Tíminn - 23.06.1944, Qupperneq 4
252
TÍMEVjTCy föstndagimi 23. júni 1944
63. blað
Ræða Eysteins
Jónssonar
(Framh. af 1. síðu)
„Með lögum skal land byggja“
sögðu forfeður vorir, er land
námu hér fyrir meira en 1000
árum.
Á meðan þeirri reglu var fylgt
blómgaðist þjóðlíf og farsæld var
í landi. En þegar landsmenn
hættu að virða lög og allsherj-
arrétt, hófst hnignun sú og ó-
frelsi, sem þjóðin hlaut að búa
við um aldir.
Einn. af sagnariturum fyrri
alda hafði þau tíðindi að segja
af íslandi, að þar væri enginn
konungur nema lögin. Það var
á gullöld íslendinga. Síðar vildu
margir verða konungar í landi,
en lögin voru iítils metin. Það
varð upphaf að tímum ófrelsis
og umkomuleysis.
Á sömu leið mun jafnan fara,
þar sem hnefaréttur og ofríki
er eigi útlægt gert af landi.
Með lögum skal land byggja.
í því felst ekki það, að aldrei
megi verða ágreiningur um neitt
í landinu. Eigi heldur hitt, að
aldrei megi neitt aðhafast nema
það, sem allir eru sammála um.
En í því felst aftur & móti sú
krafa til vor og niðja vorra, að
vér kunnum þá list, svo að aldrei
skeiki, að skera úr málum vorum
eftir leiðum lýðræðis og réttar,
og hlíta þeim úrslitum, sem
þannig eru fengin.
Vér verðum að kunna að setja
ágreiningi eðlileg takmörk og
standa saman þegar allsherjar
nauðsyn krefur. Urh það hefir
oss nú auðnast að gefa fordæmi,
sem jafnan mun talinn glæsi-
legur atburður í lífi þjóðarinnar.
Sá atburður er vöggugjöf Al-
þingis og þjóðarinnar til hins
unga þjóðveldis. Mætti hann
verða að tákni um farnað þess
og framtíð.
ísléndingar!
Verum minnug reynslu þjóð-
innar. Lítum á spjöld sögunnar.
Virðum fyrir oss það, sem nú
er að gerast umhverfis oss.
Metum vítin til varnaðar, en
fögur fordæmi til eftirbreytni.
Kennum börnum vorum að gera
slíkt hið sama, og þjóðinni mun
vel farnast.
Vér höldum nú fagnaðarhátíð
til minningar um fengið frelsi.
Vér höfum þó um nokkurt
skeið ráðið málefnum vorum.
Eigi að síður er það víst, að nú
fyrst finnum vér hver og einn,
að íslendingar eru frjáls og full-
valda þjóð.
Megi sú tilfinning i brjóstum
vor allra auka oss dug og þegn-
skap. Megi hún veita oss styrk og
góðvild til þess að skipa þannig
málum hins nýja lýðveldis, að
hæfi tign og gæðum lands vors,
sögu þjóðarinnar og hugsjónum
fólksins, sem byggir landið.
Fimm Ameríkuríki
(Framh. af 1. slSu)
herra fslands í Washington þann
17. júní. í veizlu, sem aðalræð-
ismaðurinn í New York hélt þá
um kvöldið, voru 270 manns.Víða
i Ameriku komu íslenzkir náms-
menn og Vestur-íslendingar
saman.
PrestskosnÍDgin í
Skútustaðapresta-
kalli
Atkvæði, greidd við prests-
kosningu í Skútustaðapresta-
kalli í Suður-Þingeyjarpró-
fastsdæmi, voru talin 22. þ. m.
í skrifstofu biskúps — Kosið var
þar 11. þ. m.
Aðeins einn umsækjandi var
um brauðið, sr. Magnús Már
Lárusson, kennari 'við Mennta-
skólann á Akureyri. — Af 230 á
kjörskrá kusu 143. Hlaut um-
sækjandi 138 atkv., 4 seðlar auð-
ir og 1 ógildur. Var Magnús Már
því löglega kosinn prestur.
Speglar
margar stærðir fyrírliggjandi.
Erl. Blandon&Co.hf.
Hamarshúsinu.
Sími 2877.
t R BÆNUM
Hjónaefni.
17. júní opínberuðu trúlofun slna
ungfrú Þóra Jónsdóttlr frá Þjórsár-
holti 1 Árnessýslu og Friðrik Ó. Jóns-
son, Öldugötu 52, Reykjavík.
Hjónaband.
Prófessor Ásmundur Guðmundsson
gaf saman í hjónaband 17. júní í Þing-
vallakirkju Ragnheiði M. Ólafsdóttur
(Gíslasonar stórkaupm.) og Gunnar
Gíslason prest að Glaumbæ í Skaga-
firði.
Hjúskapur.
16. júni voru geíin saman í hjóna-
band af séra Bjarna Jónssyni, vígslu-
biskupi, ungfrú Sigrún Jónsdóttir á
Breiðabólsstað í Reykholtsdal og Guðni
Þórðarson frá Hvítanesi við Akranes.
Afmælisgreinin
um Guðmund i Múla, er birtist i
Tímanum í síðastliðinni viku, var eftir
séra Ragnar Ófeigsson í Fellsmúla.
Nafn hans féll niður af vangá, og er
beðið velvirðingar á þeim mistökum.
Sakadómar. *
Sakadómari hefir nýlega fellt dóma
yfir þremur mönnum fyrir þjófnaði,
Var einn dæmdur i þriggja mánaða
fangelsi, annar í 45 daga fangelsi og
sá þriðji skilorðsbundið í þriggja mán-
aða fangelsi. ,Allir voru þeir sviptir
kosningarétti og kjörgengi. Þá hefir
sakadómari fellt dóm yfir manni, sem
réðist inn til fáklæddrar konu að næt-
urlagi og veitti henni áverka. Var hann
dæmdur í tveggja mánaða fangelsi og
til að greiða konunni 2000 kr. 1 skaða-
bætur..
Sogslánið gert innlent.
Bæjarráðið hefir ákveðið að breyta
láni því, sem tekið var á sínum tíma
í Svíþjóð vegna Sogsvirkjunarinnar í
innlent lán. Lánið er nú um 7 milljónir
íslenzkra króna.
Hjónaband.
Nýlega.voru géfin samán í hjóna-
band af vígslubiskupi, sr. Bjarna Jóns-
syni ungfrú Bára Sigurjónsdóttir (Ein-
arssonar, skipstjóra) og Kjartan Sigur-
jónsson (Kjartanssonar, kaupfélags-
stjóra í Vík). Heimili ungu hjónanna
verður fyrst um sinn að Austurgötu
40, Hafnarfirðí.
Trúlofun.
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Sigurbjörg Sæmundsdóttir,
Kletti í Gufudalssveit, A.-Barð., og
Óli H. Ananíasson búfræðingur,
Hamarlandl i Reykhólasveit, A.-Barð.
Úrslit 2. fl. mótsins
í knattspyrnu urðu þau, að Valur
hlaut 4 stig, K.R. 2 stig og Fram ekk-
ert stig. — Úrslit 3. fl. mótsins: Valur
5 stig, Fram 4 stig, K.R 3 stig og Í.R.
ekkert stig. — Úrslit 4 fl. mótsins:
K.R. 4 stig og Valur og Fram 1 stig.
Hjónaefni.
Nýlega hafa opinbrað trúlofun sína
á Húsavík ungfrú Þorbjörg Þórhalls-
dóttir, (Sigtryggssonar, kaupfélagsstj.)
og stud. jur. Ari Kristinsson (Jóns-
sonar, kaupmanns).
Skákeinvígi
milli Árna Snævarr og Ásmundar
Ásgrímssonar er nýlokið. Vann Ásgeir
3% af 6 skákum. Með sigri þessum
fékk Ásmundur rétt til að keppa vlð nú-
verandi íslandsmeistara, Baldur Möll-
er, um meistaratigninga á komandi
hausti.
Gardínutau
á kr. 2,50
Silkisokkar .. 4,45
ísgarnssokkar . 5,60
Sumarkjólatau . 8,25
Nærfatasett ... 12,70
Brjósthaldarar . 7,70
Sokkabandabelti 20,50
Barnasokkar ... 3,40
Barnabuxur ... 7,50
Barnasloppar .. 19,50
Taft 7,20
D Y N G J A Laugaveg 25.
ÍCaupi notuð, íslenzk
frlmerki.
Sendið mér frlmerkin í á-
byrgðarbréfi, og fáið þér and-
virðið um hæl, þegar búið er að
athuga merkin.
Umboðsmenn óskgst til að
kaupa frímerki i öllum sveitum
landsins.
J. Agnars,
FRÍMERKJAVERZLUN,
Haliveigarstíg 0. Reykjavlk.
Hvít
kjólabeltí
II. Toft
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Áskriftar£|aM Tímans
utan Rvíkur og Hafnarfjarðar
er kr. 30.00 árgangurinn.
TJARNARBÍÓ
DIXIE
.
Amerísk músikmynd í
eðlilegum litum.
BING CROSBY,
DOROTHY LAMOUR,
BILLY DE WOLFE,
MARJORIE REYNOLDS.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Tilkynníng
írá þjóðhátíðarnefnd
Verðlaunaljóð þjóðhátíðarinnar, ásamt verðíaunalagi og ætt-
jarðarljóðum þeim, er sungin voru á Þingvöllum 17. júní, fást nú
í bókaverzlunum.
Þjóðhátíðarnefndin.
Þ j óðhátíðarmy ndír
15 úrvals ljósmyndir frá þjóðhátíðinni á Þingvöllum og i
Reykjavík. Myndirnar eru 9X12 cm. á stærð, og eru 10 frá Þing-
völlum og 5 frá Reykjavík. Þær kosta kr. 20,00.
Sendist í póstkröfu um land allt.
Guðmundur Hannesson, ljósmyndari,
Vífilsgötu 14. Reykjavík.
Tilkynning
Srá þjóðhátíðarnefnd
Þeir, sem óska að kaupa tjöld, fána og fánastengur Þjóðhátlð-
arnefndar, sendí beiðnir sínar til skrifstofu nefndarinnar í Al-
þingishúsinu fyrír 28. júní.
Þjóðkátíðarnefndin.
I dag
föstudaginn 33. júní, verður bankinn
aðeins opinn til hádegis.
Útvegsbanki íslands h.f.
ð P A 1
R œstiduft —
er íyrlr r.okkru komlð á
markaSinn og heflr þegar
hlotiö hlð mesta lofsorð, því
vel er tU þess vandað & allan
hátt. Opal ræstlduft heflr
la þá kostl, er ræstlduít
þarf að haía, — það hreinsar
&n þess að rispa, er mjög
drjúgt, og er nothæft á allar
tegandlr búsáhalda og eld-
húsáhalda.
IVotið
O P A L rœstidutt
OAMLA Bíó—í >
Kaldrifjaður
ævíntýramaður
(Honky Tonk)
/
Metro Goldwyn Mayer-
stórmynd.
CLARK GABLE
LANA TIJRNER.
“Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Börn innan 12 ára fá ekkl
aðgang.
NÝJA EÍÓ-o—.
Ættjöfðin
umfram allt.
(„This above All“)
Stórmynd með
TYRONE POWER og
JOAN FONTAINE.
Sýnd kl. 6,30 og 9.
SRERLOCK HOLMES OG
LEYNIVOPNIÐ.
Spennandi leynilögreglu-
mynd. Börn fá ekki að-
gang. Sýnd kl. 6.
Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu við andlát og jarðarför konunnar minnar,
lngibjargar Jónsdóttur
Blöndudalshólum.
SIGURJÓN JÓHANNSSON.
Ég þakka ínnilega öllum þeim, sem glöddu mig á
sextugsafmœli mínu með heimsóknum, gjöfum og heilla-
óskum. Þið hafið gert mér daginn ógleymanlegan.
Guð blessi ykkur öll.
SIGRÍÐUR TEITSDÓTTIR,
Hltárdal.
______________------------------
Hjartanlega þökkum við öllum þeim, sem skutu sam-
an fyrir okkur á fjórða þúsund krónur, þegar við vorið
1943 misstum mikinn hluta fjárstofns okkar. Einnig þökk-
um við þeim mörgu, sem hafa rétt okkur hjálparhönd áð-
ur d ýmsan hátt. Við biðjum hann, sem öllu góðu stjórnar,
að veita þeim hjálp eftir því sem þeim bezt hentar.
Kleppustöðum, 4. júní 1944.
ELÍN SIGURÐARDÓTTIR BJÖRN SIGURÐSSON
H. f, Eimskipafélag tslands
Aukafundur
Aukafundur I Hlutafélaginu Eimskipafélagi
Islands, verður haldinn í Kaupþingssalnum I
húsi félagsins I Reykjavlk, laugardaginn 18.
nóv. 1944, og hefst kl. 1 e. h.
1. Tillögur til lagabreytinga.
Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa að-
göngumiða.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa I skrif-
stofu félagsins I Reykjavík, dagana 15. og 16.
nóv. næstkomandi. Menn geta fcngið eyðu-
blöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn I
aðalskrifstofu félagsins I Reykjavík.
Reykjavlk, 9. jání 1944.
Stjórnin.
F arþegar
sem hafa látið skrá sig til Ameríku og ætia að fara
með næstu ferð eru beðnir að gefa sig fram í skrlf-
stofu vorri eigi síðar en 1. júlí n. k.
*
H.f. Eimskipafélag Islands.
Raftækjavinnustofan Selfossi
framkvæmir allskonar rafvirkjastörf.