Tíminn - 09.05.1944, Blaðsíða 4
188
TÓIEVIV, þriðjudaginn 9. maí 1944
48. blað
DHO er síðasti sOludaaur (3. flokki. - H H P P D R fE T TID.
trR BÆNUM
Kennaraskólinn.
Sú breyting verður á Kennaraskól-
anum, að hann verður hér eftlr fjög-
urra vetra skóli. Sá „árgangur", sem
tók próf nú er sá síðasti, sem aðeins
er þrjá vetur f skólanum. Útskrifast
því engir kennarar næsta ár. — 27
manns lauk kennaraprófi i vor, þar af
einn stúdent. Voru það 12 stúlkur og
15 piltar. Hæsta einkunn (8,53) fékk
Sigrún Aðalbjarnardóttir úr Hafnar-
firði, en næst hæsta (8,50) Óskar Hall-
dórsson frá Kóreksstöðum og 3. hæsti
(8,41) varð Magnús Árnason frá Svína-
felli, N.-Múl. — Umsóknir eru margar
komnar fyrir næsta vetur. S. 1. vetur
var skólinn ekki fullskipaður, en víða
vantar kennara með kennaraprófi.
Hafa ýmsir kennarar sótt til annarrar
atvinnu, sem betur hefir verið launuð
heldur en kennslan.
Iðnskólinn.
Iðnskólanum er nýlega lokið þetta
skólaárið. Luku þar námi í þetta sinn
104 nemendur í ýmsum iðngreinum.
En 553 nemendur stunduðu þar nám
s. 1. vetur.
Á förum héðan.
Vestur-íslendingurinn Hjörvarður
Árnason, sonur Sveinbjarnar Árnason-
ar frá Oddsstöðum í Lundarreykjadal,
er á förum af landi burt. Héldu lista-
menn honum kveðjusamsæti í fyrra-
dag. — Hefir Hjörvarður getið sér hinn
bezta hróður hér á landi, bæði með
góðri viðkynningu og með listfræðslu
þeirri, sem hann hefir veitt íslending-
um meðan hann dvaldi hér.
Hjónabönd.
Nýlega hafa verið gefin saman i
hjónaband þau ungfrú Sigríður Sveins-
dóttir frá Fossi í Mýrdal og Guðmundur
Hjaltason (skipstjóra Jónssonar). —
Einnig ungfrú Anna Jónsdóttir (prests
Guðnasonar) og Sveinbjörn Markússon
kennari.
Trúlofanir.
Nýlega hafa opinberað trúloíun sína
ungfrú Guðrún Björnsdóttir kennari
frá Sveinatungu og Magnús Guð-
mundsson kennari. — Einnig ungfrú
Unnur Jóhannesdóttir, Iðu og Þor-
steinn Þórðarson, Reykjum á Skeiðum.
JVý vinnubrögð.
Sagt er frá því í einu bæjarblaðinu,
að ráðgert sé að Almenna bygginga-
félagið h.f. taki að sér að gera eina
vissa götu í bænum og malbika hana.
Eru hér ný vinnubrögð á ferðinni, sem
ekki er ósennilegt að eigi framtíð, þ.
e. að bæjarfélög, ríkið og aðrir borgi
fyrir unnin verk. Svo eru verktakar
sjálfráðir hvenær þeir láta vinna þau
og hvernig, aðeins séu þau leyst af
hendi eins og tilskihð er. Verktakar
ráða því hvort þeir vinna á miðviku-
dögum eða laugardögum, að morgni
eða um miðjan dag, eða hvenær sem
þeim sýnist.
Útsvör.
Niðurjöfnun útsvara í Reykjavík
hvað nú vera um það bil lokið og sé
von á útsvarsskránni þegar líður á
mánuðinn. Er almannarómur um að
útsvörin hækki stórkostlega. En þó er
verst, að bæjarfélagið safnar víst stór-
skuldum.nú á þessum veltiárum, sem
erfitt getur orðið að borga þegar versn-
ar í ári. Það getur orðið hættulegt
fyrir einstaklinga og aðra að hleypa
sér í skuldir nú á þessum tímum, sem
borgast eiga seinna. Nokkuð annað
mál er þó að varið sé peningum, sem
til eru, í einhverjar framkvæmdir.
Misprentun.
í afmælisgrein um Guðmund i
Núpstúni, sem birtist hér í blaðinu
fyrir nokkru, átti nafn á hesti Guð-
mundar að vera Skotti, en ekki Skolli
eins og misprentast hafði.
Happdrættið.
Dregið verður í 3. flokki á morgun.
Athygli skal vakin á því, að engir mið-
ar verða afgreiddir á morgun, og eru
því síðustu forvöð í dag að endurnýja
og kaupa miða.
Sextugur.
Sextugsafmæli átti s. 1. sunnudag
Sigurjón Sigurðsson, sem lengi hefir
unnið í Búnaðarbankanum og er mörg-
um að góðu kunnur.
Stúlkur
vantar
i eldhús Landsspítalans.
Húsnæði getur fylgt.
Upplýsingar hjá matráðs-
konunni.
Á víðavangi.
(Framh. u/ 1. síðu)
hefir verið stigið til að skapa
„allsherjar samtök" um þessi
mál.
Hvað er það líka í' stefnu
Framsóknarflokksins, sem Jón
Kjartansson kallar „hefndárpól-
itík"? Er það niðurfærsla kaup-
gjalds og verðlags? Er það til-
svarandi eignaaukaskattur á
stríðsgróðann, er Sjálfstæðis-
flokkurinn hefir lýst sig með-
mæltan undir slíkum kringum-
stæðum? Er það efling atvinnu-
veganna og að öllum sé tryggð
atvinna? Þessu er Jón Kjartans-
son beðinn að svara.
VALTÝR OG EINMENNINGS-
KJÖRDÆMIN.
Það er ekki Jón Kjartansson
einn, sem reynir að heimska
menn í sunnudagsbl. Mbl. Valtýr
kemur einnig fram á sjónarsvið-
ið. Hann þarf að heimska les-
endur sína viðkomandi ein-
menningskjördæmunum. Þau
hafa sýnt sig sterkasta form
lýðræðisins. Helztu forvígis-
menn lýðræðisins í heiminum
hafa lýst fylgi sínu við þau.
Reynslan hefir jafnframt sýnt,
að hlutf'allskosningarnar hafa
eigi náð tilætluðu marki, að
tryggja jafnrétti flokka og
kjósenda, eins og skipun bæjar-
stjórnarinnar í Reykjavík er
gleggst merki um. Allt þetta var
rakið greinilega í Tímanum fyr-
ir skemmstu. Valtýr þarf. að
svara þessu. Það er ekki hægt
með rökum. Þá er að reyna að
heimska lesendurna með upþ-
hrópunum, fullyrðingum og
sleggjudómum. Til að sýna
þessa baráttutegund „málgagns
heimskunnar", þykir rétt að
birta þetta svar Valtýs til Tím-
ans í heilu lagi:
„Ritstjóri Tímans, Þórarinn Þórar-
insson, eyðir allmiklu rúmi í blaði sínu
í langhund um það, að lýðræði sé bezt
borgið með því, að afnema hlutfalls-
kosningar. Það hlýtur að vera ákaflega
þreytandi fyrir hugsandi menn í
Pramsóknarflokknum, að horfa upp a
slíkan málflutning. Og mikil óvirðing
er flokksmönnum gerð, með því að
ritstjórí blaðs þeirra skuli með þessu
sýna, hve lítils hann metur dómgreind
flokksmanna sinna.
Síðan hlutfallskosningar voru teknar
upp, og á það bent, í eitt skipti fyrir
öll, að með því móti væri bezta trygg-
ingin fengin fyrir rétti kjósenda til
þátttöku í félags- og stjórnmálum,
hefir þetta kosningafyrirkomulag feng-
íð sífellt meiri og almennari viður-
kenningu. En afturhald ýmsra landa
hefir staðið gegn þessu, eins og við er
að búast.
Ef það er eindreginn vilji útgefenda
Tímahs, að merkja flokk sinn sem ein-
dreginn málsvara afturhald», þá. er
eðlilegt að ritstjórinn haldi áfram að
skrifa greinar um skaðsemi hlutfalls-
kosninganna. Hann má það fyrir mér.
En ekki verður hjá því komizt að
benda á það brennimark, sem hann
óður og uppvægur vill láta skarta á
flokki sínum."
Hér hafa menn öll rök Valtýs
gegn einmenningskjördæmun-
um og um ágæti hlutfallskosn-
inga. Hugsandi mönnum munu
finnast þau hlægileg. En Valtýr
veit hvað hann syngur. Meðal
stórborgarlýðs, sem er hættur
að nenna að hugsa, gagnar ein-
mitt slíkur málflutningur einna
bezt. Þar er fólgin lausn þess
leyndardórrís, að blaðið, sem gáf-
aðir íhaldsmenn kalla „málgagn
heimskunnar", er áhrifamesta
blað höfuðstaðarins.
Lýðræðinu og andlegu lífi
þjóðarinnar stafar hætta úr
ýmsum áttum. Sá háskinn er
ekki minnstur, sem stafar af
óvandaðri og heimskandi blaða-
mennsku, eins og þeirri, sem
Mbl. rekur. Blöðin geta unnið
stórvirki, ef þau vinna að upp-
fræðslu fólksins, rökræða málin
og hjálpa mönnum til að hugsa.
En þau geta líka gert hundruð
og þúsundir manna heimskari,
þegar þau vinna markvisst að
því að blekkja þá og villa þeim
sýn um staðreyndir. Það er því
meira en umhugsunarverð stað-
reynd, að greindir flokksbræð-
ur fjöllesnasta blaðs landsins
skuli nefna það „málgagn
heimskunnar".
GÆFAN
fylgir trúlofunarhringunum
frá
SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4.
Sent mót póstkröfu.
Sendið nákvæmt mál.
Miuai'ð
. að greiða atkvæði nógu
snemma við lýðveldiskosning-
arnar, svo að atkvæðin komist
á ákvörðunarstað í tæka tíð!
Vlnnið ötullega fyrir
Tímann.
TJARNARBÍÓ
A fætur
(Reveille Woth Beverly)
Bráðskemmtileg amerísk
músikmynd
ANN MILLER.
Hljómsveitir Bob Crosbys.
Freddie Stacks, Duke EU-
ingtons og Count Basies.
FRANK SINATRA,
MILLS BRÆDUR.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
-GAMLA BÍÓ.
K
ína
(CHINA)
ALAN LADD,
LORETTA YOUNG,
WILLIAM BENDIX.
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Börn innan 16 ára fá ekki
aðgang.
?nýja ríói
Hefndin
bíðiir böðulsins
(„Hangmen also Die")
Aðalhlutverk:
BRIAN DONLEVY,
ANNA LEE.
Sýnd kl. 6,30 og 9.
Bönnuð yngri en 16 ára.
Sýning kl. 5:
Apamaðurinn
(„Dr. Renaults Secret")
JOHN SHEPPERD,
LYNNE ROBERTS.
Bönnu, yngri en 16 ára.
Eldfast gler
Skálar og fíciri
EMELERAÐAR VÖRLR
Kaffikönnur og fleira nýkomið.
K. Eínarsson & Björnsson
Tíl húseígenda
Samkvæmt ákvæðum Heilbrigðissamþykktar
Reykjavíkur, skal hverju húsi fylgja nægjanlega
mörg sorpílát úr járni með loki.
Sömuleiðis er skylt að hreinsa af húslóðunum
allt það, sem valdið getur óheilnæmi, óþrif naði eða
óprýði.
Ber húseigendum þegar í stað að bæta úr því,
sem ábótavant kann að vera um þetta.
Reykjavík, 6. maí 1944.
•7?3i=
Lögreglustjórinn í ReyUjjavíU.
Tilkynning
SSS -..,.'¦ ;
Það tilkynnist hérmeð að þann 13. þ. m. munu ný hámarks-
ákvæði fyrir fisk ganga í gildi I Bretlandi og lækkar hámarks-
verð á fiski frá íslandi frá og með þeim degi niður 1 það verð,
sem gilti síðastliðið sumar.
Reykjavík, 8. maí 1944.
Samninganefnd utanríkisviðskipta.
Jörd til *<i>lii
Jörðin Vatnagarður í Landmannahreppi er til
sölu nú þegar.
Leiga getur komið til greina. — Ágætis skilyrðí til raflýsingar.
Nokkur bústofn getur fylgt.
Semja ber við JÓN ÓFEIGSSON, VatnagarW eða
ÓSKAR JÓNSSON, LaugarváW.
Hugleíðíngai-
(Framh. af 3. síðu)
leidd hefir verið, og þótt sveita-
fólkið hafi sýnt undra úthald og
þrautseigju til þessa, þá er nú
svo hart gengið að mörgum,
bæði körlum og konum, að
heilsan er í veði, ef ekkert lag-
ast með vinnuafl eða bætt skil-
yrði til heimilisverka, svo sem
með rafvirkjun og vélanotkun-
inni í því sambandi.
Það ætti að vera mál mál-
anna hjá öllum ráðandi mönn-
um, sem sveitunum unna, að
bæta úr þessu, því að þótt iðn-
aður og sjávarútvegur séu nyt-
samir, þá verður þó ræktun
jarðarinnar og landbúnaðurinn
alltaf traustasti hornsteinn
þjóðfélagsins, þegar að kreppir.
tJtbreiðið Tímann!
6. apríl 1944.
G. Á.
Aðalfundur S. I. B. S.
(Framh. af 1. slðu)
mánuði. í Vinnuhælissjóðinn
eru nú komhar um 800 þús. kr.
I peningurn. og talsvert af efnis-
loforðum, svo að eign sjóðsins
er farin ;aö nálgast miljón kr.
Nyjustu gjafir til S. í. B. S.
eru frá J'óhanni Jósefssyni alþm.
og konu. hans, 10 þús. kr., Brynju
h. f., sfím Jóhann er meðeigandi
að, eirmig 10 þús. kr., frá Raf-
tækjarerksm. Hafnarfjarðar 8
þús. kr., skipverjum á b.v.
Snorra goða kr. 2350,00, b. v.
Geir kr. 1210,00 og skipverjum
á v. s. Óðni kr. 850,00, starfs-
mrjnnum Nýju blikksmiðjunnar
kr. 850,00 o. s. frv.
Stjórn S. í. B. S. var öll end-
urkosin. Þingið samþykkti ein-
róma þakklæti til Alþingis fyrir
drengilegan stuðning við mál-
efni S. í. B, S., þegar það ákvað
að gjafir til þess skyldu vera
skattfrjá'lsar.
Tónlistarfélagi& og Leikfélag Regkjavíkur
„Péíiir ^aHtiir"
Leikstjóri: frú GERD GRIEG.
Sýning annað kvi>ld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 1 dag.
Alúðarþakkir til allra þeirra, sem auðsýndu samúð andlát og jarðarför Elínar Magnúsdóttur frá Baugsstöðum. Vandamenn. við
Dvol
Pyrsta hefti „Dvalar" 1944 er komið út. í því birtist m. a.
fyrsti kaflinn úr Ármanni á Alþingi — tímariti Baldvins Einars-
sonar —, og fyrsti hluti sögunnar Litli Rauður, eftir John Stein-
beck. Verður hún framhaldssaga I þessum árgangi.
Auk þessa er í heftinu margs konar efni, ljóð, sögur og greinar,
og margt mynda.
Þessi árgangur Dvalar kemur I fjórum heftum og verður a.
m. k. 300 lesmálssíður.
Nýir áskrifendur, sem senda andvirði þessa árgangs — tutt-
ugu krónur — í póstávísun með pöntun, fá síðasta árgang —
tíu arka bók — í kaupbæti meðan upplag endist.
Eignizt „Dvöl".
Aritun: líVÖL, pósthólf 1044,
Reykjavík.
Kosningaskrifstofa
lýðveldiskosninganna
Hótel Heklu er opin frá kl. 9-22 daglega.
Sími 1521.
Lagiæríngar skemmda á
lóðum vegna hítaveitulagna
Að gefnu tilefni skal tekið fram, að
fcærinn er byrjaður að lagfæra
skemmdir, sem orsakast hafa á lóðum,
vegna hítaveitulagna.
Hlutaðeigendur eru góðfúslega beðnir,
að senda bréflegar tilkynningar til
skemmdir, sem orsakazt hafa á lóðum,
þær lóðaskemmdir, sem ekki hafa ver-
ið lagfærðar.
Reykjavík, 6. maí 1944.
BÆJARVERKFRÆÐINGUR.