Tíminn - 30.09.1944, Blaðsíða 4
368
TlMlM, laugardagmn 30. sept. 1944
93. blalS
Innflutiiingssanibaiid
Ursmídafélag’s Islands
liefir iengið cinka-umboð á íslamli íyrir nokkrar hinar ágæt-
ustu svissnesku úraverksmiðjur, svo sem:
Omega, I.W.C., Cortébert,
Aster, Marvin
Þrátt fyrir ýmsa styrjaldarörðugleika hefir oss jafnan tekizt að hafa á boðstólum úrval
úra frá þessum verksmiðjum og höfum nýlega fengið sendingar af MARVIN- og AST9R
úrum. — Vegna sameiginlegra innkaupa er verðið stórum lægra en áður hefir þekkst. —
Félagar vorir eru þessir:
t Reykjavík: Árni B. Björnsson, Lækjartorgi.
Filippus Bjarnason, Laugaveg 55,
Halldór Sigurðsson, Laufásveg 47.
Haraldur Hagan, Austurstræti 3.
Jóhann Búason, Baldursgötu 8.
Jóhann Ármann Jónasson, Bankastræti 14.
.. Jón Hermannsson, Laugaveg 30.^
Magnús Ásmundsson & Co., Hverfisg. 64 A.
^ , Magnús Sigurjónsson, Laugaveg 18.
Sigurður Tómasson, Þingholtsstræti 4.
Sigurjón Jónsson, Laugaveg 43.
Sigurþór Jónsson, Hafnarstræti 4.
t Hafnarfirði:
Á Aknreyri:
Á fsafirði:
Á Sauðárkróki:
Einar Þórðarson, Strandgötu 37.
Kristján Halldórsson.
Stefán Thorarensen.
Skúli Kr. Eiríksson.
Þórður Jóhannsson.
J. F. Mickelsen.
Fagmennirni? ábyrgjasi
vandaða
voru.
TJARNARBÍÓ
KVETVHETJUR
(„Sd Proudly We Háil“)
Aðalhlutverkin leika:
CLAUDETTE COLBERT
PAULETTE GODDARD
VERONICA LAKE.
Sýnd kl. 6Y2 og 9.
ÞETTA ER HERINN.
(This is the Army).
George Murphy,
Joan Leslie,
Capt. Ronald Reagan.
Sýnd kl. 4.
-GAMLA BÍÓ-
KATHLEEN
Skemmtileg og hrífandi
mynd.
SHIRLEY TEMPLE
Laraine Day
Herbert Marshall.
Sýnd kl. 3,5, 7og 9.
►i ýja rló.
Ástir dans-
meyfarinuar
(„The Men in her Life“)
Aðalhlutv. leika:
LORETTA YOUNG,
CONRAD VEIDT,
DEAN JAGGER,
OTTO KRUGER.
Sýnd kl, 9
TÝNDA BRÉFIÐ
(„The Postman didn’t
Ring“).
Sýnd kl. 5 og 7.
' Raífækjaverzlun og vínnusfofa
VesÉurgötu 3. — Sími 3915.
Höfum nú fengið affur hína margeitírspurðu
FLUORESCEVT lampa
Við höfum selt Fluorescent lampa í tvö ár, og sett þá upp í ýmsar stærstu verzlanir,
verksmiðjur og skrifstofur 1 bænum, og hafa þeir hvarvetna reynst með ágætum, og tekið
fram öllu, sem fyrr hefir þekkst í lýsingu —
lijósið af „Fluorescent“ er
þægilegt, bjart, sparneytid.
*
Uainpi, sem eyðir 80 gefur 350—300 w. Ijós.
Þar sem við höfum þegar fengið talsverða reynslu í meðferð ög notkun „Fluorescent“
lampa, mun það vera okkur ánægja, að láta yður allar upplýsingar og aðstoð í té. — Þeir,
sem hafa pantað hjá okkur lampa, vinsamlegast talið við okkur sem fyrst.
Dáðir vorn drý^ðar
Iioif sr iiæsíst bókm - -
Frá Laugarnesskólanum
Öll börn, sem stunda eiga nám í Laugarnesskóla í vetur,
mæti í skólanum þriðjudaginn 3. október sem hér segir:
kl. 9, börn fædd 1931 og 1932 og eldri, ef einhver eru
kl. 10, börn fædd 1933 og 1934
kl. 11, börn fædd 1935 og 1936
kl. 14, börn fædd 1937 og önnur börn, sem voru í sjö ára
deildum s. 1. vor.
Kl. 15 mæti öll börn, sem stnda eiga nám í skólanum í
vetur en voru ekki í honum s. 1. vetur eða vor.
Öll nánari fyrirmæli fá börnin í skólanum þegar þau
mæta.
Ef einhver börn eru forfölluð að mæta á tilsettum tíma
verða aðstandendur að mæta fyrir.þau, eða gera lögmæta
grein fyrir fjarvist þeirra.
Sérstök athygli skal vakin á því, að börn, sem heima eiga
ofan Elliðaár og börn úr þeim hluta Mosfellssveitar, sem
er í umdæmi Reykjavíkur, eiga skólasókn í Laugarnesskóla.
I^ennarafundur verður mánudag 2. okt. kl. 14.
Laugarnesskóla, 27. sept. 1944.
Skólast j óriuii.
Félagsvinna með iulikomnustu tækjum..
(Framh. af 1. síðu)
sóknir verði gerðar, er
tryggja, að verkið verði unn-
ið á réttan hátt.
7. Að viðhald véla og verkfæra,
sem keypt eru samkv. ákvæð-
um frv., verður háð opinberu
eftirliti.
8. Að ráðstafanir eru gerðar til
að tryggja, að þeir einir fari
með vélarnar, sem til þess
~eru hæfir.
9. Að tryggt er, eftir því sem
verða má, að fé það, sem rík-
ið og félagsheildir leggja
fram til vélakaupanna, verði
ekki eyðslueyrir, heldur
stofnfé, er geri sveitunum
fært að endurnýja vélastofn- j
inn, jafnóðum og vélarnar
ganga úr sér.
Framkvæmdasjóði ríkisins er
ætlað það hlutverk að stuðla að
umbótum og nýbreytni í at-
vinnuháttum landsmanna. Hef-
ir nú þegar verið ákveðið að
verja úr sjóðnum 5 milj. kr. til
að styrkja menn til bátakaupa.
Eftir munu þá vera um 6 milj.
kr. í frv. þessu er lagt til, að
helmingur þessarar upphæðar,
3 milj. kr., gangi til styrktar
kaupum á nýtízku, vélknúnum
jarðvinnslutækjum, og er nauð-
syn landhúnaðarins í þessu efni
í alla staði sambærileg við þörf
sjávarútvegsins fyrir aukningu
, og endurbætur á skipastólnum."
Mýjar bækur:
r
A r n i
Skáldsaga eftir Björnstjerne Björnson. Þýðing Þorsteins Gísla-
sonar ritstjóra.
Þessi bók er ein af perlunum í norrænum bókmenntum.
Sagfnakver
Alþýðlegur fróðleikur í bundnu máli og óbundnu.
Snæbjörn Jónsson safnaði efninu.
. í sagnakverinu er þetta m. a.: Þættir um Símon Dalaskáld eftir
Guðmund Jósafatsson, Pál Guömundsson á Hjálmsstöðum, Jón
Pétursson frá Valadal og Magnús Jónsson prófessor; Katanes-
dýrið eftir Ólaf Þorsteinsson, Ljóffabréf eftir Sigurð Bjarnason
og Vatnsenda-Rósu; Ása Hrútafjarffarkross með athugasemdum
eftir síra Jón Guðpason; Dulrænar sögur eftir Bjarna Ásgeirs-
son alþm., Pál Sigurðsson lækni og síra Þorvald Jakobsson; Fjöl-
kvænismál Sigurðar Breiðfjörðs, draumsýnir og margt fleira.
íslenzkar þjóðsögur
Safnar hefir Einar Guffmundsson. III. hefti.
í heftinu er m. a.: Skiptapinn við Vestmannaeyjar 16. maí 1901,
Jón Daníelsson 1 Stóru-Vogum, Skiptapi fyrir Þorgeirsvörum,
Galdrahjónin frá Hofi á Skagaströnd. Séra Stefán á Kálfatjörn
og Nikólína, Veðmálaglíman á Eyrarbakka árið 1729, Meyjarnar
1 fossinum, Reimleikinn á Desjamýri, Sagan um risana fimm o.
m. fl., alls um 30 sögur.
Tarzan og Fílamennírnir
Eftirlætisbók allra stráka.
Ennfremur: Grimms ævintýri í 5 heftum: Tarzan sterki, Dæmi-
sögur Esóps, 2. hefti, Fuglinn fljúgandi eftir Kára Tryggvason
kennara, Mikki mús, Hans og Gréta, Rauðhetta, Öskubuska,
Þyrnirós, Búri bragðarefur, Tumi þumall, Leggur og skel eftir
Jónas Hallgrímsson, Blómálfabókin.
Þetta er vinsælustu og ódýrustu barnabækurnar. Fást í bóka-
verzlunum og hjá
H.f. Leiftnr
Tryggvagötu 38. Sími 5379.
Tílkynníng
Hér með tilkynnist hlutaðeigendum, að allar bifreiðir á verk-
stæðum vorum, hvort heldur þær eru til viðgerðar, yfirbygg-
ingar eða geymslu, eru óvátryggðar af oss gegn eldsvoða, og
því á ábyrgð eigenda.
Bergnr Hallgrímsson & Co. li.í.
Bifrciðavcrkstæði Gnðna & Sverris.
H.f. Rílasmiðjan.
H.f. EgilE Villijálmsson.
H.f. Ræsir.
H.f. Stilfir.
H.f. Öxull.
Hrafn Jónsson, Bílaverkstæði.
Jóh. Ólafsson & Co.
Kristinn Jónsson vagnasmiður.
P. Stefánsson.
Trc- og bílasmiðjan Vagninn.
Sveiim Egilsson.
Tryggvi Pctursson & Co. Rílasmiðja.
Vélsmiðjan Jötuiui h.f.
Þróttur h.f.
Bílaverkstæði Hafnarfjarðar h.f.
Bílaverkstíeði Skafta Egilssonar.
Slátnrtíðiii
er nú í fullum gangi hjá oss og seljum vér því fyrst um
sinn, eins og að undanförnu:
Kjöt í heilum kropum, slátur, mör, svið, lifur
og hjörtu.
Samkvæmt ákvörðun Alþingis og ríkisstjórnar, verð-
ur kjötverðið sama og síðastliðið ár, þ. e. kr. 6,00 pr. kgr.
1. verðflokks.
Reynt verður að senda heim til kaupenda ef þeir óska
eftir því, sem tök eru á, — þó ekki minna en 5 slátur
í senn. Mjög mundi það þó auðvelda afgreiðslu, að sem
flestir gætu náð í vörurnar sjálfir.
Sláturtíðinni verður lokið fyrir miðjan næsta mánuð.
SLÁTURFÉLAG {SUÐURLANDS
heildsalan.
Sími 1249 (3 línur) og 2349.