Tíminn - 25.04.1944, Síða 4
168
TlMINN, þriðjutlagiim 35. aprll 1944
41. blað
Ú R BÆNIIM
Skemmtisamkoma.
Síðasta skemmtisamkoma Framsókn-
arfélaganna í Reykjavík á þessari árs-
tíð verður í Listsýningarskálanum ann-
að kvöld (26. apríl). Hefst hún með
Framsóknarvist kl. 8,30. Að vistinni
lokinni verður verölaununum til sigur-
vegaranna úthlutað. Þar næst flytur
hinn nýi formaður Framsóknarflokks-
ins, Hermann Jónasson, stutta ræðu.
Síðan verður almennur söngur og
dans stiginn fram á nótt undir dynj-
andi hljóðfæraslætti hljómsveitar
Bjarna Böðvarssonar. Framsóknar-
menn! Munið að tryggja ykkur að-
göngumiða sem fyrst á afgr. Tímans
og vera komnir að spilaborðunum kl.
8,30.
Trúlofun.
Nýlega hafa opinberað trúlofun sína
ungfrú Guðrún Stephensen og Páll S.
Pálsson frá Sauðanesi, A-Hún., for-
maður stúdentaráðs háskólans.
Vinnuhælið.
Þessar gjafir hafa m. a. borizt S.Í.B.
S. síðan seinast var getið samskota í
Vinnuhæli berklasjúklinga, hér í blað-
inu: Egill Vilhjálmsson 25 þús. kr.,
Haraldur Böðvarsson 10 þús. kr., ó-
nefnt firma 10 þús. kr., Slippfélagið 5
þús. kr., Daníel Ólafsson 5 þús. kr.,
skipshöfnin á Brúarfossi 2875 kr., skips-
höfnin á Baldri 1225 kr. og skipshöfn-
in á Kára 3000 kr. Peningar eru nú
orðnir í sjóði um 750000 kr. og þar að
auki talsvert af efni. Landsþing S.Í.B.
S. verður háð í byrjun maí og upp úr
því er ráðgert, að framkvæmdir hefjist
að Reykjum. Verið er að gera teikn-
ingarnar og eiga þær að leggjast fyrh’
landsþingið. Þótt margir séu nú þegar
búnir að styðja fjársöfnunina mjög
drengilega, þá mun þó mikil fjárþörf
vera enn til framkvæmda þessarar
góðu hugsjónar.
Sundmót.
Sundmeistaramót íslands hófst í
Sundhöllinni i gærkvöldl og heldur á-
fram annað kvöld. Þátttakendur kváðu
vera um 70 úr sex-félögum: Ármanni,
fC. R., í. R., U. M. F. Afturelding, U. M.
F. Reykdæla og Ægi.
Hætta.
Allmikil brögð hafa verið að því
undanfarið að sprengikúlur og fleiri
skotfæri hafa fundizt á víöavangi.
Stafar fólki, einkum þó börnum og
unglingum, stór hætta af slíku. Ný-
lega sprakk t. d. ein slík sprengikúla
uppi á Sandskeiði, þegar nokkrir ung-
lingar voru að handleika hana og var
alveg sérstakt lán, að ekki skyldi hljót-
ast stórtjón af. Fólk er aðvarað um,
ef það verður vart við skotfæri á víða-
vangi, að gera næstu setuliðsstöð við-
vart um það eða þá lögreglunni.
Flugvél ferst.
S.l. laugardag vildi það slys til ,að
brezk flugvél hrapaði hér í bænum rétt
hjá Nýja Stúdentagarðinum. Kvikn-
aði í henni um leið og hún kom til
jaroar og fórust allir sem í henni voru.
Fermingar.
Fjölda mörg börn hafa veriö fermd
undanfarið af prestunum í Reykjavík.
Við að líta yfir nafnaskrá barnanna
sést m. a. að í vöxt fer, að fólk skíri
börnin fallegum íslenzkum nöfnum. Ó-
nefnum fer auðsjáanlega fækkandi,
enda er nóg til af ágætum, fögrum ís-
lenzkum nöfnum, og eru fornsögurnar
þar lítt numin náma ennþá. — Aftur
á móti mun vera mikil afturför hvað
fermingarveizlurnar áhrærir. Þar er
tildrið og prjálið í hásæti. Ekki mun
óalgengt, að jafnvel fremur fátækt fólk
eyöi fleiri þúsund krónum í lítilsvert
veizlutildur í tilefni af fermingu eins
barns. Og sumt af ríkara fólkinu bók-
staflega eys fjármun'unum í fermingar-
veizluprjálið.
Njáls saga.
Útgáfa sú af Njáls sögu, sem Alþingi
hlutaðist til um að prentuð yrði, er nú
nýkomin fyrir almenningssjónir. Út-
gáfan er prýdd mörgum myndum og
uppdrætti, og til hennar vandað á
margan hátt.
Mikið lesin bók.
Alþýðublaðið segir frá því, að Menn-
ingar- og fræðslusamband alþýðu sé
að láta prenta síðara bindið af hinni
eftirsóttu bók „Úr álögum" eftir Jan
Valtin. Muni hún koma út í vor. Var
þetta mest selda bókin í Bandaríkjun-
um og Englandi á sínum tíma, og fyrra
bindi hennar vakti sérstaklega mikla
athygli hér á íslandi, þegar M. F. A.
gaf hana út. Kommúnistum og Naz-
istum' hefir verið sérstaklega illa við
þessa bók Valtins, enda segir hann
rækilega og skemmtilega frá starfsað-
ferðum þeirra, sem hann virðist kunn-
ugur af eigin reynslu. Því verður ekki
neitað, að bækur Valtins eru „spenn-
andi“ aflestrar, en um sannsögulegt
gildi þeirra skal ekkert dæmt hér.
Stýrimannafélagið.
Stýrimannafélag íslands hélt aðal-
fund sinn nýlega. í félaginu eru þeir
stýrimenn, sem hafa réttindi til þess
að vera stýrimenn á verzlunarskipum,
sem eru yfir 300 smálestir. Stjórn var
kosin fyrir félagið: Pétur Sigurðsson,
formaður, Grímur Þorkelsson, Jón Sig-
urðsson, Kristján Aðalsteinsson og
Haraldur Ólafsson.
Leiðréttingf
í grein G. G. um Zöllner og
kaupfélögin 18. þ. m., þar sem
talin eru félög þau er skiptu
við Zöllner, hefir fallið niður í
prentun Kaupfélag Árnesinga
hið eldra, en það var stofnað
fyrir 1890 og starfaði í uppsveit-
um Árnessýslu aðallega.
Stúdentsherbergi.
Gjöf til Stúdentagarðsins var frá
Vestur-Barðastr.sýslu en ekki Barða-
strandasýslu allri eins og fyrr var getið
hér í blaðinu. En sýslunefnd V. Baröa-
strandasýslu hefir samt sem áður á-
kveðið, að stúdentar úr báðum Barða-
strandasýslum hafi jafnan rétt til hús-
næðisins.
Barnaspítali.
Margar fjársafnanir fara nú fram
til almenningsþarfa og ganga flestar
vel. Ein þessara safnana er, sem Kven-
félagið Hringurinn gengst fyrir til þess
að koma upp barnaspítala. Er þetta
gott málefni og samboðið konunum að
hrinda því í framkvæmd. Söfnunin
kvað nú orðið nema um 200 þús. kr.
Nauðganir.
Tvær tilraunir til nauðgana voru
gerðar s. 1. sunnudag. Um kl. 5 að
morgni vaknaði stúlka hér í bænum
í rúmi sínu við það að barið var á dyr
herbergis hennar. Opnaöi hún og inn
ruddist karlmaður og tókust fangbrögð
með þeim, en jafnframt hljóðaði stúlk-
an, svo að fólk heyröi og kom aö og
lagði þá árásarmaðurinn á flótta. —
Hin tilraunin var gerð af útlendingi
um kl. 11 að kvöldi. Ung stúlka var
að fara eftir Háteigsvegi fram hjá
Vatnsgeyminum, heim til sín. Veit hún
þá ekki fyrr til en ráðist er aftan að
henni og tekið tveim höndum fram
fyrir háls henni og henni skellt niður
á veginn. Tók hún á móti og ultu þau
út á vegbrúnina og hann út í forar-
skurð við veginn. Ætlaði hún nú að
sleppa í burtu, en þá náði hann í ann-
an fót hennar, en varð eitthvað þungt
um að losna úr skurðinum, svo að
stúlkunni tókst að slíta sig lausa og
flýja burtu.
,,IIagalagðui*“.
Jón Pálmason hafði borið á
mig óþróður. Ég krafðist þar á
móti, að hann færði þó ekki
nema örlitlar líkur fyrir því að
hann segði satt. Á meðan þær
kæmu ekki, lægi hann undir því
ámæli að vera vísvitandi opin-
ber ósannindamaður og sá versti
slefberi, sem nokkurntíma hefði
alið aldur sinn í Húnaþingi.
Nú verkjar hrossaræktar-
ráðunautinn undan þessu á-
mæli, sem Jón sjálfur hefir
skapað sér. Og G. B. færir ofan
greind ummæli mín sem dæmi
um lélega flokksblaðamennsku!
í tilefni þessa vildi ég mega
spyrja ráðunautinn: Hvaða
nafn verðskulda þeir annað en
ósannindamenn og slefberar,
sem gerast leiguþjónar til þess
að bera óhróður á aðra menn?
Og um leið væri gaman að
heyra hvað greiðasalasonurinn
frá Húsavík telur bezta nafnið
á þá, sem bregðast samherjum
sínum og flokksbræðrum og
ganga í lið með verstu andstæð-
ingunum. Er hann nokkuð
óánægður með það nafn, sem
Norðmenn gefa slíjtum n;önn-
um? V. G.
h
Ei rúða brotnar
hjá yður, þurfið þér aðeins að
hringja í síma 4160.
Höfum rúðugler af öllum gerð
um og menn til að annast
ísetningu.
VERZL. BRYNJA
Sími 4160.
GÆFAN
fylgir trúlofunarhringunum
frá
SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4.
Sent mót póstkröfu.
Sendið nákvæmt mál
Tvölaldar kápur
á fullorðna
og unglinga.
H. Toft
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Ályktanír írá flokksþínginu
(Framli. af 3. síöu)
Páll Hallgrímsson, sýslumaður, Selfossi.
Sigurður Eyvindssón, bóndi, Austurhlíð.
Sigurgrímur Jónsson, bóndi, Holti.
Stefán Halldórsson, vkm., Króki.
Stefán Jasonarson, bóndi, Vorsabæ.
Þórarinn Stefánsson, kennari, Laugarvatni.
Þorlákur Sveinsson, bóndi, Sandhól.
Þorsteinn Sigurðsson, bóndi, Vatnsleysu.
Gesftir á iiokksþinginu
Andrés Magnússon, bifreiðastjóri, Ásgarði, Dalasýslu.
Albert Guðmundsson, bóndi, Heggstöðum, Hnappadalss.
Baldur Guðmundsson, útgerðarmaður, Paterksfirði.
Birgir Einarsson, Breiödalsvík, S.-Múlasýslu.
Bjarni Gunnlaugsson, Hvoli, Aðaldal, Suður-Þingeyjars.
Björn Sveinbjörnsson, stud. jur., Þingnesi, Borgarfjarðars.
Edilon Guðmundsson, Innri-Langadal, Skógarströnd.
Eyjólfur Kolbeins, Bygggarði, Seltjarnarnesi.
Finnbogi Júlíusson, vkm., Bessastöðum, Álftanesi.
Grímur Thorarensen, fulltrúi, Sigtúnum, Árnessýslu.
Guðrún Sæmundsdóttir, frú, Króki, Árnessýslu.
Gunnar Þorsteinsson, bóndi, Hofi, Öræfum.
Gunnlaugur Sigurbjörnsson, Gilsárteigi, Suður-Múlas.
Gunnlaugur Þorsteinsson, Gíslastöðum, Árnessýslu.
Guttormur Óskarsson, Kjartansstaðakoti, Skagafjarðars.
Hallgrímur Guðmundsson, Siglufirði.
Helgi J. Halldórsson, stud. mag., Kjalvararstöðum, Borg.fj.s.
Helgi Jóhannsson, bóndi, Núpum, Árnessýslu.
Helgi Jónsson, Geitabergi, Borgarfirði.
Hermann Pálsson, stud. mag., Sauðanesi, A-Húnavatnss.
Hjörleifur Sturlaugsson, bóndi, Kimbastöðum, Skagafj.s.
Hinrik Sigfússon, Vogum, Mývatnssveit.
Jóhann Finnsson, stud. med., Hvilft, Önundarf., V.-ísafj.s.
Jón Eiríksson, Vorsabæ, Skeiðum, Árnesssýslu.
Jón Guðmundsson, vkm., Vífilsstöðum.
Jón Gauti Pétursson'bóndi, Gautlöndum, Suöur-Þing.s.
Jón Pétursson, Hofi, Skagafjarðarsýslu.
Jónas Þjóðbjörnsson, Hagaseli, Staðarsveit, Snæfellss.
Kjartan Bjarnason, Ásgaröi, Dalasýslu.
Kristinn Guðlaugsson, bóndi, Núpi, Dýrafirði.
Kristinn Hóseasson, stud. theol., Höskuldsstaðaseli, S-Múl.
Lárus Daníelsson, bóndi, Akureyjum, Dalasýslu.
Leifur Ásgeirsson, skólastjóri, Laugum, Suður-Þingeyjars.
Magnús Stefánsson, deildarstjóri, Hafnarfirði.
Nanna Sigurðardóttir, ungfrú, Stafafelli, A-Skaftafellss.
Ólafur Jönsson, Kaðalstöðum, Mýrasýslu.
Ólafur Ketilsson, bifreiðastjóri, Laugarvatni, Árnessýslu.
Ólafur Ömundsson, bóndi, Hjálmholti, Árnessýslu.
Óskar Jónsson, kennari, Laugarvatni, Árnessýslu.
Óttar Þorgilsson, stud. .mag., Reykholti.
Páll Diðriksson, bóndi, Búrfelli, Árnessýslu.
. Páll S. Pálsson, stud. jur., form. stúdentaráðs, frá Sauða-
nesi, A.-Húnavatnssýslu.
Ragnar Davíðsson, bóndi, Grund, Eyjafirði.
Runólfur Sveinsson, skólastjóri, Hvanneyri, Borgarfirði.
Sigurður Ólafsson, bóndi, Kárastöðum, Skagafjarðarsýslu.
Sigurgeir Jónatansson, bóndi, Skeggjast. Miöfirði, V.-Hún.
Skúli Þorleifsson, ráðsmaður, Þorlákshöfn.
Stefán Friðbjarnarson, deildarstjóri, Sandgerði, Gullbr.s.
Stefán Jónsson, bóndi, Eyvindarstöðum, Álftanesi.
Sveinn Finnsson, stud. polyt., Hvilft, Önundarfirði, V.-ís.
Sæmundur Friðriksson, framkvæmdastj., Efri-Hólum, *N-Þ.
Sæmundur Hermannsson, Yzta-Mói, Skagafjarðarsýslu.
Unnsteinn Ólafsson, skólastjóri, Reykjum, Árnessýslu.
Vernharður Jónsson, kaupm., Hveragerði, Árnessýslu.
Vigfús Þorsteinsson, bóndi, Húsatóftum.
Þórður Halldórsson, bóndi, Dagverðará, Snæfellssýslu.
Þorsteinn Brynjólfsson, bóndi, Miðjanesi, Barðastrandas.
Auk þessara gesta sat flokksþingið allmargt manna úr Reykja-1
vík, en þótt salarkynni væru rúmgóð, var eigi unnt að veita
nærri öllum, er þess óskuðu, gestaréttindi.
Fulltrúar voru alls 294.
Allir þingfundir fóru fram að Hótel Borg, og fór þar hið bezta
um menn, þótt þéttskipað væri stundum. Flytur Timinn hús-
ráðanda og starfsfólki í Hótel Borg beztu þakkir þessa fjöl-
mennasta flokksþings, sem háð hefir verið á íslandi.
Landsspítalann
vantar nokkrar starfsstúlknr 1. eða 14. maí.
Upplýsin^ar hjjá forstöðukonuimi.
Tímann vantar
unglinga
til að bera blaðið til fastra kaupenda. — Þeir sem vildu sinna
þessu, tali hið fyrsta við afgreiðsluna Lindargötu 9A. Sími 2323.
Kanpnm tuskur
allar ftegnndir, hæsfta verdi.
Húsgagnavínnustoiaii Baldursg. 30
Sími 2292.
t ÚTBREIÐIÐ TIMANN 4
• GAMLA BÍÓ.
„Billy the Kíd“
Sýnd kl. 7 og 9.
ROBERT TAYLOR.
BRIAN DONLEVY.
Börn innan 14 ára fá ekki
aðgang.
Fálklnn
og óþekkti morðinginn
(The Falcon Strikes Back)
TOM CONWAY.
Sýnd kl. 3 og 5.
Börn innan 12 ára fá
ekki aðgang.
► NÝJA EÍÓ.
...
Skæruhermenn
(Chetniks, The Fighting
Guerrillas).
Kvikmynd um hetjudáðir
júgóslavnesku hetjunnar
DARJA MIHAILOVITCH.
Aðalhlutverk:
ANNA STEN og
PHILIP DORN.
Bönnuð börnum yngri en
14 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Tónlistartélafíið Qfi LeiUfélafi Retitejjavíteur
„Pétnr Crantnr^
Sýaiiig annað kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 i dag.
Ég undirrituð hefi opnað
Snyrtístofuna Perlu
sem áður var á Bergstaðastræti 1, á Vífilsgötu 1.
Sími 4146.
Ðára Elíasdóttir.
Hafnarfjördur
Orðsending
frá lýðveMiskosningancfndmni
I Ilafnarfirði.
Nefndin opnar, næstkomandi þriðjudag, kosningaskrif-
stofu í Gunnarssundi 5 (gengið inn frá Austurgötu).
Sísni skrifstofunnai* er 9106.
Skrifstofan veitir allar upplýsingar varðandi kosning-
arnar og einnig liggur þar kjörskrá frammi.^
Kosning fyrir kjördag fer fram hjá bæjarfógeta.
Kosninganefndin beinir þeirri eindregnu áskorun til
allra, er fara úr bænum og verða ekki heima á kjördegi,
að kjósa áður en þeir fara.
Sömuleiðis er skorað á alla utanbæjarmenn, er dvelja
i bænum, að kjósa sem allra fyrst.
Fiýðveldiskosning'anefndin í Ifafnarfirði.
Amerískir kjólar
teknir upp í dag.
Lífsftykkjabúðíii h.L
Mafnarstræti 11. Sími 4473.
Skólaskyld börn, sem eiga heima í umdæmi Laugarnesskóla,
en hafa ekki stundað nám í skólanum í vetur, eða öðrum barna-
skólum með prófréttindum, komi til viðtals í skólann föstudaginn
28. apríl sem hér segir:
Kl. 10 f. h. börn fædd 1930, 1931, 1932 og 1933.
Kl. 2 e. h. komi börn fædd 1934, 1935 og 1936. —
.. V
Öll börn í umdæmi skólans, sem eru fædd 1937, komi til innrit-
unar í skólann þriðjudaginn 2. maí kl. 2—4 e. h.
Sérstök athygli skal vakin á því, að öll börn, sem fædd eru á
árunum 1934, 1935, 1936 og 1937, eru skyldug að stunda nám í
vorskólanum til 14. júní n. k.
Vorskólinn hefst föstudaginn 5. maí kl. 9 f. h.
Skólastjóriiin.
Sveitavinna
Stúlka og karlmaður óskast að Kollafirði á Kjalarnesi.
Semja ber við Kolbein Kolbeinsson, Kollafirði (sími um
Brúarland), eða Guðm. Tryggvason, Meðalholti 15 (heimasími
5564, skrifstofusími 2353).