Tíminn - 01.04.1944, Page 3
35. blað
TÍMIM, laugarclagiim 1. apríl 1944
143
Dánarmmnmg
Ragfnheíður Jónsdóttir
frá Feigsdal
í fyrradag var til moldar bor-
in í.Reykjavík ein þeirra mörgu
alþýðukvenna, sem eru kjarni
þjóðarinnar, vegna mannkosta
og andlegs og líkamlegs at-
gervis. Það var Ragnheiður ÓI-
afía Jensdóttir frá Feigsdal.
Ragnheiður var fædd að
Tjaldanesi við Arnarfjörð 20.
júlí 1864, en þar áttu þá for-
eldrar hennar heima, Jens Þor-
valdsson og Sigríður Jónasdótt-
ir. Þegar Ragnheiður var 4 ára,
fluttu þau vestur yfir fjörðinn
og reistu bú í Feigsdal (eða
Feitsdal). Bjuggu þau þar síðan
alla ævi og farnaðist vel. Þau
áttu 6 börn, er til aldurs kom-
ust: 1) Ragnheiður var elzt,
2) Þorvaldína, dó ógift á Þing-
eyri 1923, 3) Ragnhildur, kona
Gísla Árnasonar í Austmanns-
dal, (hún er nú ein á lífi þess-
ara systkina og dvelur ekkja hjá
Jónfríði dóttur sinni á Hrafns-
e/ri), 4) Ástríður, fyrri kona
Davíðs Kristjánssonar trésmíða-
meistara r Hafnarfirði, (d. 1925),
og 5) Jón, drukknaði rúmlega
tvítugur í mannskaðaveðrinu
mikla í Arnarfirði haustið 1900.
Það var á orði haft um þær
Feigsdalssystur, að ekki yxu
aðrar konur mannvænlegri upp
en þær þar um slóðir. Fór þar
saman fríðleikur og mannkostir.
Þurftu þær og ekki að sækja
góða eiginleika langt í ættir
fram, þvi að Jens faðir þeirra
var staðfestumaður og svo jnik-
ið valmenni, að til hefir verið
jafnað, og Sigriður móðir þeirra
skörungur og hin gervilegasta
kona.
Ragnheiður giftist haustið
1883, 19 ára gömul, Guðmundi
skipstjóra Jónssyni frá Bakka
í Dýrafirði, Jónssonar. Þau
bjuggu fyrst á Hólum í Dýra-
firði. Jens í Feigsdal andaðist
haustið 1886, og höfðu þau dótt-
ir hans og tengdasonur flutzt
þangað um vorið áður. Bjuggu
þau Guðmundur og Ragnheið-
ur í Feigsdal í nærri tvo ára-
tugi við mikla rausn, svo að orð
fór af. Mjög voru þau samhent
um allan höfðingsskap. Var oft
fjölmennt hjá þeim í heimili og
ákaflega gestkvæmt. Komu
kostir Ragnheiðar þar vel í ljós
á margan hátt. Svo hefir sagt
mér gamall sveitungi minn, er
vinnumaður var um skeið hjá
þeim hjónum, að aldrei hafi
hann átt betri húsmóður en
Ragnheiði.
Nokkuð gengu efni þeirra
hjóna úr sér í Feigsdal, þó að
Guðmundur væri ötull maður og
hinn duglegasti bæði til lands
og sjávar, og Ragnheiður svo
vel verki farin, að til var tekið,
bæði vandvirk og mikilvirk.
1905 fluttust þau frá Feigsdal
og reistu sér nýtt býli í Selárdal
við Arnarfjörð og kölluðu Mel-
stað. Þar bjuggu þau í 10 ár, og
sótti Guðmundur þaðan sjó af
miklu kappi og stundaði jafn-
framt smíðar, því að hann var
hagur maður.
Ekki áttu þau hjón barnaláni
að fagna. Þau eignuðust eina
telpu, en misstu hana á 1. ári.
Tvö fósturbörn ólu þau upp: 1)
Guðmund Jens, nú bónda á
Gerðhömrum í Dýrafirði, son
Benónýs í Hjarðardal í Dýra-
firði, Jónssonar, og 2) Jakobínu,
dóttur Ásgeirs Ásgeirssonar á
Álftamýri, Jónssonar prests á
Hrafnseyri, Ásgeirssonar. Jako-
bína er gift Guðmundi húsa-
smíðameistara í Reykjavík,
Helgasyni bónda á Hofi í Dýra-
firði, Einarssonar. Guðmundur
er systursonur Guðmundar
Jónssonar, manns Ragnheiðar.
Þau Guðmundur og Jakobína
bjuggu fyrst á Söndum í Dýra-
firði, og dvöldu fósturforeldrar
þeirra þar hjá þeim. Þar and-
aðist Guðmundur 3. des. 1924,.
en Ragnheiður fluttist með þeim
suður árið 1930 og dvaldi á
heimili þeirra til dauðadags, 21.
marz 1944.
Ragnheiður var prýðilega
greind kona og skemmtileg í
viðræðum. Var hið mesta yndi
að tala við hana um fyrri tíma
og liðna atburði, því að hún var
bæði fróð og minnug. Þótti
henni og gott um þau efni að
ræða. Hún var ættfróð vel og
fannst það stundum á, að hún
minntist með ánægju sumra for-
feðra sinna, enda mátti hún það
vel, því að það var hvort tveggja,
að þar var mætra manna að
minnast, og eins hitt, að hún
sýndi það með allri framkomu
sinni og hátterni, að henni var
ekki illa í ætt skotið, heldur
mátti hver sem helzt ættar-
meiður vera fullsæmdur af
slíkum kvisti, sem hún var. En
þáð eitt verður hér sagt af ætt
hennar, að faðir Jens, föður
hennar, hét Þorvaldur og bjó á
Tjaldanesi, margfróður maður
og vandaður, Ingimundarson á
Karlsstöðum (d. 1838), Jóns-
sonar. Kona Þorvalds og móðir
Jens hét Ragnheiður (d. 1899),
og var dóttir Jens prests á
Laugabóli (hann dó 1813, 27 ára
gamall, mesti efnismaður),
Jónssonar sýslumanns í Reykj-
arfirði, Arnórssonar. Ragn-
heiður í Feigsdal bar nafn ömmu
sinnar, og svo sagði hún þeim,
er þetta ritar, að það Ragn-
heiðarnafn væri hið sama og
þær báru,móðir og dóttir Brynj-
ólfs biskups Sveinssonar. Mun
þetta rétt vera, því að móðir
Ragnheiðar eldri Jensdóttur
(ömmu Ragnheiðar í Feig^dal)
var Guðrún (d. 1862) Magnús-
dóttir frá Núpi í Dýrafirði, en
Magnús á Núpi var kominn í
beinan karllegg frá Jóni Giss-
urarsyni sagnaritara á Núpi,
hálfbróður Brynjólfs biskups..
Um móðurætt Ragnheiðar í
Feigsdal er minna kunnugt.
Móðir hennár, Sigríður ljósmóð-
ir (d. 1918), var Jónsdóttir
bónda í Skógum í Arnarfirði
(d. 1859), Tómassonar í Botni í
Geirþjófsfirði (d. 1853), Einars-
sonar. Móðir Sigríðar hét Ragn-
hildur Guðmundsdóttir bónda í
Skógum (d. fyrir 1816), Bjarna-
sonar hreppstjóra í Skógum (f.
1726), Einarssonar. Er svo að
sjá af ýmsu, að talsvert hafi
verið' spunnið í þetta Skógafólk,
og allríkir skapsmunir komu
sums staðar fram í því kyni.
Um bæinn Tjaldanes, þar sem
Ragnheiður fæddist, er það sagt
í Landnámu, að þar gangi eigi
sól af um skammdegi, en það
er' fátítt vestur í fjörðum, þar
sem háreistar hyrnur og nær-
stæðir núpar byrgja sól frá
bæjum vikum og . mánuðum
saman. Mér finnst þetta tákn-
rænt fyrir Ragnheiði, því að
alla ævi var sólríkt umhverfis
hana. Ekki ber að skilja það
þannig, að hún hafi ekki hlotið
að reyna harma og örðugleika
líkt og aðrir menn, heldur á
hinn -veginn, að svo var sem
henni fylgdi jafnan birta og yl-
ur sökum ljúfmennsku hennar,
góðvildar og annarra mann-
kosta. Þar gekk eigi sól af um
skammdegi.
Ólafur Þ. Kristjánsson.
GÆFAN
fylgir trúlofunarhringunum
frá
SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4.
Sent mót póstkröfu.
Sendið nákvæmt mál.
VinSr Tímans
Útvegið sem flestir ykkar einn
áskrifanda að Tímanum og lát-
ið afgreiðsluna vita um það sem
fyrst.
Auglýsið í Tímannm!
Knúts saga Rasmussens
FRAMHALD
Svo sögðu þær sögur af því, er menn úr dönsku nýlendunum
komust síðast í kast við þessa heiðingja.
Mennirnir voru frá Úpernivík. Heiðingjarnir ginntu þá upp í
fuglabjarg og tóku svo frá þeim bjargreipin. í fjóra daga sátu
mennirnir grátandi á syllu í fuglabjarginu. Loks veitti örvænt-
ingin þeim kjark til þess að klífa bjargið. Þeir komust allir upp
á brúnina heilu og höldnu, en eftir þetta þorðu þeir aldrei að
leita fanga norður á bóginn.
Þarna norður frá var einnig hérað, þar sem ætíð var myrk-
ur, sögðu gömlu konurnar, en drengurinn lét engan bilbug á
sér finna. Hann ætlaði að aka norður eftir á sleða, þegar hann
hefði aldur og þroska til.
Kerlingarnar hlógu, en Knútur var þannig skapi farinn, að
hann gleymdi aldrei fyrirætlunum sínum. Svo fór hér. Það varð
hann,. sem dreifði myrkri þjóðsögunnar, er hvíldi yfir lífi og
löndum hinna nyrztu ibúa jarðarinnar.
Um þessar mundir gerðist atburður einn í Jakobshöfn, er hafði
mikil áhrif á drenginn og örvaði ímyndunarafl hans. Ókabak og
„Greifinn" komu heim úr furðulegri ævintýraferð til meginlands
Evrópu. »
Ókabak var veiðimaður úr héruðum við Diskóflóa. Hann hafði
verið kjörinn til Evrópuferðar, ásamt „Greifanum". Þeir fóru
fyrst til Hamborgar, þar Hagenbeck, sem frægur er fyrir dýra-
garða sína, kenndi þeim æskilega framkomu, er féll í geð hinum
forvitnu börnum siðmenningarinnar, er fyrst og fremst vildu
skoða þá sem villidýr. Síðan voru þeir fluttir borg úr borg og
sýndir.
. Þýzkalandskeisari ávarpaði þá, og þeir komu á heimssýning-
una í París. Þeir reru húðkeipum, köstuðu harpúnum og skutu
íuglaspjótum upp í loftið, hvar sem þeir komu. Þeir bjuggu í
tjöldum og voru sífellt umkringdir forvitnum áhorfendum. Þeir
voru fyrstir í þeirri löngu lest fólks, er sýndi „villimenn í eðli-
legu umhverfi.“
Þeir komu heim aftur gerspilltir menn, rúnir sál sinni og
þrotnir að líkamsdug. Ókabak var hafður að orðtaki í sinni sveit.
Fjárráð hans stigu honum til höfuðs, en er fyrsti veturinn var
liðinn, var hann orðinn örsnauður. Hann gekk fyrst í stað með
alla vasa fulla fjár og keypti allt, sem hann sá girnilegt í búð-
inni, og leysti gesti sína út með gjöfum. Hann lét tjalda hús
sitt með hvítu lérefti, og hver, sem til hans kom, mátti skera af
því bút í skyrtu handa sér eða hvað annað, sem hann þarfnað-
ist. Á miðju gólfi var kassi, fullur af kaffibaunum, og úr hon-
um gat fólk ausið í vasa sina.
Þegar vetraði, hafði hann ekkert gagn af bátnum, sem hann
hafði haft heim með sér úr utanförinni. Hann hjó hann því
sundur til eldsneytis. Allir horfðu undrandi á aðfarir hans.
Danskur maður seldi honum eitt staup af brennivíni fyrir
byssu. En það þótti samt of langt gengið, því að Dananum var
vikið frá starfi sínu og Ókabak fékk byssuna sína aftur.
„Greifinn“ vakti eigi síður mikla athygli í Jakobshöfn. Hann
hafði ferðazt suður um lönd og séð sama furðuheiminn og Óka-
bak. Um sóun fjármuna var hann tæpast jafnoki félaga síns, en
það var ekki dyggð hans sjálfs að þakka, heldur séra Kristjáni,
föður Knúts, sem jafnan tók í taumana, þegar eyðslusemi hans
gekk mest úr hófi fram. En samt sem áður eyddist fé hans á fá-
um árum, og lifðu „Greifinn" og kona hans lengi í mikilli fátækt.
En hve mjög sem að þeim þrengdi, voru þau óþreytandi að segja
sögur sínar af dásemdum lífsins suður í ævintýralöndunum. Kona
„Greifans“ hafði reykt sígarettur með keisarafrú Þýzkalands.
„Greifinn“ hafði séð morgunsólina skína yfir hin óteljandi húsa-
þök Parísarborgar.
Það var mesta yndi „Greifans“ að segja frá þeim hlutum, er
áheyrendur hans gátu ekki gert sér neina grein fyrir. En Knútur
hlustaði hugfanginn á sögur hans. Hann var draumhneigður
að eðlisfari, og frásögur „Greifans“ féllu í góðan jarðveg í
barnshuga hans. Skáldlegt ímyndunarafl, er blundaði í brjósti
hans, var vakið.
Nokkru síðar gerðist annar stórviðburður, er beindi huga hans
lengra í þessa átt. Málari nokkur, Riis Carstensen, er farið hafði
víða um heim, kom til Grænlands og hafði þar búsetu í eitt ár.
Það var mjög sjaldgæft, að listamenn kæmu þangað, svo að
koma hans vakti allmikla athygli.
Knútur litli varð brátt tíður gestur hjá Carstensen listmálara.
Hann hlustaði eftir hverju orði hans og skoðaði forviða myndir
þær, serp hann hafði komið með sunnan úr hitabeltislöndunum.
Honum fannst hann aldrei hafa staðið augliti til auglitis við
annan eins mann. Eftir þetta beindist hugur hans allur til fjar-
lægra landa. Um sumarið fékk Knútur að fylgja föður sínum á
embættisferð hans um hið 300 mílna langa prestakall. Riis Car-
stensen málari var einnig með í þeirri ferð.
Enn var von á nýju stórmenni í hina afskekktu byggð við
Diskóflóa þetta ár. Friðþjófur Nansen, ungur og lítt kunnur
Norðmaður, hafði ráðizt í það að ganga á skíðum þvert yfir
Grænlandsjökul. Þau tíðindi bárust, að hans væri senn von til
Diskóflóans, ef allt væri með felldu um ferð hans, og sagan
hermdi, að Lappar væru í fylgd með honum. Knútur Rasmussen
og Jörgen Brönlund, æskufélagi hans og síðar förunautur í
leiðangrum yfir Melvilleflóann, biðu óþreyjufullir komu Norð-
mannsins og töluðu.alla daga um Lappana, er með honum voru.
Jörgen Brönlund varð síðar heimsfrægur maður fyrir fylgd sína
við Mylius-Erichsen, er lét lífið í rannsóknarleiðangri í Græn-
landi árið 1907. Tókst Brönlund að bjarga öllum dagbókum, upp-
dráttum og skilríkjum leiðangursins, en varð sjálfur úti.
Riis Carstensen gerði ferð sína til móts við Nansen. Græn-
landsverzlun hafði heitið tuttugu króna verðlaunum þeim manni,
er fyrstur hitti Nansen eftir þessa svaðilför yfir Grænlands-
jökul, og maður nokkur, Olsen að nafni, hafði heitið tvö hundr-
uð krónum, og þótti það gífurleg fjárhæð í þá daga.
Knútur og Jörgen heyrðu mjög um þetta talað. Eitt kvöldið
lögðu þeir sjálfir af stað. Þetta var að sumri til og bjartar næt-
ur. Loks voru þeir komnir svo langt í burtu, að þeir sáu ekki
lengur fjallið ofan við tjaldið, er þeir höfðu laumazt frá. Þá urðu
þeir hræddir. Samt héldu þeir áfram ferðinni, en nú leiddust þeir.
Það jók þeim hugrekki.
Þeir lögðu nú leið sína upp á háan hól, þar sem vel sást yfir
óravíða sléttuna. Þá skildi Knútur, að þeím myndi ekki endast
þrek til þess að ganga alla þessa leið. Þeir voru orðnir dauð-
þreyttir og sársvangir og ljómi verðlaunagullsins var farinn
að fölskvast í vitund þeirra.
Saniband ísl. sainvinnufélaga.
SAMVINNUMENN!
Þegar eldsvoða ber að höndum, brenna ná-
lega í hvert sinn óvátryggðir innanstokks-
munir.
Frestið ekki að vátryggja innbú yðar.
Tilkynning
tíl byggingameistara
Ekki má setja fyllingu innan við Tungu eða neðan Borgar-
túns. Bærinn tekur fyrst um sinn við fyllingu við Rauðarárstíg
austan Gasstöðvar. Maður verður á staðnum að taka á móti.
Þó verður öll fylling, sem óþrif eða ólykt er af, eftir sem
áður að flytjast á öskuhaugana við Grandaveg.
Bæjarverkfræðíngur.
Anglýiing
um hámarksverð
N
Með tilliti til árstíðasveiflna á verði eggja, hefir Viðskipta-
ráðið ákveðið eftirfarandi hámarksverð á eggjum frá og með
1. apríl: 1944:
í heildsölu ..... kr. 13,40
í smásölu ....... — 16,00
Með auglýsingu þessari er úr gildi fallin auglýsing Viðskipta-
ráðsins um hámarksverð á eggjum, dags. 24. sept. 1943.
Reykjavík, 29. marz 1944.
Verðlagsstjóriim.
Þad tilkynníst hérmeð
að leyfilegt er að framleiða til útflutnings 200 smálestir af harð-
fiski, og verða þeir, sem ráðgera að herða fisk til útflutnings, að
sækja um framleiðsluleyfi til nefndarinnar fyrir 4. apríl n. k.
Reykjavík, 30. marz, 1944.
Samninganefnd utanríkisvfðSskfpta.