Tíminn - 28.07.1944, Page 2
290
TÓIINIV, föstwdagiim 28. Jálí 1944
73. blað
Rafmagnsmálín
Bráðabirgðaáætlanirnar, sem
milliþinganefndin í raforkumál-
um hefir látið birta undanfarið
um landsrafveituna, Vestfjarða-
rafveituna og Austfjarðarafveit-
una, hafa vakið mikla og óskipta
athygli um land allt. Áætlanir
þessar hafa sýnt það svart á
hvítu, að það er vel framkvæm-
anlegt að veita nær öllum lands-
mönnum afnot raforku, en hing-
að til hafa ýmsir vilja draga það
í efa, vegna of mikils kostnað-
ar.
Áætlanir þessar sýna, að með
núverandi verðlagi og kaupgjaldi
myndi öll þau mannvirki, er
gera þarf til viðbótar þeim, sem
fyrir eru, kosta um 192,1 millj.
kr., ef koma ætti raforkunni til
þeirra rúmlega 100 þús. manna,
sem ætlað er að hafa not af
þessum þremur rafveitukerfum.
Er þá reiknað með nýjum virkj-
unum og ■ öllum leiðslum og
spennistöðvum í sambandi við
dreifinguna. Kostnaður þessi
skiptist þannig: Landsrafveitan
162,6 millj. kr., Vestfjarðaraf-
veitan 14 millj. kr. og Aust-
fjarðarafveitan 15,5 millj. kr.
Rafmagnsverðið myndi verða í
samræmi við þennan stofnkostn-
að og annan kostnað, hjá lands-
rafveitunni 7,7—9,6 aurar á kíló-
wattstundina, miðað við 4000—
5000 klst. notkun, hjá Vestfjarða
rafveitunni 8,5—10,7 aurar og
Austfjarðarafveitunni 12,2—15,3
aurar. Til samanburðar má geta
þess, að 1943 kostaði kílówatt-
stundin í Reykjavík, miðað við
nær 5000 klst. notkun, rúma 11
aura.
Þess ber vel að gæta, að hér
er aðeins miðað við stríðsverð
á öllum stofnkostnaði. Ef reikn-
að er með helmingi lægra verði
á efni og fjórðungslækkun á
vinnulaunum, en þetta hvort
tveggja ætti ekki að vera reikn-
að of hátt eftirstríðsverð, þá
mun allur kostnaður umræddra
framkvæmda nema 117,1 'millj.
kr. er skiptist þannig: Lands-
rafveitan 99,3 millj. kr., Vest-
fjarðarafveijan 8,5 millj. kr. og
Austfjarðarafveitan 9,3'millj. kr.
Rafmagnsverð yrði þá á kíló-
wattstund, miðað við 4000—5000
klst. notkun, hjá Landsrafveit-
uimi 5,3—6,7 aurar, hjá Vest-
fjarðarafveitunni 5,7—7,2 aurar
og Austfjarð^rafveitunni 7,4—
9,3 aurar. Sé haft jafnaðarverð
fyrir allt landið verður það 5,5
—6,8 aurar.
Það sést fullkomlega á þessum
tölum, sem telja má nokkurn
veginn áreiðanlegar, að þessar
stórfelldu framkvæmdir eru vel
framkvæmanlegar og ættu að
geta orðið fjárhagslega traust
fyrirtæki, án þess að leggjast
of þungt á almenning. Þægind-
in fyrir fólkið og efling atvinnu-
lífsins, sem af þeim hlyti að
leiða, -verða líka aldrei metin til
fulls.
Ýmsum kann að virðast 117
millj. kr. stór upphæð, en eins
og högum okkar er nú háttað,
ætti engum að þykja það neitt
svimandi og fjarstæð upphæð,
þegar um jafn mikilsverða fram-
kvæmd er að ræða og hér. Menn
hafa tekið því með jafnaðargeði,
að nú er.verið að byggja litla
raforkustöð, sem vart fullnægir
einum minnsta kaupstaðnum,
fyrir 10 millj. kr. eða vel það, og
allir hafá getað orðið hjartan-
lega sammála um það. Hvað
eru þá 117 millj. kr. fyrir raf-
magn á svo að segja nær öllum
heimilum landsins?
Ýmsir kunna nú að segja: Það
verður ekkert úr framkvæmdun-
um samt. Allir flokkar keppast
um að lofa okkur rafmagni, Það
er sýnt fram á með áætlunum,
að það sé vel hægt, en svo ger-
ist aldrei neitt. Það er búið að
lofa okkur rafmagninu ár eftir
ár og aldrei kemur það.
Þessu er því að svara, að málið
er nú fyrst komið á þann rek-
spöl, að það er vel framkvæm-
anlegt og þjóðinni fjárhagslga
kleyft. Þess vegna ætti tími von-
brigðanna að vera liðinn. Úr því
mun líka verða skorið og vænt-
anlega ekki síðar en á næsta
þingi, hverjir það eru, sem hafa
Úr erindi Jóhannesar Bjarnasonar:
Aukín kornrækf, sykurrófnarækt og frysting grænmetis
Möguleikar til að auka fjölbreytni landbúnaðarframleiðsl-
unnar eru hér vafalaust margir og miklir, þó að enn séu þeir
ekki kannaðir til hlítar. Nýlega var minnst á möguleikana fyrir
heymjölsvinnslu. í útvarpserindum, sem Jóhann Bjarnason vél-
fræðingur flutti í vor, minntist hann á möguleika fyrir stórfellda
kornrækt, sykurrófnarækt og stóraukna grænmetisrækt, sem
byggist á því, að grænmetið verði geymt fryst. Þurrkun græn-
metis, sem nú er verið að reyna við Garðyrkjuskólann, getur
einnig haft mikla þýðingu fyrir þá atvinnugrein.
Tíminn flytur hér á eftir þann kafla úr erindi Jóhannesar,
sem fjallaði um þessi efni:
Kornræktin. #
Árlega flytjum við inn fóður-
bæti fyrir hundruð þúsunda
krória. Eins og fyr var sagt, er
lítill efi á því, að við getum með
góðu móti framleitt allan þann
fóðurbætir hér á landi, sem við
þurfum á að halda. Það hefir
verið fullsannað á undanförnum
árum, að korn þrífst hér alltaf,
að minnsta kosti það vel, að
hægt sé að nota það, sem fóður-
bæti og að líkindum til mann-
eldis líka.
Við þyrftum tiltölulega fáar
vélar, en töluvert landssvæði til
þessarar framleiðslu. Það
myndi auk þess skapa vinnu í
landinu, því að fólk þarf til að
lofað og lofað og vilja svo ekki
standa við loforðin. Ef slíkir
menn eða flokkar eru til, ættu
þeir ekki að eiga undankomu
lengur. Þjóðin verður síðan að
gera sínar ráðstafanir til þess
að láta ekki tefja málið lengur.
Fólkið, sem býr víðsvegar um
allt land, þarf ekki aðeins raf-
magn til að gera híbýli sín bjart-
ari og hlýrri, það þarfnast raf-
magnsins líka til að efla at-
vinnulíf sitt, sjávarútveg, land-
búnað og iðnað. Reykjavík sjálf
þarfnast líka miklu meira raf-
magns á komandi árum, en hún
hefir nú. Loks þarf að skapa hér
mikla atvinnu, þegar stríðsá-
standinu linnir. Rafvirkjan-
irnar myndu veita stórkost-
lega atvinnu. Vinnulaun eru
langmestur þáttur kostnaðarins.
Það ber því allt að þeim brunni,
að við megum ekki sleppa því
stóra tækifæri, sem við höfum
á næstu árum til áð lýsa og hita
upp heimilin og efla atvirinu-
lífið með þeirri orku, sem landið
sjálft lætur í té. Þ. Þ.
stjórna vélunum, bæði við rækt-
unina, uppskeruna og mölunina.
Þetta yrðu vitanlega ekki al-
veg sömu blöndur og nú eru
notaðar, en hægt væri að gera
þær jafn góðar eða betri, því hér
fengjum við þær nýrri.
Súmir furða sig ef til vill á
hvað þetta komi við vélanotkun
landbúnaðarins, en það eru ein-
mitt hin stórtæku kornyrkjuá-
höld Bandaríkjamanna, sem
myndu gera okkur kleift að
framleiða - fóðurbætinn fyrir
nógu lágt verð, til að standast
keppnina við þann innflutta.
Kornyrkja hefir fram að
þessu aðeins verið á tilrauna-
stigi, en nú eru nægar sann-
anir fengnar fyrir möguleikum
hennar, að rétt er að byrja á
stórrekstri hennar með full-
ko'mnustu vélum.
Sama er að segja um korn-
rækt til manneldis. Sömu vél-
arnar myndu notaðar þar. Þó ég
hafi talað hér um kornrækt al-
mennt, þá á ég þar bæði við
bygg, hafra, akurertur og fleiri
tegundir, sem hér má rækta.
Miljóna króna virði er árlega
flutt inn af þessum vörum.
Sykurrófnarækt.
Nýjungar í vélum munu gera
oss fært a? byrja margar nýjar
iðngreinar. Má þar nefna syk-
uriðnað, sem eitt dæmi. Sykur-
rófur hafa verið reyndar hér lit-
ilsháttar, sem mér er kunnugt
um og þrífast sæmilega. Jafnvel
þó sumarið reyndist of stutt,
væri hægt að sá þeim í vermi-
reiti snemma að .vorinu, og
planta þeim út þegar farið er
að sumra.
Til eru vélar, sem planta út
um 10,000 plöntum á klukku-
stund, og væri tiltölulega lítið
verk að planta í heilan akur.
Sykurrófnaræktin átti lengi
erfitt uppdráttar í samkeppn-
inni við sykurreyrinn. Hann er
framleiddur með ^ódýru eða
nærri verðlausu vinnuafli svert-
ingja og Indíána í hitabeltis-
löndunum. Vinnan við sykur-
rófuakrana var mikil og vinnu-
launin hærri. Þau lönd, sem
framleiddu sykur úr rófum, urðu
því að vernda hann með tollum
gegn reyrsykrinum.
En nú, 3—4 síðustu árin, hafa
orðið geysimiklar framfarir í
sykurrófnarækt Bandaríkjanna.
Ekki hafa aðeins verið fundnar
upp vélar, sem annast svo að
segja alla ræktun og uppskeru,
svo vinnan er orðin hverfandi
lítil, heldur hefir fræunum verið
breytt. Venjulega koma 3—4
plöntur úr hverju fræhulstri, sys
grisjun var nauðsynleg, og vár
það geysimikil vinna.
Nú hefir verið fundið upp á-
hald, sem klýfur hulstrið þann-
ig, að aldrei kemur nema ein
planta úr hverju, og öll grisjun
sparast.
Að þessum öllum framförum
og vélum athuguðum, tel ég það
mjög líklegt, að við gætum fram-
leitt sjálf allan þann sykur, sem
við notum í landinu. Verksmiðj-
ur þær, sem framleiða sykurinn
úr rófum, eru venjulega stórar,
ög jafnvel þær minnstu fram-
leiða meira en okkar árlega
neyzla nemur. En þetta er það
mikið nauðsynjamál, að sjálf-
sagt er að nánari athuganir á
máli þessu fari fram sem fyrst.
Grænmetisrækt.
Niðursuða grænmetis og á-
vaxta hefir verið stór atvinnu-
grein víða erlendis. En þetta
hefir breyzt mikið á síðari ár-
um, síðan kæliskápar og frysti-
klefar urðu almennings eign.
Nýr stóriðnaður hefir risið upp,
sem er frysting grænmetis og
ávaxta. Með frystingu er matur-
inn bæði hollari og bragðbetri
og mikið útgengilegri vara.
Frystun grænmetis hefir fleygt
svo fram, að það er mikið að
útrýma niðursoðnu grænmeti.
Möguleikarnir fyrir íslenzka
garðrækt eru því ótakmarkaðir.
Á okkar stutta sumri gætum
við framleitt nægilegt grænmeti
til neyzlu allt árið.
Koma þarf upp pökkunar-
Árétting
Eitir Halldór Kristjánsson, Kirkjubóli
ísafold og Vörður birtir hinn
27. maí þ. á. grein upp úr Lækna- '
blaðinu. Hún er eftir Ólaf Ó.
Lárusson lækni og er um slysið
mikla í Vestmannaeyjum í fyrra,
þegar 9 menn létust af áfengis-
eitrun og sá 10. varð örkumla-
maður. Læknirinn segir frá þess-
um hörmulegu atburðum. Þorri
þeirra manna er létust, voru á
bezta aldri, sumir hraustmenni,
sem sjaldan eða aldrei varð mis-
dægurt og síður en svo óreglu-
menn segir hann. Hann ræðir
um það hve eitrið sé hættulegt
og illt að koma lækningum við
til gagns.
„Vörnin gegn þessari ólyfjan
er í því falin að leggja sér hana
aldrei til munns,“ segir læknir-
inn síðan. Þetta eru sönn orð,
sem vert er að taka undir og
stöðvum, sem pakka og frysta
grænmetið í hæfilega stóra
pakka til sölu beint úr frysti-
húsinu. Eru það mikil þægindi
jafnt fyrir neytendur sem fram-
leiðendur. Framleiðendur þurfa
ekki að óttast að-það, sem ekki
selst á sumrin og haustin af
grænmeti, skemmist og þurfi að
kasta, því að það er fryst
þangað til markaður er fyrir það.
Hins vegar fær neytandinn
hollt grænmeti allan ársins
hring. Mun það lýsa sér í bættu
heilsufari alþjóðar.
Það þarf því að koma upp
nokkrum hraðfrystihúsum i
þeim hverfum og sveitum, sem
bezt eru fallin til garðræktar
og auka þar garðræktunina eins
og hægt er. Síðan má flytja vör-
una frysta á markaðinn eftir
hentugleikum.
Þó ég hafi hér talað mest um
frystingu á grænmeti, þá gildir
það sama um frystingu á kjöti
og fiski og fleiri matvöru.
Frystitækninni og meðferð
matar til frystingar hefir fleygt
syo fram á síðari árum, að fryst-
ingin er orðin lang vinsælasta
matargeymslu aðferðin.
Frystitækin sjálf hafa lækkað í
verði og eru nú smíðuð í stærð-
um, sem hentar heimilum, sem
vilja koma sér upp smá kæli-
klefum, eða kælfskápum, sem eru
smærri, en hentugir mjög og
einnig orðnir almenningseign í
Bandaríkjunum.
Reksturskostnaður þessara véla
er hverfandi lítill, einkum þar,
sem rafmagn er fáanlegt. Hægt
er að gera hvaða herbergi sem
er að kæliklefa. Oft er smá
kjallaraherbergi hentugast. Þá
þarf að einangra þau og koma
fyrir kælitækjum, sem eru lítil
fýrirferðar.
leggja áherzlu á. En þá má ekki
sjást yfir hitt, að löngunin í tré-
spíritus o. þ. h. kemur ekki til
sögunnar fyrri en eftir það, að
menn hafa lært að drekka. Það
er sannmæli, sem Ólafur Lárus-
son segir fyrr í grein sinni:
„Gjafari gleðinnar, sem þeir
hafa ætlað að dýrka að þessu
sinni, eins og oft áður, var
snöggur að taka hamskiptum."
Þeir, sem fórust með svo hörmu-
legum hætti höfðu oft dýrkað
vínguðinn áður. Það er sjálfsagt
rétt hjá lækninum eins og ann-
að og það er kjarni þessa máls.
Vörnin gegn þessari hættu er því
sú, að byrja aldrei að dýrka vín-
guðinn, — leggja sér aldrei
áfengi til munns.
Það er áreiðanlegt að alls stað-
ar þar, sem áfengisnautn er svo
almenn sem hér á landi nú, verð-
ur drykkjuhneigð svo alvarleg
og sterk hjá einhverjum, að þeir
leggja sér til munns sjórekið
áfengi o. fl. þ. h., sem engin
trygging er fyrir að ekki sé ban-
vænt. Bindindismenn einir eru
þar ekki í néinni hættu. Um
þetta má nefna fjölmörg dæmi,
þó að það sé ekki gert hér. En
þegar hvert blaðið af öðru birtir
grein um þetta átakanlega stór-
slys, þá er rétt að benda á upp-
tökin, sem víðast og rækilegast.
Jafnframt má svo minna Slysa-
varnafélag íslands á það, að
áfengisnautn fylgir mikil og
margháttuð slysahætta á ýms-
an veg, sem alltaf er óþörf, og
ættu því þau félagssamtök að
styðja starfsemi okkar bindind-
ismanna.
Læknirinn í Vestmannaeyjum
endar grein sína með því að
segja, að þótt fórnin þar sé dýr,
væri liún eigi til einskis, ef eng-
inn íslendingur legði sér þetta
eitur til munns hér eftir. Til þess
að stuðla að þeirri framför mun
grein hans skrifuð og fer-góðum
mönnum svo jafnan. Ég vil taka
undir orð læknisins, en aðeins
árétta það skýrar, að það mun
seint lánast að kenna drykkju-
mönnum undantekningarlaust,
að láta áfengi, sem lagt er að
fótum þeirra, ónotað. Þegar all-
ir, sem ganga um strendur ís-
lands, eru orðnir bindindismenn
er hættan liðin hjá, en heldur
ekki fyrr. AÖ því ber því að vinna
að svo verði sem fyrst. Eina
slysavörnin, sem hér dugar til
full er almenningsbindindi. Það
er fjarlæg hugsjón, en ekki ógöf-
ugri végna þess. Og ef hörmung-
ar samtíðarinnar get engan vak-
ið til skilnings á þessari þörf, —
hvað dugar þá?
Halldór Kristjánsson.
B ókaircgair;
Rit um búnaðarmál
Tímanum hafa nýlega borizt þrjú ársrit, sem öll eru
helguð landbúnaðinum á eínn eða annan hátt. Þau hafa öll
að vanda mikinn fróðleik að geyma og þyrftu að ná til
sem flestra bænda, ásamt Frey og Búnaðarritinu. Bænd-
unum er það nauðsynlegt að geta fylgzt sem bezt með öllu
því, sem er að gerast á sviði búnaðarins, og það er hlutverk
þessara rita að fræða þá um það. Jafnvel eitt atriði, sem
þeir læra af lestri þeirra, getur margborgað margra ára
andvirði þeirra, enda er mjög reynt að stilla því í hóf.
Hér verður getið aðalgreina þessara rita, en þau eru Árs-
rit Ræktunarfélags PTorðurlands, Búfræðingurinn og Garð-
yrkjuritið.
Ársrlt RæktunarféK
Norðurlands,
Ársrit Ræktunarfélags Norð-
urlands, sem er hið 40. í röð-
inni, hefst á skýrslum um starf
Ræktunarfélagsins og tilrauna-
stöð þess á síðastl. ári, og lýkur
á skýrslu um starfsemi Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar. Að öðru
leyti birtast í því þessar greinar:
Ólafur Jónsson, sem er rit-
:stjóri ársritsins, ritar mjög ít-
arlega og rökfasta grein,. sem
hann nefnir: Söngurinn: um
öngþveitið í landbúnaðinum.
Hann dregur þar saman í stuttu
máli helztu árásirnar, sem
landbúnaðurinn hefir sætt
seinustu missirin, og hre'kur þær
síðan lið fyrir lið af mikilli rök-
vísi og þekkingu. Hið fjölþætta
efni greinar hans verúur eigi
rakið í stuttu máli, en rfett þyk-
ir að benda hér á nokkur aðal-
atriði.
Ólafur sýnir mjög glöggt fram
á, hve fjarstætt það sé að tala
um kyrrstöðu í landbúnaðinum,
„því að sannleikurinn muni sá,
að undanfarin 20 ár hafi fram-
farir í landbúnaði okkar verið
óvenjul. örar, skakkaföll, mistök
og sóun verðmæta, vegna forsjár
leysis, ódugnaðar og vankunn-
áttu minni en á öðrum atvinnu-
sviðum þjóðarinnar og félagsleg
þróun landbúnaðarins í fastara
og skipulagslegra formi en
nokkurs annars atvinnuvegar 1
landinu“. Hann segir ennfrem-
ur, að skrafið um miðaldaá-
stand landbúnaðarins sé næsta
furðulegt, þar sem „opinberar
skýrslur sýni, að síðustu tvo
áratugina hefir ræktað land
aukizt um helming, garðyrkjan
4 til 5 faldazt í hverju meðal-
ári, stórum og mörgum áveitu- 1
fyrirtækjum verið hrint í fram-
kvæmd, sláttuvélar, rakstrarvél- j
ar og snúningsvélar vel á vegi
með að útrýma handvinnuá-
höldum í heilum byggðalögum,
nærri hver einasti bær reistur
frá grunni með nýmóðins sniði
í sumum sveitum, framleiðslunni
breytt úr sauðfjárrækt í naut-
griparækt í heilum héruðum og
fjölda sláturhúsa, frystihúsa og
mjólkurbúa af nýjustu gerð kom
ið á fót.“ Þrátt fyrir þetta sé að
vísu margt ógert enn, en bændur
hafi sýnt það seinustu áratug-
ina, að þeir munu einnig bæta
fljótt úr því, ef eigi verður brugð
ið fæti fyrir þá.
Þá víkur Ólafur að þvi, sem
sagt hefir verið um verðhækk-
un landbúnaðarvaranna undan-
farin ár og allar ádeilurnar, sem
bændur hafa hlotið fyrir það.
Hann sýnir fram á, að verð-
hækkanirnar séu eðlileg og ó-
hjákvæmileg afleiðing síhækk-
andi kaupgjalds, er hafi hækk-
að hlutfallslega mun meira en
afurðaverðið síðan stríðið hófst.
Hann segir, að ekkert sé undar-
legt, þótt bændur í Ameríku geti
framl. ódýrara smjör en bændur
hér, þar sem „kaup landbúnað-
arverkafólks í Bandaríkjunum
sé sem næst V3—% af kaupi
því, sem hér. er greitt“. Hann
segir, að sagt hafi verið, að
lækka mætti vísitöluna um 40
stig, ef flutt væri inn erlent
kindakjöt, en þá virtist mun
betra „að stemma á að ósi“ og
flytja inn erlent ódýrt verkafólk,
lofa því innlenda að lifa á háa
kauptaxtanum, því að þá væri
'sennilega hægt að lækka vísi-
j töluna um 100 stig eða meira.
j Hann sýnir fram á, að verðupp-
bæturnar á útflutta kjötið séu
aðeins stríðsfyrirbæri, því að allt
bendi til, að undir venjulegum
viðskiptaaðstæðum muni kjöt
ekki ólíklegri útflutningsvara en
fiskur, og þess vegna séu þessar
uppbætur nauðsynlegar til að
framleiðslan dragist ekki óeðli-
lega saman. Loks bendir hann
á, að uppbætur ríkissjóðs á inn-
anlandsverðið séu ekki uppbæt-
ur til landbúnaðarins, heldur
séu þær greiddar til að lækka
vísitöluna, aðallega vegna sjáv-
arútvegsins. Ef vísitölunni væri
ekki haldið þannig niðri, myndi
útflutningur sjávarútvegsins
stöðvast og virtist þvi eðlilegast,
að fella uppbætur á innanlands-
verðið alveg niður og láta það
hækka að sama skapi, en greiða
svo tilsvarandi fé í uppbætur á
útfluttar sjávarafurðir, ef það
þætti nauðsynlegt. Fleira væri
æskilegt að geta nefnt af rök-
semdum Ólafs í þessum efnum,
en segja má, að þær beinist all-
ar að þeirri höfuðniðurstöðu, að
vöntun betra skipulags og full-
komnari búnaðaraðferða eigi
ekki nema lítinn þátt í hinum
mikla framleiðslukostnaði land-
búnaðarins i samanburði við
kaupgjaldið.
Þá minnist Ólafur á þá kenn-
ingu, að haganlegra væri að reka
hér landbúnað á verksmiðju-
grundvelli. Hann telur hana
hreinan barnaskap og segir m.
a.: „Mér vitanlega hefir slíkt
búrekstrarform hvergi heppn-
ast, svo vit sé í, nema þar, sem
um er að ræða mjög einhliða
aku'ryrkjubúska,p, sem rekinn er
á víðlendum, samkynja og frjó-
sömum akuryrkjuflatneskjum.
Því erfiðari og breytilegri sem
skilyrðin eru frá náttúrunnar
hálfu og því meiri stund, sem
lögð er á kvikfjárrækt, því frá-
leitara er að hugsa sér búskap
rekinn með einhvers konar sam-
yrkju- og verksmiðjusniði. Þessu
til sönnunar má bendá á bú-
skapinn 1 nágrannalöndum okk-
ar, Noregi, Svíþjóð og Dan-
mörku. Bændur þessara landa
eru ekki taldir neinir búskuss-
ar, en reynslan þar hefir sýnt,
að það eru tiltölulega smá býli,
sem nota aflvélar lítið, en
hesta og hestaáhöld mikið,
sem bera sig bezt. Stórrekstur-
inn ber sig lakar, fæðir færri í
hlutfalli við landrými og ræk-tar
jörðina ver“. Ólafur segist af
þessum og fleirum ástæðum
draga það ^tórlega í efa, að afl-
vélanotkun við landbúnaðinn
myndi lækka framleiðslukostn-
að hans, og því væri a. m. k.
nauðsynlegt „að þaulreyna þetta
rekstursform fyrst og - láta
reynsluna skera úr“ áður en
farið væri að taka það upp al-
mennt og tala um það sem fyr-
irmynd.. í ályktunarorðum sín-
um segir hann: „Ekkert raun-
hæft liggur til grundvallar
þeirri kenningu, að byggðaskip-
un okkar þurfi gerbreytingar
eða vélknúinn stórrekstur sé
æskilegt búskaparform 1 íslenzk-
um landbúnaði. Hins vegar er
sjálfsagt, þar sem hentug skil-
yrði eru til framleiðslu, sem
krefst lítils landrýmis, að reyna
l