Tíminn - 16.05.1944, Blaðsíða 4

Tíminn - 16.05.1944, Blaðsíða 4
204 TÍMIM, þriðjudagiim 16. maf 1944 51. blað ÚR BÆIVUM Fimmtugur. Ásgeir Ásgeirsson, alþingismður átti fimmtugsafmæli s. 1, laugardag. Fjöldi vina hans og samherja hylltu hann og sýndu honum margs konar vináttu- merki í tilefni af afmælinu. Ásgeir er fyrir löngu síðan þjóðkunnur maður og hefir gegnt fjölda trúnaðarstarfa i þágu þjóðarinnar, og þar á meðal ýmsum mestu og virðulegustu trúnað- arstöðum, sem þjóðfélagið ræður yfir. Ásgeir er vinmargur og þótt fimmtugs- afmælið sé liðið hjá, munu þeir vera margir, sem senda honum vinarkveðju í tilefnl af þessum tímamótum í lífi hans. Æskulýffsfundur. Ýms æskulýðsfélög héldu sameigin- legan útifund um lýðveldismálið á Austurvelli s. 1. sunnudag. Töluðu þar 11 ungir menn af svölum Alþingis- hússins, en Lúðrasveitin Svanur lék öðru hvoru. Ræðumenn voru: Kristín Jónsdóttir, Helgi Sæmundsson, Magnús Jónsson, Gunnar Vagnsson, Rannveig ' Kristjánsdóttir, Guðmundur Vigfússon, Ágúst H. Pétursson, Friðfinnur Ólafs- son, Friðgeir Sveinsson, Jóhann Haf- steln og Lúðvík Hjálmtýsson. Hinir ungu menn komu myndarlega fram og hvöttu allir mjög til þátttöku í lýðveldiskosningunum. Fundurinn var f jölsóttur og klöppuðu fundarmenn ræðumönnum óspart lof í lófa. Skíffafréttir. S. 1. sunnudag fór fram brunkeppni við Skálafell og varð Georg Lúðvíksson úr K. R. hlutskarpastur. Skíðafæri var ágætt og kvað vera nógur snjór enn- þá uppi í fjöllunum, og var margt fól’k á skíðum á sunnudaginn. En það slys vildi til, að einn skíðamanna, ’Leifur Kaldal, datt á skíðunum og fótbrotnaði. Blaðafulltrúi. Ráðinn hefir verið blaðafulltrúi við utanríkisráðuneytlð. Fyrir valinu varð Bjarni Guðmundsson, blaðamaður. Útburffur. Ýmislegt kemur fyrir í bænum dag- lega, sem veldur miklu umtali og er fært út á ýmsa vegu. Eitt af því er, að s. 1. sunnudag fannst alveg nýtt konu- fóstur vestur'við Selsvör. Telur bæjar- læknirinn, éftir rannsókn, að það hafi verið orðið 4—5 mánaða gamalt i móð- urlííi. Lýffveldiskosningarnar. Landsnefnd og Reykjavíkurnefnd lýðveldiskosninganna auglýsa eftir láni á bifreiðum við kosningarnar, hér é öðrum stað í blaðinu. Er búist við, að margir bifreiðaelgendur sýni drengskap sinn og áhuga í málinu með láni bif- relða sinna. Þjónaður. Jónas fré Grjótheimi býr á Frakka- stig 13. Frá honum hefir verið smá- stolið öllu úr anddyrinu undanfarið, sem hægt hefir verið að stela, svo sem: Penlngabuddu með peningum í, skinn- húfu, kvenhatti, þvottabala, trefli, vandaðri kvenkápu, hitamælí, karl- mannsskinnjakka o. fl. Ekki heflr enn- þá heyrst, að Jónas hafi kveðið grlp- lna úr höndum þjófsins. Hvernig rækir Yiðskiptaráðið störf sín? (Framh. af 1. síSu) sklpafélaglnu hallann, ef ein- hver var, af dýrtíðarfé ríkis- sjóðs. í þess’stað virðast farm- gjöldin hafa verið ákveðin allt of há, ofan á þau hafa síðan bætzt hlutfallslega hærri toll- ar og meiri álagning og þetta hefir samanlagt vafa- laust stutt að því að hækka dýr- tíðina miklu meira en hún hefir verið lækkuð með íramlögum úr r-íkissjóðl. Það mun sjást á sínum tíma, hversu stórfelldur gróði Eim- skipafélagsins er. Enginn harm- ar það, þótt Eimskipafélagið hagnist sæmilega, ef það fé er síðan notað í samráði við ríkis- valdið til að efla nauðsynlegan skipakost félagsins, en ekki til að byggja skemmtiferðaskip til Danmerkur siglinga í stað Ame- ríkuskips, eins og félagsstjórnin lét sig dreyma um fyrir stríð. Reynist þessi gróði hins vegar úr hófi fram og sýnt er að dýr- tíðin hefir verið aukin mjög gíf- urlega með þessum móti, þá virðist sjálfsagt, að Eimskipa- félagið skili ríkinu aftur nokkr- um hluta gróðans, þar sem hann er líka fenginn af leiguskipum, sem ríkið hefir útvegað og skipaútgerð þess hefði eins vel getað rekið. 2094 hafa greitt atkvæffi um sam- bandsslitin og lýðveldisstjórnar- skrána í Reykjavík. Veitingar á Þlngvöllum 17. Þeir, sem óska að annast TJARNARBÍÓ jum veitingar á Víkingar vega um óttu (Commandos Strike at Dawn). Mynd frá hernámi Noregs. PAUL MUNI. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Bönnuff yngri en 16 ára. Þingvöllum 17. júní, geri svo vel að rita JACARÉ þjóðhátíðarnefndí (í Alliiiigishiisinii) fyrir 20. maí, og geri grein fyrir aðstöðu sinni. meinvættur frumskóganna Fróðleg, falleg og spenn- andi mynd af dýralífinu í ! frumskógunum við Ama- | zonfljótið. Sýnd kl. 3. | Sala aðgm. hefst kl. 11. f Vegavinnuverkfallið (Framh. af 1. síðu) um, gildir það öðru máli um málamyndarfélög, sem stofnuð eru í sveitum, þar sem fæstir þeirra, sem vinnunnar eiga að njóta, t. d. bændur, eiga heima í slíkum félögum. Þetta er bein tilraun kommúnista til að neyða bændur í verklýðsfé- lagsskapinn, svo að einnig sé hægt að gefa þeim fyrirskipun um að leggja niður vinnu, þegar kommúnistaforsprökkunum svo þóknast. Það sést bezt á því, hve kom- múnistar reyna að leyna þessari kröfu sinni, að þeir eru farnir að óttast frumhlaup sitt í vega- vinnudeilunni, og sjá, að þeim eru ekki eins allir vegir færir og þeir bjuggust við. Afstaða Sjálfstæðis- flokksins, Það, sem veldur litlu minni at- hygli en ofsi og ofbeldisaðfarir kommúnista í þessu máli, er framkoma Sjálfstæðisflokksins og aðalmálgagns hans, Morgun- blaðsins. Það hefir, siðan verk- fallið hófst, varazt að segja eitt styggðaryrði um aðfarir kom- múnista og aldrei minnst einu órði á frumorsök verkfallsins, forgangskröfuna. Verður varla annað séð en að Sjálfstæðis- flokkurinn sé með þessari af- stöðu sinni að leggja óbeint blessun sína yfir aðfarir kom- múnista og eggja þá til djarf- legri framgöngu. Kunnugir menn segja, að for- kólfum Sjálfstæðisflokksins muni það ósárt, þótt núv. ríkis- stjórn yrði undir í átökunum og hlyti vansæmd af því. Það er sama gamla. sagan og þegar Sjálfstæðisflokkurinn hjálpaði kommúnistum til að skáða Al- þýðuflokkinn í verkalýðssam- tökunum og gerði síðar banda- lag við þá til að reyna að eyði- leggja Framsóknarflokkínn. Forkólfar Sjálfstæðisflokksins virðast eigi skilja, að þessi hefndarstefna þelrra ber fyrst og fremst þann árangur að efla kommúnista en veikja þjóðfé- lagið. 4 víðavangi. (Framh. af 1. síðu) svo hrapallega, að verkamenn yrðu að sameinast til að frelsa þessi dýrmætu samtök sín úr klóm þeirra. Munu allír, nema æstustu kommúnistar, geta við- - urkennt, að þessi ummæli bera; merki um órækan vinarhug til verklýðshreyfingar. Það er engin tilviljun, að stjórn verkalýðssambandsins í Sviþjóð hvetur meðlimi sína ár- lega til þess að kjósa ekki kommúnista í trúnaðarstöður og verkamenn þar fylgja þessari áminningu mjög rækilega. Þar sem verkalýðssamtökin hafa orðið mesta reynslu og þroska eru þau búin að átta sig til fulls á kommúnistum. Erlent yfirllt. (Framh. af 1. siðu) unum rúmensku, og á sléttunum norðan Karpatafjalla um borg- ina Lwow og þaðan inn í hin auðugu héruð Galizíu. Einnig má búast við sókn þeirra á Ey str asaltsví gstöðvunum. Bein og óbein aðstoð Banda- manna við Rússa á vissulega mikinn þátt í sigrum þeirra. Hinu má samt ekki gleyma, að Rússar hafa barizt hraustlega og eru þannig vel að sigrinum komnir. Vegavinnudeílan Árshátíð Norðmaima (Framh. af 1. síðu) Athugasemd. í tilefni af greininni „í spell- virkjahöndum“, sem birtist í 49. blaði Timans, 11. maí s. 1., óska ég að mega taka fram eftirfar- andi: Alþýðusambandið gerði í höf- uðatriðum sömu kröfur og í fyrravor. Það óskaði eftir sömu kaupsvæðaskiptingu, með lítils- háttar leiðréttingum. Grund- völlur kaupsvæðaskiptingarinn- ar í fyrra var sá, að greitt væri kaupgjald þess verkalýðsfélags, sem 'talið var að næst væri vinnusvæðinu. Þessu vildi ríkis- stjórnin nú breyta þannig, að á þeim svæðum, sem kaupgjald hafði hækkað nokkuð frá því í fyrra, vildi hún einangra hækk- unina við hreppinn, sem við- komandi félag á heima í. Svo að tekið sé dæmi til skýringar, má geta þess að í fyrra var kaup- gjald félagsins á'Blönduósi á- kveðið í meginhluta Austur- Húnavatnssýslu. Nú hafði þetta félag gert samning um 30 aura hækkun á klst. Þessi hækkun átti að ná út í sýsluna, sam- kvæmt samkomulaginu í fyrra, en ríkisstjórnin vildi ekki greiða, hana nema í Blönduóshreppi einum, annarsstaðar í sýslunni vildi hún aðeins greiða sama kaup og í fyrra. Nú er það vit- að, að margir verkamenn í kaup- túnum verða að sækja vinnu út úr heimahreppnum og liggja við fjarri heimilum sínum. Ef nokk- ur munur væri, ættu þeir menn að fá hærra kaup. Ég býst við að bændur teldu það ekki sanngjarnt, ef þeir ættu að selja þann kartöflupoka, sem þeir þyrftu að flytja til kaupandans, 15% ódýrari en hinn, sem sóttur væri heim í hlað til þeirra. Krafan um forgangsrétt til vinnunnar var miðuð við félags- svæði og sett fram eftir sérstök- um óskum þeirf-a verkalýðsfé- laga, sem heima eiga í sveitum. Það, sem sagt er um þessa kröfu, í nefndri grein, er því byggt á megnum misskilningi, nema það eitt, sem sagt er til stuðnings þessari sanngirniskröfu. Óskin um að mega ljúka 48 klst. vinnu á 5 dögum er komin frá verkamönnunum sjálfum, sérstaklega þeim, sem hafa lít- ilsháttar grasnyt eða kartöflu- rækt-. Þessi ósk ætti ekki að þarfnast neinna skýringa. Gagnósk ríkisstjórnarinar um heimild til 60 klst. vinnuviku, á tilteknum stöðum fjarri byggðum, var einnig rædd, en um hvorugt þessara atriða var umræðum lokið, því að samn- ingarnir strönduðu á því, að ríkisstjórnin vildi breyta kaup- svæðaskiptingunni frá því, sem hún var í fyrra, til hlutfallslegr- ar kauplækkunar hjá viðkom- andi mönnum, hvort sem um var að ræða verkamenn úr kaup- túnum eða bændur úr sveitum. Um starf mitt í Alþýðusam- bandinu, starfsleysi eða „þægð“ óska ég ekki að ræða hér. Köp- uryrði þau, sem eru í fyrnefndri grein, um okkur, sem nú i augnablikinu skipum miðstjórn Alþýðusambandsins tel ég ekki heldur ástæðu til að ræða. Við, sem einstaklingar, erum algert aukaatriði og það er því engin ástæða til að gera veður út úr því, þó að svona orð, eða önnur þeim lík, falli í okkar garð. Hins vegar eru þau • ekki líkleg til þess að greiða fyrir aukinni um- bótasamvinnu milli bænda og verkafólks. Ef til vill spilla þau ekki heldur. Með þökk fyrir birtinguna. 13. maí 1944. Guffgeir Jónsson. Þessarí athugasemd forseta loknu munu aðrir leggja blóm á einstakar grafir. Klukkan 10 hefst hátíðaguðs- þjónusta í dómkirkjunni. Séra Bjarni Jónsson messar, en sungnir verða norskir sálmar og norsk ættjarðarlög. Verður ríkisstjóri íslands viðstaddur guðsþjónustu þessa. Fánavörður mun standa við kirkjudyr. Klukkan 11,45 safnast norsk og norsk-íslenzk börn saman í norska sendiherrabústaðnum, Fjólugötu 15, og ganga þaðan fylktu liði um Sóleyjargötu, Frí- kirkjuveg og Kirkjustræti að Listamannaskálanum kl. 1. Hefst þar litlu síðar hátíðar- fundur og verður þá opnuð norsk myndasýning, er lýsir Noregi á friðartímum og í styrj- öld. Myndir þessar eru á annað hundraðog hafa áður verið sýnd- ar víða í Englandi. Formaður hátíðanefndarinnar, S. A. Friid, talar um konunginn og ætt- jörðina, frú Gerd Grieg les „Ja, vi elsker dette landet“ og E. M. Hopp liðsforingi minnist Norðmanna, sem fallið hafa í styrjöldinni. Þessu verður út- varpað. Klukkan 4—6 tekur norski sendiherrann á móti gestum.* Klukkan 8 hefst kvöldveizla að Hótel Borg. T. Haarde býður gesti velkomna, Esmarch sendi- herra mælir fyrir minni kon- ungs, Ólafur Thors talar fyrir minni Noregs, Friid blaðafull- trúi fyrir minni íslands og frú Gerd Grieg fyrir minni sjó- manna. Sigurður Nordal pró- íessor mun svara ræðu Friids og sér'a Bjarni Jónsson þakka veitingarnar. Þá um kvöldið verða einnig samkvæmi í húsi Hjálpræðis- hersins og að Hverfisgötu 116. Hefjast þau kl. 8,30. Alþýðusambandsins þykir rétt að láta fylgja eftirfarandi skýr- ingar: 1. í athugasemdinni er reynt að gera aukaatriði að aðalatriði. Aðalorsök þess? að samkomu- lag náðist ekki, er forgangs- krafan fyrir meðlimi verkalýðs- félaganna í vegavinnu, en ekki kaupgreiðslan. Þar ber ekki svo stórt á milli, að það ætti að standa í vegi samkomulags. 2. Það er ekki rétt, að for- gangskrafan hafi aðeins verið miðuð við félagssvæðin. Um það atriði vísast til ^reinar á 1. síðu. 3. Það er ekkirétt, að Alþýðu- sambandið vilji eigi breyta kaupsvæðunum frá í fyrra. Ein- mitt dæmi það, sem G. J. nefnir, sannar þetta. í fyrra voru Mýra- sýsla, Vestur-Húnavatnssýsla og Austur-Húnavatnssýsla eitt kaupsvæði. Þá var sama kaup í þorpunum á þessu svæði. Síð- an hefir Blönduósfélagið eitt hækkað taxta sinn og þess vegna vill Alþýðusambandið nú kljúfa Austur-Húnavatnssýslu úr því kaupsvæði, sem hún -tilheyrði í fyrra, og gera hana að sérstöku kaupsvæði. 4. G. J. minnist ekkert á það, sem var einna mest gagnrýnt í umræddri grein Tímans. Það voru aðfarir Alþýðusambands- stjórnarinnar í málinu. Það er borin fram krafa, sem getur úti- lokað bændur frá vegavinnu. Henni er fylgt fram með svo miklu offorsi, að efnt er til verk- falls, sem virðist algerlega ólög- legt, og áður en dómur er geng- inn um lögmæti þess, er boðað til margra samúðarverkfalla. Þeir, sem þannig fara að, sýna að þeir virða lögin einskis. Þetta finnur hinn hófsami for- seti Alþýðusambandsins, þótt hann dansi með af misskilinni stéttartilfinningu. Þess vegna •GAMLA BÍÓ. MAISIE skerst í leikinn (Miasie was á Lady) MAUREEN O’SULLIVAN. ANN SOTHERN LEW AYRES Sýnd kl. 7 og 9. LÍFVÖRÐURINN (Lady Bodyguard) ANNE SHIRLEY, EDDIE ALBERT. Sýnd kl, 3 og 5. - NÝJA E:Ó-o—o—o—».,> Heillastjjörnur (Thank Your Lucky Stars) Dans og söngvamynd með | Eddie Cantor, Joan Leslie, Bette Davis, Errol Flynn, Oliva de Haviland, Dinah Shore, Dennis Morgan, Ann Sheridan, og Spike Jones Sýnd kl, GVz og 9. DULARFULLU MORÐIN (Time to Kill) LLOYD NOLAN, HEATHER ANGEL. Sýnd kl. 5. Tónlistarfélaqið oti Leikfélay Reyhjavíhur „Pétnr Gautnr^ Leikstjóri: frú GERD GRIEG. Sýaing annaií kvöld kl. 8. Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 ,i dag. Tilkynniné Skrifstófur, afgreiðsla og’ tóbaks- gerð vor verða lokaðar frá 10. til 24. jiilí næstkomandi vegna sumarleyfa. ViðskiptamöHnum vorum er Iiér með bent á að birgja sig' nægilcg'a upp i tæka tíð með vömir þær, sem tóbaks- einkasalan selur, svo þcir þurfi eigi að verða fyrir óþæg'indiim af lokun- inni. Tóbaksemkasala ríkísíns. Koks Fyrirliggjandi birg'ðir eru ná af koksi, bæði í miðstöðvar, ofna og AGA og SÓLÓ eldavélar. Gasstöð Reykjavíknr Notið O P A L rœstiduft Opai Raestiduft r er fyrlf r.okkru komiff á markaðinn og heflr þegar lilotið hlð mesta lofsorð, því vel er til þess vandað á allan hátt. Opal ræstiduft hefir la þá kosti, er ræstlduft þarf að hafa, — það hreinsar án þess að rispa, er mjög drjúgt, og er nothæft á allar tegandir búsáhalda og eld- húsáhalda. gengur hann fram hjá þessum atriðum. G. J. lýkur athugasemd sinni með ummælum um sámvinnu bænda og verkamanna. Því skal þar aðeins bætt við, að slík sam- vinna getur því aðeins íengizt, að hinir hyggnari menn verk- lýðsamtakanna reyni að koma í veg fyrir að kommúnistar noti þau til að vinna gegn bændum. Rititj.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.