Tíminn - 30.09.1944, Side 2
366
TÍMIM, laiigardagiim 30. sept. 1944
92. hlát?
ver ætlar að skerast úr leik?
Ræða Sveinbj. Högnasonar í útvarpsumræðunum frá Alþíngí 28. þ. m.
Laugardaffur 30. sept.
Samstarfi firam-
leiðendanna
Fáir atburcjir hafa vakið meiri
athygli en það, sem nú hefir
gerzt í verðlagsmálunum. Hvar-
vetna tala menn um þá víðsýni,
sem einkennir tillögur trúnað-
armanna bændastéttarinnar í
málinu.
fÞað«stendur ljóst fyrir flest-
um hugsandi mönnum, hver af-
leiðing þess hefði orðið, ef
bændur hefðu nú á úrslitastund
teklð á málinu af jafnmikilli
þröngsýni og flestir aðrir hafa
gert.
Niðurborgunarleiðin var lok-
uð, ef bændur kröfðust verð-
hækkunar nú, og útflutnings-
uppbætur einnig ófáanlegar.
Hlutfallsleg kauphækkun var
ekki fáanleg með samningum
né löggjöf.
Hér var því um tvennt að
velja: Hækkun dýrtíðarinnar
eða stöðvun hennar á þann
hátt, að bændur tækju foryst-
una, án tillits til þess hvað aðr-
ir ætluðu sér.
Bændur hafa jafnan verið í
hópi þeirra, sem barizt hafa
gegn verðbólgunni og gegn því,
a,ð framleiðslukostnaður í land-
inu hækkaði svo, að útflutning-
ur hlyti að stöðvast. '
Þeir hafa reynst þessari stefnu
sinni trúir, þegar mest á reyndi.
Þeir hafa neitað að hlíta ráð-
um þeirra manna, sem kröfðust
þess af þeim, að þeir tækju upp
vinnubrögð að hætti kommún-
ista.
Það einkennir marga íslenzka
bændur, að þeir líta á mál, sern^
snerta þá sjálfa, frá hærri sjón-
arhól en flestir aðrir.
Þeir hafa ekki tamið sér þær
stárfsaðferðir að einblína á
stundarhag sinn, en loka aug-
unum fyrir því, hvað þjóðinni
er fyrir beztu og sjálfum þeim,
þegar lengra er horft. Þess
vegna hafa þeir jafnan gert sér
far um að velja þær úrlausnir
í sínum eigin málum, sem bezt
hafa samræmzt almannahag.
Þeir æsingamenn, sem ráðist
hafa á trúnaðarmenn bænda-
stéttarinnar fyrir að hafa sýnt
þjóðhollustu við meðferð dýrtíð-
armálsins, hafa ekki getað sýnt
fram á það með votti af rökum,
að hag bændanna sjálfra hefði
verið betur borgið, þótt- þeir
hpfðu tekið þann kostínn að
halda dauðahaldi í fyllstu verð-
kröfur og þar með sleppt lausri
dýrtíðinni, en engar líkur haft
fyrir því, að þetta verð fengist
nokkurntíma heim fyrir þær af-
urðir, sem senda þurfti á er-
lendan markað.
Fyrir árásum á trúnaðarmenn
bænda standa þeir nú fyrst og
fremst Egill Thorarensen í Sig-
túnúm og Jónas Jónsson.
Þessir menn hafa talað mikið
undanfarið um samstarf fram-
leiðendanna í landinu og nauð-
syn þess, að það samstarf
byggðist fyrst og fremst á þvi
að halda niðri framleiðslukostn-
aðinum og koma í veg fyrir
hrun krónunnar.
Piltur einn hefir verið sendur
víðsvegar um landið, til þess að
tala illa um trúnaðarmenn Fram
sóknarflokksins og gera um leið
tilraun, til þess að safna pening-
um til stofnunar nýs blaðs, sem
sagt er að eigi að vera málgagn
framleiðenda, ekki sízt við sjó-
inn.
Lítið hefir orðið ágengt í
þessu, en vel hefir sézt hvert
stefnt er nú þessa dagana og
er ekki illa af stað farið um
samstarf ið!
Engin atvinnugrein á jafn
mikið í húfi um stöðvun dýrtíð-
arinnar og sjávarútvegurinn.
Hvergi mælist framkoma Bún-
aðarþings og Alþingis í þessum
málum jafn vel fyrir og meðal
útvegsmanna og fiskimanna.
Þeim er vel ljóst hvað í húfi var,
ef farið hefði verið eftir tillög-
um þeirra, sem nú ráðast á af-
stöðu Búnaðarþings til verðlags
og dýrtíðarmálanna. Útgerðin
hefði verið stöðvuð nú þegar á
þessu h'austi, án þess að bændur
hefðu haft nokkurn ávinning.
Það er gott, að sjávarútvegs-
Baráttan við. dýrtíðina hér á
landi er orðin jafnlöng og styrj-
öld sú, sem nú stendur, og aðrar
þjóðir heyja umhverfis okkur
gegn frelsisráni, kúgun og tor-
tímingu. Sífelldar sigurfregnir
hafa verið að berast undanfarið,
sem boðað hafa hinum undirok-
uðu að lausnarstundin sé komin
eða sé í nánd.
En af baráttu okkar við ægi-
legasta skemmdarafl styrjald-
aráranna hér á landi, dýrtíðina
og verðbólguna, sem stríðið hefir
í för með sér, hafa fáar sigur-
fregnir borizt til þessa.Eigum.vér
þar þó að mestu við sjálfa oss
að eiga. Dýrtíðin hefir tútnað út
ár frá ári, þrátt fyrír miljónir,
sem henni hafa verið fórnaðar,
þrátt fyrir stór orð og sterkar
ályktanir, þrátt fyrir alla samn-
inga, blíðmælgi og kjass.
Sumir hafa jafnvel litið til
hennar hýru auga, að hún flytti
fríðindi og fleiri og fleiri krón-
ur með sér, og aðrir hafa mælt
henni bót þegar verst gegndi til”
að geta komið fram annarleg-
um áformum um völd eða að-
stöðu, líkt og Sæmundur á seln-
um forðum, og er varla tími til
að rekja þá raunasögu hér að
þessu sinni, þó að full ástæða
væri til þess. En það gefst sjálf-
sagt tækifæri til að gera það
síðar.
Nú mun þó vera svo komið, að
öllum hugsandi mönnum er far-
ið að skiljast, að lengra verður
ekki áfram haldið, ef varanlegt
tjón á ,ekki af að hljótast fyrir
allar stéttir og þjóðina í heild.
Gælur, athafnaleysi og gróða-
von er hér ekki lengur um að
ræða, fyrir neinn einstakling eða
stétt, heldur tap og tjón og
smán fyrir alla því lengra, sem
haldið er á þessari braut. Fram-
undan blasir ekki annað, ef ekk'-
ert er aðgert, en að þjóð vor bíði
fullnaðarósigur um lausn síns
fyrsta alvarlega innanlandsmáls,
eftir að hún er alfrjáls orðin,
og stefnt beint i fjárhagslegt og
atvinnulegt hrun, samhliða því
sem aðrar þjóðir fagna frelsi og
sigri í þeirri ægilegu eldraun,
sem yfir þær hafa gengið. Það er
ekki leiðinleg byrjun fyrir hið
unga lýðveldi.
Verður gróðiim
gerðnr verðlaus?
Þjóðinni hefir borizt mikill
auður í hendur, á fáum árum,
meðan öðrum hefir blætt, svo að
nú er hún auðugrÞaf veraldar-
auð en nokkru sinni fyr, í sögu
sinni. Og þó verður að sfegja það
eins og er, .að hún er nú senni-
lega nær fjárhagslegu og at-
vinnulegu hruni, ef dýrtíðin
væri látin hafa sinn gang, held-
ur en á mestu kreppu- og skulda-
árunum, sem yfir hana gengu og
mörgum hefir orðið tíðrætt um.
Nokkur hundruð miljóna, sem
nú er í erlendum innstæðum,
verða fljótar að hverfa. Þær
hverfa fljótar en þær komu, éf
þjóðin ætiar að treysta á þær
sér til framfæris í stað atvinnu-
menn og bændur landsins fá nú
að sjá, fyrir sérstaka rás við-
burðanna, hvers af þeirri starf-
semi er að vænta, sem látið er
i veðri vaka, að eigi að vinna,
að sameiginlegum málum fram-
leiðenda.
Það er ekki sá andi, sém sveif
yfir æsingafundinum á Selfossi,
sem verður undirstaða meira
samstarfs og nánara skilnings
en rikt hefir á milli landbænda
og sjávarbænda.
Það verður aftur á móti sá
hugsunarháttur, sem réði af-
greiðslu mála á Búnaðarþingi,
sem verður grundvöllur að nýju
samstarfi þessara stétta.
Það verður að vera andi sam-
vinnunnar, en ekki ofstækið
blint, sem mótar þá starfshætti,
ef samstarfið á að takast og
verða tíl góðs.
Það var gott, að í ljós komu
þegar 1 öndverðu óheilindi
þeirra, sem nú tala fegurst um
samstarf framleiðendanna.
E. J.
lífs sins og framleiðslu. Ef oss
tekst því ekki að tryggja gang
og afkomu atvinnuveganna,
þannig að vér verður samkeppn-
isfærir við þær þjóðir, sem brátt
taka að sinna sömu störfum og
vér, og keppa um sömu markaði,
eftir að vopnin eru kvödd, þá
verða örlög næstu árin lík
og örkumla manns, sem að vísu
á innstæður nokkrar, en hefir
misst starfsorku sína til að sjá
sér og sínum farborða.
Það er engin þörf að lýsa því
máli, sem dýrtíðin óheft talar
til allra nú, sem vilja heyra. Það
hafa aðrir gert nægilega skýrt
hér á undan mér í kvöld og áð-
ur. Það nægir að benda á það,
að enginn mun vilja taka á sig
ábyrgðina lengur að láta dýrtíð-
ina lausa nú. Jafnvel þeir, sem
áður hafa gert gælur við hana,
og þeir, sem jafnvel óska full-
komins hruns og upplausnar í
fjárhags- og atvinnulífi þjóðar-
innar, af einhverj um annarleg-
um ástæðum, munu vart viljá
vera lengur við hækkun dýrtíð-
arinnar kenndir. Og víst er um
það, að enginn mun vera fáan-
legur lengur til að sitja eða setj-
ast í ráðherrastólana til að
stjórna út í hið fyrirsjáanlega
hrun fjármála- og atvinnulífs-
ins, ef ekkert er að. gert. Þetta
eitt ætti að vera nægileg bend-
ing þeim, sem máske vilja enn
ekki sjá.
Þá er hagur ríkissjóðs þannig,
eins og bent hefir verið á, að
hann verður að skera stórum
niður állar verklegar fram-
kvæmdir og fella alveg niður all-
ar dýrtíðargreiðslur, ef hann á
að standast útgjöld sín, þau, er
nú eru, miðað við að greiða vísi-
töluna 250, en hún er þegar 272
eins og kunnugt er.- Það er því
valt, svo að ekki sé meira sagt,
að tala um mikilvægar trygging-
ar hjá slíkum sjóði fyrir at-
vinnuvegina, þótt einhverjar
samþykktir fengjust um framlög
þaðan, ef stórauknar tekjur fást
ekki um leið og trygging fyrir
því að framlög fáist og örugg
framkvæmd til að halda vísi-
tölunni niðri. Ella munu öll
framlög, hversu há, sem þau
væru til atvinnuveganna, verða
blekking ein og verra en það.
Blekking liiima
liáu talna.
Ég sé t. d. ekki hvaða gagn
bændum er í dálítið hækkuðu
afurðaverði, ef vísitala fram-
færslukostnaðar eykst margfalt
meira en því nemur meðan það
hækkaða verðlag er í gildi. Ég
fæ heldur ekki séð hvert gagn
verkamanninum eða launa-
manninum er í því, að fá hækk-
að kaup, ef hækkun þess og vísi-
tölunnar veldur því, að atvinna
þei^ra rýrnar stórum og at-
vinnuöryggi allt, og þeir verða
fleiri og fleiri að fara að ganga
auðum höndum. Og ég fæ heldur
ekki séð hvert gagn gróðamann-
inum er í því að safna fleiri
krónum, éf gildi þeirra minnkar
í hlutfalli við fjölgunina, eða
meira en það. Öll slík vinnu-
brögð og ráðstafanir til þeirra
er hrein Kleppsvinna,-og engum
hægt að telja trú um að sé á
neinu viti byggt, nema þeim ein-
um, sem stríðsgróðinn og hin
mikla velta stríðsáranna hefir
gert staurblinda fyrir öllu öðru
en hækkandi tölum. En afleið-
ing hinna hækkandi talna er
eyðing þeirra verðmæta, sem
fengin eru og leiðir fyr eða síð-
ar til fullkomins hruns.
Hér vprður því að stinga fót-
um við, og ég hygg að allir séu
sammála um, að komin sé ell-
efta stund til að gera það. Þing-
ið er áfellt leynt og Ijóst fyrir
að geta ekki myndað ríkisstjórn
og leyst allan vanda þegar í stað.
En sannleikurinn er sá, að allar
ráðstafanir, sem það hefir reynt
að gera, eða einhver hluti þess,
hafa verið affluttar og eyðilagð-
ar í framkvæmd af þeim sömu
mönnum, sem harðast dæmá.
Allir hafa heimtað áframhald
kapphlaupsins fyrir sig, verka-
menn hærri laun, framleiðendur
hærra verð og gróðamenn og
milliliðir meiri gróða og minni
hömlur og skatta. En nú er það
sannast mála, að hvert það þing
og hver sú ríkisstjórn, sem slík-
um kröfum vildi lengur þóknast
væri vítandi vits að leiða þjóð
sína á helleiðir.
Eiagiim getur tpyggt
lilut sinn, neuia liagur
hcildariimar sé
t>*yílgður fyrst.
Hér eiga aðallega þrjár hags-
munaheildir þjóðfélagsins hlut
að máli. Og allar hafa þær vilj-
að hafa sinn hlut sem mestan,
eins og mannlegt er. Það eru
framleiðendur til lands og sjáv-
ar, það eru verkamenn og laun-
þegar, og það eru eigna- og
gróðamenn. Kapphlaupinu um
stríðsgróðann er áreiðanlega að
verða lokið. Nú hefst kapphlaup-
ið. um það að tryggja það, sem
fengið er. Framleiðendur þurfa
að tryggja atvinnurekstur sinn,
verkamenn og launþegar þurfa
að tryggja atvinnu sína, og
eignamenn þurfa að tryggja
verðmæti sín. Og enginn getur
fengið þá tryggingn, sem hann
þarf, nema hagur þjóðarheild-
arinnar sé tryggður fyrst og
fremst. Ella eiga allir á hættu
að tapa öllu. Eðljlegíast væri að
framlög þessara aðila allra til
tryggingar sér og þjóðinni væru
að nokkru í hlutfalli við það,
hverjir eiga mest á hættu, ef
hrunadansinum er áfram
haldið til enda. Er þá ekki að
efa þaö, að fyrst kemur röðin
að þeim, sem peningana eða inn-
stæðurnar eiga. Fjárhagslegt
hrun eyðir þeim með öllu og á-
framhaldandi vísitöluhækkun
lækkar fyrst kaupmátt þeirra.
Nægir þar að benda tih’hversu
farið hefir um innstæður þeirra,
sem áttu þær áður en kapp-
hlaupið hófst. Vinna verka-
mannsins og framleiðslutæki og
bústofn atvinnurekandans mun
hins vegar jafnan verða nokkurs
virði, einnig eftir að hrun væri
gengið yfir.
Þó að þessu sé þannig farið,
hafa þó hér sem oftast hinir
síðustu orðið fyrstir. Bændur
landsins' hafa hvað eftir annað
boðið fram hlutfallslega lækk-
un. Og þegar því hefir ekki
veríð sinnt, heldur dýrtíðarald-
an verið notuð beinlínis til að
níðast á þeim og rétti þeirra, þá
bjóðast þeir nú til að ganga í
fremstu víglínu og færa fyrstu
fórnirnar, til þess að íslenzka
þjóðin geti umflúið hinn van-,
sæmandi ósigur fyrir sjálfri sér,
í dansi kring um gullkálfinn, þar
sem hún mun ranka við sér á
eyöimörku hérumbil samtímis
því, sem aðrar þjóðir umhverfis
hana rísa til frelsis og endur-
reisnar, er martröð harðstjórn-
ar og herriaðar er af þeim létt.
Annap merkasti
atburður ársins.
Frumvarp þetta, sem hér ligg-
ur nú fyrir, er máske annar
merkilegasti viðburðurinn í lög-
gjöf þessa árs, og mun vissulega
verða talið það, ef það verkar
eins og til er ætlast af þeim, sem
mest hafa að því unniö. Öllum
var ljóst, að stofnun lýðveldis
á Þingvöllum 17. júní s.l. væri
nafnið eitt, ef þjóðiri ætti ekki
þegnskap, þjóöhollustu og mann
dóm til að færa þær fórnir, sem
þörfin krefur, þegar sameigin-
leg hætta steðjar að. Vér erum
að vísu bardagafúsir, íslending,
ar, eins og forfeður vorir, og er
það ekki nema gott, þegar við á
og við viljum útrýma órétti og
jafna sakir okkar á milli. En
við ættum líka að hafa lært
bað af forfeðrunum, að það er
háskalegt, að geta ekki snúizt
sameiginlega til varnar, látið
deilur og óuppgerðar sakir hvíla
í bili, ef þjóðin öll er í hættu,
jafnt fátækir og ríkir, þeir, sem
góða hafa aðstöðri og illa.
Ég fagna því að frumvarp
þetta er fram komið sem fyrsta
sáttatilraun í deilu þeirri, er yfir
stendur, og ég fagna því, að þeir
urðu fyrstir, sem ég tel mig full-
trúa fyrir, þó að þeim hafi ekki
borið skylda til öðrum fremur.
Menn mega kalla það búhygg-
indi af bændum að afsala sér
stundarhag til að tryggja sjálfa
sig og þjóðina alla gegn bráðum
voða. Það álíta líka sjálfsagt
margir bændur að svo sé. En
eru það þá ekki líka búhyggindi
af launþegum og verkamönnum,
eignamönnum og gróðamönnum,
að gera slíkt hið sama og feta
í fótspor bændanna í þessum
efnum. Og víst er um það, að
fyrir þjóðina alla eru það bú-
hyggindi hin mestu. Og ef aðrir
halda að þetta sé ávinningur
fyrir bændur, því vilja þeir þá
ekki einnig taka slíkán ávinn-
ing sér til handa, gleyma ein-
hverju af stundarhagsmunun-
um og horfa lengra fram í tím-
ann en til næsta dags.
Því er Éreyst, að aðrir
konti á cftir.
Það, sem gert er með þessu
frumvarpi, er gert í því örugga
trausti að aðrir komi á eftir í
slóðina. Verkamenn og launþeg-
ar, slái af kröfum sínum í bili,
stöðvi stríðið og snúist á sveif
með þeim öflum, sem vilja vinna
að því, að styrkja- og efla at-
vinnuvegi okkar til samkeppn-
innar út á við, sem nú er á næsta
leiti. Og það er einnig gert í
þeirri von, að þeir, 'sem fjár-
munina eiga mesta, vilji leggja
fram það fé, sem með þarf, til
að snúa við straumi dýrtíðar-
ínnar þannig, að stefnubreyt-
ingin þurfi ekki að mæða of
þungt á hinum aðilum tveim,
vegna of snöggra umskipta og
óþæginda, sem þar af leiðir.
Það er ætlast til þess af þeim,
sem að þessu standa, að fjár-
framlög fáist. til að tryggja hag
og skuldbindingar ríkisins, og
það er ætlast til þess einnig, að
örugg framkvæmd þessara mála
verði tryggð með stuðningi Al-
þingis.-Ef einhverjar af þessum
vonum bregðast, sem þannig
fylgja frá fulltrúum bændanna,
kapphlaupinu haldið áfram af
hinum aðilunum, og hrun því
ekki umflúið, þá geta þeir, sem
mest hafa áfellst bændur hingað
til, snúið geiri sínum annan veg
og athugað sinn eigin hlut í því
sem á eftir kemur. Bændur
munu þá verða knúj^ir til að táka
þátt í þeim dansi til enda,' og
þeir munu þá bæði hafa laga-
legan og siðferðilegan rétt, og
það sterkari og meiri en nokkru
sinni fyrr.
Mesíia Inihy^gimliii.
Þáu átök, sem hér eru fram
urrdan, eru gerð til þess að bjarga
í bili þeim verðmætum, sem
styrjöldin hefir skolað hér á'
land, og það eru þau búhygg-
indi, sem brýnust og sjálfsögð-
ust eru nú. Þegar það hefir á-
unnizt og við stöndum jafnfætis
öðrum þjóðum í samkeppni um
markaði og viðskipti, þá verður
fram að fara það eðlilega eigna-
uppgjör, eignajöfnun og upp-
bygging nýs atvinnulífs og fram-
fara, sem nú vantar samhug og
samstarf til að framkvæma á
Alþingi. Við' verðum að tryggja
að þessi verðverðmæti verði ekki
að engu vegna áframhaldandi
verðbólgu, og ef það tekst, er
engin hætta á því, að þjóðin
vitkist ekki til að nota þau sér
til hagsældar, framfara og nýrr-
ar sóknar í menningar- og at-
hafnalífi sínu.
Með frumvarpi þessu hafa
bændur lagt fram sinn skerf, og
segja nú við hina, sem sameig-
inlega hagsmuni eiga með þeim
um að vel takist: „Eftir er enn
yðvarr hlutur“. #
Hvað gepa aðrar
síéttir?
Því spyrja menn nú: Hvað
gera affrar stéttir? Ætla t. d.
verkamenn að halda áfram
vinnustöðvunum og kröfum um
hækkað kaupgjald, jafnvel þeir,
sem hafa miklu hærri árstekjur
en sem nemur meðaltekjum
bændanna? T. d. þeir, sem nú
hafa gert verkfall við eitt fyrir-
tæki hér í bænum, en höfðu í
árstekjur s. 1. ár frá 16600 kr.
upp í yfir 27 þúsund kr. Telja
verkamenn að þetta muni reyn-
ast hollt, þjóðfélaginu í heild
og þeim sjálfum? Mun það leið-
in til að skapa atvinnuöryggi,
tryggja öllum vinnu og lífvæn-
lega afkomu? Hvað mundi fyrir-
tæki þeirra lengi geta veitt þeim
það, þegar taka þarf upp sam-
keppni við aðrar þjóðir á mörk-
uðunum?
Eða ætla verkamennirnir að
taka sömu stefnu og bændurnhy
slá af kröfunum, til þess að
tryggja heilbrigt og samkeppnis-
fært atvinnulíf, og þar með sína
eigin framtíð? Ætla þeir að við-
urkenna í orði og verki þá stað-
reynd, að til þess að unnt sé að
sjá öllum verkfærum mönnum
fyrir stöðugri vinnu, þurfa
verkalaunin að miðast við það,
hvað framleiðslustarfsemin gef-
ur af sér?
Enn fremur verður spurt:
Hversu fúsir verða fulltrúar
eigna- og gróðamanna til að
leggja fram og sætta sig við á-
lögur, sem með þarf til að.fram-
kvæma það, sem hér er gert ráð
fyrir, að afstýra frekari vexti
dýrtíðarinnar og standa undir
þeim niðurgreiðslum, sem til
þess þarf?
Þannig er spurt um land allt
— og menn bíða óþreyjufullir
eftir svörum.
En nú er ekki hægt að svara
með orðum einum, heldur verk-
um. Það verða menri að gera sér
ljóst. Þeir, sem hér eftir, meðan
þessi barátta ef háð til lokasig-
urs, gera ekki annað en að auka
kröfur sínar um fé og fríðindi;
eru í blindni leiddir af leiðtog-
um og forsvarsmönnum, sem
hafa allt annað í huga en aö
sigrast á þeim sameiginlega ó-
vin, sem nú er við dyr íslenzku
þjóðarinnar. Og þeir hafa illt í
huga, hversu fagurlega og frið-
vænlega sem þeir tala.
Viljinn til samvinnu' verður
frá þessum degi mældur eftir
því hvað menn sýna í verki við
að fórna, og slá af þrengstu
hagsmunakröfum sínum og fríð-
indum til að skapa grundvöll
fyrir heilbrigt atvinnu- og fjár-
hagslíf eftir iðuköst styrjaldar-
áranna og vímu stríðsgróðans.
Hér eftir verðum við að kepp-
ast við að færa þær fórnir, sem
þjóðin þarf, til að tryggja fjár-
hagslegt og atvinnulegt frelsi
sitt og sjálfstæði. Enn er tími til
þess, ef viljinn er fyrir hendi.
Hver ætlar aff skerast úr leik?
Frá Miðbæjarskólanum
Mámidagiu* 2. okt.:
Læknisskoffun. Kl. 8 f. h. 13 ára drengir; kl. 9 f. h. 13 ára
stúlkur; kl. 10 f. h. 12 ára stúlkur; kl. 11 f. h. 12 ára dreng-
ir; kl. 2 e. h. 11 ára drengir; kl. 3 e. h. 11 ára stúlkur.
Þpiðjudagur 3. okt.:
Börnin komi sem hér segir: Kl. 9 f. h. 13 ára deildir (þ.
e. börn fædd 1931); kl. 10 f. h. 12 ára deildir (f. 1932); kl.
11 f. h. 11 ára deildir (f. 1933). Kl. 2 e. h. börn, sem hefja
eiga nám í skólanumíhaust. Skulu þau hafa með sér próf-
einkunnir, ef til eru.
Skólastjórinn.