Tíminn - 14.07.1944, Blaðsíða 4
276
TÍMDÍN, föstwdagiim 14. júlí 1944
6». blað
Heyskapurinn . . .
(Framh. af 1. síðu)
görðunarvélar, heyhleðsluvélar
og fjórhjólaðir vagnar.
Sumar snúningsvélar tæta
heyið í sundur eða sparka því,
aðrar snúa því í stórum görð-
um og enn aðrar snúa því á svip-
aðan hátt og hér tíðkast með
handhrífu. Álít ég þær hentug-
astar hér. Þær vinna á við 5—6
menn, og eru bráðnauðsynlegar.
Þær eru nokkuð.þekktar hér.
Görðunarvélar eru orðnar
nokkuð útbreiddar hér og spara
mikla vinnu, þegar heyið er
tekið saman. Til er vél, sem er
hægt að nota bæði sem snún-
ingsvél og görðunarvél, og væri
hún ef til vill hentug hér, en
hún er þung og þarf tvo hesta
fyrir hana.
Heyhleðsluvélin er ein af
hentugustu heyvinnuvélunum,
því hún sparar mikið erfiði við
heyhirðingu á bæði votu og
þurru heyi. Er vélin tengd aftan
í fjórhjóla vagn og honum ekið
eftir flekknum eða görðunum,
og rótar heyinu upp í vagninn.
Einn maður er uppi í vagninum,
til að taka á móti heyinu og
jafna úr því. Það er oft sami
maðurinn og ekur vagninum.
Þannig getur einn maður, eða
maður með ungling, fljótt og
auðveldlega hlaðið vagnana.
Fjórhjólaðan vagn þarf til að
hægt sé að nota þessa vél, og
hefir þeim verið lýst áður.
í sumum hlutum Bandaríkj-
anna hafa menn við álíka vot-
viðrasama tíð að glíma og við
íslendingar. Þeir hafa reynt
ýmsar aðferðir til að verka hey
sitt, og sú, sem mest hefir rutt
sér til rúms síðustu árin, er að
þurrka heyið á túni, einn eða
tvo daga, en síðan að hirða það
í hlöðu, sem hefir blásturs út-
búnað, og blæs óhituðu eða hit-
uðu lofti í gegnum heyið í
nokkra daga, þangað til það er
þurrt. Hefir þessari aðferð ver-
ið gefið nafnið „súgþurrkun“
hér á landi. Jafnframt þessari
aðferð, er einnig höfð votheys-
gerð, og er ekið í vothey, ef ekki
gefur þurran dag í viku tíma eða
lengur.
Áhöld þau, sem fyrr voru
nefnd, bæði fjórhjólaður vagn
og heyhleðsluvél, eru notuð við
hirðingu, bæði við súgþurrkun
og votheysgerð.
Blástursáhöld þau, sem notuð
eru við súgþurrkun, eru heldur
ódýr, og má knýja þau hvort sem
er með rafmagni eða benzín-
mótor, og mætti jafnvel hugsa
sér venjulegar vindmyllur. Hey,
sem þannig- er þurrkað, verkast
mjög vel og er miklu ríkara af
næringargildi og bætiefnum, en
túnþurrkað hey, og dafnar búféð
mikið betur af því.
Aðferð þessi hefir verið reynd
i Bandaríkjunum nokkur und-
anfarin ár, og gefizt mjög vel,
en hvernig hún gefst hér, skal
ekki sagt um, fyrr en reynt
hefir verið, og stendur til að það
verði gert eins fljótt og unnt er.
Tap það er þjóðin bíður vegna
hrakninga á heyjum og hey-
missi, nemur árlega miljónum
króna, og er því hin mesta nauð-
syn að einhver viðunandi bót
finnist sem fyrst í heyþurrkun-
armálinu."
Hér lýkur frásögn Jóhannes-
ar. Til þess að hægt sé að nota
heyvinnuvélar þær, sem Jó-
hannes minnist á, er það vitan-
lega undirstöðuatriði, að allt
heyskaparlandið sé véltækt og
í góðri rækt. Þar þarf fram-
förin að verða stórfelldust allra
næstu árin og þar þurfa bænd-
urnir helzt á hjálp að halda, því
að þegar ræktunin er komin,
mun þeim verða viðráðanlegt að
fá heyvinnuvélarnar. Frv. Fram-
sóknarflokksins um þá endur-
bót jarðræktarlaganna, er gerði
bændum kleift að afla allra
heyja á ræktuðu landi innan 10
ára, er eitt allra stærsta fram-
tíðarmál landbúnaðarins og ber
því að vænta þess, að það mæti
meiri skilningi á þingi í haust
en í fyrra.
Lík fundið
Lík stúlkunnar úr Hafnarfirði,
Sigríðar Jónsdóttur, sem hvarf
þar fyrir nokkrum dögum og
auglýst var eftir, fannst í Hafn-
arfjarðarhöfn í fyrradag. Var
það þá á floti á höfninni, en
slætt hafði verið þar fyrir
nokkru, en árangurslaust. Sig-
ríður var 21 árs að aldri, til
heimilis á Hverfisgötu 41, Hafn-
arfirði.
ÚR BÆNCM
Allsherjarmót í. S. í.
hefir farið fram hér á íþróttavellin-
um undanfarin fjögur kvöld. Hafa þar
verið sett fjögur ný íslandsmet. Oliver
Steinn, Hafnfirðingur, setti met í
langstökki, stökk 6.86 m. Gunnar Huse-
by, K. R., setti met í kúluvarpi, kast-
íiðf 15.50 m., og einnig met í kúlu-
varpi beggja handa, kastaði 26.78 m.
Kjartan Jóhannsson, í. R., setti
met í 400 m. hlaupi, hljóp á 52.3 sek.
Hann vann einnig 800 m. hlaupið á
bezta tíma, sem náöst hefir hér á
landi, en íslandsmetið er sett erlendis.
Skúli Guðmundsson, K. R., vann einn-
ig mikið afrek í hástökki, stökk 1.92
m., en íslandsmetið er hann setti ný-
lega, er 1.93 m. Afrek Huseby og Skúla
eru einhver beztu íþróttaafrek, er
náðst hafa hér á landi og skipa þeim í
röð fremstu íþróttamanna á alþjóða-
mælikvaróa. Afrek Kjartans Jóhanns-
sonar eru líka prýðileg og má vafa-
laust telja hann einn álitlegasta
hlaupara, sem hér hefir verið. Hann
er vel vaxinn, sterkur, skapmikill og
enn ungur, rétt tvítugur, svo að hann
á vafalaust eftir að bæta sig mikið. Má
segja, að hann hafi verið „stjarna"
mótsins, því að Oliver, Huseby og
Skúli voru áður kunnir orðnir af mikl-
um afrekum. Frá öðrum úrslitum móts-
ins mun nánar greint síðar.
Öllum veitingahúsum
hefir verið gert skylt að hengja upp
í veitingasölum sínum verðskrár yfir
veitingar, samþykktar af verðlags-
stjóra. Hefir viðskiptaráð fyrirskipað
þetta.
Þórður Jónsson
frá Bjóluhjáleigu varð 75 ára 12. þ.
m. Þórðar flutti hingað til bæjarins
fyrir tveimur árum eftir að hafa búið
í 36 ár í Bjóluhjáleigu og verið heim-
ilisfastur þar í 73 ár. Hann hefir und-
anfarið verið pallavörður hjá Alþingi.
Þórður er gegn maður og vel látinn.
Innbrot í Eddu.
Á þriðjudagsnóttina brauzt hermað-
ur inn í prentsmiðjuna Eddu við Lind-
argötu. Vart varð við þjófinn og var
lögreglan látin vita. Komu lögreglu-
menn að vörmu spori á vettvang og
handsömuðu þjófinn, sem reyndi að
fela sig undir vélasamstæðu í prent-
smiðjunni . ^
Hjúskaparheit
sitt opinberuðu nýlega ungfrú Stein-
unn Sturludóttir, Pljótshólum í Plóa
og Stefán Júlíusson frá Hítarnesi, nú
til heimilis á Pljótshólum.
Erlent yfirlit.
(Framh. af 1. síðu)
lags milli borgaralegu flokk-
anna. Kommúnistar eru í tals-
verðum vexti í Svíþjóð. Þeir
hafa náð meira hluta í ýmsum
verkalýðsfélögum, m. a. í Gauta-
borg og Stokkhólmi. Þannig
unnu þeir nýlega stjórnarkosn-
ingu í málmverkamannafélag-
inu í Stokkhólmi, sem er stærsta
verkalýðsfélag Svíþjóðar. Auk
sigra og vaxandi álits Rússa,
styður það talsvert að viðgangi
kommúnista, að Alþýðuflokkur-
inn hefir þurft að beitast fyrir
ýmsum óvinsælum ráðstöfunum
meðal verkamanna til að halda
dýrtíð og verðbólgu í skefjum,
t. d. takmarkaðri dýrtíðarupp-
bót og skömmtun ýmissa nauð-
synja. Hafa kommúnistar notað
sér þessar og aðrar stríðsráð-
stafanir til að blása að kolum
óánægjunnar og orðið nokkuð
ágengt. Er almennt búist við, að
þeir muni auka fylgi sitt í kosn-
ingunum í haust og jafnvel
tvístra svo fylkingu verka-
manna, að Alþýðuflokkurinn
missi meirahlutann.
Kommúnistar ræða mjög um
það, að Alþýðuflokkurinn og
Kommúnistaflokkurinn eigi að
hafa kosningabandalag, en talið
er víst, að Alþýðuflokkurinn
muni að svo stöddu hafna bæði
þeirri og annari samvinnuvið þá.
Ein ástæðan til þess, að Bænda-
flokkurinn mun tregur til kosn-
ingabandalags við íhaldsflokk-
ana er sú, að það myndi verða
vatn á myllu kommúnista og ef
til vill neyða Alþýðuflokkinn til
samstarfs við þá í framtíðinni.
Bændaflokkurinn vill hafa ó-.
bundnar hendur eftir kosning-
arnay og ekki er ósennilegt, að
margir foringjar hans kjósi
samstarf við Alþýðuflokkinn, ef
hann gæti eigi stjórnað, án til-
styrks annírs flokks, þegar
þjóðstjórnarsamvinnan rofnar.
Hitt mun þeim þykja óglæsileg
tilhugsun að þurfa að stjórna
með íhaldsflokkunum í andstöðu
við Alþýðuflokkinn, sem myndi
þá verða honum skæður keppi-
nautur meðal smábænda og
verkafólks í sveitum.
Margar spár hníga í þá átt,
að kommúnistar og bændaflokk-
urinn séu líklegastir til að auka
fylgi sitt í kosningunum.
Sjötngnr
«5»h.
TJARNARBÍÓ
(Framh. af 3. síðu)
hliðin varð aflvana og í rúminu
hefir hann legið síðan. Um
tveim árum síðar dó kona hans
af slagi. Þegar þessar ástæður
eru athugaðar, þá sýnist mér
„fórnin" vaxa alveg ótrúlega
mikið. En þetta mun vera eina
fórnin, sem í sjóðinn hefir kom-
ið til þessa, og nú lifum við þó
það ár, íslendingar, sem öllum
öðrum árum fremur er til þess
kjörið að vera fórnarár, eftir
hugmynd Hákonar, til stofnunar
lýðveldissjóðs.
Þegar hægri höndin varð Há-
koni ónýt — nærri sjötugum
manni, — þá komst hann strax
upp á lag með það að skrifa
með vinstri hendinni, og það
varð sama „rithöndin". Þó má
varla við því búast, að hann fái
lokið því áformi að skrifa ævi-
sögu sína, sem heita ætti Útsýn
og íhugun. Er það mikill skaði,
því að sú bók hefði áreiðanlega
gefið merkilega útsýn yfir ævi-
kjör og lífsstarf, og innsýn, til
íhugunar, um mannkosti og sál-
arlíf merkilegs alþýðumanns á
þeim tímamótumj er sjálfstæð-
isbaráttu íslendinga lauk með
því, að hér er stofnað lýðveldi
í annað sinn — án byltingar.
IV.
„Þróun er betri en bylting“!
eru niðurlagsorðin í bók Hákon-
ar, og þannig hefir líf hans ver-
ið: Stöðug þróun starfsemdar
og manngiidis.
Og ég held, að sú hin innri
þróun sé sönnust og mest nú,
síðan líkarnskraftarnir biluðu
að fullu. Svo sterkir eru innvið-
ir Hákonar í Borgum. í anda og
starfi hefir hann tileinkað sér
og lifað eftir grundvallarboðorði
Fjölnismanna:
„Skynsemin heimtar ekki að-
eins það sem nytsamt er og fag-
urt og satt, heldúr einnig það,
sem gott er og siðsamlegt“.
Hann hefir og lifað bæði í trú
og í skoðun og lýsir það sér
hvorttveggja í verkum hans og
lífsviðhorfum. Og sjálfur hefir
hann leitt sjálfan sig til þess að
ávaxta það pund sem honum
var gefið.
Börn hans þrjú: Heiðrún,
Skírnir og Björk, — fögur nöfn
—. stunda nú „smábýlið“ í
Borgum — sem er fjórða barnið
—, og föður sinn farlama stunda
þau með þeirri nærgætni’ og á-
stúð, að hann á varla orð til að
lýsa þakklæti sínu, og hver
gæfumaður hann er, vegna um-
hyggju barnanna. Þau epli hafa
þá ekki falliö langt frá eikinni!
Á sjötugsafmælinu streyma að
Hákoni og heimili hans hlýjar
kveðjur og óskir margra vina
og Jilýjastar frá þeim, sem
þekkja hann bezt, því að hann
er einn sá maður, sem ekki
smækkar heldur stækkar við
vaxandi kynni.
11. júlí 1944.
Metúsalem Stefánsson.
GIFT FÓLK A
GLAPSTIGUM
(Let’s Face It!)
Bráðskemmtilegur ame-
rískur gamanleikur.
BOB HAPE,
BETTY HUTTON.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
-GAMLA BÍÓ«
FJALLABÚARTVIR
(The Shephert of the Hills)
Stórfengleg litkvikmynd.
JOHN WAYNE,
BETTY FIELD,
HARRY CAREY.
Sýnd kl. 7 og 9.
Bönnuð yngri en 14 ára.
NÝ GIFT !
Gamanmynd með
ANN RUTHERFORD,
FRANK MORGAN,
JOHN SHELTON.
Sýnd kl. 5.
„PITTSBURGH44
Spennandi og viðburðarík
stórmynd.
Sýnd kl. 7 og 9.
Bönnuð yngri en 14 ára.
TÓNAR og TILHUGALÍF
(„Strictly in the Groove“)
Dans og söngvamynd með
Leon Errol, Ozzie Nelson
og hljómsveit hans.
Sýnd kl. 5.
Héraðssýnin g
(Framh. af 1. síðu)
B ó k í n
Fnndur Tinlands
eftir Henrik Tliorlacius er að koma út.
Bókin, sem er litógrapheruð í vandaðri o<* eigulegri utgáfu,
verður prýdd fjjölda litmynda, sem eru teiknaðar af hr. Kurt
Zier, teiknikennara Handíðaskólans. Eintök áskrifenda verða
árituð og tölusett. — Verð bókarinnar verður kr. 70,00.
Til þess að gefa nokkra hugmynd um sögulega uppistöðu bókarinnar, skal þetta tekið fram:
Söguleg drög að leikritinu eru bygg'ð á þessuin sögum: Eiríks
saga ráuða og' Grænlendinga þáttur, Þorfinns saga karlsefnis,
Eyrbyggjia saga, svo og hinu merka riti „Vínlandsferðir“ (Voy-
ages to Vinland) eftir prófessor Einar Ilaugen, dr. phil. — Enn-
fremur er tekin til meðferðar sú hugmynd sagnfræðinga, að nor-
rænir menn hafi haft samband við frumbyggjja landsins, |»á er
sunnar bjuggu, allt suður um Mexoeo.
Þettu verður mjöy merhilen bóh oi/ þurfa
sem allru flestir að eiynast hana.
Þar sem upplag hókarinnar er takmarkað,ættu menn að tryggja
sér eint. í tíma.
Sendið nafn yðar og lieimilisfang í BOX 1044, Reykjavík.
YmlandsútgáSan.
rvr
SHIPAUTCE RO
rrri
Esja
éé
99
austur um land til Siglufjarðar
og Akureyrar fyrri hluta næstu
viku. Flutningi til hafna frá
Húsavík til Norðfjarðar veitt
móttaka í DAG (föstudag)
og flutningi til hafna sunnan
Norðfjaröar árdegis á mánudag.
Pantaðir farseðlar óskast sótt-
ir strax.
Hlíðartöskur
nýjar gerðir.
II. Toft
Tiikynnmg
Viðskiptaráðið hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á laxi:
I. IVýr lax:
í heildsölu ....:............. kr. 7.00 pr. kg.
í smásölu:
a. í heilum löxum* ........... — 8.25 — —
b. í sneiöuin ................. — 10.00 — —
II. Reyktur lax:
í smásölu:
a. í heilum eða hálfum löxum .. — 20.35 — —
b. i bútum .................... — 22.50 — —
c. í beinlausum sneiðum ....... — 27.00 — —
Akvæði tilkynningar þessarar
með 13. júlí 1944.
koma til framkvæmda frá og
Reykjavík, 12. júlí 1944.
ar heyinu saman og strengir um
það tvo víra. Slíkir heybaggar
eru mjög handhægir í flutning-
um og slæðist ekkert frá þeim.
Þá var sýnd vélknúin sláttuvél.
Vél þessi mun vera sú fyrsta af
þessari gerð hér á landi. Þá var
að lokum sýnd rakstrarvél, er
tveim hestum var beitt fyrir, á
Þingeyrum er mikið af nýtízku
vinnuvélum.
Að endingu fóru fram veð-
reiðar, og voru hestar reyndir á
skeiði, 250 metra, og í stökki,
300 metra. Úrslit komu ekki til
greina í skeiðinu, því allir skeiö-
hestarnir stukku upp af því, en
í stökkinu varð fyrstur hestur
frá Bólstaðarhlíð.
Um kvöldið var dansskerrmt-
un að Sveinsstöðum.
FjalIIð og draiimuriiin
(Framh. af 2. síðu)
með okkar beztu skáldsagnahöf-
undum. Með „Fjallinu og
draumnum“ er ekki nema hálf-
sögð saga Herdísar Hermanns-
dóttur. Má því búast við að í
seinni hluta verksins skýrist bet-
ur það, er óljóst kann að virðast
nú um einstaka atriði sögunnar.
Georg Brandes segir einhvers-
Skólavörðustíg 5. Sfmi 1935.
BÆNDUR
Kaupi tog, hvítt og mislitt,
hæsta verði. Ekki afklippt.
Karólína Guðm.dóttir,
Ásvallagötu 10 A.
staðar: „Það þarf kjark til þess
að hafa listgáfu". „Fjallið og
draumurinn“ ber þess greinilegt
vitni, að Ólafur Jóhann á kjark-
inn í ríkum mæli. En þó að
gáfur og kjarki dragi langt til
afreka verður þeirra ekki full
not nema listamaðurinn eigi við
ákjósanleg kjör að búa. Þessi
stóra skáldsaga er árangur
tómstundarvinnu við hlið lýj-
andi brauðstarfs. Ætti nú að
mega vænta þess, að hinn
ódrepandi kjarkur og elja hins
unga, efnilega rithöfundar yrði
þeim, er ráða úthlutun skálda-
styrkja — og þó einkum öllu
lesandi fólki — hvöt til þess að
búa svo að honum, að hann fái
helgað ritlistinni starfskrafta
sína óskipta.
Leifur Haraldsson.
VERÐLAGSSTJÓRINN.
Iðnskolinn
Ákveðið hefir verið að ráða fastan kennara í teikn-
ingu við Iðnskólann í Reykjavík.
Umsóknir um stöðu þessa sendist fyrir 1. ágúst n. k.
til skólastjórans, Helga H. Eiríkssonar, Sóleyjargötu 7,
sem gefur nánari upplýsingar.
SKÓLAXEFXDIX.
Skrífstofur okkar
sem áður voru í suðurenda Hafnarhússins, eru flutt-
ar í norðurálmu sama húss, þar sem Hafnarskrifstof-
urnar voru áður.
Sölusamband isl. fiskframleiðenda.
TÍMINN er víðlesnasta auglýsingablaðið!