Tíminn - 23.03.1944, Page 1
! RITSTJÓRI:
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON.
ÚTGEPANDI:
FR AMSÓKN ARFLOKKURINN.
PRENTSMIÐJAN EDDA h.f.
Símar 3948 og 3720.
RITST JÓRASKRIFSTOFUR:
EDDUHÚSI, Lindargötu 9A.
Símar 2353 og 4372.
AFGREIÐSLA, INNHEIMT,
OG AUGLÝSINGASKF.—CTOFA:
EDDUHUSI, Lindargötu 9A.
Sími 2323.
28. árg.
Reykjavík, flmmtiiilaginii 23. marz 1944
31. blað
Erlent yfirlit:
Hernám Ung-
verjalands
Það þykir nú fullvíst orðið, að
Þjóðverjar hafi hernumið Ung-
verjaland um seinustu helgi.
Hinn áttræði ríkisstjóri, Horthy
flotaforingi, ásamt yfirhers-
höfðingja Ungverja, hafði áður
verið kvaddur til fundar við
Hitler, er fór þess á leit við þá,
að þeir leyfðu Þjóðverjum að
hernema landið, svo að það væri
betur undir það búið að mæta
innrás Rússa. Talið er, að Hort-
hy og yfirhershöfðinginn hafi
einum rómi neitað þessum til-
mælum og Hitler hafi þá látið
kyrsetja þá. Um líkt leyti byrj-
uðu Þjóðverjar að hernema
landið og var þeim hægt um vik,
þar sem þeim hafa verið leyfðir
herflutningar um landið og ung-
verski' herinn mun hafa verið
með öllu óviðbúinn. Hefir Hitler
hér sem oft áður komið fórnar-
dýrum sínum á óvart, en senni-
lega verður það ekki oftar, því
að allar líkur benda til, að Ung-
verjaland verði seinasta landið,
sem hann lætur hernema.
Ekki hefir frétzt um, hvort
Þjóðverjar hafi mætt verulegri
mótspyrnu eða hvernig Ung-
verjar hafa tekið hernáminu.
Er fréttaskoðun mjög ströng í
landinu. En telja má víst, að
Ungverjar, sem eru yfirleitt
mjög miklir þ-jóðernissinnar og
lengstum hafa elt grátt silfur
við Þjóðverja, uni þessu hlut-
skipti illa.
Þótt Ungverjar hafi verið eina
þjóðin, er framundir þetta hef-
ir hagnast á yfirgangi Þjóð-
verja, bentu margar fregnir
þaðan til þess, að þeir hefðu
talsverðan hug á að losa sig úr
sambúðinni við Þjóðverja í tæka
tíð. Forustumenn þeirra hafa
reynt að láta líta þannig út,
að þeir væru alveg óháðir Þjóð-
verjum og færu sínar eigin göt-
ur, þótt þeir létu jafnhliða falla
vinsamleg orð í garð Hitlers. Má
vel vera, að það eigi nokkurn
(Framh. á 4. síðu)
Seinnsfu fréttir
Vesuvíus byrjaði að gjósa fyr-
ir nokkru og er þetta talið mesta
gos hans í 70 ár. Tvö allstór
þorp hafa þegar eyðilagzt í
hraunflóði, sem runnið hefir
niður norðurhlið fjallsins.
Harffir bardagar eru nú háðir
í Bessarabíu og milli fljótanna
Bug og Dnestr. Rússar virðast
alltaf vinna á. Borgirnar Vinn-
itza og Mohilev eru nú alveg á
valdi þeirra.
Á Cassinovigstöðvunum geisa
harðar orustur. Ósýnt er enn,
hvernig orustunni um Cassino
lýkur.
Stórt svæffi meðfram suður-
strönd Englands hafa verið lýst
í umferðarbann. Þykja þetta
merki þess, að innrásin sé
skammt undan.
MERKILEGUR
FÉLAGSSKAPUR
Frá aðalSundi Náttúru-
lækningaf élags Islands
Aðalfundur Náttúrulækninga-
félags íslands var í Tjarnarcafé
sunnudaginn 19. marz s. 1. Var
þar birt ýtarl^g skýrsla um starf
félagsins á liðna árinu.
Fundir hafa verið 8 á árinu,
auk eins útbreiðslufundar og
eins skemmtifundar, til þess að
minnast 5 ára afmælis félags-
ins, sem var í jan. sl.
Síðastliðið sumar var farið í
grasaferð upp undir Skjald-
breið. Yfir 50 manns tóku þátt
í förinni og öfluðu mikilla grasa.
Hagur félagsins stendur með
miklum blóma. Félagatalan hef-
ir meira en þrefaldazt á tæpu
ári, og telur félagið nú um 780
félaga. Á fundinum gengu milli
20 og 30 inn í félagið, og daglega
bætast við nýir félagsmenn.
Félagið hefir gefið út 3 bækur,
sem allar mega heita uppseldar.
Ákveðið hefir verið að gefa þá
síðustu , „Matur og megin“, út
aftur nú þegar.
Á fundinum var samþykkt
skipulagsskrá fyrir Hælissjóð
félagsins. Söfnunarnefnd hefir
verið starfandi fyrir sjóðinn, og
eru komnar í hann tæpar 50
þús. krónur. í stjórn sjóðsins og
til að annast fjársöfnun voru
kosin: Frú Guðrún Þ. Björns-
dóttir, Pétur Jakobsson fast-
eignasali, frú Fanney Ásgeirs-
dóttir og frú Kristjana Carlsson,
en formann skipar stjórn fé-
lagsins.
Félagið mun gangast fyrir því,
að gerð verði efnagreining á
ýmsum' innlendum nytjajurtum,
villtum og ræktuðum, og er lít-
ilsháttar byrjað á því.
Síðastliðið sumar gat stjórn
félagsins útvegað félagsmönn-
um ódýrt grænmeti, og væri
æskilegt að geta haldið því á-
fram.
Ákveðið hefir verið, að mat-
stofa félagsins taki til starfa í
vor.
Stjórn félagsins hefir von um,
að geta útvegað félagsmönnum
íslenzkar, þurrkaðar drykkjurt-
ir næsta sumar eða haust, til
notkunar í staðinn fyrir útlent
te eða kaffi.
Stjórn félagsins skipa nú:
Jónas Kristjánsson, forseti, og
meðstjórnendur Björn L. Jóns-
son, Hjörtur Hansson, Sigurjón
Pétursson, allir endurkosnir, og
Axel Helgason lögregluþjónn,
sem var kosinn í stað frú Rakel-
ar P. Þorleifsson, en hún baðst
undan endurkosningu.
Víðgerð á Laxfossí
kosfar eina mílj. kr.
Nýlega var þeim Ásgeiri Sig-
urðssyni forstjóra Landssmiðj-
unnar og Ólafi T. Sveinssyni
skipaskoðunarstjóra falið að
meta m.s. Laxfoss í því ástandi,
sem skipið nú er og einnig að
gera áætlun um viðgerðarkostn-
ar skipsins.
Þessi verki er nú lokið og er
niðurstaðan þessi: Skipsflakið
er metið 142 þús. kr. virði. Við-
gerðarkostnaður er áætlaður kr.
997.600,00.
Laxfoss var ^átryggður fyrir
240 þús. kr. Niðurstaðan á mati
skipsins og áætlaður kostnaður
við viðgerð þess sýna, að hér er
um fullkomið strand að ræða.
Verður það því vátryggingarfé-
lagið, Trolle & Rothe, sem yfir-
tekur skipið og hefir það þegar
auglýst það til sölu.
Laxfoss kostaði upphaflega
rúmar 300 þús. kr. Nemur við-
gerðarkostnaðurinn þannig
þremur kostnaðarverðum hans
og má á því marka, hve gífur-
lega dýrar skipaviðgerðir eru
hér.
Framhaldsnám íyrír búiræð
ínga getur haíizt hér í haust
Athugun millíþinganefndarmnar í búnaðarmálum
Til þess aff unnt verði að fullnægja fyrirætlunum um stór-
fellda ræktunarstarfsemi og aukna leiffbeiningastarfsemi í þágu
landbúnaffarins, er þörf fleiri sérlærðra manna en nú er kostur.
Hefir þetta mál oft veriff rætt á búnaffaorþingum og víffar, og
þá komið til orffa að stofna framhaldsdeild viff annan hvorn
bændaskólann. Á seinasta búnaffarþingi var milliþinganefndinni
í búnaffarmálum falin athugun þessa máls. Fyrir tilhlutun henn-
ar var þremur mönnum, Steingrími Steinþórssyni, Halldóri Páls-
syni og Pétri Gunnarssyni, faliff að gera tillögur um þessi mál
og hafa þeir skilaff þeim fyrir nokkru.
Þar sem hér er um að ræffa merkilegt mál fyrir landbúnað-
inn, hefir Tíminn fengiff aff sjá álit þeirra þremenninganna og
verffur hér sagt frá nokkrum aðalatriffum þess.
Námsstaffur. Við nánari at- '
hugun kom í ljós, að erfitt er \
að bæta slíkri framhaldsdeild
við ' bændaskólana. Húsakynni
vantar og ýms tæki, sem dýrt
yrði að afla. Kennslukrafta
þyrfti líka að auka til muna.
Niðurstaðan varð því sú, að
framhaldsnám þetta yrði í
Reykjavík og eru taldir mögu-
leikar fyrir hendi að tryggja því
þar húsnæði, sumpart í háskól-
anum og sumpart í Atvinnudeild
háskólans.
Námstími. Æskilegast væri,
að framhaldsnám þetta væri
samfellt þriggja missera nám.
Ýmsir erfiðleikar yrðu þó sam-
fara svo löngum námstíma og
milliþinganefndin mun ætla að
miða tillögur sínar við eitt ár.
Þess vegna varð það niðurstað-
an að miða aðeins við eins árs
nám. Með því má ná sæmilegum
árangri, ef ekki eru teknar of
margar námsgreinar og miðað
er við að útvega menn með
sæmilega menntun til þeirra
starfa, þar semj) vöntunin er
mest. Má þar nefna trúnaðar-
menn Búnaðarfélagsins, sem
taka út jarðabætur samkv.
jarðræktarlögunum og gefa leið-
beiningar á því sviði. Ennfrem-
ur starfsmenn fyrir ýms búfjár-
ræktarfélög. Samkvæmt þessu
er námstími því áætlaður eitt
ár, frá 1. okt. til jafnlengdar,
án sumarleyfis.
Fjöldi nemenda og inntöku-
skilyrffi. Nemendur ættu að vera
um 20, enda leyfir .húsrúm ekki
meira. Inntökuskilyröi sé bund-
ið við það, að nemandi hafi lok-
ið burtfararprófi frá bænda-
skólunum með góðri 1. einkunn.
Auk þess sé krafizt góðrar kunn-
áttu í einhverju Norðurlanda-
máli eða ensku.
Stjórn . og kennslutilhögun.
Framhaldsnámið í búfræði kem-
ur vitanlega því aðeins til
greina, að ríkissjóður kosti
framkvæmdina. Yfirstjórnin
yrði því að sjálfsögðu í höndum
ríkisstjórnarinnar. Eðlilegt virt-
ist að hafa þriggja manna skóla-
ráð, einn frá Búnaðarfélaginu,
annan frá atvinnudeildinni og
formanninn stjórnskipaðan.
Starfsmenn Búnaðarfélagsins og
atvinnudeildarinnar ættu að
geta annazt kennsluna að
mestu. Þó þyrfti að ráða sér-
stakan skólastjóra og þyrfti vel
að vanda val hans.
Kennslan. Bóklegt nám yrði
frá 1. okt. til maíloka, þó með
allmiklum verklegum æfingum,
en verklegt nám frá 1. júní til
septemberloka. Verklega námið
færi fram á hinum heppileg-
ustu stöðum utan Reykjavíkur
og væri bezt að haga því þannig,
að sumir nemendur kynntu sér
vissar hliðar á búnaðarháttum
og aðrir nemendur aftur aðrar
hliðar. Bóklega námið ætti að
fjalla um grasafræði, efnafræði,
eðlisfræði, búfjárfræði, jarð-
ræktarfræði, stærðfræði, land-
mælingar, teikningar, búnaðar-
hagfræði, búreikninga, mjólk-
urfræði og gerlafræð’i. Verklega
námið fjallaði um land- og
hallamælingar, jarðrækt og bú-
fjárrækt og kynningu á bú-
skaparháttum og vinnuaðferð-
um á tilraunastöðvum og ný-
tízku búum.
Árlegur kostnaður ríkisins
við þetta framhaldsnám, er á-
ætlaður 60 þús. kr. Er þar vissu-
lega ekki um stóra fjárhæð að
ræða, en þörf aukinnar sér-
menntunar búfræðinga mjög
brýn. Því meira, sem landbún-
aðurinn byggist á ræktun, véla-
notkun og vísindalegri búfjár-
rækt, þvi meiri verður þörfin
fyrir leiðbeiningastarfsemi sér-
lærðra manna, jafnfi-amt því,
sem slíka menn vantar til að
veita forstöðu meiriháttar bún-
aðarframkvæmdum, t. d. skipu-
legri ræktun í heilum svéitum
og byggðalögum. Það verður því
að teljast sjálfsagt, að þetta
framhaldsnám fyrir búfræðinga
verði hafið hið allra fyrsta.
Virðist ekkert því til fyrirstöðu
að það geti byrjað á komanda
hausti.
Hæstaréttardómur í
lögr egluþ j óna málí nu
Brottvikmngin
var réttmæt
Fyrir allnokkru síðan vék lög-
reglustjórinn í Reykjavík nokkr-
um lögregluþjónum úr starfi og
vakti það mál þá talsverða at-
hygli. Einn lögregluþjónanna,
Páll Guðjónsson, höfðaði skaða-
bótamál í tilefni af brottvikn-
ingunni og vann hann málið
fyrir undirrétti. Mál þetta fór
síðan til hæstaréttar og féll
dómur hans nú í vikunni. Hæsti-
réttur leit svo á, að brottvikn-
ingin hefði verið réttmæt og
sýknaði því bæjarsjóð og ríkis-
sjóð af kröfu Páls.
Segir svo í forsendum hæsta-
réttar:
„Gagnáfrýjandi (þ. e. P. G.)
synjaði þess eitt sinn sumarið
1941 að rækja varðstarf, er yfir-
boðari hans fól honum, og hefir
gagnáfrýjandi ekki réttlætt þá
synjun. Þá verður og að telja,
að gagnáfrýjandi, sem áður var
sæmileg skytta, hafi á þremur
skotæfingum lögreglumanna
sumarið og haustið 1941 haft
undanbrögð í frammi, enda hef
ir hann lýst því, að honum væri
þessar æfingar ógeðfelldar. Svo
hefir hann neitað að undirrita
yfirlýsingu um ábyrgð á áhöld-
um þeim, er honum voru afhent,
og meðferð þeirra. Loks hefir
hann og haft forgöngu um að
semja og koma öðrum lögreglu-
mönnum til að undirrita með
sér yfirlýsingu, sem var að orða-
lagi ekki viðurkvæmileg i garð
lögreglustjóra. Öll þessi atriði
samans þykja bera þess vott, að
gagnáfrýjandi hafi ekki verið
fallinn til lögreglumannsstarfa:
Verða honum því ekki dæmd-
ar bætur vegna vikningar hans
úr starfanum.
Eftir atvikum þylcir máls-
kostnaður fyrir báðum dómum
eiga að íalla niður“.
Hermann Jónasson flutti mál
ið fyrir fyrir aðaláfrýjendur, en
það voru lögreglustjóri, borgar
stjóri og fjármálaráðherra.
Franskir flugfmenn á Korsíku
Franskar liersveitir áttu einna drýgstan þáttinn í því að hrekja Þjóðverja
frá Korsíku. Fjölmennur franskur her er nú kominn til eyjarinnar og fransk-
ir flugmenn halda uppi flugárásum þaðan. Sjást nokkrir þeirra á myndinni.
Fræðímannastyrkj-
um úthlutað
Menntamálaráð hefir nýlega
úthlutað fræðimannastyrk þeim,
sem veittur er samkvæmt 15
grein fjárlaga 1944, alls að upp-
hæð 30 þús. kr.
1800 kr.: Skúli Þórðarson,
mag. art., Steingrímur Þor-
steinsson, mag. art., Þorkell Jó-
hannesson, doktor.
1200 kr.: Árni Pálsson, fyrrv.
prófessor, Guðmundur Finn-
bogason, doktor, Guðni Jónsson,
mag. art., Jóhann Sveinsson,
mag. art., Kristján Albertsson,
rithöf., Sverrir Kristjánsson,
sagnfræðingur,)Þorleifur|Bjarna
son, rithöf., Þorsteinn Þ. Þor-
steinsson, rithöf.
900 kr.: Ásgeir Hjartarson,
sagnfræðingur, Arnór Sigur
jónsson, fyrrv. skólastj., Björn
Guðfinnsson, lektor, Björn Sig-
fússon, mag. art., Björn Þórólfs-
son, doktor, Finnur Sigmunds-
(Framli. á 4. síðu)
Á víðavangi
MIÐFLOKKSAÐSTAÐA
FRAMSÓKNARMANNA.
Blaðið Dagur á Akureyri ræð-
ir nýlega í aðalritstjórnargrein
um afstööu Framsóknarflokks-
ins til annarra flokka. Eftir að
stefna Framsóknarflokksins
hefir verið skýrð og rakin, segir
svo í greininni:
„Þess hefir nokkuð orðið vart,
að ýmsir Framsóknarmenn eru
að velta fyrir sér þeirri spurn-
ingu, hvort Framsóknarflokkur-
inn á Alþingi eigi að leita eftir
samvinnu til „hægri“ eða
„vinstri". Um þetta atriði virð-
ast vera töluvert skiptar skoð-
anir. í raun og veru er spurn-
ingin óþörf, þegar menn hafa
gert sér grein fyrir miðflokks-
aðstöðu Framsóknarflokksins.
Samstarf flokksins við aðra
flokka hlýtur að fara eftir mál-
efnaaðstöðu í það og það skipt-
ið. Við athugun hlýtur mönnum
að verða ljóst, að ekki er hægt
að segja við miöflokk: í fram-
tíðinni skalt þú skilyrðislaust
hafa samstarf til „hægri“, eða
þá öfugt. Slíkt boð eða bann til
handa Framsóknarflokknum
væri sama sem að ætla að svifta
hann miðflokksaðstöðu sinni,
láta hann hætta að vera mið-
flokk, en tjóðra hann í þess
stað við ákveðinn flokk eða
flokka.“
SAMVINNA TIL HÆGRI.
Þá minnist „Dagur“ á sam-
vinnu til hægri. Farast honum
svo orð:
„Það er stundum vitnað til
samstarfs Framsóknarflokksins
við Sjálfstæðismenn nú fyrir
skömmu, þegar þeir bundust
samtökum um að hrinda árás-
um kommúnista á bændur og
samvinnufélögin, og þetta sam-
starf talið vitni þess, að þessir
tveir flokkar eigi að stofna til
frekara samstarfs á nýjan leik.
Hér við er þó að athuga, að það
var ekki Sjálfstæðisfl., sem hér
var að verki, heldur menn úr
Sjálfstæffisflokknum. Þeir unnu
því þetta þarfaverk ekki í nafni
eða umboði flokks síns, enda
talið að sumir þeirra hafi verið
að hugsa um kjörfylgi sitt í
sveitunum. Hér við bætist og að
vitanlegt er, að svörnustu óvin-
ir samvinnustefnunnar (letur-
breyting Dags), eru einmitt í
Sjálfstæðisflokknum og hafa að
þessu ráðið þar mestu. Það væri
því ekki tómt fagnaðarefni fyrir
Framsóknarmenn að ganga til
samstarfs við Sjálfstæðisflokk-
inn, þó að sjálfsagt sé að taka
fegins hendi fáanlegan stuðning
manna úr þeim flokki til að
koma í framkvæmd góðum mál-
um og hindra framgang skað-
legra mála.“ *
SAMVINNA TIL VINSTRI.
Um samvinnu til vinstri far-
ast Degi þannig orð:
„Kommúnistar eru sannarlega
ekki líklegir til happasæls sam-
starfs. Þó er ekki hægt að full-
yrða um það fyrirfram í eitt
skipti fyrir öll, að aldrei sé hægt
að nota þá til neinna góðra
hluta. Formanni Framsóknarfl.
verður varla brugðið um heita
ást á kommúnistum. Þó datt
honum eitt sinn í hug, að ef til
vildi mætti í einstökum tilfell-
um nota þá sem „eiturlyf" og
gerði tilraun í þá átt. Kommún-
istar stóðust að vísu ekki þetta
próf Jónasar Jónssonar, þeir
féllu á því eins og þeir féllu á
hliðstæðu prófi, er allur Fram-
sóknarflokkurinn á þingi lét þá
ganga undir veturinn 1942—’43,
til þess að knýja fram játningu
þeirra um það, hvort þeir væru
umbótaflokkur eða ekki.
En þrátt fyrir þetta allt á ekki
að banna Framsóknarflokknum
að leita samstarfs til „vinstri", ef
svo ber undir, svo fremi sem
hann á að vera miðflokkur
áfram, og það verður hann að
(Framh. á 4. síðu)