Tíminn - 06.05.1944, Blaðsíða 4
184
TÍMIM, langardagiim G. maí 1944
47. blað
tin BÆIVUM
Minningarsjóður Aðalsteins
Sigmundssonar kennara.
Þessar gjafir hafa borizt sjóðnum
síðustu mánuðina: Björgvin Kristó-
fersson, Reykjavík, kr. 50. Helgi Krist-
ófersson, Reykjavík, kr. 50,00, Krist-
inn A. Sæmundsson, Rvík, kr. 50,00,
Pétur frá Grafarholti kr. 50,00, Ung-
mennasamband Skagafjarðar, kr. 200,00
og frá þessum Ungmennafélögum:
Drengur í Kjós, kr.' 400,00 Einingin,
Báröardal, kr. 50,00, Geisli, Aðaldal,
kr. 200,00, Hrunamanna, Hrunamanna-
hreppi, kr. 355,00, Huginn, Fellum, N,-
Múl.. kr. 100,00, Hvöt, Grímsnesi, kr.
300,00, Ingólfur, Holtum, kr. 90,00, Isa-
fold, Snæfjallaströnd, kr. 155,00, Kjart-
an Ólafsson, Mýrdal, kr. 200,00, Morg-
unn, Arnarfirði, kr. 100,00, Reynir, Ár-
skógsströnd, kr. 100,00, Reynir, Mýrdal,
kr. 80,00, Trausti, Breiðuvík, kr. 100,00,
Tjörnesinga, Tjörnesi, kr. 70,00, Von,
Klofningshreppi, kr. 90,00, Von, Rauða-
sandshreppi, kr. 60,00, Vestri, Kollsvik,
Rauöasandshreppi, kr. 160,00, Þorsteinn
Svörfuður, Svarfaðardal, kr. 100,00.
Stjórn Ungmennafélags íslands og af-
greiðsla Tímans í Reykjavík taka fram-
vegis á móti gjöfum í minningarsjóð-
inn.
t
Hljómleikar.
„Hljómsveit félags ísl. hljóðfæraleik-
ara“ efnir til hljómleika í Tjarnarbíó
n. k. sunnudag kl. 1,15 e. h. Er þetta
nýstofnað félag meðal hljóðfæraleik-
ara, er efnir til þessara hljómleika.
Formaður þess er hinn góðkunni hlóm-
listarmaður, Hallgrímur Helgason, en
meðstjórnendur Eiríkur Magnússon,
Fritz Weisshappel, Viggó Jónsson og
Þórir Jónsson. Hljóðfæraleikararnir eru
þrjátíu og sex og þar á mðal ýmsir
þekktustu hljómlistarmenn landsins.
Rauði krossinn.
Aðalfundur Rauða kross íslands var
haldinn um s. 1. helgi. Þar var lögð
fram skýrsla yfir störf síðasta 'árs, er
vitnaði um ýmis kbnar starfsemi fél-
agsins. Félagið hafði átt mikinn þátt
í sumardvöl fjölda Reykjavíkurbarna
i sveitum, starfrækt sjúkraskýli í Sand-
gerði yfir vetrarvertíðina, annast
sjúkraflutninga í stórum stíl, komið á
þrfcm námsskeiðum i „Hjálp í viðlög-
um“ o. s. frv. Úr stjórn áttu að ganga
Guðmundur Karl Pétursson, Gunn-
laugur Classen, Hallgrímur Benedikts-
son og Sigurður Thorlacius. En þeir
voru allir endurkosnir.
Ölvun.
,Talsvert mikil ölvun mun hafa verið
í bænum 1. maí í tilefni af hátíðahöld-
unum þann dag. Segir „Þjóðviljinn"
frá að m. a. hafi hestur verið teymdur
upp tvo stiga í húsi einu við Laugaveg-
inn af ölvuðum manni, sem hafi ætlað
að „kynna hestinum kristilegt mann-
líf!“ í gamla daga var mesti ölvunar-
dagur ársins 11. maí, lokadagurinn.
Þá var nú ekki óalgengt, að „menn
kæmu heim frá kirkju sinni með blátt
auga og brotið nef.“
Árni frá Múla.
Árni frá Múla hefir nú sagt sig úr
bæjarstjórn Reykjavíkur. Var hann
kosinn í bæjarstjórnina af Sjálfstæðis-
mönnum, en varð svo óánægður með
framferði þeirra, að hann sagði sig úr
flokk þeirra og nú alveg úr bæjar-
stjórninni.
Þjóðleikhúsið.
Vinna er nú hafin við Þjóðleikhúsið
og mun í ráði að ljúka við það. Er
ráðgert, að við það vinni um 20 menn
og stjórnar Kornelíus Sigmundsson
verkinu. Talsvert er húsið skemmt eftir
notkun þess í þágu hersins, en þó ekki
meira en búist var við.
Skíðaferðir.
Tíminn átti örstutt viðtal við Krist-
ján Skagfjörð nú í vikunni. Kvað hann
þá vera hið allra bezta skíðafæri uppi
á Hellisheiði, einkum í Innsta,-Dal,
Hengli og Bláf jöllum. Væri snjór mjúk-
ur og góður og rynnu skíðin sérstak-
lega vel í honum. Fáir hefðu þó verið
á skíðum um s. 1. helgi. En Kristján
kvað skíðaferðir ráðgerðar um næstu
helgi og bjóst þá við meiri þátttöku
því að sjaldan væri eins skemmtilegt
á skíðum eins og á vorin, þegar færi
væri gott.
Flokkaglíma.
Flokkaglíma Ármanns s. 1. sunnudag
lauk svo, að Guðm. Ágústsson (Á) varð
hlutskarpastur í 1. fl„ Guðm. Guð-
mundsson (Trausta) í 2. fl„ en Sig-
urður Hallbjörnsson (Á) í 3. fl. Að
glímunni var gerður góður rómur.
Viðskiptaskráin.
Viðskiptaskrá íslands 1944 er ný-
komin út. Er hún þykk og mikil bók
að þessu sinni, eða nær 1000 blaðsiður
að stærð.
Engínn hörgull . . .
(Framh. aj 1. síöu)
því, að bæði fánar og fána-
stengur komi hingað innan
skamms og munu Samband
íslenzkra samvinnufélaga, Har-
aldur Árnason og veiðarfæra-
verzlanirnar hafa fánana til
sölu, Flosi Sigurðsson fána-
stengurnar.
Ilafvciía Austurlancls
/
(Framh. af 1. síðu)
Reiknað með núverandi verðlagi
kostar árskílówattið 458 krón-
ur, en kílówattstundin 9.2—11.5
aura. Sé reiknað meö helmingi
lægra efniskostnaði en einum
fjórða minni vinnukostnaði, er
áætlað að árskílówattið muni
kosta 280 krónur, en kílówatt-
stundin 5.5—7 aura. Háspennu-
línan liggur frá virkjuninni við
Egilsstaði út Fljótsdal yfir Lag-
arfljót (Jökulsá) á móts við
Skriðuklaustur, út með Legin-
um austanverðum út undir
Mjóanes. Þar greinist línan.
Önnur greinin liggur suður
Skriðdal, Þórudal og Þórdals-
heiði til Reyðarfjarðar, grein-
ist hún þar í suöurálmu, sem
liggur um Stuðlaheiði til Búða í
Fáskrúðsfirði, en norðurálman
liggur út með Reyðarfirði norð-
anverðum fyrir Eskifjarðarbotn
til Eskifjarðar og þaðan um
Oddsskarð til Neskaupstaðar í
Norðfiröi. Frá Búðum í Fá-
skrúðsfirði liggur línan út með
Fáskrúðsfirði að sunnan, um
Hafnarnes til Stöðvarfjarðar.
Frá Stöðvarfirði meðfram
ströndinni til Breiðdalsvíkur.
Þaðan út með Breiðdalsvík að
sunnánverðu, inn með Berufirði
að norðan, yfir Berufjörö í sæ-
streng(neðan við Fagrahvamm)
að Teigatanga og loftlína þaðan
til Djúpavogs. Frá Mjóanesi
liggur önnur aðalgreinin norður
með Lagarfljóti að Egilsstöðum
á Völlum. Þaðan liggur álma
yfir Fjarðarheiði til Seyðisfjarð-
ar, en önnur lína liggur frá Eg-
ilsstöðum beina leið út að Eið-
um. Frá Eiðum liggur lína út að
Hreinsstöðum. Hliðarlína þaðan
um Sandadal og Sandaskarð til
Borgarfjarðar og Bakkagerðis.
Frá Hreinsstöðum liggur lína út
að Lagarfljóti, þvert yfir Hró-
arstungu, yfir Jökulsá innan við
Sleðbrjót út Jökulsárhlíð, yfir
Hellisheiði, vestur með Vopna-
firði a.ð sunnan til Vopnafjarð-
arkauptúns. Frá Vopnafirði
liggur línan um Sandvíkurheiði
til Bakkafjarðar. Þaðan innan
við botna Miðfjarðar og Finna-
fjarðar um Brekknaheiði til
Þórshafnar.
Það skal tekið fram, að hér
er aðeins um lauslega ágizkun
að ræða hvað snertir kostnað-
inn við sjálfa virkjunina (Gils-
árvötn) og virkjunin sjálf að-
eins verið lauslega athuguð, þótt
margt bendi til, að þarna sé um
mjög hagstæða virkjun að ræða.
Ef virkja þarf Lagarfoss, verður
raforka frá þeirri virkjun all-
miklu dýrari. Sama er að segja
um Fjarðará í Seyðisfirði og þar
er auk þess takmarkað afl. Sé
miðað við stærstu virkjun, sem
að framan getur (12400 hestöfl),
er áætlað að árskílówattið kosti,
ef virkjað er í Lagarfljóti, mið-
að við núverandi verðlag 559
krónur, en kílówattstundin 11.2
—14 aura, en sé reiknað meö
lægra stofnkostnaðinum, verður
árskílówattið 339 krónur, en
kílówattstundin með sömu not-
kun á ári, 6.8—8.5 aurar. Árleg-
ur reksturskostnaður er reikn-
aður 9% þar sem um er að ræða
1000 wött á mann, en 9(4% ef
um 500 wött á mann er að ræða.
I álögum.
(Framh. af 2. síðu)
Sveinsdóttir leikur. Leysa þau
hvort í sínu lagi hlutverkin vel
af hendi, en samleikur þeirra er
afburðagóður, og munu eigi
önnur einstök atriði leiksins
betur af hendi leyst, þótt oft
sé prýðilega á haldið. Var það
ósvikin ánægja að horfa á sam-
leik þeirra, og munu leikhús-
gestir lengi minnast hans.
Loks má geta lítils hlutverks
kaupmanns í álfahöllinni, er
Klemens Jónsson fer með og
léysir prýðisvel af hendi.
Hljómsveitar- ogvsöngstjóri er
dr. Victor Urbantschitsch, sem
lengi hefir verið hinn mikils-
verðásti maður í íslenzku hljóm-
listarlífi.
Leiktjöld málaði Lárus Ing-
óifsson, en ljósameistari er
Hallgrímur Bachmann, er sem
svo oft áður á skilið hrós fyrir
sitt starf.
Heill sé svo þeim, er sýndu
fyrstu íslenzku óperettuna, settu
hana á svið og leika, og veiti
hún byggingarsjóði Tónlistar-
hallarinnar'sem drýgstar tekjur.
Smá*„laiíður“.
Hrossaræktarráðunauturinn er
öðru hvoru að senda mér smá-
„lagða“, kalla mig trénaðan
njóla, flokksofstækismann, líkja
mér við J. Pá. (og sé ég þó að
mun lakari) og ýmislegt svona
smágaman. Síðast telur hann
upp nokkra mæta menn og býr
til að ég kalli þá landráðamenn.
Tilefni þess síðasta er líklega, að
ég veik spurningu til G. B,, sem
hann hefir víst'tekið sem sneið
til sín. Og eins og aðrir „Birn-
ir“ hleypur hann strax að baki
sér meiri mönunm.
Væri óskandi að þessi ungi
maður vendi sig á minni rang-
færslur og reyndi að segja satt.
Nenni ég svo ekki að vera að
eyða rúmi Tímans til að fást við
þennan hestskónagla meira.
Bezt að hann blundi með ,sam-
herja“ sínum J. Pá., sem hann
auðsjáanlega langar til að
hjálpa. — Hvíl í friði!
V. G.
Erlent yfirlit.
(Framh. af 1. síðu)
að hinum unga saksóknara yrði
veitt athygli, enda kom svo að
lokum, að hann varð brátt einn
allra þekktasti maður Banda-
ríkjanna.
Þegar til þess kom, að repu-
blikarnir veldu sér frambjóð-
anda í ríkisstjórakosningunum
í New York ríki 1938 beittust
margir fyrir því, að hann yrði
valinn. En þá kom í ljós, að
starfsemi hans hafði ekki ein-
göngu unnið honum vinsældir,
heldur aflað honum andúðar
ýmsra áhrifamikilla iðjuhölda og
fjármálamanna, sem ekki var of
vel við lögirx Þeir felldu hann
frá kjöri og sama sagan gerðist
aftur 1940, þegar hann var tal-
inn vinsælasta forsetaefni repu-
blikana, en Willkie, sem var al-
veg óreyndur stjórnmálamaður,
var valinn í hans stað. En 1942
tókst ekki að stöðva hann leng-
ur. Hann var þá valinn fram-
bjóðandi republikana i ríkis-
stjóra kosningunum í New York
ríki og vann glæsilegan sigur,
þótt New York ríki hefði verið
talið hið sterka vígi Roosevelts
forseta. Síðan hefir sú hreyfing
vaxið jafnt og þétt, að hann yrði
forsetaefni republikana í kosn-
ingum í haust og er nú talið svo
komið, að hann muni viss um
þá útnefningu á kjörþingi re-
publikana, sem haldið verður í
júní, þar sem Willkie hefir nú
dregið sig til baka vegna þess,
hve lítið fylgi hann hefir meðal
kjörþingmanna republikana.
Thomas E. Dewey, en hann er
maður sá, sem hér hefir verið
sagt frá, er fullkomin andstæða
Willkies keppinauts síns í fram-
göngu. Willkie er fjörugur, al-
þýðlegur og opinskár. Dewey er
kaldur og kurteis og heldur sér
jafnan innan ramma ströngustu
umgengisvenja. Þaö er eins og
hver hreifing hans og hvert orð
hans sé vandlega hugsað fyrir-
fram. Hann talar ekki af sér og
tranar sér ekki fram. Hann hef-
ir enn ekki sagt neitt um það,
hvort hann gæfi kost á sér sem
forsetaefni. Hann talar gætilega
um stefnumál. Hann hefir þó
nýlega lýst sig fylgjandi náinni
samvinnu Breta og Bandaríkja-
manna og sagt að sér fyndist
stefna Cordell Hull í utanríkis-
málum vera rétt. í innanlands-
málum þykir hann íhaldssamur.
Margt manna trúir því, að
Dewey sé hinn rétti maður
í forsetasæti Bandaríkjanna.
Hann muni „hreinsa til“, því að
margt hafi miður farið í 12 ára
stjórnartíð Roosevelts, þótt
margt hafi hann vel gert. í
Bandaríkjunum og Bretlandi
er sterk tilfinning fyrir því, að
gott sé að skipta um stjórnir með
hæfilegu millibili vegna þess að
slík „hreinsun“ sé nauðsynleg.
Ýmsir telja þó, að Dewey
muni eigi reynast Roosevelt eins
hættulegur í kosningunum og
Willkie, þótt hann hafi meira
fylgi meðal flokksbundinna re-
publikana, þar sem Willkie hefði
unnið fyigi ýmsra frjálslyndra
manna, sem Dewey fær ekki.
Þótt söngnámið yki ekki frama
Deweys, telur hann það hafa
orðið sér heillaríkt. Þar kynnt-
ist hann konu sinni, er vann um
skeið sem söngkona. Hjónaband
þeirra hefir verið gott. Þau eiga
tvo syni.
\
—»—TJARNARBÍÓ o.
Vér munum
koma aitur
(We will come back)
Rússnesk mynd
úr ófriðnum.
Aðalhlutverk:
MARINA LADYNINA.
I. VANIN.
Bönnuð fyrir börn innan
16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
-GAMLA BÍÓ«
ÆSiiitýri
í herskóla
(The Major and the Minor)
Amerísk gamanmynd.
GINGER ROGERS,
RAY MILLAND.
Sýnd kl. 7 og 9.
TVÆR VIKUR ÓLIFAÐAR
(Two Weeks To Live)
LUM og ABNER.
Sýnd kl. 5.
► nýja r:ó.
Arabískar næfur
(Arabian Nights)
JÓN HALL
MARIA MONTES
LEIF ERIKSON
SABU.
Sýnd kl. 5, 7 og 9,
Bönnuð börnum yngri en
12 ára.
Barnasýning kl. 3:
KÁTÍR VORU KARLAR
með BUD ABBOTT
og LOU COSTELLO.
„Staldrið við44
(Framh. af 2. síðu)
haustiö 1941, þegar auðvelt hefð;
verið að koma festingunni á.
Það er kunnugt hvernig gerðar-
dómsmálinu lyktaði. En víst er
það, að hver hugsandi maður
harmar það nú og mun þó eiga
eftir að harma það enn meira,
að festingarstefna Framsóknar-
manna skyldi ekki sigra í tæka
um þessa stefnu, hvar sem þið
Enn berst Framsóknarflokk-
urinn fyrir ákveðinni, hageýnni
og réttlátri stefnu í þessum
málum. Flokksþingið mótaði
hana ákveðið og samhljóða. Það
er hófleg niðurfærsla verðlags
og kaupgjalds og hliðstæður
skattur á eignaauka stórgróða-
manna á stríðsárunum, svo að
niðurfærslan geri ekki þá ríku
ríkari á kostnað bænda og
verkafólks. Þetta er sú eina
stefna, sem er réttlát og vitur-
leg og líkleg til að ná settu
marki: Bjarga atvinnuvegunum
og tryggja notkun stríðsgróðans
tll endurnýjunar og aukning-
ar atvinnutækjunum.
Við alla þá, sem vilja viðreisn
en ekki hrun í þessum efnum, er
nú fyllsta ástæða til að segja:
Staldrið við! Látið ekki æsinga-
skvaldur kommúnista eða al-
vörulaust dýrtíðarhjal hinna úr-
ræðalausu forkólfa Sjálfstæðis-
flokksins villa ykkur sýn! Hugs-
ið málin! Kynnið ykkur við-
reisnarstefnu Framsóknar-
flokksins í dýrtíðar- og atvinnu-
málum, eins og flokksþingið
gekk frá henni! Takið höndum
saman við Framsóknarflokkinn
um þessa stefnu, hvar sem þið
hafið verið áður í flokki eða
standið í stétt, og hjálpið til að
láta hana sigra. Þá mun dýr-
tíðarélið líða hjá og heiðríkir
tímar velmegunar og framfara
hefjast á íslandi. Þ. Þ.
z
3
„S Ú Ð I N“
Tekið á móti flutningi til
Sands, Ólafsvíkur og Flateyjar,
árdegis á mánudag.
Pantaðir farseðlar óskast
sóttir fyrir hádegi á mánudag.
„Æ G I R“
fer til ísafjarðar kl. 8 í fyrra-
málið (sunnudag).
Vegna þrengsla á „Súðinni“
er ætlazt til, að fólk, sem pant-
að hefir far með henni og
„Esju“, noti nefnda ferð „Ægis“
og tilkynni skrifstofu vorri það
fyrir kl. 3 í dag.
Skipið kemur við á Þingeyri á
suðurleið.
Mikíl eitírspum eftir
ríkisskuldabréium
Tilbúinft áburður
Mestur hluti áburðarins er kominn til landsins og er verð
á honum ákveðið þannig:
Breimist.súrÉ Ammoníak ÍOO lbs. (tt) kr. 32,00
Ammophos 16:20..... ÍOO — — — 37,00
Ammophos 11:48 .... 112 — 52,00
Tröllamjöl......... 112 - - - 40,00
Verð þetta er miðað við áburðinn kominn á hafnir kringum
land, þar sem skip Eimskipafélags íslands og Skipaútgerðar rík-
isins hafa viðkomu.
Uppskipun og vörugjald í Reykjavík er kr. 1,50 fyrir 100 Ibs.
Kalí hefir reynzt ófáanlegt til notkunar í vor.
Aðflutningur á Brennisteinssúru Ammoniaki er takmarkað-
ur, og verða þuí allar pantanir á því afgreiddar með nærri 30%
frádrætti, hins vegar mun pöntunum á Ammophos og Trölla-
mjöli, sem komið hafa fyrir ákveðinn tíma, verða fullnægt.
Áburðarsala
ríkisins
Góð.jörð til sölu
Vel hýst jörð nálægt Reykjavík (1 klst. akstur frá Reykjavík)
er til sölu, ásamt öllum búpeningi og nýtízku landbúnaðarvélum.
Jörðinni fylgja mikil véltæk slægjulönd og laxveiði.
Skifti á húseign í Hafnarfirði eða Reykjavík geta komið til
greina.
VAGA E. JÓNSSOIV, HDL.
Símar: 4400 og 5147.
Hism mar« eftirspuröi
Blómaáburður
llyponex, komiiin afíur.
Blómabúdín Gardur
GarðastræÉi 2. — Sími 1809.
Aðalfundur
Sölusamband ísleu/.kra fiskframleiðeiula
Ríkissjóði bauðst sjö sinnum verður lialdinii í Reykjavík föstiidaginu 19.
meira fé að lána við áskriftir •'jj___
fyrir ríkisskuldabréfalánum, en m. Dag’skrá samkvæillt félagslögum.
beðið hafði verið um.
Landsbankinn auglýsti útboð-
ið fyrir ríkissjóð og tók hann og
Búnaðarbankinn og Útvegs-
bankinn við áskriftum í þrjá
daga. Lánið er að upphæð fjórar
milljónir króna — tekið til sjö
ára — en menn skrifuðu sig fyr-
ir alls tæplega 28 millj. króna.
Vegna þess hve mikið fé
bauðst, verður áskriftarupphæð
hvers áskrifanda lækkuð hiður
í einn sjöunda. Þeir, sem hafa
Sölusamband íslenzkra iískframleíðenda
NtAGDítiS SIGUttÐSSON,
formaður.
ekki boðið fram svo mikið fé,
að sjöundi hlutinn nái einu þús-
undi, koma ekki til greina við
skiptingu lánsins.
Afhending skuldabréfa
fram næstu daga.
fer