Tíminn - 05.09.1944, Blaðsíða 4

Tíminn - 05.09.1944, Blaðsíða 4
336 84. blað tJU BÆIVUM Opinberir starfsmenn héldu fjölsóttan fund í Sýningarskála listamanna á föstudagskvöldið. Þar var samþykkt að krefjast launahækk- unar og endurskoðunar á lögunum um verkfallsrétt opinberra starfsmanna, en hitt er rangt, sem sagt hefir verið i dagblöðum bæjarins, að gerð hafi ver- ið krafa um venjulegan verkfallsrétt. Septembermót frjálsíþróttamanna hófst á íþrótta- vellinum á sunnudaginn var. Sett var eitt íslandsmet. Það var í 80 m. hlaupi kvenna, og gerði það Hekla Árnadóttir úr Ármanni, er rann skeiðið á 11,3 sek. í 800 m. hlaupi náði Kjartan Jóhanns- son, í. R. bezta tima, er náðst hefír hérlendis, 2 mín. 1,6 sek., en íslands- metið í þessu hlaupi var sett erlendis. Yflrleitt náðist góður árangur, þótt ekki væru fleiri met sett. Trúlofun. Nýlega hafa opinberað trúlofun sína ungfrú Þórný Tómasdóttir frá Hofsósi og Jón Kjartansson á Siglufirði. Umferffaslys. Á miðvikudaginn var ók íslenzk bif- reið á brezkan flugmann skammt frá mótum Melavegar og Pálkagötu. Péll hann á götuna og meiddist talsvert, en bifreiðastjórinn ók brott, án þess að skeyta um hann. Tekizt hefir þó að hafa upp á honum. Eru líkur til, að hann hafi verið ölvaður, er þetta gerð- ist. Kveldúlfur selur fjórða togara sinn. Nýlega hefir Kveldúlfur losað sig við f jórða togara sinn, að þessu sinni Gull- topp. Kaupandi skipsins er Hængur h.f. (Gfsli Jónsson). Hinn nýi eigandi mun breyta um nafn á skipinu og verður nafn þess eftirleiðis Frosti. Hins vegar ’ hefir Hængur /h.f. selt togarann Bald- ur til Bíldudals og verður hann gerður út þaðan. Kaupandi Baldurs er Njáll h.f. á Bíldudal. Á víðavangl. (Framh. af 1. síSu) seinast, þótt ekkert sé meint með því. „SIGUR“, SEM ÞARFNAST ENDURBÓTA. Forustugrein Mbl. á sunnu- daginn ber þess merki, að blað- inu finnst orðið eitthvað bogið við þann „sigur“, er Sjálfstæðis- menn telja sig hafa unnið í verkalýðsfélögunum með því að hjálpa kommúnistum að slíta sambandi félaganna við Alþýðu- flokkinn og skapa þar „skoðana- frelsi“,einsog landsfundur Sjálf- stæðismanna orðaði það í fyrra. Mbl. segir orðrétt: „Þegar fámenn kommúnista- klíka hefir í hendi sér að segja upp kaupsamningum án þess að leita samþykkis verkamann- anna og þelr eru ekki hafðir með í ráðum um samningu uppkasts að nýjum samningi, og vinna er loks stöðvuð án þess að álits þeirra sé leitað, þá er orðið eitt- hvað meira en lítið bogið við hlutina. En þannig er nú upp- lýst að olíuverkfallið er til kom- ið! Með slíku atferli staðfesta kommúnistar það eitt, að þær grunsemdir, að fyrir þeim vakti aðeins að skapa glundroða og upplausn, eru á rökum reistar, og jafnframt kemur í ljós nauð- syn þess að'" enn muni þörf að endurbæta skipulag stéttasam- takanna." Já, það er víst áreiðanlegt, að „sigurinn", sem Sjálfstæðis- menn hafa unnið í verkalýðs- félögunum, þarf mikilla endur- bóta við og æðimikil spurning, hvort þær endurbætur verða ekki um seinan. HVOR STJÓRNIN HEFIR RUNNIÐ LENGRA? Morgunblaðið skrifar langa grein um það síðastl. laugardag, að núv. ríkisstjórn hafi runnið frá flestum þeim tillögum i dýr- tíðarmálunum, sem hún hefir borið fram, þeghr hún hefir mætt andstöðu. Tíminn skal ekki deila um þetta atriði við Mbl., en vel mætti spyrja eftir því, hvort núv. stjórn hafi nokkurntíma runnið eins langt og stjórn Ól- afs Thors, sem setti metnað sinn í að framkvæma gerðardómslög- in en bar svo sjálf fram frv. um afnám þeirra eftir fáar vikur, vegna smávægilegrar andstöðu kommúnista. Hvenær myndi ekki Sjálfstæð- isflokkurinn renna þanníg aft- ur, þótt hann tæki á sig ein- hverja bráðabrigðarögg eins og í gerðardómsmálinu? Aðalfundur Læknalélag'sms • (Framh. af 3. síðu) yfir 40.000 íbúa skuli ekki eiga neitt sjúkrahús, nema Farsótta- húsið, þar til nú nýlega, að hann tók við .sjúkrahúsi Hvítabands- ins, sem er raunverulega engin lausn í málinu.Með tilliti til þess, að allmargir tiltölulega fá- mennir kaupstaðir á landinu hafa komið sér upp myndar- legum sjúkrahúsum virtist sum- um fundarmönnum sem Reykja- víkurbær hefði getað gert betur. Var sagt 'frá átakanlegum dæmum þess hér úr Reykjavík, hvernig stundum hefði gengið að koma sjúklingum með bráða sjúkdóma, sem þegar í stað þurftu læknisaðgerða við (t. d. botnlangabólgu) í sjúkrahús. — Hins vegar var það viðurkennt að forráðamenn þeirra sjúkra- húsa, sem starfa í’ Reykjavík, gerðu yfirleitt allt, sem í þeirra valdi stæði, til að leysa vand- ræðin í hverju einstöku tilfelli. Allir fundarmenn voru á einu máli um það, að við svo búið mætti ekki standa. Samþykkt var að kjósa 5 manna milli- þinganefnd í málið. Þessir hlutu kosningu: Sig. Sigurðsson berklayfirlæknir, Helgi Tómas- son dr. med., Guðm. Karl Pét- ursson yfirlæknir á Akureyri, próf. Guðm. Thoroddsen og Páll Sigurðsson. Þá var samþykkt áskorun um, að reistur yrði hjúkrunar- kvennaskóli hið allra bráðasta. í stjórn félagsins voru kosn- ir: Magnús Pétursson héraðs- læknir formaður. Páll Sigurðs- son ritari. Karl Sig. Jónasson gjaldkeri. Valtýr Albertsson varaformaður. Athyglísverd ummæli (Framli. uf 1. síðu) Lögbergi, — hefir eigi talið sér annað fært en að geta þessara ummæla hins ameríska stór- blaðs, en samt með þeirri kurt- eisi og drengskap, sem því er lagið. Það birtir öll ummæli hins ameríska blaðs, nemá sein- ustu málsgreinina. er Tíminn hefir feitletrað í því tilefni, en segja má, að hún sé þungamiðja ummælanna, því að þar kemur gleggst fram viðurkenning blaðsins á íslendingum og hin- um íslenzku gestum. Ef hið ameríska blað hefði óskað eftir, að nokkuð yrði birt íslending- um af ummælum þess, hefir það áreiðanlega verið þessi þáttur þeirra, þar sem þau túlka bezt hug blaðsins. En.Mbl. sýnir því kurteisi sína með því að fella þau niður vegna þess, að í þeim felst viðurkenning á tveim mönnum, foi'setanum og utan- ríkismálaráðherranum, sem nokkrum forkólfum Sjálfstæðis- flokksins er illa við. Er það meira en víst, að slík blaðamenríska muni hafa gagnstæð áhrif við vesturför forsetans og ráðherr- ans á álit hins gagnmerka ame- ríska blaðs á íslendingum, en það er viðurkennt fyrir að fylgja þeirri reglu að láta andstæðinga sína njóta sannmælis. Má vissu- lega segja, að allt landkynning- arstarf Morgunblaðsins, sé á sömu bókina lært. Og hvernig finnst mönnum horfa um samstarf stjórnmála- manna, þegar aðalblað stærsta stjórnmálaflokksins, sem á að leiða samningaumleitanir, ræðst þannig gegn áhrifamiklum for- ustumanni eins og það hefir gert gegn Vilhjálmi Þór í þessu máli og það á sama tíma og samning- arnir standa yfir? Leiffrétting. Sæmundur Priðriksson fr?.mkvæmda- stjóri óskar að þetta sé tekið fram: í viðtali við mig, er birt var í síðasta blaði Tímans, hafa slæðst inn nokkrar villur við prentun. Þar segir að allt svæðið miHi Jökulsár og Skjálfanda- fljóts hafi ekki verið tekið fyrir til fjárskipta, sökum þess að nægi- leg f járveiting (prentað fjársklpti) hafi ekki fengist. En á það reyndi raunar ekki á þessu stigi málsins. Ástæðan var sú að sauðfjársjúkdómanefnd og atvinnumálaráðherra töldu heppilegra að taka fyrir minna svæði með tilliti til öryggis, kostnaðar og möguleika á að fá líflömb í staðinn. Þá er ekki rétt með farið að öllum girðingum verði lokið þarna áður en fjárskipti hefjist. Þær verða að vísu langt komnar. Nokkru af fénu verður slátrað í Kelduhverfi og afurðir fluttar til Kópaskers, en ekki öllu á Húsavík, eins og ætla mætti eftir birtingu við- talsíns að dæma. Auk þessa voru prent- villur i greininni. — TlMEVX, |»rl8indaginn S. scpt 1944 9££iíðiiié vestúr og norður til Þórshafnar síðari hluta þessarar viku. Tek-’ ið á móti flutningi til Norður- landshafna frá Þórshöfn til Ingólfsfjarðar í dag. Pantaðir farseðlar óskast sótt- ir ekki síðar en á morgun. TJARNARBÍÓ — ÞEGAR KOIVUR HITTAST (When Ladies Meet) JOAN CRAWFORD, GREER GARSON, ROBERT TAYLOR, HERBERT MARSHALL. Sýnd kl. 7 og 9. SJÖUNDA FÓNARLAMBIÐ (The 7th Victim). TOM CONWAY, JEAN BROOKS. Sýnd kl. 3 og 5. Bönnuð yngri en 16 ára. Framtíðarjörð til sölu oR laus til ábúðar í leausí eða næsta vor. Jörðinni fylgir m. a.: 200 hesta tún. 6—800 hesta engi, mest slétt, auk þess mikiff að góðu ræktunarlandi. Samgöngur eru góffar við öruggan markaffsstaff. Tilboð óskastfr-send til Effvalds Malmquist, Akureyri og gefur hann allar nánari upplýsingar. — Áskilinn réttur að taka einu tilboði effa hafna öllum. Tilkynníng . írá Frystíhúsinu Herðubreíð Allir, sem eiga- vörur í kæligeymslu hér, verða að taka þær í þessari viku. Frystihúsíð Herðubreíð. Aðvörun Rafmagnseftirlit ríkisins vilí, að gefnu tilefni, vekja athygli rafvirkja og annara, er selja rafmagnslampa, á því að sala lampa, sem eru með óskrúfuffum lmpa- höldum — Swanlampahöldum — er meff öllu óheimil, nema til notkunar í skipum. Jafnframt eru þeir, sem lampa kaupa, varaffir viff því aff taka viff lömpum meff slíkum lampahöldum. Rafmagnseítírlit ríkísíns. Dráttarvextír Dráttarvextir falla á tekju- og eignarskatt ársins 1944, hafi gjöld þessi ekki verið greidd að fullu í síð- asta lagi föstudaginn 8. september næstkomandi. Á það, sem verður ógreitt, reiknast dráttarvextir frá gjalddaga, sem var 15. júní síðastliðinn. Reykjavík, 15. ágúst 1944. Tollstjóraskrifstofan Hafnarstræti 5. Einkaleyfí Hagnýting íslenzkra einkaleyfa nr. 59, á kælitæki, nr. 60, á útbúnaði á kælitækjum, og nr. 61, á kælitæki, stendur til boða árið 1944. Lysthafendur semji við: Frosted Footls Company Ine., 250 Park Avenue, New York, U. S. A. T t M IIV X er víðlesnasta anRlýsInRablaðið! ——— GAMLA BÍÓ«~—o—«—o.. Vídureigfnin á N. - AllantshaSi (Action in the North- Atlantic) Spennandi mynd um þátt kaupskipanna í baráttunni um yfirráðin á höfunum. Humphrey Bogart, Raymond Massey. Sýning kl. 4, 6,30 og 9. Bönnuð yngri en 12 ára. ► NÝJA EÍÓ. Ástir skáldsins (The Loves of Edgar Allan Poe). Fögur og tilkomumikil mynd, er sýnir þætti úr ævisögu skáldsins Edgar Allan Poe. Aðalhlutverk: JOHN SHEPPERD VIRGINIA GILMORE, LINDA DARNELL. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Innilegustu þaJckir fœri ég börnum minum, tengda- börnum, systkinum, sveitungum og öllum öðrum, er minnt- ust mín á 60. fœðingardegi mínum 21. ágúst síðastliðinn, með heimsóknum, heillaskeytum og gjöfum. Knararhöfnt 1. sept. 1944 HJÖRTTJR EGILSSON. Frá Sttjrimanashólanum: Námskeíð í siglíngafræði fyrir hiff minna fiskimannapróf verður aff forfalla- lausu haldiff á Akureyri og I Vestmannaeyjum á vetri komanda. Umsóknir sendist fyrir 15. september, fyrir Akureyrarnámskeið, Aðalsteini Magnússyni, skip- 9 stjóra á Akureyri, og fyrir Vestmannaeyjanámskeið Einari Torfasyni, stýrimanni effa Ársæli Sveinssyni, útgerffarmanni, Vestmannaeyjum. Shólastjjóri Stýrimannashólans. Frá Stýrímannaskólanum Nýir nemendur, sem fengiff hafa loforff um skóla- vist á vetri komanda, verffa aff gefa sig fram viff undirritaffan effa tilkynna þátttöku sína fyrir 15. september. Aff öffrum kosti mega þeir búast viff aff affrir verffi teknir í þeirra staff. Shólastjóri Stýrimannashólans. Tílkynnmg um bæjarhreinsun Samkvæmt 86. gr. Lögreglusamþykktar Reykjavíkur er óheimilt að skilja eftir á almannafæri muni, er valda óþrifnaöi, tálmunum eða óprýði. Hreinsun og brottflutningur slikra muna af bæjar- svæðinu fer fram um þessar mundir á ábyrgð og kostnað eiganda, en öllu því, sem lögreglan telur lítið verðmæti í, verífur fleygt. Ennfremur er hús- og lóðareigendum skylt, skv. .92. gr. lögreglusamþykktarinnar, að sjá um að haldið sé hreinum portum og annari óbyggðri lóð í kring- um hús þéirra, eða óbyggðri lóð, þar á meðai rústum. Hreinsun af svæðinu, er takmarkast af Garðastræti, Ljósvallagötu og Reynimel annars végar og Hring- braut og vesturhöfninni hins vegar, hefst 8. septem- ber n. k. Verða þá fluttir af því svæði slíkir munir, er að ofan getur, hafi þeim eigi verið ráðstafað af eigendunum áður. Ijöfirenlustjórinn í Reyhiavíh, . 2. sept. 1944. Austurbæjarskólinn Skólaskyld í september eru börn 7 til 10 ára að aldri, fædd 1934 til 1937, að báðum árum meðtöldum. Börn á þessum aldri, sem sókn eiga í Austurbæjarskólann, komi til viðtals miðvikudaginn 6. þ. m. sem hér segir: 10 ára börn (fædd 1934) kl. 9. 9 ára börn (fædd 1935) kl. 10. 8 ára börn (fædd 1936) kl. 11. 7 ára börn (fædd 1937) kl. 14. * Kennarar komi og taki hver á móti sínum bekk. Shólastjórinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.