Tíminn - 13.06.1944, Page 1

Tíminn - 13.06.1944, Page 1
IRITSTJÓRI: ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON. , ÚTGEPPANDI: IFRAMSÓKNARFLOKKURINN. PRENTSMIÐJAN EDDA h.f. Símar 3948 og 3720. RITSTJÓRASKRIFSTOFUR: • EDDUHÚSI. Lindargötu 9 A. Símar 3948 og t^20. AFGREIÐSLA, INNHEIMTA OG AUGLÝSINGASKRIFSTOFA: EDDUHÚSI, Lindargötu 9 A. Slmi 2323. 28. árg Reykjavík, þriðjutlagiim 13. jímí 1944 60. blað Erleat yfirlit; Fyista viká innrásarinnar Vika er nú liðin síðan innrás Bandamanna í Normandi hófst. Verður eigi sagt, að þessi vika hafi orðið eins stórviðburðasöm og margir munu hafa gert sér vonir um, en við nánari athug- un mun þeim skiljast, að tæp- ast hafi mátt búast við stærri tíðindum fyrstu vikuna. Það var oftrú að vænta þess, að Banda- menn gætu strax eftir land- göngu brotið alla mótstöðu á bak aftur og sótt langt inn í land. Fyrstu' verkefni þeirra eftir landgönguna varð vitanlega að tryggja sér örugga fótfestu og skipuleggja lið sitt til sóknar. Það hlaut alltaf að taka nokk- urn tíma. Við því mátti heldur ekki búast, að Þjóðverjar gætu varnað Bandamönnum- land- > göngu og hrakið þá strax af höndum sér. Strandvarnarlið Þjóðverja gat tæpast gert betur en torveldað landgönguna. Það var hlutverk varaliðs Þjóðverja að reyna að hrekja landgöngu- herinn til baka. Það hlaut vitan- lega alltaf að taka nokkurn tíma að koma því á vettvang. Fyrsta vika innrásarinnar hefir farið til undirbúnings beggja aðila undir framhaldandi hernaðaraðgerðir. Bandamenn hafa styrkt aðstöðu sína eftir megni og búið sig undir sókn inn í landið. Liðflutningar þeirra hafa stöðugt haldið áfram og voru langmestir síðastliðinn sunnudag. Þjóðverjar hafa keppzt við að flytja varalið til vígstöðvanna í þeim tilgangi að geta hrakið Bandamenn til baka. Það mun sjást næstu viku eða næsta hálfan mánuð, hvern- ig innrásinni reiðir af, hvort Bandamönnum tekst að halda sókninni áfram eða Þjóðverjum tekst að reka þá í sjóinn. Fram til þessa hefir hvergi komið til stórkostlegra bardaga, en víða hafá allmiklar orustur átt sér stað. Báðir aðilar segja mestu stórorusturnar fram- undan. Fyrstu dagana virtust orustu- svæðin aðallega tvö. Annað- orustusvæðið er milli fljótanna Ome og Vir. Þar hafa Bandamenn tekið Bayeaux á suðurhluta' vígstöðvanna og berjast nú um Caen. Orusturnar hafa verið langharðastar á þessu svæði. Á norðurhluta þessara vígstöðva hafa Bandamenn tek- ið Isigny og Carentan. Hitt orustusvæðið er norðar é Cherbourgskaga við St. mer Eglise og ^rir sagt á sunnudags- kvöld, að Bandamenn ættu það- an 27 km. ófarna til Cherbourg. Lengst eru Bandamenn komnir inn í land 30 km. Seinustu fréttir: Rússar hefja sókn á Kyrjálaeíðí Rússar hafa enn ekki hafið hina fyrirætluðu sumarsókn sína gegn Þjóðverjum. Hins veg- ar byrjuðu þeir fyrir nokkru sókn gegn Finnum á Kyrjála- eiði, og hefir orðið allvel ágengt. Mörgum þykir einkennilegt, að þeir skuli nú ekki frekar snúa sér að Þjóðverjum en Finnum. Sumir telja, að Rússar vilji taka Finnland strax, ef innrásin kynni að misheppnast, svo að þeir gætu haldið því, ef þeir tækju það ráð að semja við Þjóðverja. Aðrir telja, að þeir vilji taka Finnland meðan Bandamenn eru uppteknir ann- arsstaðar. Sambkndsslifin og stjórnarskráin rædd á Alþíngi í dag Alþingi kom saman til framhaldsfundar sl. laugar- dag. Verkefni þess er að ljúka endanlega afgreiðslu sam- bandsslitanna og lýðveldis- stjórnarskrárinnar, en síðan verður því sennilega aftur frestað um nokkurt skeið, unz fjárlagaafgreiðslan hefst. Á fundi þingsins á laugardag- inn lagði forsætisráðherrann fram tvær þingsályktunartillög- ur, aðra um sambandsslitin, en hina um lýðveldisstjórnar- skrána. Tillagan um niðurfelling dansk-íslenzka sambandslaga- samningsins er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að lýsa yfir því, að niður sé fallinn dansk- íslenzki sambandslagasamning- urinn frá 1918“. í greinargerð segir: „Ályktun Alþingis frá 25. febrúar síðastl. um niðurfelling dansk-íslenzka sambandslagasamningsins frá 1918 hefir verið borin undir at- kvæði eins og í ályktuninni seg- ir, með þeim úrslitum, að yfir 97% allra kosningabærra manna í landinu hafa tekið þátt í at- kvæðagreiðslu og af þeim hafa yfir 97% goldið jákvæði við á- lyktuninni. Er fyrri málsgrein ályktunarinnar því borin fram á Alþingi af nýju samkvæmt síð- ari málsgrein sinni“. Tillagan um glldistöku stjórn- arskrár lýðveldisins fslands er svohljóðandi: „Alþingi ályktar, með tilvísim til 81. gr. stjórnarskrár lýðveld- isins íslands og þar sem skilyrð- um sömu greinar um atkvæða- greiðslu allra kosningabærra manna í landinu er fullnægt, að stjórnarskráin skuli ganga í gildi laugardaginn 17. júní 1944, þegar forseti sameinaðs Alþingis lýsir yfir því á fundi í Alþingi“. í greinargerð seglr: „Atkvæða- greiðsla sú, er í 81. gr. stjórnar- skrár lýðveldisins íslands er mælt fyrir um, hefir farið fram með þeim úrslitum, að þátt hafa tekið í atkvæðagreiðslu yfir-ú7% allra kosningabærra manna og yfir 95% hafa goldið jákvæði við stjórnarskránni. Tillaga til þingsályktunar um gildistöku hennar er því hér með lögð fram, sbr. áðurnefnda 81. gr. st j órnar skrárinnar“. Tillögur þessar verða til um- ræðu í sameinuðu þingi í dag. Fruinvarp um fánalög. í gær var lagt fram á Alþingi frumvarp til fánalaga, flutt af ríkisstjórninni. Fjallar það að- allega um ýms ákvæði, er miða að því að auka virðingu fyrir fánan,nm. Þá var lagt fram frv. um leigunám á sölunum í Hótel Borg meðan hátíðin stendur yf- ir. Frv. er flutt af fjórum þing- mönnum, einum úr hverjum flokki. Dreyfus sendíherra komítm til landsíns Hinn nýi sendiherra Banda- ríkjanna á íslandi, Louis Goethe Dreyfus, sem er sérstakur full- trúi Roosevelts forseta og am- bassador ad boc á lýðveldishá- tíðinni, kom hingað til lands á- samt konu sinni milli kl. 12 og 1 á laugardag. Utanríkismáia- ráðherra, Vilhjálmur Þór, og frú hans voru viðstödd, þegar sendi- herrahjónin lentu. Ambassador ber, eins og kunn- ugt er, sama virðing og þjóð- höfðingjanum sjálfum myndi sýnd, enda verður Dreyfus sér- stakur fulltrúi forsetans við há- tíðahöldin. 17.-18. iúni il ÞMllmn ot i Beíkiavík Undirbúningsnefnd hátíðahaldanna, er haldin verða 17.—18. júní næstkomandi í Reykjavík og á Þingvöllum í tilefni af lýð- veldisstofnuninni, hefir nú lokið samningu dagskrár fyrir þau og sent hana blöðum og útvarpi til birtingar. Fer dagskráin hér á eftir, eins og nefndin hefir gengið frá henni: ~m i• r r 17. jimi: í Reykjavík: Kl. 9.00: Forseti sameinaðs Al- þingis leggur blómsveig við styttu Jóns Sigurðssonar á Austurvelli og flytur' ræðu. Lúðrasveit leikur: „Ó, guð vors lands“. — Stjórnandi Albert Klahn. Á Þingvöllum (Lögbergi): Kl. 1.15: Ríkisstjóri, ríkis- stjórn og alþingismenn ganga til þingfundar að Lögbergi, niður Almannagjá. Um leið og gengið er að Lögbergi leikur lúðrasvéit: „Öxar við ána“. Kl. 1.30: Forsætisráðherra set- ur • hátíðina. Guðsþjónusta. Sálmurr „Þín miskunn, ó, guð“. Biskupinn yfir íslandi flytur á- varp og bæn. Sálmur: „Faðir andanna“/ Kl. 1.55: Þingfundur settur. Forseti sameinaðs Alþingis lýs- ir yfir gildistöku stjórnarskrár lýðveldisins. Kl. 2.00: Kirkjuklukkum hringt um land allt í 2 mínútur. Einnar mínútu þögn á eftir og samtímis umferðarstöðvun um land allt. Þjóðsöngurinn. Kl. 2.10: Forseti sameinaðs Alþingis flytur ræðu. Kl. 2.15: Kjör forseta íslands. Forseti íslands vinnur eið að stjórnarskránni. Forseti íslands ávarpar þingheim. Þingfundi slitið. Sungið: „ísland ögrum skor- ið“. Kveðjur fulltrúa erlendra ríkja. E'anahylling: „Fjallkonan ávarpar fánann. Sungið: „Rís þú, unga íslands merki“. Hlé. Á Þingvöllum (Völlunum): Kl. 4.30: Formaður þjóðhátíð- arnefndar flytur ávarp. Fulltrúi Vestur-íslendinga, próf. Richard Beck, flytur kveðju. Lúðrasveit leikur: „Þó þú langförull legðir —“. (Steph. G. Stephansson. — Sigv. Kaldalóns). Þjóðhátíðarkór Sambands ís- lenzkra karlakóra (Stjórnend- ur: Jón Halldórsson (aðalsöng- stjóri), Sigurður Þórðarson, Hallur Þorleifsson og R. Abra- ham) syngur þessi ljóð: Emil Thoroddsen: „Hver á sér fegra föðurland “ (Hulda). „ísland farsælda frón“, íslenzkt tví- söngslag, Sveinbj. Sveinbjörns- son: „Móðurmálið“ (Gísli Jóns- son). Þórarinn Jónsson: „Ár vas alda“ (úr Völuspá). Sveinbjörn Sveinbjörnsson: „Lýsti sól^ (Matth. Joch.). Sigfús Einars- son: „Þú álfu vorrar“ (Hannes Hafstein). Kl. 5.00: Benedikt Sveinsson, fyrv. forseti neðri deildar Al- þingis, flytur ræðu. Kl. 5.15: Þjóðkórinn syngur undir stjórn Páls ísólfssonar tónskálds eftirfarandi ættjarð- arljóð: „Jeg elska yður, þér ís- lands fjöll“. „Fjalladrottning, móðir mín“. „Þið þekkið fold með blíðri brá“. „Ég vil elska mitt land“. Kl. 5.25: Hópsýning 170 fim- leikamanna undir stjórn Vignis Andréssonar fimleikakennara. Kl. 5.40: Þjóðkórinn syngur undir stjórn Páls ísólfssonar tónskálds eftirfarandi ættjarð- arljóð: „Nú vakna þú, ísland“. „Ó, fögur er vor fósturjörð". „Lýsti sól stjörnustól“. Kl. 5.50. Flutningur kvæða. Brynjólfur Jóhannesson- leikari strseti, Aðalstræti, Austurstræti 18. júní: Kl. 1,30. Skrúðganga hefst við Háskólann. Haldið verður um Hringbraut, Bjarkargötu, Skothúsveg, Fríkirkjuveg, Von- arstræti, Templarasund, fram- hjá Alþingishúsinu, Kirkju- flytur hátíðarljóð Huldu. Jó- hannes úr Kötlum flytur hátíð- arljóð sitt. Kl. 6.00. Íslandsglíma. Stjórn- andi Jón Þorsteinsson, fimleika- kennari. Að henni lokinni verð- ur sigurvegaranum afhentur jarðarlög. verðlaunabikar ríkisstjórnarinn- 1 ar og glímubelti í. S. í. Kl. 6,30. Þjóðhátíðarkór Sam- bands íslenzkra karlakóra syng- ur. Stjórnendur: Jón Halldórs- og staðnæmst fyrir framan stj órnarráðshúsið. Á svölum Alþingishússins tek- ur forseti íslands kveðju fylk- ingarinnar. — Lúðrasveit geng- ! ur í fararbroddi og leikur ætt- Kl. 2.00. Lúðrasveit- leikur nokkur lög fyrir framan Stjórn- arráðshúsið. Kl. 2.15. Forseti íslands flyt- ur ræðu til þjóðarinnar. Að son, Sigurður Þóröarson, Hallur henni lokinni leikur lúðrasveit: Þorleifsson og R. Abraham. — Jón Laxdal: „Vorvísur" (Hann- es Hafstein). Bjarni Þorsteins- son: „Ég vil elska mitt land“ (Guðm. Magnússon). Björgvin Guðmundsson: „Heyrið vella“ (Grímur Thomsen). Sigvaldi, steinn Jónsson alþm. Kaldalóns: „ísland ögrum skor-*j Sameiningarflokkur alþýðu ið“ (Eggert Ólafsson), einsöng sósíalistaflokkurinn: Einar Ol- syngur Pétur Á. Jónsson óperu- „Island ögrum skorið“. Ávörp formanna þingflokk- anna. Sjálfstæðisflokkurinn: Ólafur Thors alþm. Framsóknarf lokkurinn: Ey- songvari. Kl. 6,45. Fimleikasýning, úr- valsflokkur 16 kvenna. Stjórn- andi: Jóri Þorsteinsson. Kl. 7.00. Þjóðkórinn syngur undir stjórn Páls ísólfssonar tónskál^s: „Þú nafnkunna land- ið“. „Drottinn, sem veittir“. '„ísland ögrum skorið“. Lúðra- sveit og þjóðkórinn leika og syngja: /;Ó, guð vors lands“. Kl. 9.00. Fimleikasýning 16 karla — úrvalsflokkur. Stjórn- andi Davíð Sigurðsson, íþrótta- kennari. Lúðrasveit leikur. geirsson alþm. Alþýðuflokkurinn: Haraldur Guðmundsson alþm. Að lokum leikur lúðrasveitin þjóðsönginn. Kl. 3.30—4.30. Þjóðhátíðar- kór Sambands íslenzkra karla- kóra syngur í Hljómskálagarð- inum. Kl. 10.00—11.00. Lúðrasveit leikur í Hljómskálaagarðinum. Kl. 4 verður opnuð í húsa- kynnum Menntaskólans sögu- sýning úr frelsis- og menning- arbaráttu íslendinga á liðnum öldum. Svíar og Frakkar viður- kenna lýðveldisstofnunína Ríkisstjórninni hefir enn borizt viðurkenning tveggja ríkis- stjórna á lýðveldisstofnuninni, og muriu þær láta sérstaka full- trúa mæta á hátíðinni. Eru það ríkisstjórn Svíþjóðar og bráða- birgðastjórn Frakka í Algier. Báðar þessar viðurkenningar munu verða íslenzku þjóðinni mikið fagnaðarefni. 'Alveg sérstaklega mun viðurkenning hins eina hlutlausa norræna ríkis, Svíþjóðar, verða henni til gleði, jafnframt því sem hún er tákn þess, að hin góða sambúð nor rænu þjóðanna muni halda áfram að eflast og styrkjast. Utanríkisráðherra kvaddi blaðamenn til fundar við sig á laugardagskvöld og lét þeim þessa tilkynningu í té: „Ríkisstjórnin hefir þá‘ á nægju að tilkynna, að sænski! menn á fund sinn og birt þeim þætti mjög einsýnt, að almenn ingur myndi fagna mjög þess- ari, fregn. ' Á föstudagskvöld hafði ráð- herránn einnig kvatt blaða sendifulltrúinn hefir í kvöld tjáð utanríkisráðherra að sendi- fulltrúanum, herra Otto Jo- hansson, hafi verið falið að vera sérstakur sendiherra Svíþjóðar sem envoyé en mission spéciale á lýðveldishátíðinni og að flytja við þetta tækifæri íslenzku þjóðinni kveðjur og árnaðar- óskir. Sá vináttuvottur, sem sýndur er af hálfu þessarar norrænu frændþjóðar með þessum að- gerðum, er mjög kærkominn. Afstöðu Noregs og Svíþjóðar, sem nú er í ljós komin, skoðar ríkisstjórnin sem framrétta bróðurhönd til áframhaldandi norrænnar samvinnu“. Kvaðst ráðherra eigi vilja láta það bíða að tilkynna almenningi slíka gleðifrétt, enda þótt hann vissi, að að sunnudagsblöðin væru farin í prentun, því að sér svohljóðandi tilkynningu: „Ríkisstjórninni er ánægja að tilkynna, að sendimaður frakk nesku þjóðfrelsisnefndarinnar hefir í dag tilkynnt utanríkis ráðherra, að bráðabirgðastjórn frakkneska lýðveldisins hafi út- nefrít sendimanninn, herra Henri Voillery fulltrúa sinn sem délégué extraordinaire (sér legan sendimann) við lýðveldis- hátíðina. Jafnframt því að tilkynna þetta, bar herra Voillery fram beztu árnaðaróskir sínar og bráðabirgðastjórnarinnar •. til handa ríkisstjórn íslands og ís- lenzku þjóðinni. Ríkisstjórnin fagnar þessari ráðstöfun og hinum góðu kveðj- um og metur mikils þann vin- arhug, sem stofnun hins ís lenzka lýðveldis er enn sýnd með þessum aðgerðum." A víðavartgi ÞJÓÐHÁTÍÐ OG ÁFENGI. Undirbúningsnefnd þjóðhá- tíðarinnar byrjaði á laugardag- inn var sölu á farmiðum, er gildaj milli Reykjavíkur og Þing- valla* þjóðhátíðardagana. Fór salan fram í Iðnskólanum og var iar mikil þröng allan daginn. Alls munu farmiðar hafa verið seldir þar fyrir rúmlega 100 iús. kr. þann dag. Þetta ber þess ljóst merki, að mikil þátttaka muni verða i hátíðahöldunum og er vissulega ánægjulegt til þess að vita. Önnur meiri metsala en far- miðasala Þjóðhátíðarnefndar bregður hins vegar skugga á jessa ánægju. Mælt er, að á- fengisútsala ríkisins hér í bæn- um hafi stundum undanfarið selt áfengi fyrir 200 þús. kr. á dag. Þegar Alþingishátíðin var haldin fyrir 14 árum síðan, hafði ríkisstjórnin þá forsjá að loka Áfengisverzluninni hæfi- lega mörgum dögum áður en hátíðin hófst. Vafalaust átti það mikinn þátt í þvi, hve hátiðin fór vel og virðulega fram. Nú hefir verið vanrækt aö loka Á- fengisverzluninni með nægileg- um fyrirvara, sem hefði þurft að vera mun lengri en 1930. Þess vegna hefir þessi metsala á á- fengi átt sér stað. Það færi betur, að þetta seinlæti af hálfu ljins opinbera setti ekki leiðindasvip sinn á hátíðahöldin. Vafalaust verður nógu öflug lögregla til taks. En skemmtilegra hefði verið, að lögreglunnar hefði gætt sem minnst og íslendingar hefðu sýnt, að þeir gætu haldið þjóð- hátíð, án voldugs lögregluliðs. Hátíðlegast hefði það og verið, ef þjóðin hefði haft manndóm og sjálfsvirðingu til þess að láta landið vera alveg „þurrt“ þessa merkilegu þjóðhátíðardaga. Þjóðhátíðarnefndin hefði átt að sinna því máli betur. Stjórnar- völdin hefðu átt að vinna að því eftir megni. Þá hefði al- menningur ekki látið sitt eftir liggja. Þjóðhátíðardagarnir eiga að vera einkenndir af virðuleik og hátíðaskapi, en ekki af drykkjuskap, hófleysi og skríls- látum. HREINLÆTI f HÖFUÐ- BORGINNI. Lögreglustjóri hafði fund með blaðamönnum síðastl. laugardag og skýrði þeim frá störfum heil- brigðislögreglu bæjarins, en hana skipa tveir karlmenn og einkona. Hefir heilbrigðislög- reglan eftirlit með búðum og veitingahúsum, brauðgerðarhús- úm, verksmiðjum, og annast auk * þess umsjón með sorp- hreinsun. Hefir mikill árangur orðið af störfum heilbrigðis- nefndarinnar, þótt enn þurfi úr mörgu að bæta, sem aflaga fer í þessum efnum'. Lögreglustjóri gat þess, að bæjarbúar gætu veitt heilbrigð- islögreglunni mikla aðstoð með því að þrífa og hreinsa til sem bezt í kringum hús sín, leggja niður alidýrabú innan bæj ar o. fl. Gat hann þess, að áhugi virt- ist vaxandi í þessuin efnum. Sú hugmynd hefir komið fram, að þau sögulegu tímamót i lífi þjóðarinnar, sem nú fara í hönd, ættu einnig að marka tímamót í þessum efnum. Bæj- arbúár ættu allir sem einn mað- ur að leggja kapp á að hirða bæinn sem bezt, hafa hann sem hreinlegastan og heilnæmastan. Það væri þeim sjálfum til auk- innar hollustu og góð land- kynning. Fátt %hrífur aðkomu- menn meira en hreinieg og snyrtileg umgengni. Hér lendir því vonandi ekki við orðin tóm, heldur haldast bæjaryfirvöldin og almenningur enn betur í hendur um það hér eftir en hingað til, að hafa bæinn sem heilsusamlegastan og hreinleg- astan.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.