Tíminn - 18.08.1944, Page 4
*
316
TÍMIM, föstiidaginn 18. ágúst 1944
79. blað
ÚR B/ENIIM
Hestamannafélagið Fákur
efnir til síðari kappreiða sinna á
sunnudaginn kemur. Fara þær fram á
skeiðvellinum við Elliðaár og hefjast
klukkan 3. Keppt verður í 350 metra
hlaupi, 300 metra hlaupi og 300 metra
skeiði. í stökkkeppninni verða fimm
hestar á hvorri vegalengd, en á skeiði
verða reyndir þrír.
Leikhúsmál,
2.—3. tölublað 4. árgangs, er nýkomið
út. Efni þess er: Guðrún Indriðadóttir
eftir Lárus Sigurbjörnsson, íslenzk leik
list VIII. eftir Harald Björnsson, Vopn
guðanna eftir H. Bj., Pétur Gautur
eftir Gísla Ásmundsson, Gullna hlið-
ið á Akureyri eftir H. Vald., í álögum
eftir Sturlu Sigurðsson, Útvarpsleik-
ritin eftir Kr. Gunnarsson, Endur-
minningar um Max Reinhardt eftir
Melittu Urbantschitsch, Kvikmyndir
eftir Klemenz Jónsson, Leiklist á Sauð-
árkróki eftir Helga Konráðsson, Að-
alfundur Leikfélags Reykjavíkur og
fleira. — Eigandi og útgefandi ritsins
Leikhúsmál, er Haraldur Björnsson
leikari.
Sjómannablaðið Víkingur,
ágústhefti er komið út. Efni: Sjálf-
stæði í orði — sjálfstæði á borði (Ás-
geir Sigurðsson), Skipasmíðar (Guð-
finnur Þorbjörnsson), Botnvörpuskip
framtíðarinnar (H. J. ),Sigur, Svíþjóð-
arbátarnir (Haraldur Jónsson), Blik-
uðu segl er byrinn þandi, kvæði (Sig-
urður Ingimundarson), Ingvar Guðjóns-
son (F. H. Berg), Man nú enginn
Grænland (Henry Hálfdánarson), smá-
saga eftir Guy Maup’assant, Á lejð til
sjávar (Þorst. Steinsson), Jafet Sig-
urðsson skipstjóri sjötugur og ýmislegt
fleira.
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
FORTÍÐIN ER EKKI GLEYMD.
Þá er fróðlegt að sjá, hvernig
Gáinn forðast að minnast á
Sjálfstæðisflokkinn sem fyrr-
verandi stjórnarflokk, en þó hef-
ir hann verið riðinn við stjórn
frá 1939—1942. — Halda menn,
að þetta sé af tilviljun? Auðvitað
ekki. Þetta er skemmtilegt tákn
þess, að Gáinn skammast sín
fyrir að minnast á stjórnarferil
Sjálfstæðisflokksins, og það eru
fleiri en Gáinn, sem þannig
hugsa. Honum er sannarlega
vorkunn. — Aðferðin, sem hann
hefir til þess að komast hjá því,
að minnast þessara endema, er
þá einnig mjög einföld. Það er
ekkert annað en að strika bara
út allt, sem hefir gerzt á árun-
um 1939—1942. Þetta gæti verið
hagstætt fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn, en ég er ekki viss um, að
aðrir télji allt mega gleymast,
sem gerðist á þessum árum.
FÁVÍSLEG RÖK.
Ein rök Morgunblaðsins því
til sönnunar, að sala Kveld-
úlfstogaranna sé ríkinu og þjóð-
inni óviðkomandi, er, að salan
sé sambærileg við það, að sam-
vinnumenn við Eyjafjörð hafa
með tilstyrk félagssamtaka
sinna, K. E. A., reist gistihús á
Akureyri, er þeim var brýn nauð-
syn að eiga vegna marghátt-
aðra erinda, er menn úr hérað-
inu eiga iðulega á Afcúreyri, og
stundardvala þeirra þar. Segir
Morgunbl., að gistihúsið muni
byggt fyrir stríðsgróða og féð
dregið út úr rekstri K. E. A.
Hér er mjög málum blandað
hjá Morgunblaðinu. Kveldúlfur
hefir selt aðalframleiðslutæki
sín, og enginn veit, hvert fara á
með peningana. Hins vegar hafa
menn ekki heyrt þess getið, að
K. E. A. hafi selt verzlunar-
búðir sinar, sláturhúsið né
mjólkurstöðina til þess að fá fé
í gistihúsrekstur og því síður að
fé hafi verið dregið út úr nauð-
synlegri starfsemi með slíkum
sölum til þess að byggja lúxus-
villur yfir kaupfélagsstjórann.
En hvaðan eru komnir pening-
arnir, sem Kveldulfsbræður nota
til þess að byggja nýjar sumar-
villur fyrir of fjár við Þingvalla-
vatn, ofan á allar sumarvillurn-
ar við Haffjarðará?
ÓSKAMMFEILNI. ^
Það má kallast óskammfeilni á
háu stigi, þegar borin eru á borð
fyrir lesendur önnur eins rök og
þetta: Vegna þess, að K. E. A.
lætur reisa gistihús til þess að
fullnægja brýnni þörf er rétt-
mætt, að Kveldúlfur selji togar-
ana og ráðstafi andvirðinu eftir
geðþótta. Það er líka í mesta
máta ógeðfellt, þegar fyrirtæki,
sem var skuldugast allra fyrir-
SAGA TIL AÆSTA
BÆJAR.
(Something to Shout
About)
För forseta ftíl Vesftm.-
eyja og Austurlands
Forseti íslands, herra Sveinn Björnsson, kom meff Ægi til
Reykjavíkur á miffvikudaginn úr för sinni til Vestmannaeyja
og Austurlands. Var honum hvarvetna tekiff meff kostum og
kynjum, þar sem hann kom. Kom glöggt í Ijós, hvílíks trausts
hinn fyrsti innlendi þjóffhöfðingi íslendinga nýtur meffal þegna
TJARNARBÍÓ
Skemmtileg og íburðar-
mikil söngva- og dans-
mynd.
sinna.
Forsetinn lagði af stað frá
Reykjavík síðdegis á föstudag í
síðastliðinni viku og kom til
Vestmannaeyja árdegis á laug-
ardag. Sigfús Johnsen bæjarfó-
geti- og Hinrik Jónsson bæjar-
stjóri tóku þar á móti honum
og buðu 'hann velkominn, og
þakkaði forseti árnaðarorð
þeirra í stuttri ræðu. Snæddi
forseti síðan í samkomuhúsinu
og flutti eftir það ræðu á svöl-
um þess. Síðan var haldið inn
í Herjólfsdal, og þar var honum
sýnt bjargsig. Þegar forseti gekk
til bryggju, fylgdi honum mikill
mannfjöldi, er kvaddi hann með
húrrahrópum, en Vestmanna-
kórinn söng. . __
Frá Vestmannaeyjum hélt for-
seti viðstöðulaust til Neskaup-
staðar í Norðfirði og kom þang-
að miðdegis á mánudag. Sigldu
bátar þeir, sem heima voru, til
móts við Ægi og fylgdu honum
til hafnar. Jónas Thorodd-
sen bæjarfógeti fagnaði for-
setanum á bryggjunni, og var
gengið þaðan heim til bæjar-
fógeta. íþróttamenn stóðu heið-
ursvörð á bryggjunni. Stundu
síðar ávarpaði forseti bæjarbúa
og aðra, er þar voru saman-
komnir, í skrúðgarði bæjarins,
litil telpa rétti honum blómvönd
og kór söng. Bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar hélt forseta síðan
kaffisamsæti í barnaskólahús-
inu og voru þar fluttar allmarg-
ar ræður. Eftir það fylgdi mann-
söfnuðurinn forseta til skips og
kvaddi hann á bryggju með söng
og árnaðarhrópum.
Til Seyðisfjarðar kom forset-
inn á sunnudagskvöldið. Var
fyrst gengið að húsi Hjálmars
Vilhjálmssonar bæjarfógeta, þar
sem Erlendur Björnsson bæjar-
stjóri flutti ræðu, en kór
söng. Forseti þakkaði. Eftir þetta
gekk forseti í hús bæjarfógeta.
Um kvöldið sat hann veizlu bæj-
arstjórnar Seyðisfjarðar og
sýslunefndar Norður-Múlasýslu.
Þar fluttu ræður bæjarfógeti,
bæjarstjóri, Karl Finnbogason
skólastjóri, frú Vilhelmína Ingi-
mundardóttir, Björn Hallsson
bóndi á Rangá, Gunnar Gunn-
arsson rithöfundur á Skriðu-
klaustri, Gísli Helgason bóndi í
Skógargerði, Halldór Jónsson og
Gunnlaugur Jónsson, forseti
bæjarstjórnar Seyðisfjarðar, en
Jóhannes Arngrímsson sýslu-
skrifari flutti forseta kvæði.
Frá Seyðisfirði fór forseti ár-
degis á mánudag landleið upp á
Fijótsdalshérað, að Hallorms-
stað. Þar þáði hann hádegisverð
i boði sýslunefndar Suður-Múla-
sýslu. Þar fluttu ræður Kristinn
Júlíusson sýslumaður, Gunnar
Gunnarsson rithöfundur, Gutt-
ormur Pálsson skógarvörður,
Sveinn Jónsson bóndi á Egite-
stöðum, Þorsteinn Jónsson
kaupfélagsstjóri, Leifur Bjö'rns-
son, Skúli Þorsteinsson skóla-
stjóri og frú Sigrún Blöndal
skólastýra, auk forseta. Að máls-
verð loknum var skoðuð gróðr-
tækja fyrir stríð, talið verst
stjórnað og haldið á floti með
því að leggja sjötta hluta alls
sparifjár landsmanna í hættu,
er nú, er það hefir um skeið ekki
komizt hjá því að raka saman
fé fremur en önnur togarafélög,
að bera sig saman við K. E. A.
Annað er fyrirtæki fjölskyldu-
sjónarmiðanna, nokkurn veginn
það óheilbrigðasta, sem þekkist
í íslenzku fjármála- og athafna-
lífi og ,éetti að vera til ævarandi
viðvörunar. Hitt fyrirtækið hefir
vaxið upp og þróazt á grund-
velli félagsþroska og samvinnu
— þeirrar hreyfingar, sem ýmsir
merkustu stjórnmálamenn telja
líklegasta til þess að ráða bót
á vandamálum mannkynsins
eftir þessa styrjöld. Það hefir
lyft fjölmörgum félagslegum
grettistökum og jafnan verið
rekið á hinum heilbrigðasta og
traustasta grundvelli. Slík fyrir-
tæki ætti engum að haldast uppi
að leggja að jöfnu.
arstöðin á Hallormsstað og síðan
ekið yfir Fagradal til Reyðar-
fjarðar. Átti forseti þar skamma
viðdvöl, og ávarpaði Þorsteinn
kaupfélagsstjóri hann í skrúð-
garðinum á Búðareyri, en forseti
hélt ræðu til fólksins, er þar var
samankomið. Eftir þar var hald-
ið'til Eskifjarðar, þar sem for-
seti snæddi kvöldverð hjá sýslu-
mannshjónunum. Um kvöldið
ávarpaði forseti íbúa Eskifjarð-
arkauptúns, en séra Þorgeir
Jónsson svaraði fyrir hönd Esk-
firðinga. Steig forseti eftir það
á skipsfjöl.
Til Hafnai' í Hornafirði kom
forseti á þriðjudagsmorgun og
tók Þorleifur Jónsson, fyrrver-
andi alþingismaður, í Hólum
þar á móti honum. Var ekið upp
í Almannaskarð, en þaðan er út-
sýn unaðsfögur, svo að vart get-
ur aðra fegurri á landi hér, og
síðan haldið að Hvömmum.
Þar bauð Þorleifur í Hólum for-
seta velkominn í héraðið með
ræðu fyrir utan barnaskólahús-
ið. Forseti ávarpaði síðan fólk-
ið. Þar flutti og ræðu séra Ei-
ríkur Helgason í Bjarnanesi. Var
síðan ekið til Hafnar og setzt að
kaffidrykkja hjá Bjarna Guð-
mundssyni kaupfélagsstjóra.
Ráðherrabúsfaðrínn
Forsætisráðherrabilstaðurinn
við Tjarnargötu hefir verið af-
hentur utanríkisráðuneytinu til
umráða. Hefir gagngerð viðgerð
verið látin fara fram og nokkr-
ar breytingar gerðar á húsinu.
Húsið var í upphafi bústaður
ráðherra íslands, eftir að stjórn-
in var flutt inn í landið, og varð
það síðar bústaður forsætisráð-
herra, þegar ráðherrum fjölgaði.
Hafði þá forsætisráðherra sem
æðsti embættismaður þjóðarinn-
ar að sjálfsögðu á hendi alla
risnu af hálfu ríkisstjórnarinn-
ar.
Nú eru stjórnarhættir breytt-
ir, og innlendur þjóðhöfðingi
hefir að miklu leyti tekið við
þeirri risnu, sem forsætisráð-
herra hafði áður á hendi. Með
því að ísland hefir t,ekið í sínar
hendur utanríkismál sín hefir
risna ríkisstjórnar^gagnvart er-
lendum mönnum af eðlilegum
ástæðum færzt yfir á utanríkis-
ráðherra, og með tilliti til þessa
hefir þessi fyrirkomulagsbreyt-
ing verið gerð. — Héldu utan-
ríkisráðherrahjónin fyrsta síð-
degisboð sitt í húsinu á þriðju-
daginn. Meðal gesta voru for-
setafrúin, ráðherrar og konur
þeirra, erlendir sendiherfar,
konur þeirra og starfslið, yfir-
menn hers og flota, blaðamenn
o. fl. -
Héraðsháftíðir . .
(Framh. af 1. síðu)
í skálum, sem félögin hafa
keypt á Hrafnagili, og eru með
rúmbeztu samkomusölum lands-
ins. Eru þar með sköpuð skil-
yrði til þess að halda mjög fjöl-
mennnar samkomur, hvernig
sem veður er. Hafa félögin i
hyggju að fegra þenna sam-
komustað sinn og hefir hann öll
skilyrði til þess að verða einn
hinn ákjósanlegasti þar um
slóðir.
Héraðshátíð Framsóknarfé-
laganna í Austur-Húnavatns-
sýslu var haldin á Blönduósi, og
hófst hún kl. 4 í samkomuhús-
inu, sem var þéttskipað sam-
komugestum.
Hannes Pálsson á Undirfelli,
formaður Framsóknarfélags
Austur-Húnvetninga, setti sam-
komuna með ræðu og stjórnaði
henni. Runólfur Björnsson á
Kornsá mælti fyrir minni sam-
vinnuhreyfingarinnar, í tilefni
af aldarafmæli hennar. Þá sýndi
Guðmundur Tryggvason kvik-
myndir ýmsar, bæði fræðslu- og
skemmtimyndir. Síðan fluttu
ræður Jens Hólmgeirsson fram-
kvæmdastjóri og Pálmi Hannes-
JANET BLAIR
DON AMECHE
JACK OAKIE.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hvítar
BLÚSSUR
úr Satini og prjónasilki
* komnar aftur.
H. Toft
Skólavörffustíg 5. Sími 1035.
PYRINATE
Nýtt amerískt meðal sem eyðir
lúsum og nitum þeirra á 15 mín-
útum, og er þó hættulaust, líka
fyrir börn.
30 gramma glas ..... kr. 5.00
Fílabeinskambar .... — 4.50
Sendum um land allt.
SEYÐISFJARÐAR APÓTEK.
Héraðsskólínn
í Varmahlíð í Skagafirði tekur
til starfa í byrjun októbermán-
aðar n. k. og stendur í 6 mánuði.
Kenndar verða sömu náms-
greinir sem i 1. bekk í gagn-
fræðaskólum með það fyrir aug-
um, að duglegir nemendur geti
að námstímanum loknum tekið
próf upp í 2. bekk í gagnfræða-
og menntaskólum. /
Skólinn verður jafnt fyrir
pilta og stúlkur.
Inntökuskilyrði: Gott siðferði,
líkamshreysti og fullnaðarpróf
frá barnaskóla.
Umsóknir um skólaveru send-
ast til skólastjórans séra Gunn-
ars Gíslasonar í Glaumbæ Jyrir
miðjan september n. k.
Skólaiiefncliii.
Nokkur
.falleg
rósótt
KJÖLAEFNI
NÝKOMIN
H. Toftt
Skólavörðustíg 5. Sími 1035.
Innrás . .
(Framh. df 1. síðu)
mjög fegnir og reyna hvarvetna
að greiða sem mest fyrir þeim
og verða þeim að sem mestu
liði. Er sú aðstoð vitanlega ó-
metanleg.
Það er auðráðið, að hersveitir
Bandamanna ætla að sækja eft-
ir ströndinni vestur að Rón. Er
þaðan leið greiðfær upp Rón-
dalinn. En þó innrásin hafi
gengið mjög að óskum, þá er
þess þó. vart að vænta, að þeim
takist það næstu daga, því að
sjálfsagt eru varnir Þjóðverja á
þessari leið allöflugar, auk þess
sem það hlýtur að taka land-
göngusveitirnar nokkurn tíma
að búa svo um sig, að þeim
verði kleift að hefja stórsókn
langt inn í land. Hins vegar
er aftur á móti að vænta, að
varnir Þjóðverja í Suður- og
Mið-Frakklandi bili fljótt, þegar
innrásarherirnir hefja vel
undirbúnu sókn á hendur þeim.
son rektor. Að lokum var stiginn
dans.
Samkoman fór hið bezta fram
og ríkti mikil ánægja með hana
hjá öllum.
»—....GAMLA BÍÓ-o—o—<«...
ast
og' hneykslismál.
ROSALIND RUSSEIiL,
" WALTER PIDGEON.
Sýnd kl. 7 og 9.
Henry Aldricli,
ritstjjóri.
(Henry Aldrich, Editor)
JIMMY LYDON
RITA QUIGLEY.
Sýnd kl. 3 og 5.
Bönnuff yngri en 16 ára.
i—nýja .
FLÓTTAFÓLK
Áhrifamikil mynd, gerð
eftir hinni frægu bók Nevil
Shute: The Pied Piper.
MONTY WOOLLEY,
ANNE RAXTER,
RODDY MACDOWALL.
„HI, BUDDY“ klúbburinn.
Skemmtileg dans- og
söngvamynd, með:
HARRIET HILLIARD,
ROBERT PAIGE,
DICK FORAN.
Sýnd kl. 5 og 7.
---------
Dráttarvextir
Dráttarvextir falla á tehjju- ot/ eignar-
shatt ársins 1944 hafi gjjöld þessi ehhi
verið fireidd að fullu í síðasta ittt/i
föstudaginn 8. septemher nœsthom-
andi.
A það, sem þá verður ót/reitt, reihn-
ast dráttarvextir frá fijjalddafia, sem
var 15. jjúní síðastliðinn.
Reykjavík, 15. ágúst 1944.
T ollsftj óraskrifstofan,
Hafnarstræti 5.
Töhum upp í tfctty;
Amerískar Dragtir
Kápur allar stærðir, Kjóla og' Hrengjafrakka.
LÍFSTYKK JABÚÐIN
Hafnarstræti 11. — Sími 4473.
Vegna vlðgerða
verða Þvottalaugarnar lokaðar frá miðvikudeginum
16. ágúst og út vikuna.
Ilæjarverkfræðing’nr.
Búðarstúlka
óskast, helzt vön.
Upplýsingar og meðmæli, ásamt kaupkröfu sendist
KAIJPFÉLAGI STYKKISIIÓLMS
fyrir 1. september.
Innritun í Iðnskólann
í Reykjavík
hefst fimmtudaginn 24. ágúst í Iðnskólanum, kl. 7,30 síðdegis.
Námskeið til undirbúnings undir inntökupróf og önnur haust-
próf hefst föstudaginn 1. sept. kl. 6,30 síðdegis.
Námskeiðsgjald er kr. 50,00 fyrir hverja námsgrein og greiðist
við innritun. Skólagjald er kr. 500,00 yfir veturinn og greiðist
helmingur þess við innritun.
Skólast j ór inn.