Tíminn - 12.09.1944, Qupperneq 4
344
86. blað
TÍMIM, briðjndagiim 12. sept. 1944.
tT R BÆNUM
Hækkun rafmagnsverðsins.
Rafmagnsstjóri hefir lagt til, að
hækka rafmagnið stórlega eða sem
svarar 200 kr. á hverja fjölskyldu í
bænum. Sjálfstæðismenn og kommún-
istar hafa tekið þeirri tillögu vel, þegar
rætt hefir verið um hana i bæjar-
stjórninni, en jafnaðarmenn hafa ver-
ið henni andvígir. Tillagan hefir ekki
enn verið afgreidd endanlega. Það
væri alveg eftir íhaldinu og kommún-
istum að auka þannig dýrtíðina, þeg-
ar það er mest aðkallandi að reyna
að lækka hana og útlit er fyrir, að
fjárhagur almennings fari heldur að
þrengjast.
Kveðjuhljómleikar
Eggerts Stefánssonar.
Kveðjuhljómleikar Eggerts Stefáns-
sonar, sem frestað var í ágúst fram i
sept. verða í kvöld kl. 8,30. Hljóm-
leikunum var frestað sökum margra
áskorana, þeirra, sem vildu eiga kost
á að koma, en voru í ágúst fjarverandi
úr bænum. Eins og kunnugt er, aðstoða
þeir Lárus Pálsson leikari og Vilhjálm-
ur Þ. skólastjóri, en undirleik annast
Sigvaldi Kaldalóns tónskáld og Gunnar
Sigurgeirsson panóleikari, sem tók að
sér undirleik vegna forfalla Páls ísólfs-
sonar.
Listsýning.
.Jóhann Briem listmálari og Marteinn
Guðmundsson myndhöggvari opnuðu
sýningu á málverkum og höggmynd^
uni síðastl. laugardag í Listamanna-
skálanum. Jóhann Briem sýnir 27 mál-
verk og 38 vatnslitamyndir úr íslenzku
þjóðlífi og þjóðsögum. Marteinn Guð-
mundsson sýnir 16 höggmyndir, flest
brjóstiíkön. Sýningin verður opin dag-
lega frá kl. 1—11 síðdegis.
Ný íslandsmet í íþróttum.
í síðastliðinni viku setti hláupagarp-
urinn Kjartan Jóhannsson tvö ný met,
í 400 metra hlaupi á miðvikudagskvöld-
ið og 300 metra hlaupi á fimmtudags-
kvöldið. Hljóp hann 400 metra á 51,2
sek. (eldra metið 52,3 sek. sett af hon-
um sjálfum í sumar) og 300 metra á
37,1 sek. (eldra metið, 37,2, sett af
Brynjólfi Ingólfssyni). Næstur Kjart-
ani í 400 metra hlaupinu var Brynjólf-
ur Ingólfsson á 52 sek., sem einnig var
betri tími en hið eldra íslandsmet. Á
sunnudagskvöld fór fram keppni í 1000
metra hlaupi. Sigraði Kjartan Jó-
hannsson enn á 2:42,2 sek. Annar varð
Brynjólfur Ingólfsson á 2:43,8 sek.
Þriðji varð Sigurgeir Ársælsson á 2:
44,4 sek.
Tveir liðsforingjar
í ameríska hernum hér, íslenzkir að
ætterni, hafa nýlega verið hækkaðir
í tign. Eru það Dóri Hjálmarsson, er
áður var majór, en nú geröur að of-
ursta, og Ragnar Stefánsson, sem áður
var kapteinn, en hefir nú verið gerður
majór. — Þeir Dóri og Ragnar eru
báðir af austfirzkum ættum. Hafa þeir
báðir eignazt marga vini þau, ár, sem
þeir hafa dvalið hér, og getið sér í
hvívetna hinn ágætasta orðstír.
Úr álögum.
Síðari hluti bókarinnar „Úr álögum"
eftir Jan Valtin er nú að koma út á
vegum Menningar- og fræðslusam-
bands alþýðu.
Föðurnafn
Þórarins á Skúfi, höfundar kvæðis-
ins, er birtist á 3. síðu blaðsins í dag,
hefir misprentast í nokkrum hluta upp-
lagsins. Þórarinn er Þorleifsson. Beðið
er velvirðingar á þessum mistökum.
Þorsteinn H. Hannesson
söngvari,
er dvalið hefír í Englandi að undan-
förnu við söngnám er kominn heim.
Verður hér þó aðeins skamma stund
að þessu sinni, því að hann hyggur enn
á framhaldsnám erlendis. Þorsteinn
hefir getið sér hinn bezta orðstír við
nám sitt.
Dómnefnd
Skv. 9. grein reglugerðar um
Háskóla íslands hefir dómnefnd
verið skipuð til þess að dæma
um vísindastörf, ritsmíðar, rann-
sóknir og skýrslur um námsferil,
sem umsækjendur um dósent-
embættis við guðfræðidelid Há-
skólans hafa lagt fram með um-
sóknum sínum.
Um dósentembættið sækja
séra Björn Magnússon prófastur
að Borg, séra Gunnar Árnason,
Æsustöðum og séra Sigurbjörn
Einarsson, Reykjavík.
Dómnefndina skipa fimm
menn, tveir tilnefndir af
kennslumálaráðherra, tveir af
háskólaráði og einn af guðfræði-
deild Háskólans. GuSgfræðideild
hefir tilnefnt Ásmund Guð-
mundsson prófessor, og er
hann formaður nefndarinnar,
kennslumálaráðherra herra Sig-
urgeir Sigurðsson, biskup, og séra
Bjarna Jónsson og háskólaráð
séra Árna Sigurðsson og séra
Friðrik Rafnar vígslubiskup.
Nefndin mun taka til starfa
næstu daga. /
Svlkamylla
kommúnista . . .
(Framh. af 1. síðu)
ræmingu, eins og þeir vilja vera
láta, heldur fyrir beinni kaup-
hækkun, sem á að vera upphaf
allsher j arkauphækkunar.
Verkfallið hélt því áfram, en
þar sem stjórn Dagsbrúnar hef-
ir eigi fundizt, að það bæri til-
ætlaðan árangur, hefir hún nú
fyrirskipað samúðarverkfall hjá
því olíufélaginu, sem strax gekk
að kröfum hennar og á því síður
en svo skilið að vera grálega leik
ið af henni. En svona mikill er
ofsi stjórnar iDagsbrúnar við
að knýja fram stórfellt flutn-
ingaverkfall, er m. a. myndi
stöðva alla mjólkurflutninga til
bæjarins og valda stórkostlegum
erfiðleikum við haustslátrunina.
f verkfallsmálunum undan-
farið hefir það glöggt komið í
ljós, þótt sjaldan hafi það sézt
betur en í þessu tilfelli, að
kommúnistar hafa þá aðferð að
láta einstaka stéttahópa knýja
fram hærra kaup en aðra, og
þegar því takmarki er náð, eru
hinir sendir fram strax á eftir
til að heimta hærra kaup til
samræmingar við þá, sem á und-
an eru komnir. Þaning getur
kauphækkunar-„skrúfan“ alltaf
haldið áfram. Þess vegna eru
mánaðarkaupsmenn olíufélag-
anna ekki hafðir með í samn-
ingunum í vetur. Þeir eru teknir
sérstaklega síðar til þess að
knýja fram hærra kaup en aðrir
mánaðarkaupsmenn í Dags-
brún, en þegar þeir væru búnir
að fá sitt fram, myndu vitan-
lega hinir mánaðarkaupsmenn-
irnir sendir fram í víglínuna og
látnir heimta samræmingu! Síð-
an kæmu daglaunamennirnir og
þannig yrði það látið ganga koll
af kolli. Olíufélögin eru vitan-
lega af ráðnum hug höfð þann-
ig í sérflokki, því að stöðvun
hjá þeim er mjög tilfinnanleg
fyrir landsmenn.
Meðal einstakra manna hafa
atvinnurekendur sætt nokkru
aðkasti fyrir það að hafa eigi
látið undan þessum kröfum í
olíudeilunni, þar sem þær séu
ekki stórkostlegar og nái eigi
til margra manna. Þetta hefir
ekki sízt komið fram í röðum
atvinunrekenda sjálfra. Þeir,
sem þannig hugsa, þurfa að
gera sér ljóst, að málið er ekki
svo einfalt, heldur er hér um að
ræða tilraun til almennrar
ka'uphækkunar, og atvinunrek-
endur sýndu lítinn þegnskap
með því að fallast á hana,
þar sem m. a. lækkun fisk-
verðsins er nú skammt fram-
undan. En það mega atvinnu-
rekendur eiga víst, að láti þeir
mánaðarkaupsmenn olíufélag-
anna fá hærra kaup en aðrir
mánaðarkaupsmenn í Dagsbrún
hafa, þá leiðir það til nýrrar
almennrar kauphækkunar-
bylgju.
Það eina, sem dugir, er að
veita kommúnistum hæfilegt
viðnám.
Svíþjóðarbátarnir
(Framh. af 2. síðu)
frammi í skrifstofu Fiskifélags-
ins, og að m önnum yrðw’þar
gefnar allar upplýsingar þessu
viðvíkjandi, og varð félagið að
sjálfsögðu við þeirri ósk. Komu
margir umsækjendanna að leita
upplýsinga um skipin, og að
nokkrum þeirra hafi verið neit-
að um upplýsingar, er ekki rétt.
Að sjálfsögðu voru umsækjend
ur látnir sitja fyrir með að
kynna sér allt viðvíkjandi skip-
unum, svo að aðrir óviðkomandi
aðilar komust ekki þar að, enda
var þess tæplega að vænta, að
þeir, sem ekki höfðu sinnt því
að sækja um skipin á tilsettum
tíma, gætu komið til greina sem
kaupendur.
Um leynd hefir því ekki ver-
ið að ræða í þessu sambandi.
Að enginn íslenzkur fiskimað-
ur vilji líta við skipum þessum
fær heldur ekki staðizt. Samkv.
upplýsingum atvinnumálaráðu-
neytisins hafa þegar endurnýj-
að umsóknir sýnar milli 30 og
40 umsækjendur.
Meginástæðanna fyrir því, að
fleiri hafa ekki ákveðið sig, mun
vera að leita í því, að margir
hafa átt erfitt með að tryggja
greiðslu og telja sig eiga illt með
að festa kaupin fyrr en vitað er
um hvort vænta megi styrkja
eða hagkvæmra lána út á þessa
báta. Ennfremur hafa tímarnir
breytzt æði mikið frá því á s. 1.
vetri og hefir það vafalaust haft
sln áhrif á ýmsa umsækjend-
urna.
Skal það, sem hér hefir sagt
verið, látið nægja um skipin og
það, sem þeim viðkemur, en
dylgjur og getsakir í garð ein-
stakra manna falla algerlega um
sjálft sig og er því óþarfi að
svara þeim sérstaklega.
Davíð Ólafsson.
Á vföavangi.
(Framh. af 1. síðu)
ÓLÍKINDALÆTI IIIlÆSN-
ARANS.
Sjaldan hefir Mbl. hræsnað
meira áberandi, en í forustu-
greininni á laugardaginn var.
Þar segir:
„Svo sem kunnugt er, var það
Sjálfstæðisflokkurinn, sem
gekkst fyrir samkomulagsvið-
jræðum flokkanna. Þessar við-
ræður hafa miðazt við það, að
allir flokkar ynnu saman. En
meðan þessar viðræður fara
fram má daglega lesa í blöðum
skæting til forystumanna Sjálf-
stæðisflokksins fyrir það, að þeir
skuli vera að ræða við kommún-
ista.“
Eins og kunnugt er, hefir
Sjálfstæðisflokkurinn aldrei ver-
ið ásakaður fyrir að ræða við
kommúnista, heldur byrjaði Jón
Pálmason að ásaka Framsókn-
armenn fyrir að ræða við
komrriúnista og í því tilefni var
bent á ýmiskonar samvinnu
Sjálfstæðismanna við kommún-
ista, sem er vitanlega allt annað
og meira en viðræður, þar sem
reynt er að afhjúpa hinn sanna
tilgang kommúnista.
Það er líka kunnara en frá
þurfi að segja, að hafi nokkurt
blað að undanförnu flutt skæt-
ing um andstæðinga sína, hefir
það verið Morgunblaðið, og
það hefir ekki flutt um þá
menn smáskæting, heldur
borið þeim verstu sviksemi og
landráð á brýn. Er þar skemmst
að minna á skrif þess um Vil-
hjálm Þór! Svo þykist blaðið
hvergi nærri koma og andvarpar
sáran yfir framkomu hinna
blaðanna!
Erlent yfirlit
(Framh. af 1. síðu)
á hverri stundu úr þessu. Einnig
hafa Rússar undirbúið stórsókn
til Krakár, en þaðan er greið-
fært inn í þýzku Schlesíu.
Bandamenn gera hins vegar
harðvítugar tilraunir til að ná
þýzku borginni Achen við landa-
mæri Belgíu, en hún myndar
eina af meiriháttar varnar-
stöðvum Sigfriedlínunnar. Gæti
svo farið, ef Þjóðverjar misstu
Achen, að þeir yrðu að yfirgefa
stóran hluta Siegfriedlínunnar
og hörfa alveg vestur fyrir Rín,
því að annars ættu þeir innikró-
un á hættu.
Þaö atriði, sem er einna óút-
reiknanlegast, þegar rætt er um,
hversu lengi varnir „innra virk-
isins“ muni endast, er mót-
stöðuþróttur þýzks almennings.
Sumir telja, að hann muni
bogna og bresta, þegar ósigurinn
sé bersýnilegur, en aðrir telja,
að þýzkur almenningur muni
rísa upp og berjast með hernum,
líkt og í Rússlandi. Reynslan
sker úr, hverjir réttara mæla, en
veiti þýzkur almenningur veru-
lega mótspyrnu, getur það mjög
tafið fyrir Bandamönnum.
J
Þér skuluð lesa
þessa bók
TJARNARBÍÓ
Við erum ekki
ein
(We Are Not Alone)
Hrífandi sjónleikur eftir
hinni víðfrægu skáldsögu
James Hiltons.
PAUL MUNI
JANE BRYAN
FLORA ROBSON '
Sýnd kl. 7 og 9.
í HJARTA OG HUG
(Always in My Heart)
Sýnd kl. 5.
-GAMLA BÍÓ.
HETJIJR
Á HELJARSLÓÐ
(The North Star)
ANNE BAXTER,
DANA ANDREWS,
WALTER HUSTON.
Sýnd kl. 7 og 9
Bönnuð yngri en 16 ára.
VELHEPPNAÐ ÆVINTÝRI
(Mexican Spitfire’s Blessed
Event).
Lupe Veles — Leon Errol.
Sýnd kl. 3 og 5.
► NÝJA EÍÓ.
Erkiklaufi
(„The Magnificent Dope“)
Fyndin og fjörug gaman-
mynd.
HENRY FONDA,
LYNN BARI,
DON AMECHE.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bréf til bænda.
(Framh. af 3. síðu)
ýmsum höfnum, og margar
þeirra voru þá svo að segja mat-
arlausar. Látið nú ekki slíkt
henda aftur. Minnið stjórnir
kaupfélaganna á það, að hafa
nægan vetrarforða, svo menn og
skepnur þurfi ekki að svelta, ef
ísinn kæmi aftur, og svo færi
að hann lokaði nú alveg sigling-
um á vissar hafnir. Og þið, sem
búið langt frá kaupstað og við
sámgöngutæki, sem gera ómögu-
legt að draga að sér þungavöru
eftir að vetur er lagstur að, birg-
ið heimilin strax í haust upp
með nægan vetrarforða, bæði
handa mönnum og skepnum, og
gleymið ekki að vetur getur orð-
ið harður, og þið þurfið að eiga
vetrarforða á heimilunum.
Þetta, sem ég nú hefi verið að
segja við ykkur, vegna þessara
tveggja ísafoldargreina, gefur
mér að síðustu ástæðu til að
benda á það, að við eigum að
reyna að gera okkur sjálfstæðari
í því að fóðra fénað okkar, en
nú er, þ. e. koma því svo fyrir
að við þurfum minna að kaupa
erlendis frá en við þurfum nú.
Þetta þarf að verða með því að
frjóvga jarðveginn með bakterí-
um, sem sa^fna köfnunarefni
loftsins og gera það nothæft fyr-
ir jurtirnar, rsékta næringar-
efnaríkari jurtir á túnunum en
nú er gert, verða minna háður
veðrum með verkun töðunnar,
og með því að rækta þær kúa-
ættir, sem mjólka jafnt, fara
aldrei í mjög háa nyt, en skila
þó milli 4000—5000 kg. ársnyt.
Þær kýr þurfa til muna minna
aðkeypt fóður erlent en hinar,
sem skila jafnmikilli ársnyt, en
gefa hana mesta á skemmri
tíma, og þá mikið meira á dag.
Það tekur vitanlega langan tíma
áður en sú breyting verður hér
á, að hennar fari að gæta veru-
lega, en að henni verðum við
að vinna og þá gæti svo farið
eftir 20—30 ár, að taðan verði
orðin það betri en hún er nú,
að hægt verði að tala um að
lítið þurfi að kaupa af erlendum
fóðurbæti. En eins og nú er hátt-
að, verða þeir, sem ráða yfir inn-
flutningnum að gæta þess vel,
að flytja nægjanlegt fóður til
landsins, og ég hygg að það þurfi
aldrei minna en 7000—8000 smá-
lestir fyrir veturinn í vetur og
um helmingur þess þarf strax
í haust að komast á þær hafnir,
sem hætta getur verið á að ís
loki, en hinn helmingurinn
mætti að nokkru leyti vera að
smá koma allan veturinn.
Fyrst ég er að skrifa ykkur,
vil ég að lokum nota tækifærið
og minna ykkur á, að taka
hrökin af kúnum í haust og gefa
þeim með haustbeitinni, svo að
þær geldist ekki óeðlilega.
Kær kveðja, ykkar einlægur.
Páll Zóphóníasson.
Kaldhreínsað
Þorskalýsí
Heil og hálfflöskur með vægu
verði handa læknum, hjúkruns
arfélögum, kvenfélögum og
barnaskólum.
— Sendum um land allt. —
SeyðísfjarðarApótek
GÆFAN
fylgir trúlofunarhringunum
frá
SIGURÞÓR, HAFNARSTR. 4.
Sent mót póstkröfu.
SendiS nákvœmt mál.
g nýjar bækur
sem ísafoldarprentsmiðja sendir í bóka-
verzlanir:
1) Rauðskiima, V. hefti.
2) íslenzk frseði,
menningarsamband Frakka og íslendinga, eftir pró-
fessor Alexander Jóhannesson.
3) Við Sólarupprás. '
Smásagnasafn eftir skáldkonuna Hugrúnu.
4) Hve glöð er vor æska,
sögur fyrir unglinga eftir Frímann Jónasson kennara
á Strönd í Rangárvallasýslu.
*
5) Töfraheimur mauranua,
eftir Bronson, en Guðrún Guðmundsdóttir Finnboga-
sonar hefir þýtt. Falleg bók með fjölda mynda.
6) Spænsk málfrseði,
eftir Þórhall Þirgilsson.
7) Skrifbókl,
fyrir barnaskóla og heimakennslu, eftir Guðmund I.
Guðjónsson, kennara við Barnaskóla Reykjavíkur, og
SKRIFBÓK II, eftir sama.
8) Veguriim, ,
námskver í kristnum fræðum til undirbúnings ferm-
ingar, eftir séra Jakob Jónsson prest í Hallgrímssókn.
Bókaverzlun
Isafoldarprentsmíðju
Höium iyrirlíggjandí beztu tegund
af Grapefruit Juíce (ávaxtasafi).
Þórður Sveinsson & Co. h.i.
Sími 3701
Orðiending
til iimheimtumnima Timans.
Þar sem nú er alllangt liðið frá gjalddaga Tímans (1.
júlí), þá eru þeir innheimtumenn blaðsins, sem ekki
hafa ennþá sent skilagreinar, vinsamlega beðnir að
gera það hið allra fyrsta.
Inuheimta Tlmans.
Unglínga vantar
til að bera Timaim-út til áskrifencla í Austur-
bænum, frá 1. scpt. n. k. Talið við afgreiðsl-
una, Lindargötu 9 a. Sími 2323.
♦ JÚ T B r'eIðYd't I M ANN +■