Tíminn - 17.06.1944, Síða 17

Tíminn - 17.06.1944, Síða 17
61. Mað TÍMIMN, laiigardaginn 17. Júni 1944 17 Þjóðlegasta skemmtunín er að lesa góðar bækur í * Ettirtaldar bækur eru sumar nýkomnar út, en aðrar koma á næstunni: Úr byggðum Borgarfjarðar, eftir Kristleif Þorsteinsson fræðimann á Kroppi, er nú komin. í bókinni er birt allt það, sem Kristleifur hefir skrifað, annað en það, sem skráð er í Héraðssögu Borgarfjarðar. Er þetta mikil og fyrir margra hluta sakir me’rkileg bók. Þorsteinn Jós- epsson blaðamaður hefir valið í bókina fjölda fallegra mynda. J ~ r- ' v'igg|v/ vB'^Wík, K;- - . ' ú ; , - , •' BókaYcrzlnn Isafoldarprcntsiiiidjn, Beylijavík Kristleifur Þorleifsson Haukagil í Hvítársíðu Gríismr Thomsen, endurminningar frk. Thoru Friðriksson. — „Ég man eftir Grími Thomsen frá því að ég var agnarlítil,“ segir frk. Thora, „því að hann kom ekki aðeins um þingtímann ásamt öðrum þing- mönnum hér um bil á hverju kvöldi heim til okkar, heldur kom hann líka allan ársins hring í stuttar heimsóknir, þegar hann á annað borð kom til bæjarins.“ — Frk. Thora Friðriksson er ein þeirra fáu núlifandi manna, sem þekktu og muna Grím Thomsen, skáldið og bóndann á Bessastöðum. ÓJSni' Bernadcttu. Grímur Thomsen Hin heimsfræga bók, Óður Bernadettu eftir Frans Werfel, kemur út í þessum mánuði. Eins og flestum er kunnugt, hafa fáar bækur, sem komið hafa út á síðari árum, notið jafnmikillar hylli, eins og bókin um frönsku bóndastúlkuna Bernadettu og undrin, sem gerast í Lourdes. Fyrir tæpum hundrað árum var Lourdes ómerkilegt sveitaþorp með fáum íbúum. Nú er þar snotur bær með um 10.000 íbúum. Þangað flykkjast árlega hundruð þúsunda manna, allra þjóðjlokka og allra trúar- bragða, til þess að leita ásjár heilagrar Maríu meyjar. Hún veitir sumum ásjá, öðrum ekki. En hróður staðarins og stúlkunnar, sem fyrst varð vör þessa undramáttar, flýgur um öll lönd og álfur. Einn þeirra manna, sem kom til Lourdes sundur kraminn á sál og líkama, er höfundur þessarar bókar. Bókin er þökk hans fyrir þann frið, sem hann öðlaðist við hina heilögu lind. Spítalalíf, eftir Harpole, dr. Gunnl. Claessen þýddi. Fyrir nokkru kom út •önnur bók eftir sama höfund og þýðanda, Úr dagbókum skurð- læknis. Hún seldist upp á örskömmum tíma. Tryggið yður þessa nýju bók. Hún er ágætlega skemmtileg og þó fróðleg. Samar á fjöllum, eftir Hjört Björnsson frá Skálabrekku. Sveinbjörn Sigurjónsson magister bjó undir prentun. Byjjh'ði sajja, , ■ -* eftir Ólaf próféssor Lárusson. Prófessor Ólafur Lárusson hefir skrifað margar stórfróðlegar greinar í blöð og tímarit. Nú hefir hann ákveðið að gefa þessar greinar og fleira út í bókarformi. Kemur fyrsta bókin út í haust, og nefnir hann hana Byggð og sögu. Mun.ekki þurfa að hvetja bókamenn til þess að tryggja sér þetta verk. Byron, ævisaga hans eftir Mourois, Sigurður Einarsson dósent þýddi. Þetta snilldarverk kemur út í næsta mánuði. Bókin er full- prentuð, en bíður eftir bóklDandi. I»órir Bcrgsson sendir frá sér nýja bók. Kallar hann bókina Nýjar sögur. Er hún fullsett, en kemur út síðar í sumar. Kristfn Svíadroltning í þýðingu Sigurðar Grímssonar lögfræðings, er einnig fullsett, en kemur út með haustinu. Einnig koma í haust frá bókaútgáfu ísafoldarprentsmiðju nýjar bækur eftir Huldu, Hugrúnu, Þórunni Magnúsdóttur, Guð- mund Daníelsson, Sigurð Helgason, Einar Pál Jónsson ritstjóra í Winnipeg, Kolbein í Kollafirði, Frímann Jónasson á Strönd og fleiri. — í haust kemur út BiMían í myndum. Myndirnar eru eftir franska snillinginn -Doré, en síra Bjarni.Jónsson vígslubiskup hefir búið hana undir prentun. Sálmabókin er nú í prentun og kemur út með haustinu. Ennfremur þá ný bænabók, sem síra Sigurður Pálsson í Hraungerði hefir búið til prentunar. Enn eru ótalin tvö stór verk, sem koma á þessu ári. Er það Sjómannasaga, eftir V. Þ. Gíslason, rituð í tilefni af 100 ára afmæli skipstjórafélagsins Aldan, með mjög miklum fjölda mynda af mönnum, skipum, atvinnutækjum og fleiru. Og Saga VestmannaCyja, eftir Sigfús Johnsen. Bækurnar verða sendar til bóksala um land allt jafnóðum og þær koma frá útgáfunni. Einnig ma panta þær beint frá

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.