sem að höndum hefir
borið með rósömu jafnaðargeði.
Karlmennska hans hefir jafn-
an birzt í rólyndi, þrautseigju,
bjartsýni og glaðværð, sem sigr-
að hefir allar hindranir. Pétur í
Hjörsey hefir alltaf minnt mig
á lognöldu, sem hægt og rólega
þokást að settu marki, en svo
öruggt, að þar gætu engir sveip-
ar neinu um þokað, hvaðan sem
þeir kæmu og hvert sem þeir
færu. En það sem þó mest ber
á í fari hans eru hinir miklu
mannkostir, góðvildin, dreng-
skapurinn og grandvarleiki í
orðum og athöfnum. Pétur hefir
verið gæfumaður í lífinu. Hann
hefir líka átt það skilið.
Bjarni Ásgeirsson.
íslenzk viftliorf
(Framh. af 3. siðu)
Uppeldismálin eru engin hé-
gómamál. Æskan á innan
skamms að taka í sínar hendur
íslenzka arfinn af eldri kynslóð-
inni og ávaxta hann. Það veltur
að miklu leyti á uppeldinu,
hvernig hún verður þeim vanda
vaxin. Framtíð þjóðarinnar er
því háð, hvernig um uppeldið
fer. Heimilin verða ávallt áhrifa-
ríkasti aðilinn um uppeldi barn-
anna. Það nema börn, sem á bæ
er títt. Þrátt fyrir hina mikils-
verðu starfsemi skólanna, mega
heimilin hvergi láta sinn hlut
eftir liggja. Með uppeldinu þarf
að kenna sérhverjum einstakl-
ingi þann sannleika, að
sæla reynast sönn á storð
sú mun ein — að gróa.
Rókabálkur
(Framh. af 2. siðu)
ar með galdramönnum í Zúlú-
landi, þriðjl þreytir úlfaldareið
um Sahara, fjórði gistir stein-
aldarfólk í Austur-Grænlandi,
fimmti leitar uppi eitursnáka í
myrkviðum Brazilíu, sjötti verð-
ur áhorfandi að borgarastyrjöld
í Kína, sjöundi villist inn í
kvennabúr soldánsins í Mar-
okkó, áttundi ríður norður
Sprengisand, og þannig mætti
lengi telja, því að þættirnir eru
þrjátíu að tölu.“
Þýðingu bókarinnar hafa
þeir Jón Eyþórsson veðurfræð-
ingur og Pálmi Hannesson
rektor annazt. Er hún með
ágætum af hendi leyst svo sem
vænta mátti. Ytri frágangur
bókarinnar, sem er prýdd fjöl-
mörgum ágætum myndum, er
og hinn vandaðasti.
•o—o— nýja bíó .
HEFÐARFRÚIN
SVONEFNDA
(„Lady for a Night“).
JOAN BLONDELL.
JOHN WAYNE.
RAY MIDDLETON.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
DRAU G ASKIPIÐ
(„Whispering Ghosts“)
Brenda JoYce. Milton Berle
Aukamynd:
VIÐHORFIÐ Á SPÁNI.
(March of Time).
Sýnd kl. 5 og 7.
Lcikfélag Reykjavíkwi*
„Eg hef komid hér áður“
Sýuing annai) kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 1 dag.
'ISKfcT""'
Byggingarsamvinnufélag Reykjavíkur.
AÐALFfUNDUR
verður í Kaupþingssalnum, mánudaginn 12. marz, kl. 8,30. —
Venjuleg aðalfundarstörf. Rætt um nýbyggingar. Stjórnin.
Jörðín Meyjarland
í Skarðshrepni, Skagaf jarðarsýslu, er til sölii.
Semja ber við hreppsnefndaroddvita Svínavatnshrepps,
Rjörn Pálsson,
Ytri-Löngumýri, A.-Hún.
Géð atTÍnna
Duglcgur maður, vanur injöltuni og sveita-
viitnu, getur fengið ársatvinnu á búi í Reykja-
vík. Árskaup 8—9 þúsund krónur, auk fæðis,
lijónustu og húsmeöis.
tpplýsiiij$ar i afgreiöslu Tínians, síini 2323.
►<>« GAMLA BÍÓ«»<x
ZIEGFIELD
STJÖRNLR
(Ziegfield Girl)
JAMES STEWART,
LANA TURNER,
JUDY GARLAND,
HEDY LAMARR.
Sýnd kl. 6% og 9.
Sléttur æning j ar nir
(Pirates on the Prairie).
TIM HOLT
Sýnd kl. 5.
Börn innan 12 ára fá ekki
aðgang.